30.10.2008 | 22:18
EM-sætið tryggt - til hamingju stelpur!
Alveg var það yndislegt að sjá leikgleðina og kraftinn í íslenska kvennalandsliðinu í kvöld þegar þær tryggðu farseðilinn á EM í Finnlandi að ári. Liðið er í fyrsta klassa og hefur gert glæsilega hluti á síðustu árum; komið kvennaknattspyrnunni sannarlega á kortið. Öll þjóðin getur verið stolt af þessum glæsilega árangri.
Þeir dagar eru sem betur fer liðnir að litið sé á kvennaboltann sem minna spennandi en karlaboltann. Þetta er hið besta mál. Þetta er lið sem getur farið mjög langt - liðsheildin er öflug og landsmenn styðja stelpurnar 110%. Allt skiptir þetta máli - úr verður sigursæl blanda, sem varla getur klikkað.
![]() |
Ísland á EM 2009 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2008 | 18:45
Turnarnir þrír - örlagatímar Sjálfstæðisflokksins
Könnun Gallups markar nýtt pólitískt landslag með þrem álíka stórum turnum sem gnæfa yfir. Framsókn bætir engu við sig og Frjálslyndir hverfa. VG nær traustri stöðu við hlið Samfylkingarinnar, sem er nú byrjuð að dala líka. Ég er ekki hissa á því að fylgið hrynji nú af Sjálfstæðisflokknum. Rétt eins og hann var leiðandi afl í góðærinu og treyst fyrir forystu þegar allt lék í lyndi er honum kennt um þegar allt fer á versta veg. Ef honum tekst ekki að byggja upp traustar undirstöður fljótlega og færa þjóðinni trausta forystu fær hann þungan skell.
Geir Haarde og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tryggðu Sjálfstæðisflokknum góðan kosningasigur fyrir einu og hálfu ári og voru sterkt forystupar, nutu þess að stöðugleiki var í landinu og fólk treysti þeim best fyrir því að færa okkur trausta forystu. Aðstæður hafa breyst og pólitísk staða þeirra beggja veikst til mikilla muna. Þau eiga mikið undir því að þessi ríkisstjórn haldi velli og hún geti fært þjóðinni forystu sem skiptir máli. Mikið hefur vantað á það að undanförnu - tilraunir til að fegra stöðuna um of hafa mistekist hrapallega.
Sjálfstæðisflokkurinn gengur í gegnum erfiða tíma í kreppunni. Á þeim bæ þarf að líta í kringum sig, tala við baklandið og horfast í augu við framtíðina. Þessi könnun eru skilaboð sem forysta Sjálfstæðisflokksins verður að horfast í augu við. Flokkurinn þarf að flýta landsfundi sínum, gera upp mistökin á síðustu mánuðum, sem blasa við öllum, og horfa til framtíðar. Auk þess þarf að kjósa sterka forystu til framtíðar.
Geir og Þorgerður Katrín fengu traust umboð á síðasta landsfundi og þurfa nú að tala við baklandið í flokknum - marka stefnu í gegnum þessa örlagaríku tíma og leitast við að fá endurnýjað umboð flokksmanna. Mikilvægt er að þau horfist í augu við baklandið og bæði leiti þar ráða og fá styrk til verka áfram. Mjög margt hefur breyst. Í Sjálfstæðisflokknum þarf að horfast í augu við að pólitíska landslagið breytist nú.
Þetta eru örlagatímar, ekki aðeins í efnahagsmálum heldur og mun frekar í stjórnmálasögu landsins. Mikilvægt er að allir flokkar færi þjóðinni trausta forystu og tali við baklandið sitt nú. Þeir sem ekki gera það eiga ekki von á góðu.
![]() |
Fylgi VG meira en Sjálfstæðisflokks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2008 | 16:15
Fjölmiðlarisar á brauðfótum
Erfiðir tímar. Forðum var sú tíð að allt lék í lyndi hjá fjölmiðlum og við gátum fengið tvö dagblöð ókeypis og horft á sjónvarpsstöð ókeypis. Þessir tímar hafa væntanlega liðið undir lok í kreppunni og herðist um einkarekna fjölmiðla.
![]() |
Skjárinn segir öllum upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.10.2008 | 15:58
McCain vs. Obama > 5 dagar
Harkalegar málefna- og persónuárásir milli John McCain og Barack Obama einkenna kosningabaráttuna í Bandaríkjunum á lokasprettinum. Þegar aðeins 5 dagar eru þar til kjósendur ganga að kjörborðinu er baráttan orðin að óvægnu og harkalegu áróðursstríði sem virðist sífellt verða neikvæðari eftir því sem á líður. Frambjóðendurnir eru á fleygiferð um lykilríki baráttunnar, þar sem úrslitin munu ráðast. Obama hefur pálmann í höndunum á meðan McCain berst í kappi við tímann við að snúa taflinu við.
Allar kannanir gera ráð fyrir því að Barack Obama verði kjörinn forseti Bandaríkjanna. Munurinn hefur þó minnkað mjög síðustu dagana á landsvísu og virðist stefna í spennandi lokasprett baráttunnar. Mesti vandi McCain nú er þó sá að hann er undir í ríkjum sem Bush forseti vann árið 2004 og tryggðu endurkjör hans. Barack Obama nægir að sigra í öllum ríkjum sem John Kerry vann fyrir fjórum árum og bæta Ohio við þann hóp. Fari svo hefur hann hlotið 272 kjörmenn og sigrað í baráttunni.
McCain verður fyrst og fremst að sigra í Ohio og Flórída (ríkjunum sem tryggðu sigur Bush 2000 og 2004) eigi hann að eiga raunhæfa möguleika á að komast í Hvíta húsið. Við það bætast Missouri (enginn repúblikani hefur komist í Hvíta húsið í manna minnum án þess að sigra þar), N-Karólínu (repúblikanar hafa unnið þar síðan Carter varð forseti 1976), Virginíu (repúblikanar hafa unnið frá 1964 er Johnson vann þar í stórsigri á Barry Goldwater á landsvísu) og Indiana (kosið repúblikana frá 1936).
Ekkert annað kemst að í kosningabaráttunni nema efnahagsmálin. Stóri viðsnúningurinn varð þegar hrunið hófst. Utanríkis- og varnarmál, sterkasti málaflokkur McCain hafa ekki komist að (enginn talar núna um Írak eða Afganistan - þetta er kosningabarátta um innanríkismál). McCain hefur þurft að tækla efnahagsmálin, sem eru ekki sterkasti hlekkur hans pólitískt og hefur orðið á mikil mistök í málflutningi. Með Mitt Romney sem varaforsetaefni hefði hann betur getað tæklað þessi mál.
Stærsti vandi McCain er sá að framboðinu hefur gengið illa, síðan efnahagskreppan skall á, að ná til óháðra kjósenda. Valið á Söru Palin styrkti hann innan Repúblikanaflokksins en hefur ekki tryggt stuðning óháðra. McCain ætlaði með valinu sennilega fyrst og fremst að styrkja flokksgrunninn. Honum tókst það en aftur á móti hefur honum ekki tekist að ná til óháðra kjósenda með sama hætti og í forkosningunum. Sá hópur tryggði honum útnefninguna á mikilvægum tímapunkti.
Þegar við bætist að Obama hefur mikið af peningum úr að spila verður slagurinn mjög erfiður. Repúblikanar eiga undir högg að sækja um allt land. Þeir eru við völd í Hvíta húsinu og sú vonda ára fylgir þeim í öllum kosningaslagnum. George W. Bush hefur ekki sést í kosningabaráttunni og kom heldur ekki á flokksþing repúblikana. Hans vald og áhrif er löngu gufað upp. Þegar við bætist vond staða hans í könnunum og efnahagskreppan vill enginn láta sjá sig með honum.
Hálftíma auglýsing Obama í gær var vegleg og flott. Hinsvegar vaknar spurningin um hvort þetta peningaaustur komi niður á framboðinu. Bush var gagnrýndur mjög síðast fyrir að eyða miklu og spandera í allar áttir. Nú hefur taflið snúist við. Obama hefur fulla vasa fjár á meðan McCain hefur úr mun minna að spila og þarf að horfa í hvern eyri. Peningar skipta mjög miklu og svo gæti farið að hálftímaauglýsingin hafi úrslitaáhrif í kosningabaráttunni.
Ferðadagatal dagsins
McCain verður í allan dag í Ohio; heldur framboðsfundi í Defiance, Sandusky, Elyria og Mentor. Nýjustu kannanir sýna að McCain er undir í Ohio - munurinn á bilinu 4 til 8 prósentustig. Ohio verður mikilvægt fyrir McCain og mun ráða úrslitunum með einum eða öðrum hætti.
Obama hóf daginn á framboðsfundi í Sarasota í Flórída. Al Gore, sem tapaði naumlega í Flórída fyrir átta árum, og Clinton-hjónin munu taka mikinn þátt í baráttunni þar. Obama kom fram á framboðsfundi í gær í Flórída með Clinton forseta - í fyrsta skiptið sem Clinton kom fram opinberlega með Obama á kosningafundi. Clinton-hjónin eiga traustan fylgishóp í Flórída og mikilvægt fyrir hann að virkja þau með sér í baráttuna. Síðar í dag verður hann á framboðsfundi í Virginíu og endar daginn í Columbiu í Missouri.
Varaforsetaefnin Palin og Biden verða á sömu slóðum í dag - bæði verða í Pennsylvaníu og Missouri.
Ferðalög frambjóðendanna segja allt um mikilvægi þessara ríkja - þau verða öll í lykilhlutverki. Missouri hefur löngum verið mjög mikilvægt og Flórída gæti aftur orðið sami örlagavaldur og fyrir átta árum. Sumir horfa til ríkja á borð við Colorado og Nýju Mexíkó. Mikil bjartsýni er þó að telja þau í slagnum. Nær öruggt er að Obama vinni þar. McCain verður því að eiga fullkominn lokasprett til að eiga möguleika.
Og þó; nú er óhætt að segja að Bradley-áhrifin (þegar blökkumaðurinn Tom Bradley, borgarstjóri í LA, tapaði ríkisstjórakosningu í Kaliforníu þvert á allar kannanir) muni ráðast og hvort þau skipti virkilega máli.
![]() |
Palin næsta forsetaefni? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2008 | 14:42
Verður að fá erlenda sérfræðinga til rannsóknar
Þetta er hinn napri sannleikur. Við lifum í litlu samfélagi, þar sem tengsl er mikil á milli aðila og flestir kannast við næsta mann. Eigi að taka allt kerfið fyrir og gera á því trúverðuga rannsókn skiptir þetta lykilmáli.
![]() |
Álíta sig hæfa til að rannsaka syni sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2008 | 12:44
Bjóst einhver við að IMF setti ekki vaxtaskilyrði?
Mér finnst mjög margir hafa verið í miklum Pollýönnuleik að undanförnu. Því miður eru margir í afneitun og sjálfsblekkingu og verst af öllu er að ríkisstjórnin segir okkur ekki allan sannleikann. Fram eru að koma bitar hér og þar sem segja aðra sögu en það sem pólitískir foringjar landsins eru að segja. Þetta gengur ekki upp. Burt með leyndina og fagurgalann. Stjórnmálamönnum er ekki minna ætlandi en geta talað hreint út við fólkið í landinu.
Þó erfitt sé að viðurkenna, greinilega, skilmálana sem samið var við um IMF er enginn greiði gerður með því að loka augunum fyrir þeim. Þetta er bara einfalt mál og ekki boðlegt að ekki sé hægt að leggja spilin á borðið.
![]() |
Ákvæði um 18% stýrivexti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.10.2008 | 00:51
Alvarleg staða - verður þjóðargjaldþrot umflúið?
Mér finnst afleitt ef það er satt að stjórnvöld hafi ekki sagt rétt frá í málefnum IMF. Ef talsmaður IMF hefur rétt fyrir sér í því að það sé upp á einsdæmi ríkisstjórnarinnar komið að skýra frá skilmálum og lykiláherslum í samningum við IMF er það alvarlegt mál. Ríkisstjórnin verður að tala við fólk og segja hver staðan sé. Mér hefur fundist nóg af því að reynt sé að fegra stöðuna um of. Kannski er líka ábyrgðarhluti að mála skrattann á vegginn, en staðreyndir verða að tala sínu máli.
Staðan er alvarleg - mikilvægt er að stjórnvöld tali við fólkið í landinu sem skynsamlegt og traust fólk en ekki eins og það sé of heimskt til að skilja lykilpunkta hinnar alvarlegu stöðu sem blasir við.
![]() |
Efnahagur myndi hrynja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |