Kynlífsþrælkun í átján ár - Stokkhólms-heilkenni

Samkvæmt fréttum er Jaycee Lee Dugard illa haldin af Stokkhólms-heilkenninu (Stockholm syndrome) eftir átján ára kynlífsþrælkun mannsins sem rændi henni. Þetta minnir á hina austurrísku Natöscu Kampusch, sem haldið var fanginni í áratug. Eftir prísundina vorkenndi hún allra mest þeim sem hafði rænt henni og haldið henni fanginni, eyðilagt líf hennar. Þetta er algjör heilaþvottur - sorgleg afleiðing einangrunar og yfirtöku á manneskju.

Fyrir þá sem ekki vita á nafngiftin fyrirmynd sína í bankaráninu í Kreditbanken í Stokkhólmi í ágúst 1973. Þar héldu bankaræningjar fjölda fólks sem gíslum sínum í fimm daga. Að bankaráninu loknu snerust gíslarnir til varnar fyrir þá sem héldu þeim föngnum og höfðu gjörsamlega verið heilaþvegnir. Alla tíð síðan hefur nafngiftin yfir tilfelli af þessum toga verið kennd við ránið athyglisverða í Stokkhólmi.

Natascha Kampusch var svo þungt haldin af Stokkhólms-heilkenninu að hún syrgði manninn sem hélt henni í tæpan áratug sem gísl sínum er hún vissi að hann hefði fyrirfarið sér. Hún reyndar stakk hann af en hún hafði greinilega lifað sama lífi og svo margir sem falla í faðm þeirra sem hafa eyðilagt líf þess. Hún var undir stjórn og heilaþvegin af drottnun. Þetta eru skelfileg örlög og sennilega eitt frægasta umhugsunarefni sálfræðinnar.

mbl.is Jaycee starfaði fyrir ræningjann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fær fólk eitthvað kikk út úr sprengjuhótunum?

Hvað eru þeir að hugsa eiginlega sem hringja inn í verslanir eða stofnanir með sprengjuhótun? Fá þeir eitthvað kikk út úr þessu eða er þetta bara hreint og beint bilun eða einhver áhugi á að komast í fréttirnar eða vera eitthvað mikilvægur eitt augnablik?

Þetta er samt brenglaður hugsunarháttur... rétt eins og var í Borgarholtsskóla. Annars veit enginn hvað olli því, hvort það var vilji til að einhver fengi frí í skólanum eða bara vímurugl sem gekk of langt.

Ætli þetta verði nýjasta tískan í kreppunni að hringja inn sprengjuhótanir?

mbl.is Sprengjuhótun í Grafarvogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 31. ágúst 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband