Barack Obama kjörinn forseti Bandaríkjanna

Obama-fjölskyldan
Ţá hefur Barack Obama formlega veriđ kjörinn 44. forseti Bandaríkjanna og markađ pólitísk ţáttaskil í bandarískri stjórnmálasögu međ ţví ađ verđa fyrsti ţeldökki forsetinn. Ţegar blökkumannaleiđtoginn dr. Martin Luther King lést fyrir fjórum áratugum átti hann sér draum um samfélag ţar sem litaraft skipti ekki máli og ţeldökkir hefđu sömu tćkifćri í lífinu og hvítir. Sú barátta kostađi hann lífiđ. Á ţessum sögulega degi í bandarískum stjórnmálum hefur Barack Obama látiđ drauma baráttumannsins frá Atlanta rćtast. Ţetta eru söguleg tímamót.

Fyrir ađeins átta til tíu árum hefđi engum órađ fyrir ţví ađ fyrir lok fyrsta áratugar 21. aldarinnar myndi ţeldökkur forsetaframbjóđandi ná alla leiđ í forkosningaferli stóru flokkanna, hljóta atkvćđi hvítra kjósenda um gervöll Bandaríkin og sverja embćttiseiđ sem valdamesti mađur heims. Međ sigri Obama á John McCain í ţessum forsetakosningum er ritađur nýr kafli í pólitíska sögu Bandaríkjanna.

Ekki einu sinni dr. King hefđi látiđ sér detta í hug ţegar ađ hann talađi um draumsýn sína í Washington á sjöunda áratugnum ađ ţađ gćti gerst í upphafi nýrrar aldar. Flestir áttu eflaust von á ađ sú barátta tćki lengri tíma ađ blökkumađur ćtti raunhćfa möguleika á Hvíta húsinu, ţó ađ handritshöfundar hafi gert blökkumanninn Palmer ađ forseta í hasarţáttunum 24 í upphafi áratugarins. Eđlilegt er ađ ţeldökkir Bandaríkjamenn fagni ţessum tímamótasigri í kvöld.

Barack Obama hefur rakađ ađ sér stuđningi síđustu mánuđi úr öllum áttum. Hann er fersk pólitísk stjarna. Hann kom, sá og sigrađi á flokksţingi Demókrataflokksins í Boston í júlí 2004 međ glćsilegri rćđu. Gleymi ţeirri rćđu aldrei, enda var hún ađ mínu mati stćrstu tíđindi ţess ţings, ţvílík stjörnuframmistađa. Allir fundu fyrir ţví ađ ţar fór sannkölluđ vonarstjarna. Hann er ekki bara stjórnmálamađur, hann er einstakur pólitískur predikari sem nćr til fólks og hefur áhrif á ţađ.

Eđlilega finnst mörgum demókrötum Barack Obama vera ferskur valkostur, unglegur og heillandi, og hugsa ósjálfrátt til Kennedys forseta, sem heillađi bandarísku ţjóđina fyrir hálfri öld er hann hóf forsetaframbođ sitt og naut mikils stuđnings allt ţar til ađ öllu lauk svo snögglega er hann féll fyrir morđingjahendi í Dallas á nöprum föstudegi sem markađi mikil ţáttaskil í bandarískum stjórnmálum.

Frá fyrsta degi hafa söguleg skref veriđ mörkuđ í ţessari kosningabaráttu. Ţeirra stćrst er ađ draumur dr. Martins Luthers Kings í hinni sögulegu baráttu fyrir sjálfsögđum mannréttindum ţeldökkra á umbrotatímum á sjöunda áratugnum hefur rćst.

Sannađ er ađ litaraft skiptir ekki lengur máli, allir hafa jöfn tćkifćri til ađ láta ađ sér kveđa og ţađ sem meira er ađ međ ţví er stađfest ađ blökkumađur getur orđiđ valdamesti mađur heims.

mbl.is Obama kjörinn forseti
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ţetta er svo sannarlega söguleg stund. Obama, ef ţú skyldir lesa ţetta. Congratulations on presidency and i hope you are very good president

Óskar Örn Arnarson (IP-tala skráđ) 5.11.2008 kl. 04:39

2 identicon

Já, draumar rćtast. Ţađ er frábćrt ađ ţessi glćsilegi mađur verđi nćsti forseti Bandaríkjanna. Vissulega á hann erfitt verk fyrir höndum ađ hreinsa til eftir Bush stjórnina og takast á viđ efnahagsmálin međ öllu tilheyrandi. En hann hrífur fólk međ sér. Í öllum fréttum af honum hef ég aldrei pćlt í litarhćtti hans, finnst bara sjálfsagt ađ persóna eins og Obama (miđađ viđ J McCain) sigri. Hann er sigurvegari, hagar sér eins og sigurvegari og sigrađi ađ lokum baráttuna um forsetastólinn. Óska honum alls hins besta. Og ég held ađ konan hans verđi virkur ţátttakandi  međ honum, sem er bara gott mál. Draumur Kings hefur rćtst. Látum okkar drauma um breytt stjórnskipulag og lagagerđir rćtast hér líka.

Nína S (IP-tala skráđ) 5.11.2008 kl. 09:07

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband