Fylgið á fleygiferð á milli flokka í Norðaustri

Könnun í Norðausturkjördæmi Skv. kjördæmakönnun Gallups hér í Norðausturkjördæmi mælist Sjálfstæðisflokkurinn með þrjá kjördæmakjörna þingmenn og tæplega 5% meira fylgi en í kosningunum 2003. Fylgið er á fleygiferð skv. þessa könnun miðað við kjördæmakönnun á Rás 2. VG bætir miklu við sig og Framsóknarflokkurinn réttir úr kútnum frá síðustu könnunum og styrkist mjög, þó auðvitað tapi þeir nokkru kjörfylgi.

Samfylkingin er að tapa nokkru fylgi frá kosningunum 2003 og missir fylgi ennfremur frá kjördæmakönnun í vikunni. Frjálslyndir missa brot úr prósenti og litlu framboðin eru ekki að ná flugi. Stór tíðindi könnunarinnar, sennilega þau stærstu, er að mínu mati hækkun Framsóknarflokksins sem virðist á góðri leið með að halda þriðja manni inni á lokaspretti kosningabaráttunnar. Ennfremur vekur athygli hversu mjög VG er að styrkjast á kostnað Samfylkingarinnar.

Sjálfstæðisflokkurinn: 28% (23,5%)
VG: 23,9% (14,1%)
Framsóknarflokkurinn: 21,9% (32,8%)
Samfylkingin: 19,7% (23,4%)
Frjálslyndir: 5,5% (5,6%)
Íslandshreyfingin: 0,9%
Baráttusamtökin: 0%

Þingmenn skv. könnun

Kristján Þór Júlíusson (Sjálfstæðisflokki)
Arnbjörg Sveinsdóttir
Ólöf Nordal

Steingrímur J. Sigfússon (VG)
Þuríður Backman

Valgerður Sverrisdóttir (Framsóknarflokki)
Birkir Jón Jónsson

Kristján L. Möller (Samfylkingu)
Einar Már Sigurðarson

Fallinn af þingi
Sigurjón Þórðarson

Þetta er merkileg mæling vissulega. Þessi könnun er ekki sérstaklega góð fyrir Sjálfstæðisflokkinn, sem tapar nokkrum prósentustigum frá kjördæmakönnun í síðustu viku. Þar var fylgið rúm 31% en fellur nú niður í slétt 28%. Vissulega er það nokkur fylgisaukning frá kosningunum 2003. Á móti kemur að það voru afspyrnuslakar kosningar fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem féll undir 25% og hlaut aðeins tvo menn kjörna; Halldór Blöndal og Tómas Inga Olrich. Þau úrslit mörkuðu það að við misstum ráðherrastól og forsetastól þingsins. Þetta verður ekki mjög viðunandi útkoma fyrir Sjálfstæðisflokkinn vilji hann öruggan ráðherrastól í vor.

Framsóknarflokkurinn er að styrkjast á lokasprettinum greinilega. Fyrir nokkrum vikum töldu margir það draumóra að Framsókn næði inn þriðja manni. Ég hef alltaf varað menn við því og sagt sem e að Framsókn hefur tekið kosningar á 10-20 dögum, stundum örfáum dögum. Framsókn tók kosningarnar 2003 í Norðausturkjördæmi á viku til tíu dögum. Það var ótrúleg sveifla sem ég gleymi aldrei, enda var ég þá að vinna á fullu í baráttunni. Merkileg staða. Það verður ótrúlegur varnarsigur fyrir Framsókn nái þeir bylgju af þeim skala nú. Þar er klárlega keyrt á Höskuldi og markmið þeirra er að ná honum inn. Það verða mikil tíðindi ná þau honum inn.

VG er greinilega að bæta við sig. Ef marka má sundurliðun er VG að styrkja sig á kostnað Samfylkingarinnar sérstaklega hér á Akureyri. Það er öllum ljóst að flokkurinn hlaut góða kosningu síðast. Það verður þó mikið pólitískt áfall fyrir Samfylkinguna fari hún undir 20% og verður afspyrnuslök mæling fyrir Kristján L. Möller. Það er reyndar athyglisvert að sjá að Samfylkingin er hvergi að halda kjörfylginu og er í bullandi vörn um allt land, berjast fyrir því að ná því. Það er engin sókn og staða þeirra hlýtur að vera þeim áhyggjuefni miðað við langa forystu í stjórnarandstöðu og þorstann í völd. Ný forysta skilar þeim engu. Þetta er vond staða.

Steingrímur J. Sigfússon virðist vera kominn í sína bestu kosningabaráttu á ferlinum. Hann hefur þó langan pólitískan feril að baki. Eftir þingkosningar mun aðeins Jóhanna Sigurðardóttir hafa lengri þingsetu að baki. Hann var landbúnaðar- og samgönguráðherra fyrir óralöngu, árin 1988-1991. Það er reyndar eina tímabilið á 24 ára þingferli Steingríms J. þar sem hann hefur verið stjórnarsinni. Þannig að hann getur talað ansi vítt og greinilega verið borubrattur. VG sækir mjög í sig veðrið í Norðaustrinu. Þeir mælast með tvo kjördæmakjörna, fengu síðast kjördæmamann og jöfnunarmann. Þeir horfa nú til þriðja manns. Hann er í sjónmáli í þessari mælingu.

Frjálslyndir eru að dóla á þessu bili, 5-6%, og hafa verið að gera meginhluta kosningabaráttunnar. Finnst Sigurjón og hans fólk vera að reyna að stóla helst á að hljóta styrk til jöfnunarsætis. Annars fengu frjálslyndir verri kosningu hér vorið 2003 en í meginhluta kosningabaráttunnar. Þá var Brynjar Sigurðarson í þessu leiðtogasæti og hann var hluta baráttunnar nærri þingsæti en komst ekki inn og fékk minna en kannanir sýndu um skeið. Staða Sigurjóns er allavega ótrygg og fátt sem bendir til að hann verði kjördæmakjörinn. Íslandshreyfingin er greinilega í tómu tjóni og ekki líkleg til afreka. Baráttusamtökin sjást varla og ekki vænleg til árangurs.

Kjördæmaþátturinn í Ríkissjónvarpinu áðan var mjög áhugaverður. Þar var Þorvaldur Ingvarsson, lækningaforstjóri FSA og formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar, í forsvari fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það er gott mál, enda er mikilvægt að við kynnum Valda vel. Hann er í baráttusætinu okkar, er sterkur frambjóðandi fyrir Akureyri sem er mikilvægt að komist á Alþingi. Valgerður er sterk í debatt, bítur mjög frá sér og er að ná sama krafti aftur. Hún var í mikilli vörn framan af en styrkist sífellt í takt við það sem gerðist vorið 2003. Steingrímur J. fer langt á mikilli reynslu. Möllerinn er duglegur að ná orðinu og Sigurjón er eins og hann á að sér að vera.

Könnunin færir okkur merkilega mynd af stöðu mála. Það er greinilegt að Framsóknarflokkurinn er að bæta stöðu sína á Akureyri á kostnað okkar í Sjálfstæðisflokknum. Þar munar um Akureyringinn Höskuld Þórhallsson sem kynntur er mjög sem framtíðarmaður í stjórnmálum, maður sem er fæddur og uppalinn hér. Faðir Höskuldar, sr. Þórhallur Höskuldsson, var vinsæll og virtur prestur hér á svæðinu, sérstaklega hér í Akureyrarsókn þar sem hann starfaði til dánardags. Þessar tengingar skipta máli og ég tel að stóra fylgisaukning Framsóknar sé einmitt milli kannana hér á Akureyri. Það segja kannanir mjög vel, þessi mæling segir söguna vel.

VG er að taka af Samfylkingunni sérstaklega hér á Akureyri. Mér sýnist á greiningu könnunarinnar að stóru örlagaskilin séu að verða hér á Akureyri. Það eru mjög vond tíðindi að Sjálfstæðisflokkurinn sé að missa fylgi til Framsóknarflokksins hér á Akureyri. Það er umhugsunarefni fyrir okkur sjálfstæðismenn að mínu mati. Það er alveg deginum ljósara að 28% fylgi er í raun ekki viðunandi útkoma. Ég hef enda alltaf talið að við getum farið hærra og tel að við munum aldrei geta sótt þau áhrif innan flokksins, með ráðherrasetu og öðrum áhrifum, með minna fylgi en 30%. Þessi könnun er að því leyti gula spjaldið um að vinna betur!

En þetta er vissulega athyglisverð mæling, sem gefur ágætis vísbendingar og pælingar í pólitísku umræðuna hér. Margir eru þó enn óákveðnir og þar ráðast örlög frambjóðendanna hér í baráttusætum. Það leikur lítill vafi á því að spennandi 13 dagar eru sannarlega framundan í kosningabaráttunni hér. Þar verður barist um hvert atkvæði. En fylgið er á mikilli ferð og áhugaverðir tímar svo sannarlega framundan.

mbl.is Sjálfstæðismenn og VG bæta við sig mönnum í Norðausturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Pétursson

Finnst þér ekki ásættanlegt Stefán,að flokkurinn þinn er að bæta við sig 4.5% ,en við í Samfylkingunni eru að tapa 4% til VG eins og víðast hvar annars staðar.Það er enn hægt að halda í vonina meðan fylgið er enn á fleygiferð.Mér finnst hins vegar dálítið skrítið,að það er allt í einu kominn ofvöxtur í Framsóknarfl.miðað við önnur kjördæmi.Getur verið að Jón form.sé farinn að fiska út á þessar drepleiðinlegu auglýsingar.Það er víst allt hægt í pólutíkinni.

Kristján Pétursson, 29.4.2007 kl. 17:15

2 Smámynd: Jóhann Þorsteinsson

Þú fyrirgefur Kristján en til eru þeir kjósendur sem kynna sér málefnaskrá og láta ekki útlit á auglýsingum ráða því hver kemst að og hver ekki. Ég þekki sjálfur Höskuld og þar tel ég að sé heiðarlegur maður sem ég fyrir mitt leyti væri alveg til í að sjá inn á þingi. Hinsvegar er athyglivert að svarhlutfallið er einungis 65% og svo er líka flott að sjá skiptinguna hjá ruv.is eftir landssvæðum innan Norðausturkjördæmis því þá sér maður að Framsókn er með yfir 30% fylgi í Þingeyjarsýslum en Sjálfstæðismenn eru sterkastir í Múlasýslunum.

Jóhann Þorsteinsson, 29.4.2007 kl. 18:30

3 Smámynd: Guðmundur Auðunsson

Góð greining að venju Stebbi. Sérstaklega gott að heyra hvaða tilfinningu þú hefur fyrir stöðunni á Akureyri. VG virðist vera á flugi í Eyjafirðinum, stæðstir á Akureyri með 27.3% og langstærstir í Eyjafirðinum utan Akureyrar og á Siglufirði og Ólafsfirði með tæp 32%.  Vinsældir Ólafsfirðingsins Björns Vals hafa líklega eitthvað þar að segja. VG er hins vegar veikur á Austfjörðum, sem má líklega skíra með álversandstöðunni, meðan Sjálfstæðisflokkurinn er lang sterkastur þar. Það er frá gamla tíðin þegar Sjálfstæðisflokkurinn var einungis þriðji stærsti flokkurinn þar eftir Framsókn og Alþýðubandalaginu. Reyndar eru óvissumörkin meiri þegar búið er að brjóta fylgið niður en það gefur samt ákveðna vísbendingu.

Guðmundur Auðunsson, 29.4.2007 kl. 20:02

4 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk fyrir kommentin.

Kristján: Ég verð varla ánægður nema að þetta fari yfir 30%. Spurning hvernig þetta fari allt. Þessi könnun sýnir styrkleika og veikleika Sjálfstæðisflokksins. Þau vinna eflaust í því. Hvað varðar Framsókn held ég að þeir muni hækka. Þeir gætu endað í 13-15%, þeir fara varla ofar. Ef það gerðist yrði það stórsigur á könnunum, eins og 2003. Það gerist varla.

Jóhann: Já, þetta er alveg galopið. Þetta gefur góðar pælingar. En það er greinilegt að landið er að rísa hjá Framsókn. Verður áhugavert að sjá hvað gerist.

Guðmundur: Ég tel að þetta sé fyrst og fremst líka óánægja með meirihluta Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks á Akureyri. Mín tilfinning er að samstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hér sé ekki vinsælt, enda hefur fátt komist í verk í þeim meirihluta. Ég er ekki alltof hrifinn af honum og tel það hafi verið óttalega sleðalegt yfir upphafi kjörtímabilsins. Mér finnst reyndar bæjarpólitíkin hér óttalega litlaus og óspennandi.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 29.4.2007 kl. 20:23

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Stebbi.

Ég verð nú að mótmæla þeirri greiningu þinni að " fátt bendi til þess að Sigurjón nái kjöri " þvert á móti var mæling Félagsvísindastofnunar í ferðalagi Stöðvar tvö með töluna 2,8 % og 5,5 % prósent nú því ákveðin vísbending í því sambandi.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 30.4.2007 kl. 00:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband