Sama gamla einræðiskúgunin á Kúbu

Raúl Castro Auðvitað mátti nú segja sér það að netnotkun væri bönnuð með öllu í einræðisríkinu Kúbu. Þar fær fólk ekki að ákveða sjálft hvað það vill, heldur vilja menn kommaveldisins drottna yfir öllu. Fjölmargir um víða veröld vilja bera sig saman við Kúbuvaldið og þarna sést nú einn helsti aðall þess, að leyfa almenningi ekki að njóta nútímaþæginda.

Valdaskiptin nýlega breyttu ekki miklu. Þó að Fidel Castro færi frá hélt sama kynslóð kommúnista dauðahaldi um völdin með járnhendi án lýðræðislegra kosninga. Hinn roskni Raúl Castro-bróðir tók þar við og var að sjálfsögðu einn í kjöri, nema hvað. Það hefur enda aldrei verið stíll einræðishópsins þar að láta almenning ákveða eitt né neitt.

Það vekur líka nokkra athygli að maður af sömu kynslóð og Castro-bræður tekur við sem næstráðandi. Það eru því ekki mörg skrefin stigin til framtíðar þegar að Castro gefst upp og fer á ellilífeyrir, orðinn heilsulaus og útslitinn af löngum ræðuhöldum og ofríki. Það voru sumir að spá kynslóðaskiptum þar, en það er ekki beint á dagskrá að yngja upp forystuna eftir alla þessa áratugi einræðisins.

Og Castro vakir yfir öllu saman, hann á víst að vera til eilífðarnóns hugsjónastjórnandi flokksins og Kúbu allrar, sérstakur alvaldur í stefnumótun til framtíðar. Það er þá framtíðin sem valin er í einræðinu. En hey, þeir hafa þó allavega leyft tölvurnar loksins á árinu 2008. Jahérna hér.

mbl.is Einkatölvur löglegar á Kúbu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Byð um að þú klárir að lesa fréttina...

Ein af aðalástæðum þess að enn sé mjög takmarkaður aðgangur á netið er að ameríkaninn er með viðskiptabann í gangi gagnvart Kúbverjum.

Það er dýrt að þurfa að tengjast gegnum gervihnött.

MBK

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 3.5.2008 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband