Sóðalegar busavígslur

Busavígsla Þróast hefur upp í hefð að nýnemar í framhaldsskólum séu busaðir fyrstu námsvikuna og teknir með því inn í skólasamfélagið. Í mörgum tilfellum er um að ræða athöfn sem hefur ígildi þess að vera græskulaust gaman og fólk geti jafnvel hlegið saman að athöfninni. Þess eru þó dæmi á seinni árum um að farið sé óeðlilega langt í að niðurlægja nemendur og gera lítið úr þeim með þessari athöfn.

Busavígslurnar hafa á sér blæ þess að vera manndómsvígsla fyrir nýnema. Í því skyni finnst sumum allt í lagi að ganga mjög langt. Finnst að á þessu verði að vera eðlileg mörk, enda er jafnan stutt á milli þess að ganga of langt og vera með athöfn sem eigi að vera á mörkunum. Það er oft ekki gott að finna millistigið þegar að svona athöfn er skipulögð. Mér finnst busavígsla ekki þurfa að hljóma sem niðurlæging á nýnemum. Það er hægt að tóna alla hluti niður. En það er oft ekki þægilegt að finna mörkin sem þurfa að vera til staðar.

Auðvitað er ágætt að fá fram umræðu um þessar busavígslur. Kannski er þetta upphafið á því að fólk hugsi sig almennilega um. Jafnvel að það þurfi ekki að ausa nýnemum upp úr forarsvaði og eða rækjumjöl til að það verði hluti samfélagsins. Hvort að mildari og mannlegri leið sé ekki til staðar. Kominn er tími til þess að busavígslunum verði breytt, einkum til að nýnemar haldi virðingu sinni á eftir og þurfi ekki að ganga í gegnum ómannúðlega meðferð til að teljast verða einn af hópnum.

Man eftir samskonar umræðu í fyrra. Þá skrifaði ég um busavígslu á Ísafirði. Þessi mynd er þaðan held ég. Þá var ausið rækjumjöli og flórsykri yfir nemendur - voru skítug upp fyrir haus í for og ógeði. Velti þá fyrir mér hversvegna þyrfti slíka yfirhalningu og hreina niðurlægingu. Á þetta að vera lexía og niðurlæging?

mbl.is Varað við busavígslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ó geisp ... það var fjallað um þetta á nákvæmlega sömu nótum þegar ég var busaður 1976.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 16:27

2 identicon

Mig hryllti við minni busavígslu árið 1998 en ég lét mig hafa það einsog margt annað. Ég lét hafa mig í allan andskotann sem var svo sem ekkert auðvelt þá en minningarnar eru góðar samt sem áður. Þjáningabræður mínir á þessum degi eru bestu vinir mínir í dag og líklegt að akkúrat þessi innvígsla hafi dregið okkur saman og tengt okkur fyrir lífstíð og það er frábært.

Meðalhófið er samt alltaf best en veit ekki hvort krakkar á þessum aldri skynji það frekar en stór hluti fullorðinna. Þessi mynd að ofan er t.d. klassískst dæmi um eitthvað skaðabótamál enda búið að rústa fötum barnanna. Fæ ekki séð að þau séu í neinum sérstökum hlífðarfatnaði.

Sigurgeir (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 16:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband