Guðmundur í Byrginu með dýflissu í Hafnarfirði

Guðmundur Jónsson í Byrginu Ekki kemur að óvörum að Guðmundur Jónsson í Byrginu hafi fengið þunga refsingu fyrir alvarleg afbrot sín. Í gögnum málsins kemur fram m.a. að á heimili Guðmundar í Hafnarfirði hafi verið dýflissa sem Guðmundur notaði sérstaklega er hann stundaði bdsm kynlíf með skjólstæðingum sínum í Byrginu.

Mun meðal annars Guðmundur hafa sagt við einn sjúklinginn að hann hafi hannað dýflissuna sína sérstaklega fyrir hana. Þetta mál verður sífellt ógeðslegra og eiginlega ótrúlegt hvað þetta gat gengið lengi, bæði að Guðmundur misnotaði sjúklingana og brotið hugarástand þeirra og auk þess fékk peninga úr ríkissjóði.

Í ljósi þess að Byrgið átti að reka sem meðferðarheimili fyrir langt leidda fikla og drykkjusjúklinga, rekið á kristilegum grunni og dýrkunin í kringum Guðmund var rekin á trúarlegum nótum, er þetta hæfileg refsing og góður endapunktur á þessu sorglega máli.


mbl.is Ósáttur við dóminn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Með dýflissu í kjallaranum eins og perrinn í Austurstræti, báðir skríðandi ofan í holur eins og Saddam Hussein, vinnandi sín brengluðu myrkraverk. 

Stefán (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 15:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband