Grjótkast úr glerhúsi - enginn sáttahugur

Mér fannst ţađ koma úr hörđustu átt ţegar Íslandsmeistararnir í rćđuhöldum á Alţingi, Steingrímur og Jóhanna, sökuđu ţingmenn Sjálfstćđisflokksins um málţóf í dag. Eins og ađ kasta grjóti úr glerhúsi. Veit ekki betur en Jóhanna talađi í tíu tíma samfleytt gegn húsnćđismálalögum Páls Péturssonar áriđ 1998 og enginn hafi toppađ ţađ né muni nokkru sinni gera ţađ. Steingrímur J. hefur löngum veriđ sá sem talar mest á ţingi - hann og Jón Bjarnason réđu lögum og lofum í langhundum úr rćđustóli lengst af. Ţetta vita allir.

Mér finnst sáttahugur stjórnarflokkanna enginn, eđa vćgast sagt lítill, ţegar kemur ađ stjórnarskrárfrumvarpinu. Mér finnst ţađ afleitt ţegar ekki er lagt upp međ ţađ frá upphafi ađ reyna ađ ná sameiginlegri niđurstöđu í stađ ţess ađ fara einstefnu međ fyrirframákveđnar forsendur. Ég geri skýran greinarmun á venjulegum frumvörpum og nöldri um ţau og sjálfa stjórnarskrána. Mér finnst ekki eđlilegt ađ vinna í henni á hundavađi og í tímaţröng - verklag sem flestir sérfrćđingar hafa gagnrýnt.

Nú reynir á sáttina. Sjálfstćđismenn hafa komiđ međ góđa tillögu til sátta. Nú reynir á hvort hćgt sé ađ ljúka ţessu kjörtímabili međ sóma fyrir ţingrćđiđ, mun frekar en framkvćmdavaldiđ.

mbl.is Sjálfstćđismenn leggja fram sáttatillögu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband