22.10.2008 | 22:12
Ábyrg afstaða í erfiðri stöðu - örlagatímarnir
Mér fannst Geir H. Haarde, forsætisráðherra, tala af ábyrgð og festu, við mjög erfiðar aðstæður, í Kastljósinu í kvöld. Mjög erfitt er að hafa svör og lausnir á öllu í þessari stöðu, en í yfirlýsingu hans um að íslenska þjóðin verði ekki kúguð til fylgilags talaði hann mjög afgerandi. Enda finnst mér það alveg rosalegt ef það fer svo að komandi kynslóðir verði skuldsettar í áratugi fyrir gamblerí útrásarvíkinganna margfrægu.
Þetta eru örlagaríkir tímar í sögu þjóðarinnar. Mér finnst alveg út í hött að horft verði aðeins til Seðlabankans til að gera upp liðna tíð. Öll þjóðin horfði sofandi á atburðarásina. Eigi einhver að taka ábyrgð á stöðunni er hún mjög víðtæk. Fara þarf yfir alla þá stöðu heiðarlega og gera upp við hana án þess að ætla að hengja einn mann. Þetta er miklu stærri vandi en svo.
Allt tal um kosningar nú finnst mér óraunhæft. Varla yrði um slíkt að ræða fyrr en í fyrsta lagi með vorinu. Fyrst þarf að reyna að koma þjóðinni í gegnum mesta ólgusjóinn. Við höfum ekki tíma fyrir neitt annað núna. Ég treysti Geir best fyrir forystunni við þessar aðstæður og frábið mér að fá vinstristjórn við þessar aðstæður.
Falli stjórnin eða gefist upp við þetta örlagaríka verkefni er eðlilegast að sett verði þjóðstjórn eða hreinlega utanþingsstjórn sérfræðinga yfir landið. Stóra verkefnið framundan er enda að ná samstöðu um aðgerðir og forystu. Við getum ekki leyft okkur þann munað að fara í með og á móti fylkingar. Þjóðin er undir nú.

![]() |
Við munum ekki láta kúga okkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.10.2008 | 18:20
Undirskriftasöfnunin fer vel af stað
Íslenska þjóðin hefur heldur betur sent sterk skilaboð með undirskriftasöfnuninni á netinu gegn Bretum. Þó að Landsbankinn sé ekki lengur flokkaður með Al-Qaeda er mikilvægt að halda áfram baráttunni og tala hreint út við bresk yfirvöld. Sumir hafa reyndar sent mér tölvupóst eftir fyrri skrif og sagt að undirskriftasöfnunin sé ekki fullkomin. Vel má vera, en hún er hinsvegar gott framtak af hálfu íslensku þjóðarinnar á þeim tímum þar sem hryðjuverkalögum er beint að okkur.
Við verðum öll sem eitt að láta í okkur heyra og tjá skoðanir okkar. Þessi síða er besta leiðin til þess, tel ég. Og vonandi skilar hún þeim árangri að allir Bretar viti að við erum ekki úrþvætti heimsins.

Breska heimsveldið hörfaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.10.2008 | 16:22
Allir að skrá sig á indefence.is - flott framtak
Ég hvet alla Íslendinga til að senda skýr skilaboð til Bretlands með því að skrifa nafnið sitt á indefence.is - flott framtak hjá þeim sem standa að þessu. Mér finnst það afleitt að Bretar haldi að Íslendingar séu upp til hópa óheiðarlegt og ómerkilegt fólk og því mikilvægt að koma öðrum skilaboðum á framfæri. Uppsetning til síðunnar og öll umgjörð hennar er vel gerð - fagmannlega af þessu staðið.
Þegar ég skráði mig um tvöleytið höfðu rúmlega fimm þúsund manns skráð sig og ég sé að nú tveim tímum síðar hefur bæst meira en helmingur við. Betur má ef duga skal. Allir að skrá sig!
Tek annars undir með Ólafi Elíassyni tónlistarmanni, í viðtali við vísir.is:
"Við elskum Bretland. Við höfum átt yndislegar stundir í Bretlandi og eigum mikið af yndislegum breskum vinum". "Að láta einhvern pólitískan drullusokk (Brown) eyðileggja vináttusamband okkar við Breta kemur ekki til greina."

Til varnar Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.10.2008 | 15:24
Landsbankinn missir hryðjuverkastatusinn
Mér finnst það viss léttir að bankastofnanir landsins séu ekki lengur við hlið Al-Qaeda, Súdans, N-Kóreu, Zimbabwe og Búrma. Öryggið í svartnættinu verður aðeins meira. Mér er reyndar slétt sama hvort bresk stjórnvöld vilja setja mynd af Björgólfi Guðmundssyni við hliðina á Osama Bin Laden - mér er meira annt um stöðu Íslands og að stofnanir landsins, sem sumir hafa nefnt hornsteina samfélagsins, séu ekki flokkaðar sem ígildi hryðjuverkasamtaka.
Þeir sem áttu þennan bissness verða að taka skellinn með sínum karakter. Þjóðin á ekki að vera úthrópuð sem úrþvætti heimsins.

Landsbankinn af hryðjuverkalista |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.10.2008 | 15:00
Obama á sigurbraut - verkefni nýs forseta
Ég tel orðið nokkuð öruggt að Barack Obama verði kjörinn forseti Bandaríkjanna eftir þrettán daga. Forskot hans er orðið mjög traust og hefur verið um nokkuð skeið. Ef ég ætti að giska í dag myndi ég spá Obama Hvíta húsinu með um eða yfir 5% kosningasigri hið minnsta. John McCain þarf ekkert minna en kraftaverk til að snúa taflinu við. Vissulega getur hann það, en tíminn er að renna út og vandamálin eru að sliga framboðið. Árferðið er þannig að vonlaust er að vera í framboði fyrir ráðandi valdhafa.
Eigi McCain að eiga einhvern minnsta möguleika á Hvíta húsinu þarf hann að sigra í fimm fylkjum; Flórída, Ohio, Virginíu, N-Karólínu og Missouri. Kannanir gefa til kynna að hann eigi í erfiðleikum í fylkjum sem Bush forseti vann mjög traust bæði í forsetakosningunum 2000 og 2004. Verkefni McCain er því ekki aðeins að vinna lykilfylkin frá árinu 2004, þegar Bush vann Kerry, heldur og mun frekar að verja mikilvæg fylki sem repúblikanar hafa unnið áratugum saman með örfáum undantekningum.
Demókratar hafa ekki unnið í Virginíu síðan Lyndon B. Johnson vann traustan sigur á landsvísu árið 1964 og N-Karólína hefur ekki kosið demókrata síðan Jimmy Carter, fyrrum ríkisstjóri í Georgíu, vann Gerald Ford, sitjandi forseta Bandaríkjanna árið 1976. Ef bæði þessi fylki verða demókratafylki í þessum forsetakosningum eru öll sund lokuð fyrir McCain. Þá munu ekki Ohio og Flórída ráða úrslitum. Og sumar kannanir gefa til kynna að bæði þessi fylki verði demókratafylki.
Allt frá upphafi var ljóst að þetta yrðu mjög erfiðar forsetakosningar fyrir repúblikana. George W. Bush er mjög óvinsæll forseti og er erfitt fyrir repúblikana að eiga einhverja von á Hvíta húsinu við þær aðstæður að hann er enn á pólitíska sviðinu. McCain var eini frambjóðandi repúblikana sem átti einhverja möguleika í þessum kosningum. Staða efnahagsmálanna á lokaspretti kosningabaráttunnar hefur gert það að verkum að möguleikar hans eru litlir.
Ég tel því að Barack Obama muni vinna nokkuð traustan sigur í forsetakosningunum. Allar kannanir gefa honum væntingar um nokkuð traustan sigur, sigur sem hefur ekki verið í kortunum síðan Reagan sigraði Carter og Mondale forðum daga. Sögulegir tímar eru því framundan í Bandaríkjunum með kjöri fyrsta þeldökka forsetans.
Obama bíður mikið verkefni vinni hann þann trausta sigur sem mælist í könnunum. En hann hefur ekki allt kjörtímabilið til að taka af skarið og vinna af krafti. Hann þarf þegar á þeim 77 dögum frá forsetakosningunum til forsetaskiptanna 20. janúar að setja fram alvöru tillögur um framtíðarskipan í Bandaríkjunum.
Mér finnst það sjaldan gott þegar forseti Bandaríkjanna hefur báðar þingdeildirnar með sér; kannski aðra en ekki báðar. Forsetar hafa oft misst yfirsjón á lykilmálum við þær aðstæður. Demókrataþingdeildirnar eru óvinsælli en Bush forseti og þar hefur ekki verið unnið vel.
Þegar Obama verður forseti er engin afsökun fyrir því að láta ekki verkin tala. Hann fær því max hundrað fyrstu dagana í Hvíta húsinu til að taka til eftir Bush-stjórnina og sýna að hann standi undir öllum loforðunum.

Forskot Obama orðið 10% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.10.2008 | 00:07
Dramatísk starfslok - skýjaborgir og væntingar
Lýsingarnar á síðasta starfsdegi Hreiðars Más Sigurðarsonar í Kaupþingi eru dramatískar í meira lagi. Hverjum hefði órað fyrir því að svona myndi fara fyrir forstjóra stærsta banka landsins fyrir aðeins nokkrum vikum - þegar allir voru að tala um himinháar tekjur hans, kaupréttarsamningana og annað almennt bruðl. Þetta eru harkaleg endalok á skýjaborginni, svo ekki sé nú meira sagt. Vonandi koma menn niður á jörðina í þessum banka við þessi dramatísku þáttaskil.
Freistandi er að ætla að allir hafi misst yfirsýn í velgengninni. Upphæðir urðu stjarnfræðilegar og skýjaborgin reyndist of háleit er á hólminn kom. Fallið er líka rosalegt. Þeir sem voru á forsíðum allra blaðanna og dýrkaðir sem guðir, talað um þá sem riddara samfélagsins og allir litu upp til þeirra ótakmarkað, fá harkalegan skell. Eftirmælin eru ekki fögur. Hver einn og einasti landsmaður krefst þess nú að skipt verði um leiðsögn og við fáum raunhæfar væntingar um framtíðina.
Tími skýjaborganna er liðinn. Allir krefjast þess að ríkið haldi af ábyrgð utan um þessa banka þegar þeir rísa úr rústunum. Hvernig svo sem fer á næstunni í ríkisbönkunum er von allra að byggt verði traust undirstaða undir allt heila klabbið og við hverfum ekki aftur í þann absúrdisma sem einkenndi verk útrásarvíkinganna sem settu þjóðina á hausinn og gerðu, allavega tímabundið, út af við þjóðina. Nú þarf nýja leiðsögn.

Hreiðar Már yfirgefur Kaupþing |