Ögmundur bregður sér í böðulshlutverkið

Eflaust er það kaldhæðni örlaganna að Ögmundur Jónasson sé nú kominn í hlutverk böðulsins á St. Jósepsspítala, sem hann gagnrýndi hvað mest fyrir tæpu ári þegar Guðlaugur Þór Þórðarson ætlaði að skera niður þar. Ögmundur hélt sér eflaust inni á Alþingi með því að slá sig til riddara í Suðvesturkjördæmi með því að tala máli spítalans og eflaust kusu margir Ögmund til að "bjarga" spítalanum.

Nú er Ögmundur hægt og rólega að fara í þann farveg sem talað var um áður... hann er hægt og bítandi að taka upp sparnaðartillögur Guðlaugs Þórs. Eðlilegt að þeir sem voru frústreraðir með breytingar Guðlaugs Þórs ráðist nú að þeim sem ætlar að koma þeim í framkvæmd með eflaust enn meiri niðurskurði.

Ögmundur fær nú þessa gagnrýni yfir sig... eðlilega. Þeir sem eru sjálfum sér samkvæmir... vinstrimennirnir... hljóta nú að gagnrýna sitt fólk. Er það ekki annars?


mbl.is St. Jósefsspítala lokað hægt og hljótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hann er ekki öfundsverður í sínu hlutverki í dag hann Ögmundur Jónasson

Jakob Falur Kristinsson, 20.9.2009 kl. 13:05

2 identicon

Ég er óflokksbundinn og ég gagnrýni alla flokksbundna.

Þið eruð öll á rangri braut.

Már (IP-tala skráð) 20.9.2009 kl. 13:36

3 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ögmundur verður að búa sig undir alveg gríðarlega gagnrýni því hann er ekki samkvæmur sjálfum sér.
Er þetta bara ekki gott dæmi um vinnubrögð þessarar vinstristjórnar ?

Óðinn Þórisson, 20.9.2009 kl. 15:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband