Trúverðugleiki í bankakerfinu

Ég fagna því að yfirmaður alþjóðasviðs Landsbankans, sá sem stjórnaði Icesave í Englandi og Hollandi, hafi sagt sig frá innri endurskoðun bankans. Slíkt hefði verið algjört öfugmæli og óviðunandi með öllu. Hvað svo sem ágætt má segja um Brynjólf Helgason er ekki rétt að sami maður og ber ábyrgð á Icesave-málinu leiði málið í endurskoðun. Slíkt mun aldrei verða trúverðugt, síst af öllu við þær aðstæður sem nú eru uppi.

Til að almenningur öðlist tiltrú á bönkunum og að þar verði eitthvað nýtt upphaf verður að vera ljóst að þeir sem halda utan um mál séu eins ótengdir liðinni tíð spillingar og sukks og mögulegt má vera. Nýjir tímar verða ekki með framlengingu af hinu sama og áður var. Auðvitað má það ekki gerast að þeir sem voru á bólakafi í umdeildum ákvörðunum séu settir í það að endurskoða og rannsaka sjálfa sig.


mbl.is Innri endurskoðandi óskast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Trúverðugleiki í bankakerfinu" segirðu !

Ertu ekki að grínast Stefán, þó svo að einn af kanski 30 til 40 lykilstarfsmönnum gömlu föllnu bankanna taki það upp hjá sjálfum sér uppá sitt einsdæmi að hætta störfum eftir að hafa verið í mjög miklvægu og viðkvæmu starfi innri endurskðunar hjá Landsbankanum nýja,

Ekkert hefur komið fram að það séu stjórnvöld eða yfirstjórnir nýju bankanna sem séu að setja sér einhver ný viðmið eða siðferðis reglur í þessum málum.

Akkúrat alls ekkert, þrátt fyrir gríðarælega tortryggni og gagnríni almennings !

Þannig að ekki dettur mér í hug að fagna og á sko alls ekki von á því að neitt breytist hjá þessum siðspilltu stjórnvöldum !

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 16:43

2 identicon

Ég ætla að "stela" frá þér klausu og spyrja hvort þú sért sammála eða ekki.

Til að almenningur öðlist tiltrú á stjörnvöldum og að þar verði eitthvað nýtt upphaf verður að vera ljóst að þeir sem halda utan um mál séu eins ótengdir liðinni tíð spillingar og sukks og mögulegt má vera. Nýjir tímar verða ekki með framlengingu af hinu sama og áður var.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband