Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum

Enn eru mótmælin í Reykjavík auglýst gegn einum manni. Sumir ætla aldrei að læra neitt. Fannst samt kostulegast að sjá Jón Baldvin Hannibalsson í hlutverk uppreisnarleiðtoga á gamals aldri. Var hann að mótmæla yfirstjórn Seðlabankans eða ríkisstjórninni í ræðu sinni? Varaformaður bankaráðs Seðlabankans og formaður Fjármálaeftirlitsins, sem svaf mest á verðinum, er einn nánasti samstarfsmaður Jóns Baldvins í Alþýðuflokknum, Jón Sigurðsson, fyrrum viðskiptaráðherra. Vill hann að Jón axli þá einhverja ábyrgð og segi af sér?

Vill hann að Samfylkingin hrökklist úr ríkisstjórn fyrir að gera ekkert alla þessa mánuði sem hún hefur verið í ríkisstjórn og verið með ráðherra bankamála, sjálfan viðskiptaráðherra, á slíkum örlagatímum? Samfylkingin getur ekki firrt sig ábyrgð og bent á einn mann í Seðlabankanum þegar hún hefur haft svo mikil völd og leitt mál, einkum úr viðskiptaráðuneytinu og ætti að vera vakandi. En kannski talar Jón Baldvin bara til Jóns Sigurðssonar, efnahagsarkitekts Samfylkingarinnar fyrir síðustu kosningar.

En Jón Baldvin er lélegur uppreisnarleiðtogi, þykir mér. Er þetta ekki maðurinn sem keyrði í gegn EES-samninginn sem gerir það að verkum að þjóðin þarf væntanlega að borga fyrir Icesave-reikningana víða í Evrópu? Held að hann ætti að fara heim og leggja sig - oft er vont að kasta grjóti úr glerhúsi.


mbl.is Þögn ráðamanna mótmælt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steini Thorst

Ég segi bara eitt,.....ég er þér fullkomlega sammála og skoðun mín á Jóni Baldvini gjörsamlega tók U-beygju við þetta.

Held að dóttir hans hafi gert honum óleik með að draga hann með í þetta.

Steini Thorst, 25.10.2008 kl. 23:24

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

en hvar værum við án EES? Enn með verðlagsráð?

Brjánn Guðjónsson, 25.10.2008 kl. 23:31

3 Smámynd: Steini Thorst

Brjánn,....ég var eiginlega að taka undir þetta með mótmælandann Jón Baldvin. Og held að þessari færslu sé ekki beint gegn EES.

Steini Thorst, 25.10.2008 kl. 23:54

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

EES er gott fyrir Ísland, flestir eru sammála um það í dag.

En Jón Baldvin er og hefur alltaf verið flautuþyrill. Hann hefur aldrei getað fyrirgefið Davíð fyrir að vilja ekki endurnýja stjórnarsamstarfið ´95. Davíð sá að honum var ekki treystandi.

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.10.2008 kl. 23:56

5 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Jón Baldvin er ekki bara arkitektinn á bak við EES-aðild Íslands -- og þar með stóran hluta yfirstandandi vandamála -- heldur skilst mér að hann sé einnig arkitektinn á bak við þessi klofningsmótmæli og misvísandi upplýsingar um tímasetningu, sem drógu mjög úr mótmælunum í dag. Eða, svo er sagt. Þessi vísvitaði klofningur var lúalegur og ég átta mig ekki á því hvað feðginunum gekk til. Sagt er (óstaðfest) að nýr jafnaðarmannaflokkur sé á prjónunum.

Vésteinn Valgarðsson, 26.10.2008 kl. 00:02

6 Smámynd: Kristján H Theódórsson

Að kenna Jóni Baldvin um ófarir okkar á forsendum þess að hann beitti sér fyrir EES samningnum sem opnaði leið okkar út á hinn fjölþjóðlega peningamarkað, er svona álíka rökvísi einsog að kenna Ditlev Thomsen sem fyrstur flutti bifreið til landsins um sérhvert bílslys á Íslandi þaðan í frá!

Man heldur ekki betur en Jón Baldvin hafi alltaf haldið fram að í ljósi þess að við hefðum sagt A, með EES aðild þá væri okkur nauðsynlegt sem fyrst að segja B með EB aðild,enda álit málsmetandi manna að þá hefðum við staðið fárið af okkur.

Kristján H Theódórsson, 26.10.2008 kl. 00:09

7 identicon

Er ekki heiðarlegra, Stefán, að benda að á þá sem stjórnað hafa efnahagsmálunum síðasta áratuginn en að benda á viðskiptaráðherra sem settist í stólinn í fyrra? Viltu virkilega hengja Björgvin fyrir að hafa ekki bjargað því hruni sem nýfrjálshyggjan leiddi okkur út í?
Líttu þér nær! Sjáflstæðismenn ættu allra manna helst að forðast grjótkast um þessar mundir.

Baldur G. (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 00:40

8 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég kannast ekki við það að mótmælin á tröppum Ráðherrabústaðarins hafi verið auglýst gegn einum manni. Mér er kunnugt um að þeir sem stóðu fyrir kyndilgöngunni hafi ákveðið að gera það ekki og hafa engin spjöld en þeir gátu ekki meinað einstaklingum um að hafa uppi spjöld frekar en hægt meina það nokkrum manni á almannafæri nema spjöldin fari í bága við almenn velsæmi. 

Hvað pólitík varðaði var ádrepa Jóns Baldvins í Silfri Egils og á tröppum Ráðherrabústaðarins á þá sem ráðið hafa peningamálastefnu þjóðarinnar síðustu ár. Fyrir henni hafa staðið þrír flokkar, fyrst Sjálfstæðisflokku og Framsóknarflokkur og nú síðustu 16 mánuði Samfylkingin með Sjálfstæðisflokknum.    

Ómar Ragnarsson, 26.10.2008 kl. 00:42

9 Smámynd: Rýnir

Sælir piltar,

já, vitið þið, ég verð að játa það að ég er ekki alveg að skilja hvað Jón Baldvin er að fara. Það virðast a.m.k. skjóta upp í kollinum allmargar þversagnir í þessu öllu saman. Rétt er það, að hinn eflaust ágæti maður, Jón Sigurðsson er formaður FME og hlýtur þar með að bera töluverða ábyrgð. Umræddur Jón er einnig varaformaður bankaráðs Seðlabankans og hlýtur sem slíkur að bera ábyrgð á stefnu bankans. Eins og segir á vef Seðlabankans: "Bankastjórn hefur náið samráð við bankaráð um stefnumörkun og ákvarðanir í mikilvægum málum.". Af því hlýtur að mega álykta sem svo að bankaráðið beri einnig ábyrgð á ákvörðunum bankastjórnar Seðlabankans. Ef menn innan bankaráðsins telja að um mistök hafi átt sér stað, þá hljóta þeir hinir sömu, eins og títtnefndur Jón Sigurðsson að segja af sér. Svo einfalt er það og fordæmi fyrir því af hálfu Samfylkingarinnar. Er það ekki nokkuð rökrétt annars? Ef mótmælin eiga að beinast einungis gegn einni persónu, þá hljóta slík mótmæli að dæma sig alveg sjálf. Annars tók ég saman á heimasíðunni minni, sum af þessum rökum fyrir afsögn Davíðs og tel mig hafa hrakið þau. Ef einhver telur rök þar ekki standast, þá vinsamlegast bentu á það. Væri mjög þakklátur með það. Eftir þá yfirlegu, hef ég annars enn minni trú á þessum mótmælum (ekki voru þau þó mikil fyrir) og hvað þá ef þau boða “nýja tíma”, þá er ég mjög hræddur um að við eigum alls ekkert betri tíma framundan, heldur þvert á móti. Hvernig væri nú að Jón Baldvin myndi svara þessu, þannig að maður geti hætt að velkjast jafn mikið í vafa um hvað honum gangi til, sem og hvort hann telji sig bera einhverja ábyrgð á stöðunni í dag. Er hann og fleiri sem taka þátt í þessum mótmælum kannski að reyna að kljúfa Samfylkinguna með einhverjum hætti, með óbeinum árásum á Jón Sigurðsson og með yfirskriftinni “rjúfum þögnina”? Þar sem Samfylkingin er í ríkisstjórn, hljóta þessi tilmæli að eiga jafn vel við báða ríkisstjórnarflokkana eða hvað? Vinsamlegast reynið að leiða mig betur í allan sannleika um þetta allt saman...

Góðar kveðjur, 

Rýnir, 26.10.2008 kl. 00:53

10 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Alveg finnst mér út í hött þegar fólk heldur því fram að Íslendingar stæðu betur gagnvart kreppunni ef við værum í ESB.

  • Í fyrsta lagi veit engin í raun hvað við fáum og hvað við gefum með aðild.
  • Í öðru lagi störfuðu bankarnir eftir Evrópskum lögum
  • Og í þriðja lagi eru flest ESB lönd í svipuðum vandræðum og við að því undanskildu að þau þurfa ekki aðstoð frá IFM

Ég heyrði í kuningja mínum í Danmörku í dag og þar heyrist kvíslað manna á meðal að Danir séu að íhuga að biðja um aðstoð frá IFM. Að þeir séu síst betur staddir en Íslendingar. Ekki er Davíð Oddsson né íslenska krónan að plaga þá.

Gunnar Th. Gunnarsson, 26.10.2008 kl. 04:38

11 Smámynd: Ólafur Als

Eins og fyrri daginn er ekki við öðru að búast en að lukkuriddarar kratanna hafi ráð við vandamáli hverju. Ekki svo að skilja að vér Sjálfstæðismenn getum fyrrt okkur ábyrgð í því óveðri sem gengur yfir efnahag lansdmenn allra. Fyrir liggur að spegilmynd efnahags landsins, íslenske krónan, fær ekki staðist ólgusjó núverandi, fyrrverandi eða verðandi samskipti á alþjóðlegum markaði og því einsýnt að krónunni verði að skipta út fyrir gjaldmiðil sem á sér haldreipi í stærra efnahagsumumdæmi. Hver sá gjaldmiðill verður veltur á því hvernig ráðamen, og þjóðin í sameiningu, vill bera sig að í efnahagslegu tilliti við umheiminn. Evrópubandalangid hefur gefið það skýrt til kynna að án inngöngu sé evran ekki gjaldgeng hér. Hins vegan gætu aðrir gjaldmiðlar komið til geina, hvort heldur sé átt við dollara eða eitthvað annað sem nýtur trausts á alþjóðlegum mörkuðum. Í því tilliti er mest um vert að valinn sé gjaldiðill sem spegli sem best íslenskan veruleika, ef það er á nokkurn máta mögulegt. En með því að taka upp erlendan gjaldmiðil hefur eftir sem áður endurbættur seðlabanki ýmsar aðrar leiðir til þess að takast á við efnahagslegar sveiflur hér á landi, sem m.a. fela í sér að ekki sé farin leið atvinnuleysis í flóknu gangverki við stjórn efnahagsmála. En íslenskur veruleiki er ekki þess umkominn að beita slíku efnahagstæki, líkt og þekkt er í bandalagi Evrópuþjóða.

Lærdómar næstu missera munu, ef nokkuð má læra af reynslunni, fela m.a. í sér hugmyndafræði sem tekst á við afskipti hins opinbera á fleiri sviðum en til langframa æskilegt má telja. Í sinni verstu mynd kann að verða til umhverfi sem kallar eftir ríkisafskiptum af því sem tagi sem greiddi götu þjóðernsinssósíalismans, ekki ósvipað og varð á dögum kreppunnar miklu á fjórða áratug síðustu aldar, þó svo að lausnir af því tagi muni eiga erfitt uppdráttar á okkar dögum.

Menn mega ekki gleyma hve vont var að ríkið stæði í reksti banki og því ríður á að um starfsem þeirra verði setti rammar sem annars vegar tryggi að það sem kalla mætti "tilhlýðilega íhaldssemi" verði undirliggjandi hugmyndafræði að baka starfseminni en jafnframt að markaðsleg sjónarmeð ráði för. Án þess verður erfitt að einkavæða bankana á ný, að þessu sinni undir hatti einstaklinga sem eru nú reynslunni ríkari - að ekki sé talað um innan ramma regluverks sem veitir þeim tilhýðilegt aðhald.

Ólafur Als, 26.10.2008 kl. 05:10

12 Smámynd: Stefán Sig.Stef

Tek undir allt sem þú segir um þessi mótmæli.

Það er ömurlegt að horfa upp á ATHYGLISSJÚKT fólk eins og Jón Baldvin,Kolfinnu dóttir hans svo og Ómar Ragnarson þetta lið á að skammast sín og halda sig heima hjá sér og að flagga manneskju eins og Arnþrúði Karlsdóttur sem ekkert mark er á takandi frekar enn þeim þá fyrst skeit nú líkið.

Stefán Sig.Stef, 26.10.2008 kl. 08:54

13 Smámynd: Vilhelmina af Ugglas

Ég hef ekki enn sé frétt um fjölmenn mótmæli fyrir framan ættaróðal Björgúlfsfeðga. Á litli Bjögginn peninga eða á hann bara skuldir eins og hann reynir að telja fólki trú um? Ef hann á peninga og flytur þá ekki ALLA heim til Íslands nú þegar á að lýsa hann útlægan skógsmann. Þeir peningar sem þessir Björgúlfsfeðgar eru skráðir fyrir eru okkar peningar. Fríkirkjuvegur 11 er okkar hús. Opnið það strax og gerið það að félagsmiðstöð fyrir fólk sem vill hittast, styðja hvert annað í vandræðum sínum og ræða framtíðina.

Vilhelmina af Ugglas, 26.10.2008 kl. 09:09

14 identicon

Ad ætla ad kenna Jóni Baldvini og EES samningnum um ástandid er svo hlægilegt ad ég skammast mín eiginlega fyrir ad vera ad svara tessari vitleysu. En tad tarf stundum ad beita aumkunarlegum brögdum tegar menn eru komnir upp ad vegg.  

Ég bendi á eftirfarandi af bloggi Marinós G. Njálssonar:

"Ef maður skoðar lög nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, þá kemur dálítið forvitnilegt í ljós. Lögunum var breytt með lögum nr. 108/2006 dagsett 14. júní 2006 (sjá greinar 92 - 94) og inn í þau bætt heimild fyrir aðild erlendra útibúa innlendra fjármálafyrirtækja.  Það kemur sem sagt ekki bara í ljós að ríkisstjórnin átti að vita af ábyrgð sjóðsins gagnvart icesave, hún heimilaði það og hreinlega hvatti til þess.  Það þýðir ekkert fyrir menn að segja "þetta bara gerðist", þar sem þetta gerðist með vilja og vitund síðustu ríkisstjórnar!  Ríkisstjórnin opnaði hliðið fyrir Landsbankann að setja á fót icesave með lögum nr. 108/2006.  Það var greinilegt að menn hugsuðu ekkert út í hvað þeir voru að leyfa."

Aftur á móti er hárrétt athugad ad yfirmenn Fjármálaeftirlitsins, tar med talinn Jón Sigurdsson, eiga algerlega ad sæta ábyrgd á sinni vanrækslu í málinu.   

Elfa (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 12:19

15 identicon

Ég held að þú ættir frekar að blogga um nýjustu skoðanakönnun en sletta drulluköku á frænda.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 12:49

16 identicon

Seðlabankinn er í raun gjaldþrota og krónan er ekki lengur til.
Þær krónur sem eru í umferð á Íslandi eru ekki meira virði en matardorpeningar.

Mótmæli gegn valdaklíkunni sem orsakaði þetta hrun eru höfð að háði og spotti af ríkisfjölmiðlunum.
Mafíuforinginn Davíð Oddsson situr sem fastast í brunarústunum og gefur út tilskipanir gegnum leppstjórn sína að þegnarnir eigi að snúa bökum saman og halda kjafti.

Margir íslenskir gáfumenn kyssa svipu mafíuforingjans til að tryggja sér salt í grautinn.
Þeir vitna í gríð og erg um að hrunið sé öllum eða engum að kenna og enginn sé sekur um neitt nema þá illmennin Gordon Brown og Darling.
Hinn  mikli  "Foringi" er óskeikull og hann "varaði við hættunni" en enginn hlustaði á hann.

Íslendingar verða núna að heyja nýja sjálfstæðisbaráttu og endurreisa lýðveldið.
Ef þessi spillta klíka fer ekki frá með góðu, verður að setja á stofn útlagastjórn í einhverju nágrannalandi Íslands og fá aðstoð vinveittra þjóða til að frelsa landið.
Á næstu mánuðum munu þúsundir Íslendinga verða að flýja land vegna efnahagsþrenginga.
Það mun þannig verða nægur liðsafli til að leggja sjálfstæðisbaráttunni lið frá erlendri grund.


Orð Jóns Sigurðssonar á þjóðfundi þann 9. ágúst árið 1851 eiga að vera okkur að leiðarljósi!

"Vér mótmælum allir“


þjóðfundur þann 9. ágúst árið 1851
Sjá slóð;   http://is.wikipedia.org/w/index.php?title=V%C3%A9r_m%C3%B3tm%C3%A6lum_allir&oldid=528826

RagnarA (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband