Varnargrein án auðmýktar

Varnargrein Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í Mogganum í dag er ekki mjög auðmjúk og einlæg - fjarri því í sannleika sagt. Þetta er vélrænn spuni í áttina að því að taka fólk með sér enn einn hring í blekkingunni sem var utan um útrásina og alla lykilþætti hnignunar Íslands sem við horfumst í augu við núna. Greinin er ekki síður varnargrein fyrir Baug, sem á mjög í vök að verjast og alls óvíst um hvað verði um fyrirtækið á næsta ári. Ég held samt að flestir hafi heyrt þessa varnarrullu áður og hafi satt best að segja fengið alveg nóg.

Fréttavefurinn AMX birtir góða grein um Baug um helgina. Þar er farið yfir stöðu fyrirtækisins og örlagaárið 2008 fyrir það og eigendurna. Ekki eru nema átta mánuðir liðnir síðan þeir skáluðu við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, á Bessastöðum. Hann hafði þá veitt fyrirtæki sem er ekki í útflutningsbransa hin margfrægu útflutningsverðlaun forsetaembættisins fyrir forystuhlutverk sitt og árangur í íslensku útrásinni, eins og það var víst orðað.

Eins og flestir vita situr dóttir forsetans, Guðrún Tinna, í stjórn Haga með feðgunum. Tengingin hefur svosem lengi verið augljós. Þetta er grein sem allir áhugamenn um bissness ættu að lesa. Kannski er líka rétt að mæla með grein Jóns Ásgeirs. Þessi grein er skólabókardæmi um afneitun og vélræna úttekt á miklum vanda, án þess að sá sem hana skrifar horfist í augu við að hann beri stóra ábyrgð á vandanum.


mbl.is Jón Ásgeir tekur dóma nærri sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Stefánsson

Það mætti halda að Jón Ásgeir hafi verið sá eini sem var í útrás vegna þess að það er nánast aldrei talað um hina. Sjálfstæðismönnum virðist vera sérstaklega uppsigað við þá og draga forsetann oft inn í umræðuna. Þeir hafa meiriáhiggjur af kaupnanninum á horninu heldur en almenningi í landinu sem þarf að lifa af laununum sínum.

Stefán, fyrir okkur hin sem þurfum að kaupa í matinn sjálf er mjög gott að geta verslað hjá þeim og Bónus hefur lengi verið raunhæfasta kjarabót sem við höfum fengið.

Stefán Stefánsson, 29.12.2008 kl. 11:35

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Maður er ekki að verja neinn,en svona er þetta,greininn er góð og hann segir þarna vel frá,og sennlilega mjög svo rétt,En svona er þetta ,Máltækið sannast oft að" þeir sem búða i gelrhúsi eiga ekki að kasta steinum" svo virðist sem þeir sem gátu komið i veg fyrir þetta allt séum bara hreinir!!!! samber Ríkistjórnin Seðlalabankin og fjármálaeftirlitið/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 30.12.2008 kl. 00:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband