Ummæli Davíðs og skilningurinn á þeim

Mér finnst það gott að einhver birti beint ummæli Davíðs Oddssonar, seðlabankastjóra, í Kastljósinu fyrir viku. Sumir hafa verið iðnir við að misskilja viðtalið, sumir viljandi en aðrir hafa dregið sínar ályktanir. Fyrst og fremst var Davíð að tala til Íslendinga. Á mannamáli tókst honum að tala til landsmanna um að fara ekki í bankana og taka allt út í hraði. Hann róaði þjóðina við mjög erfiðar aðstæður, talaði skýrar en jafnvel stjórnmálamenn.

Aðrir lásu það í viðtalið að ekki yrði staðið við neinar skuldbindingar. Fyrst á eftir átti að kenna Davíð um aðgerðir Bretanna en síðar kom í ljós að gripið var til þeirra eftir samtal við Árna M. Mathiesen. Síðan hafa sumir álitsgjafarnir hér heima reynt að halda áfram sama hjalinu án þess að viðurkenna að rangt var eftir haft, að það væri ekki Davíð að kenna hvernig fór. Auk þess er ekki hægt að kenna íslenskum stjórnvöldum um það.

Bretar gengu alltof langt og eiga eftir að sjá eftir aðgerðum sínum. Þegar ein vestræn þjóð beitir annarri hryðjuverkalögum er langt gengið og auðvitað á slíkt aðeins heima sem umræðuefni hjá NATÓ.

mbl.is Hvað sagði Davíð?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinþór Ásgeirsson

Davíð róaði þjóðina?!?!?! hvað þýðir það

Davíð svaraði ekki málefnalega, að mér fannst, greip til myndlíkinga í stað þess að svara spurningum Var hrokafullur og talaði of mikið

Hann fékk of mikið svigrúm til að tala án þess að segja neitt. og fólk féll fyrir fagurgalanum.

Nýju fötin keisarans litu helv.. vel út þetta kvöld 

Steinþór Ásgeirsson, 13.10.2008 kl. 15:18

2 identicon

Er þér algjörlega sammála enda benti ég á það strax eftir viðtalið að maðurinn var sá eini sem hafði sagt þetta berum orðum.  Ég skildi ekki betur en að hann væri að tala um erlenda skuldunauta bankanna en ekki hinn almenna sparifjáreiganda í sjóðum bankanna. Ég veit ekki hvernig þessir sjóðir voru uppbyggðir en mér er til efs að þeir séu algjörlega eignalausir þannig að mjög líklega næst uppí hluta skuldbindinga.

Kv. totinn

Þórarinn M. Friðgeirsson (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 16:34

3 Smámynd: Auðun Gíslason

Það er nú erfitt að skilja þetta öðruvísi en þannig, að ekki eigi að standa við skuldbindingar bankanna erlendis, þar á meðal innistæður á bankareikningum íslenskra banka erlendis.  En fyrst þú hefur svona góðan skilning á orðum Davíðs:  Hvað á hann við með orðinu óreiðumenn og hverjir eru það?

Auðun Gíslason, 13.10.2008 kl. 17:36

4 identicon

Það leikur enginn vafi a því hvað Davíð sagði og hvernig thað hljómar í eyrum útlendinga:

„Við erum að ákveða að við ætlum ekki að borga erlendar skuldir óreiðumanna.“

Þetta endurtók hann skýrt og klárt tvisvar a.m.k. Davíð sagði að vegna þess að ríkið skuldaði ekki pening, og vegna þess að það ætlaði ekki að taka á sig skuldir erlendis sem óreiðumenn þ.e.a.s. bankarnir hefðu fallið í þá væri allt í lagi!

Þetta er einfeldningslegt með afbrigðum. Davíð heldur að HANN geti bara upp á eigið eindæmi ákveðið að Ísland beri ekki ábyrgð á skuldum landans erlendis. Það hefur aldrei hvarflað að honum að stór og voldug ríki munu standa vörð um hagsmuni sinna þegna.

Tjallinn heyrði mæta vel hvað Davíð sagði: Excuse me! Not so fast! Og hamarinn var látinn falla á Ísland, sem er ótugtar verk. Sammála þar.

En nú kemur í ljós hver sökudólgurinn er. Eins og Tjallinn segir, The butler did it, þá getum við sagt, Amman á sökina!

Amma Davíðs gleymdi að kenna honum að þegar voldug ríki eiga í hönd þá er best að fara varlega og tala ekki of fjálglega um óreiðumenn. Í staðinn kenndi hún honum ófrávíkjanlegt prinsipp sem olli gjaldþroti Íslands og kann land og þjóð ömmu Davíðs mikla óþökk fyrir.

Logi Gunnarsson (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 18:11

5 identicon

Þegar Davíð sagði eftirfarandi: 

„Við ætlum ekki að borga annarra manna skuldir. Við ætlum ekki að borga skuldir bankanna sem hafa farið dálítið gáleysislega [...] Áður trúðu menn því að íslenska kerfið, íslenska ríkið og íslenskir skattborgarar, myndu reyna að borga allar skuldir íslensku bankanna, allar skuldir íslensku bankanna,“ bætti Davíð við. Staðan væri sú að bankakefið skuldaði 50-55 milljarða evra sem kæmu til gjalda á næstu 3-4 árum og þeir gætu ekki útvegað sér þá fjármuni. Ríkið myndi ekki útvega féð því þar með væru Íslendingar að setja börn sín og barnabörn í skuldaklafa."

 ... þá skil ég þetta á þann veg að ríkið myndi ekki útvega féð til að borga allar skuldir íslensku bankanna.  Eða er ég kannski svo svakalega heimskur að ég er að misskilja eitthvað?

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 20:38

6 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Davíð sagði: ,,En hvað erum við í rauninni að gera og ættum við endilega að vera svona svartsýn,“ spurði Davíð. „Við erum að ákveða að við ætlum ekki að borga erlendar skuldir óreiðumanna.“

Ég get ekki skilið þetta á annan veg en þann að við Íslendingar ætlum ekki að standa við þær skuldbindingar sem erlendir viðskiptavinir íslensku bankanna á Bretlandi og víðar telja sig eiga inni. 

Svo er nú annar kapítuli út af fyrir sig að skilgreina hverjir óreiðumennirnir eru, hvort Kjartan Gunnarsson er einn af þeim, hafandi verið sitjandi í bankaráði eins af útrásarbönkunum um árabil.

Gísli Sigurðsson, 13.10.2008 kl. 21:26

7 Smámynd: haraldurhar

   Það myndi enginn siðmetuð þjóð hafa Seðlabankastjóra í starfi, er léti út úr sér jafndæmalausa vitleysu, og hefur kostað okkur hundruð eða þúsundir milljarða.   Seðlabankastjórar annara landa eru jafnan afar sparir á yfirlýsingar og oftast þarf að lesa á milli línanna hvað þeir eru að segja í raun.

Hér kemur trúðurinn og blaðrar um ömmu sína, og við ætlum ekki né höfum vilja til að standa við skuldbindingar okkar.  Fyrir nú utan það að tala um skuldir bankanna, en mynnast ekki á eigir þeirra.. Þetta kalla ég að valda óþarfa ótta.

Mér er algjörlega óskiljanlegt Stefán hvað þú er bakka upp svona dæmalaust rugl, og sjáir ekki eins og flestir að við megum ekki við meiri skaða vegna óstjórnar í peningamálum þjóðarinnar.  Verður kannsi næsta blogg þitt hversu djúpvitur og snjall núverandi form. bankastjórnar Hr. Halldór Blöndal, er í fjármálastórnun þjóðarinnar, ekki kæmi mér það á óvart eins og þú hefur látið dæluna ganga undanfara daga.

   Við þá alvarlegu stöðu er við stöndum nú frammi fyrir snýst málið ekki um hvort Sjálfstæðisflokkur eða annas flokks maður fer með völd. Málið snýst um það að við höfum ekki efni á að skipa flokkstrúða né afdankaða pólutíkusa í stjórnunarst.  þessu verður að linna, og taka upp ferli að menn og konur verði skipuð í embætti eftir reynslu og mennun til að gegna þeim.

haraldurhar, 13.10.2008 kl. 22:07

8 identicon

Gildir einu fyrir mér hve vel til hafður , og vel greiddur maður er, sem á skjánum birtist,, ég trúi bara því sem ég sé og bragða á,, Ég sá þetta kvöld óskömmustulegan brennuvarg , sem læddist upp í toppíbúðina hans ásgeirs og kveikti í,,slökkviliðið er enn að berjast við eldana tveim vikum síðar , og hefur fengið sér til hjálpar alla færustu sérfræðinga heims,, ljóst er að enn munu eldarnir loga í margar vikur,, Og takist að slökkva eldana , þá mun slökkviliðsstjórinn hreykja sér á öskubingnum,,Og ávarpa þjóðina,,'' þetta tókst,við getum verið stolt af því hve vel hefur til tekist,þetta mun aðeins gera okkur enn sterkari á eftir '' þjóðin mun fagna honum með dynjandi lófataki,,og hefjast handa með að endurbyggja nýtt og enn betra hús næstu 20. árin,,Sennilega verða eldspíturnar ekki teknar af varginum , heldur verður honum refsað með því að sitja í Öryggisráðinu næsta kjörtímabil,,

bimbó (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 22:21

9 identicon

Verð bara að segja það, en í hvert skipti sem DO lætur eithvað út úr sér þá verða náttúruhamfarir. Fellibylurinn DO fer yfir landið og eyrir engu, sem minnir mann á söguna um Moby Dick þar sem skipperinn hét því að hætta ekki fyrr en hann hefði fangað hvíta hvalinn. Hann náði ekki hvalnum en áhöfnin fórst og hann með. Ég held við ættum að senda skipperinn í gott frí og láta stjórntækin í hendurnar á einhverjum sem er ekki að eltast við gamla drauga fortíðar, áður en hann siglir þjóðarskútunni endalega í strand. 

Sveinn (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 01:12

10 identicon

Best væri bara að Davíð þegði með öllu! Davíð róaði ekki þjóðina ... það er algjört bull! Þú getur verið aðdáandi hans ... en ekki segja að Davíð hafi róað þjóðina. Þjóðin er ekkert róleg.

Ef einn meðlimur í stjórn/ráði Seðlabankans hefur sagt af sér vegna þess að henni fannst hún bera ábyrgð ... af hverju gera aðrir það ekki??? Segðu mér Stefán ... er Davíð saklaus í þessu? 

Nú er verið að ráðast á spreðarana og toppana (Jón Ásgeir  og fleiri) ... Seðlabankaráð er manni færra ... en Davíð og co. (lesist: undirhundarnir í Sjálfstæðisflokknum) ætla aldrei að viðurkenna mistök sín og sýna ábyrgð. Þeir bera allir ákveðna ábyrgð!

Sagði ekki Davíð sjálfur einu sinni að seðlabankastjóri ætti ekki að skipta sér af pólitík? Það sem sagt gildir ekki um hann??

Fréttamynd ársins fyrir mér er án efa myndin af Davíð í bílstjórasætinu, Geir Haarde í farþegasætinu og Árni Mathiesen í aftursætinu. Táknrænni getur mynd ekki verið ...

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 14:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband