Meistari Isaac Hayes látinn

IsaacHayes Meistari Isaac Hayes er látinn, 65 ára ađ aldri. Hayes var gođsögn í lifanda lífi í tónlistarheiminum, varđ einn ţeirra sem mörkuđu frćgđ soul-tónlistarinnar í kringum 1960 og markađi sér sess allt í senn sem lagahöfundur, upptökustjóri og söngvari. Allt viđ Hayes var svalt og traust, hann skapađi sér sinn stíl og var í fararbroddi međ verkum sínum í tónlistarsögu Bandaríkjanna.

Saga soul-tónlistarinnar verđur ekki rakin nema getiđ sé mikilvćgs hlutverks Hayes, fyrst og fremst sem upptökustjóra og lagahöfundar í upphafi, ţó hann hafi sem söngvari ennfremur gert merkilega hluti. Hayes var ein traustasta stođ ţeirrar tónlistarmenningar. Međ Ray Charles, Arethu Franklin, James Brown, Otis Redding og Jackie Wilson lék hann lykilhlutverk.



Áriđ 1971 markađi hann söguleg skref ţegar hann hlaut óskarinn fyrstur ţeldökkra fyrir annađ en kvikmyndaleik fyrir stefiđ í Shaft. Shaft Theme er eitt traustasta og besta kvikmyndastef allra tíma, algjörlega ódauđlegt og traust. Mér hefur reyndar alltaf fundist Shaft algjörlega frábćr mynd og met hana mikils. Shaft Theme er eitt af ţessum traustu óskarslögum.

Ţó Hayes ćtti ţátt í mörgum eftirminnilegum lögum mun stefiđ úr Shaft lifa ţeirra lengst. Sögulegur sess ţess hjá bandarísku kvikmyndaakademíunni kom reyndar vel fram ţegar Burt Bacharach valdi Hayes til ađ flytja lagiđ í tónlistarprógramminu á Óskarnum 2000 ţar sem fariđ var yfir eftirminnilegustu kvikmyndatónlist sögunnar.



Yngri kynslóđirnar muna sennilega helst eftir honum fyrir ţátt sinn í South Park-ćvintýrinu. Kokkurinn var traustur og fínn. En öll munum viđ helst eftir meistara Hayes fyrir taktinn og stuđiđ. Hann var svalur og flottur. Blessuđ sé minning ţessa snillings.

mbl.is Isaac Hayes látinn
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Ţarna fór einn af ţeim bestu/Blessuđ sé minning hans/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 11.8.2008 kl. 09:57

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband