Ómaklegar árásir að Þorsteini Davíðssyni

Þorsteinn Davíðsson Um fátt hefur verið rætt meira í dag en skipan Þorsteins Davíðssonar sem héraðsdómara hér á Akureyri. Mér hefur fundist verst í þeirri umræðu að sjá ómaklegar árásir að Þorsteini sjálfum. Hann sótti einfaldlega um lausa stöðu og fékk. Það hefur eflaust verið þungur kross að bera að vera sonur Davíðs Oddssonar og þurfa að klífa framastiga í lífinu. Enda sýnist mér margir dæma Þorstein einfaldlega eftir því að hann sé sonur Davíðs.

Meðal þess sem gripið var til að vega að Þorsteini í umfjöllun fjölmiðla var að Pétur Kr. Hafstein, fyrrum forseti Hæstaréttar, hefði leitt matsnefnd um hæfi umsækjenda, en eins og flestir vita var Þorsteinn starfsmaður hjá Pétri í forsetakosningunum sumarið 1996. Sá punktur hefði kannski verið skiljanlegur hefði Pétur beitt sér fyrir Þorsteini í nefndinni eða hún komist að þeirri niðurstöðu að Þorsteinn væri hæfasti umsækjandinn. Varð ég ekki var við annað en að undir kvöld væri Pétur Hafstein aðspurður að lýsa yfir undrun á niðurstöðunni með þeim orðum að ekkert fordæmi fyrir því að gengið væri á svig við niðurstöðu nefndarinnar.

Það er ráðherra sem skipar dómara við héraðsdóma um allt land og Hæstarétt. Hann er í engu bundinn af niðurstöðu matsnefndar eða sitjandi dómara við Hæstarétt, sem fella dóm um hæfi umsækjenda. Persónulega hefur mér alltaf fundist óeðlilegt að sitjandi dómarar við Hæstarétt felli úrskurð þar um og hef talið matsnefndina hæfari til þess. Þætti mér eðlilegast að hún úrskurðaði einfaldlega um tvennt; hvort umsækjandinn sé hæfur eða óhæfur til verksins. Það á í raun ekkert annað að skipta máli. Í þessum efnum getur hæfnisröð myndast og það hefur valdið ólgu áður, oftast nær í Hæstarétti.

Ég hef fulla trú á því að Þorsteinn Davíðsson verði góður dómari hér við Héraðsdóm Norðurlands eystra. Hann verður dæmdur af verkum sínum eins og aðrir er yfir lýkur. Verst er að hann skuli dæmdur af því einu að vera sonur umdeilds stjórnmálamanns; Davíðs Oddssonar, fyrrum forsætisráðherra og borgarstjóra.

mbl.is Gagnrýna skipun í dómaraembætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir L Fjeldsted

Ég tel Þorstein Davíðsson ákaflega vandaðan mann og vel að stöðunni kominn.

Þjóðarrembingur, persónuníð og orðhengilsháttur eru í essinu sínu þegar sonur Davíðs á í hlut og Þorsteinn ekki metinn á eigin verðleikum.

Heimir L Fjeldsted, 21.12.2007 kl. 20:21

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Stebbi þú skilur þetta ekki alveg. Það er er enginn að vega að Þorsteini. Það er verið að gagnrýna að ekki er farið að áliti sérfróðrar matsnefndar. Dýralæknir úr Hafnarfirði þykist hafa meira vit á þessu en lögfróðir einstaklingar..hæfastir í að meta hæfi manna. Auðvitað hefur fjármálaráðherra ekkert vit á því hvað hann er að gera...hann er bara að hlýða fyrirmælum.

Það er þungur kross fyrir Þorstein að vita að hann er valinn á öðrum forsendum en hæfi...það er leitt og skítháttur gagnvart þeim sem taldir eru hæfari enda hyggjast þeir leita réttar síns. Þetta er pólitísk fyrirgreiðsla og Sjálfstæðisflokknum til lítils sóma

Jón Ingi Cæsarsson, 21.12.2007 kl. 20:22

3 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Þakka kommentin.

Thor: Það hefur verið vikið að því að Þorsteinn sé sonur Davíðs Oddssonar og það hefur ráðið skrifum margra. Hef séð skrif í dag þar sem talað er um þessi tengsl sem ráðandi. Eðlilega á að beina gremju í þessu máli eingöngu til ráðherrans.

Heimir: Sammála þessu.

Jón Ingi: Það hafa víst verið skrif á netinu og verið talað um það að Þorsteinn sé sonur Davíðs og það hafi ráðið úrslitum. Með því er fólk farið að dæma Þorstein eftir faðerni sínu. Annars mátti búast við að þetta yrði umdeilt.

Þorsteinn hefur áður sótt um svona embætti en ekki fengið og áður en skipað hafði verið í þá stöðu var talað fyrst og fremst um að sonur Davíðs væri þar umsækjandi.

Það eru stór orð að settur ráðherra hafi farið að fyrirmælum. Ráðherrans er skipunarvaldið. Það getur enginn dregið það í efa. Séu umsækjendur ósáttir geta þeir farið lengra með sitt mál.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 21.12.2007 kl. 20:32

4 identicon

Sælir

Já, ég held að enginn sé að vega neitt sérstaklega að Þorsteini sjálfum. Hins vegar á gagnrýni á settan dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins alveg rétt á sér. Hann einfaldlega valdi ekki hæfasta einsktaklingin til starfsins, sem venjan er. Það liggur bara fyrir. Svo þegar Árni var inntur eftir rökstuðningi fyrir ákvörðun sinni, þá var skýringin lítil sem engin. Ég verð að taka undir orð vinar míns, Jóns Inga. Þetta er ekki Sjálfstæðisflokknum til sóma.

mbk.

Ólafur Sveinn Haraldsson (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 21:14

5 Smámynd: Ari Guðmar Hallgrímsson

Ég þekki Þorstein ekkert og legg engan dóm á hann eða hans verk,þótt hann sé sonur Davíðs Oddsonar,á það í raun ekki að koma málinu við.

Um dómgreind og hæfi dýralæknisins í þessu máli leyfi ég mér að efast,hann á það mörg axarsköft að baki,hann er ósammála hæfnisumsögnunum,og leggur stein í götu Þorsteins, að mínu mati,með því að telja að hann hafi hlotið svo mikla reynslu hjá Birni Bjarnasyni,sem hefur alla tíð verið mjög umdeildur maður og ekki altaf að ósekju,spurning hversu góður uppalandi hann er í þessum efnum.

Það fjandi mikill pólitískur þefur af þessu.

Ari Guðmar Hallgrímsson, 21.12.2007 kl. 21:20

6 Smámynd: Sindri Kristjánsson

Hæfasti umsækjandinn var ekki ráðinn. Þannig er það bara.

Sindri Kristjánsson, 21.12.2007 kl. 21:21

7 Smámynd: Kristján Pétursson

Það kemur mér á óvart Stafán,að þú skulir gerast málssvari því ranglæti,sem viðhaft var við þessa embættisveitingu.Þeir þrír,sem valdir höfðu verið hæfastir er gengið fram hjá.Við megum aldrei vera svo blindaðir af pólutík eða persónulegum ástæðum, að við réttlætum svona gjörning.Mér hefur alltaf funndist þú vera sanngjarn og heiðarlegur í þínum málflutningi og lesið þitt blogg oftar en nokkurs annars,en nú skaustu langt yfir markið og það þykir mér miður.

Kristján Pétursson, 21.12.2007 kl. 21:33

8 Smámynd: Å s d ì s   Sig

Er nú ekki frekar hallærislegt að vísa alltaf til þess að Árni sé dýralæknir, hann er ráðherra og hefur margt annað til brunns að bera heldur en að lækna veik dýr og sá sem er góður við málleysingjana getur bara ekki verið alslæmur.  Gleðileg jól.   

3D Santa 

Å s d ì s Sig, 21.12.2007 kl. 22:06

9 identicon

Hversu margir skyldu hafa kynnt sér niðurstöðu nefndarinnar og hvað það sé sem ráðherra telur að hafi vantað upp á í umsögn hennar um umsækjandan? Það er mögulegt að ekki hafi verið tekið nægilega mikið tillit, að mati ráðherrans, til reynslu og starfa þess sem stöðuna hlaut. Það er ekki gott að segja án þess að þekkja fyllilega til þess hvað menn höfðu sem forsendur í málinu. Fjármálaráðherra segist ekki sammála niðurstöðu nefndarinnar, og leggur augljóslega annan skilning í hvernig meta eigi þekkingu og reynslu umsækjendanna. Þá er þess að geta að ráðherran er kjörinn sem fulltrúi þjóðarinnar til að taka ákvarðanir sem þessar, og ber því miklu meiri vigt en embættismenn. Þannig á líka kerfið að virka og ég er sammála þér Stefán í því að auðvitað eiga aðrir dómarar við hæstarétt ekkert með það að skipta sér að því hver sest við hlið þeirra í réttinum. Stjórnmálamönnum ber í raun skylda að velja þangað menn sem þeir treysta. Hið sama á við hér, enda hafa alltof margir dómarar tekið sér nokkurskonar löggjafavald.

Sigmundur (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 22:49

10 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Heldur þú Stefán að ég , dóttir innflytjenda og 4 - 5 í röð hæfustu af matsnefnd, væri ráðin???...ef svo tek ég undir með að það sé Þorsteini ekki til pumpu að vera sonur Davíðs!...ekki spurning!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.12.2007 kl. 23:02

11 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég vil líka taka fram að ég efast EKKI um að Þorsteinn Davíðsson er góður drengur...alls ekki!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.12.2007 kl. 23:04

12 identicon

Þetta er botnlaus vitleysa.  Svona nefndir eiga aðeins að veita umsögn.  Þær halda alltaf að þær eigi að ráða í stöðurnar sem um ræðir og nefndarmenn verða yfir sig móðgaðir.  Það fer best á því að ráðherrar séu ekki handbendi embættismanna, heldur hagi þeir störfum sínum að vilja Alþingis eins og verið hefur.

Hvernig yrði það ef sérfræðinganefndir gerðu þetta alfarið?  Hver er þá nægilega viti borinn til að velja nefndarmennina í þá nefnd?  Kanski önnur hæfisnefnd og hver skipar hana?  Kanski Hæstiréttur, en mér hefur einmitt skilist að ýmsir á þeim bæ vilji helst skipa sína eftirmenn sjálfir.

Nei, svona held ég að sé best að þetta sé.  Þessi aðferð er kanski slæm, en hin er óskapnaður.

Elvar Eyvindsson (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 23:33

13 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Mér þætti afar vænt um að fá svar við minni spurningu...enda búin að mennta mig, bæði á Íslandi og á Norðurlöndum, eins og margir aðrir Íslendingar, svo ég tali nú ekki um reynsluna...en mitt líf sannar meira og minna þitt mál! Hversu flott sem það er?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.12.2007 kl. 23:44

14 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þorsteinn er prúður og vandaður maður í alla staði, hann mun örugglega reynast vel í þessu vandasama starfi.

Sigurður Þórðarson, 21.12.2007 kl. 23:55

15 Smámynd: haraldurhar

     Stefán þetta er eitthvert aumasta blogg þitt sem ég hef augum litið. Skipan Þorsteins í embætti dómara af Árna auðsveipa Mattíassyni, er bara enn ein staðfestina á hversu spillt stjórnkerfi við búum við, og óþoskaðir í allri stjórnsýslu, og er kallað bananalíðveldi.

    Þorsteinn er ungur maður og sjálfsagt til margra hluta nytsamlegur, og er það aumast fyrir hann að hljóta þessa skipun á pólitískum forsendum.   Mitt mat er það að við skipun dómara eigi þeir að hafa sem víðtækasta reynslu og þá ekki bara af opinberum störfum, heldur hafa stundað allmenn lögfræðistörf, og ekki einungis unnið hjá ríkinu.

   Það er alvarlegur hlutur að skipa dómara mann sem hefur afar þröngan sjóndeildarhring, og  reynslulausan í allmennu atvinnulífi.

Stefán þig setti stórlega niður við þessi greinarskrif.

haraldurhar, 22.12.2007 kl. 00:18

16 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

vil líka taka fram að Þorsteinn Davíðsson á ekki, aldrei að GJALDA ÞESS að vera sonur föður síns...frekar en ég að vera dóttir föður míns

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 22.12.2007 kl. 00:27

17 Smámynd: Árni Gunnarsson

Alltaf þykja mér þær jafn niðurlægjandi þessar pólitísku trúarjátningar.

Líklega venst ég þeim aldrei.

En af hverju leggja sjálfstæðismenn ekki niður þessar ráðgjafarnefndir?

Varla getur það nú verið ánægjulegt að láta þjóðina hlægja endalaust að ráðningu embættismanna sem fá lægstu einkunnina. 

Árni Gunnarsson, 22.12.2007 kl. 00:34

18 Smámynd: Steinar Örn

Það voru væntanlega líka ómaklegar árásir að gagnrýna skipun Ólafs Barkar og Jóns Steinars sem hæstarættardómara?

Auðvitað vita allir hvernig þessum málum er háttað og bara kjánalegt að halda því fram að sá "hæfasti" sé ráðinn.

Ég held að fólki sé farið að finnast í auknari mæli að dómarastöður eigi ekki að vera veittar út frá fjölskyldu- og vinatengslum. Nóg er um bitlinga annars staðar.

Steinar Örn, 22.12.2007 kl. 01:39

19 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Hver er Óafur Barkar?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 22.12.2007 kl. 02:25

20 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Ég vil þakka öllum kommentin hér.

Ég ætla ekki að gera lítið úr þeim sem fengu ekki þessa stöðu og voru augljóslega vel hæfir. Þeir geta farið með sitt mál lengra og eiga að gera það telja þeir á sér brotið. Eftir stendur að margir dæma Þorstein eftir faðerni sínu. Það þarf ekkert að draga úr því, það blasir við. Það var lykilgagnrýnin frá mér. Svo er algjör fjarstæða að ég sé að tala niður til matsnefndarinnar. Þvert á móti hef ég verið að tala fyrir því að þessi matsnefnd fari yfir hæfi þeirra sem sækja um Hæstarétt líka, en sitjandi dómarar geri það ekki. Ætla ekkert að draga úr því að þetta er umdeild skipan og það er ráðherrans að verja hana. Hann hlýtur að koma með sinn rökstuðning, enda ljóst að eftir honum verður óskað.

mbk. 

Stefán Friðrik Stefánsson, 22.12.2007 kl. 02:31

21 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk Anna fyrir þitt komment. Mér finnst það ekki viðeigandi að þeir sem eru innflytjendur hér séu metnir síður en aðrir. Innflytjendur eiga að hafa sömu tækifæri í þessu landi eins og aðrir.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 22.12.2007 kl. 02:32

22 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Ólafur Börkur Þorvaldsson er frændi Davíðs Oddssonar. Hann var skipaður í Hæstarétt af Birni Bjarnasyni sumarið 2003. Ólafur Börkur og Davíð eru systkinabörn; pabbi Ólafs og mamma Davíðs voru systkini.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 22.12.2007 kl. 02:33

23 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Takk fyrir þetta Stefán Friðrik og GLEÐILEG JÓL

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 22.12.2007 kl. 10:29

24 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Og ekki gleyma...Ólafur Börkur var talinn lakastur umsækjanda af matsnefnd

Jón Ingi Cæsarsson, 22.12.2007 kl. 11:49

25 Smámynd: Árni Gunnarsson

Og til að forðast allan misskilning vegna minna athugasemda:

Ég hef enga ástæðu til að efast um að Þorsteinn Davíðsson sé góður og heiðarlegur piltur og muni standa sig með sóma í þessu starfi.

Málið snýst einfaldlega ekki um það.

Árni Gunnarsson, 22.12.2007 kl. 16:11

26 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Það er ekki bara venja að ráða hæfasta einstaklinginn. Það er skylda skv. lögum. Ég skil ekki í nokkrum manni að verja það að ekki sé ráðinn hæfasti einstaklingurinn í jafn mikilvægt embætti og embætti dómara. Þá skiptir engu máli hversu góður drengur sá er, sem ekki var talinn jafn hæfur og hinir, eða hver faðir hans er. Hann var einfaldlega ekki hæfastur og ætti að afþakka stöðuna.

Svala Jónsdóttir, 22.12.2007 kl. 21:55

27 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Halló allir....ég held satt að segja að Þorsteinn afþakki þessa stöðu. Sjálfstæðisflokkurinn er kominn upp að vegg í málinu og óverjandi stöðu. Þorsteinn sjálfur væri illa settur í þessu embætti sem allir munu vita hvernig hann fékk. Niðurstaða mín er að á innra fundi í Sjálfstæðisflokknum verði hann látinn afþakka stöðuna með tilliti til umræðu...og það væri líka skynsamlegast í stöðunni.

Jón Ingi Cæsarsson, 23.12.2007 kl. 15:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband