Sirkusdýr IMF við völd í Seðlabankanum

Vaxtaákvörðun Seðlabankans er varla vonbrigði þegar litið er til þess að yfirstjórnin þar er fyrir löngu orðin eins og sirkusdýr Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Sjálfstæði Seðlabankans er löngu fokið út í veður og vind. Fyrir nokkrum vikum gaf landsstjóri IMF út ordrur um hvað Seðlabankinn gæti gert og ætti að gera.

Þessi ákvörðun í besta falli ómar það og sýnir okkur vel hvar völdin eru i þessu ferli. Seðlabankinn hefur engin alvöru völd lengur og það versta er að stjórnmálamenn hafa gengisfellt hann með hverri ákvörðun sem þeir taka til að þjóna duttlungum IMF.

Ill örlög það.

mbl.is Vextir lækkaðir í 12%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er hjákátlegt að sjá Vilhjálm Egilsson væla núna eftir að hafað farið hamförum ásamt öðrum innlendum agentum og skæruliðum hryðjuverkasamtakanna AGS (IMF) sem gengu ljósum logum í öllum fjölmiðlum til að selja dýrðarboðskap hryðjuverkasamtaknna AGS (IMF), ESB og Samfylkingarinnar og þjóðin blindaðist af lygamörðum og "föðurlandsvinunum" og villuljósunum þeirra.

Bjarni Harðarson skýrði ágætlega framgöngu þessara aðila í bloggi fyrir stuttu:

" Vonandi finnum við þar efnislega umræðu um viðbrögð Davíðs sem hafði hárrétt fyrir sér á þessum tímapunkti. Við áttum aldrei að hleypa Alþjóða gjaldeyrissjóðnum hingað inn. Á sínum tíma gengu agentar sjóðsins með Vilhjálm Egilsson fremstan í flokki milli þingmanna og töluðu fyrir því að allir yrðu nú að leggjast á eitt svo Davíð yrði beygður í þessu máli.

Svo kom Ingibjörg heim frá New York og sagði kokhraust í samtali við Moggann; AGS fyrst, ESB svo..."  (BH)

http://bjarnihardar.blog.is/blog/bjarnihardar/entry/889597/

Davíðs heilkennið og hatrið sem því fylgir er sennilega orðið þjóðinni mun dýrara en allt annað þegar uppi er staðið.  Ef okkur hefði borið sú gæfa að einhver annar en hann hefði lagt til alla þá hluti sem hann gerði eftir hrunið væri staða okkar allt önnur og óumdeilanlega mun betri.  Heimskan nærist á hatrinu.

Íslandseild Attac mótmælir því að íslensk stjórnvöld reki samdráttarstefnu í samráði við AGS sem muni dýpka kreppuna meira en nauðsyn krefur. Þetta er sama stefna og dýpkaði kreppuna í Austur-Asíu á sínum tíma. Í stað þess að reka ríkissjóð með halla til að vinna á móti samdrættinum er skorið niður. Nýlega hefur komið fram í fjölmiðlum að slæm staða sveitarfélaga geri að verkum að skera verði enn meira niður. Þetta er þvert á þær aðvaranir sem Sameinuðu þjóðirnar gefa. Nefnd á vegum allsherjarþings SÞ um kreppuráðstafanir varar við því að láta AGS ráða ferðinni. Stjórnvöld verða að breyta um stefnu, hætta að þjóna fjármagnseigendum og fara að reka kreppupólitík sem kemur almenningi til góða.

http://www.attac.is/

Guðmundur Gunnarsson (IP-tala skráð) 4.6.2009 kl. 13:44

2 identicon

Heilög Jóhanna hefði átt að ýta Davíð hraðar úr seðlabankanum,  maður sem stóð vörð um hag þjóðarinnar en var ekki undirlægja Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem skilur eftir sig sviðna jörð hvar sem hann kemur niður.  Davíð er umdeildur en hann tók þó sjálfur sínar ákvarðanir og stóð eða féll með þeim...það er virðingarvert svona miðað við stöðu peningablebbanefndar sem lætur AGS taka ákvarðanir fyrir sig.

Sigríður (IP-tala skráð) 4.6.2009 kl. 14:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband