Alvarleg þöggun - biskup afhjúpaður

Þeirri döpru staðreynd að barnaníðingur var biskup hér á Íslandi verður vart neitað úr þessu. Það er þjóðkirkjunni til vansa að viðhalda þöggun í þessu máli og eðlilegast að leynd verði aflétt og fjallað um málið heiðarlega og hreint út. Verst af öllu þykir mér, og eflaust fleirum, að hafa trúað Ólafi Skúlasyni þegar hann varðist ásökunum í upphafi. Það er vond tilfinning og margir sem trúðu frekar orðum trúarleiðtogans en kvenna úti í bæ, eins og þær voru oft nefndar.

Auðvitað hefur orðið æ augljósara að þær konur sem báru hann alvarlegum sökum höfðu rétt fyrir sér og þær eiga skilið að hljóta uppreisn æru. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, dóttir biskupsins, á sérstakt hrós skilið fyrir að fara alla leið og ljóstra upp um sannleikann, hversu þungbær og ömurlegur sem hann annars er. Þetta er virðingarvert framlag sem hún kemur með - þetta eru þung skref fyrir hana og ekki hægt að hugleiða hversu erfið, en hún er heilsteypt.

Verst af öllu er sú ömurlega staðreynd að þessi maður hafi orðið trúarleiðtogi íslensku þjóðarinnar og getað setið jafn lengi á þessum mikla valdastól og getað afneitað sannleikanum alveg blákalt. Alveg ótrúlegt er að þessi mál hafi ekki komist í hámæli þegar hann sóttist eftir biskupsembættinu bæði 1981, þegar hann tapaði fyrir Pétri Sigurgeirssyni, og 1989 þegar hann hlaut kjör til embættisins.

Þetta er ljótur blettur á sögu þjóðkirkjunnar, því verður ekki neitað. Nú er kominn tími til að tekið verði á málum og þögninni aflétt.

mbl.is Lýsti alvarlegum brotum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband