24.7.2008 | 11:16
Veruleikafirring á Bessastöðum

Við bætist svo léleg ákvörðun Ólafs Ragnars um að fara á Ólympíuleikana. Forsetaembættið sendi út yfirlýsingu um förina og lét með fylgja langhund um för hans á ráðstefnu í Bangladesh, eins og það væri bæði aðaltilgangur ferðarinnar og um leið að afsaka að hann væri nú að fara á Ólympíuleikana í miðju einræðinu.
Að við skulum þurfa að láta bjóða okkur fjögur ár í viðbót af þessu fjárans rugli.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:29 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Síðuritari
Stefán Friðrik Stefánsson

Ég er í fáum orðum sagt: bjartsýnn, jákvæður, áhugamaður um pólitík, sjálfstæður, kaldhæðinn, skapheitur, kvikmyndafrík, bókaormur, Akureyringur, tónlistarspekúlant og Brekkusnigill. Netfang: stebbifr@simnet.is
Nýjustu færslur
- Bjarni Benediktsson hættir í stjórnmálum
- Áhugavert uppgjör Geirs Haarde við pólitíkina og lífsins ásko...
- Pólitískar vendingar með hækkandi sól
- Að loknum alþingiskosningum
- Gert upp við úrslit kosninga á Akureyri
- Afgerandi umboð Boris - pólitískar áskoranir nýs leiðtoga
- Boris Johnson og Jeremy Hunt berjast um Downingstræti 10
- Boris með fullnaðartök í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins
- Boris hálfnaður í mark - ráðherraslagur um sæti í einvíginu
- Aukin spenna í einvíginu um Downingstræti 10
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Bloggvinir
- Adda bloggar
- Adda Laufey
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Anna
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Steinunn Þengilsdóttir
- Anton Þór Harðarson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Fannar Ólafsson
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Auðun Gíslason
- Auður Björk Guðmundsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Ágúst Bogason
- Ágúst Dalkvist
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ármann Kr. Ólafsson
- Árni Árnason
- Árni Helgason
- Árni Matthíasson
- Árni Torfason
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásdís Rán
- Ásgeir Guðmundsson
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Ásta Möller
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldur Smári Einarsson
- Baldvin Jónsson
- Barði Bárðarson
- Bárður Ingi Helgason
- Bergur Thorberg
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bessí Jóhannsdóttir
- Birgir Ármannsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Birgir R.
- Birgir Örn Birgisson
- Birgir Örn Birgisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Kristjánsson
- Bjartmar Oddur Þ Alexandersson
- Björgvin Þóroddsson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Björn Emilsson
- Björn Kr. Bragason
- Björn Magnús Stefánsson
- Bleika Eldingin
- Blog-andinn Eyvar
- Borgar Þór Einarsson
- Bókaútgáfan Hólar
- Braskarinn
- Breki Logason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Bryndís Helgadóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Brynja skordal
- Bumba
- Bwahahaha...
- Böðvar Sturluson
- Carl Jóhann Granz
- Daði Einarsson
- Dagný
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Jóhannsson
- Davíð Þór Kristjánsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- DÓNAS
- Dóra litla
- Dunni
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar B Bragason
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Helgi Aðalbjörnsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sigurjón Oddsson
- Einar Örn Gíslason
- Einhver Ágúst
- Eiríkur Sjóberg
- Elfur Logadóttir
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Elmar Geir Unnsteinsson
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- E.Ólafsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- ESB
- Ester Júlía
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Eygló Sara
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fannar frá Rifi
- Fannar Gunnarsson
- Fararstjórinn
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Fishandchips
- FreedomFries
- Freyr Árnason
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fræðingur
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerald Häsler
- Gestur Guðjónsson
- Gils N. Eggerz
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Birgir Ómarsson
- Gísli Blöndal
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Grazyna María Okuniewska
- Grímur Gíslason
- gudni.is
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Gunnlaugsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur Jóhannsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar R. Jónsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gylfi Björgvinsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Götusmiðjan
- HAKMO
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- Handtöskuserían
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Haraldsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Haraldur Pálsson
- Haukur Kristinsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Heiða Þórðar
- Heiðrún Lind
- Heimir Hannesson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Heimskyr
- Heimssýn
- Helga Dóra
- Helga Lára Haarde
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Helga skjol
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hersir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Himmalingur
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Kristjánsson
- Hlynur Sigurðsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hommalega Kvennagullið
- Hrafn Jökulsson
- Hrannar Baldursson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreiðar Eiríksson
- Hugrún Jónsdóttir
- Hugsanir
- Hulda Haraldsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Hægrimenn í Menntaskólanum á Akureyri
- Icelandic fire sale
- Inga Dagný Eydal
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Ingi Þór Ágústsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Gíslason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingvi Hrafn Jónsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ívar Jón Arnarson
- Jakob Falur Kristinsson
- JEA
- Jens Guð
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Alfreð Kristinsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Kristjánsson
- Jóhann Waage
- Jóhann Þorsteinsson
- Jón Agnar Ólason
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Ingi Stefánsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Sigurðsson
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- jósep sigurðsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Valsson
- Kafteinninn
- Karl Gauti Hjaltason
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Kári Finnsson
- Kári Sölmundarson
- Kári Tryggvason
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Magnússon
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Vídó
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Gígja Gunnarsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Kristín Hrefna
- Kristján Freyr Halldórsson
- Kristján Hreinsson
- Kristján L. Möller
- Kristján Pétursson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Lára Stefánsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Lilja G. Bolladóttir
- Lilja Ingimundardóttir
- Listasumar á Akureyri
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Logi Már Einarsson
- Maður dagsins
- Magnús Paul Korntop
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Sverrisdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Guðjóns
- María Magnúsdóttir
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Marta Guðjónsdóttir
- Matthias Freyr Matthiasson
- Mál 214
- Methúsalem Þórisson
- MIS
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Myndlistarfélagið
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Námsmaður bloggar
- Oddur Helgi Halldórsson
- Óðinn
- Óðinn Þórisson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólafur N. Sigurðsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ólafur Valgeirsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Nielsen
- Óli Sveinbjörnss
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
- Ólöf Kristín og Ólöf Rut
- Ólöf Nordal
- Ómar Pétursson
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Sigurðsson
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Óskar Örn Guðbrandsson
- Óttar Felix Hauksson
- Óttarr Makuch
- Óþekki embættismaðurinn
- Panama.is - veftímarit
- Paul Nikolov
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Heimisson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Kristbjörnsson
- Páll Rúnar Elíson
- Páll Sævar Guðjónsson
- Páll Vilhjálmsson
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Gunnarsson
- peyverjar
- Pétur Björgvin
- Pétur Sig
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Rafn Gíslason
- Ragnar Arnalds
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar Ólason
- Ragnar Páll Ólafsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Reynir Antonsson
- Reynir Jóhannesson
- Róbert Þórhallsson
- Ruth
- Rúnar Birgir Gíslason
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Óli Bjarnason
- Rúnar Þórarinsson
- Rýnir
- Samtök Fullveldissinna
- Saumakonan
- Señorita
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Gísladóttir
- Sigríður Hrönn Elíasdóttir
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurjón Sveinsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigvaldi Kaldalóns
- Sindri Kristjánsson
- Sjálfstæðissinnar
- Sjensinn Bensinn
- Skafti Elíasson
- Snorri Bergz
- Snorri Sigurðsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Stefanía
- Stefanía Sigurðardóttir
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Þór Helgason
- Stefán Þórsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Steingrímur Helgason
- Steini Bjarna
- Steinn E. Sigurðarson
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stjórn Eyverja
- Sunna Dóra Möller
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Kári Daníelsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Tryggvason
- Sverrir Einarsson
- Sverrir Stormsker
- Sverrir Þorleifsson
- Sverrir Þór Garðarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sæþór Helgi Jensson
- TARA
- Thelma Ásdísardóttir
- Theodór Bender
- ThoR-E
- Tiger
- Tíðarandinn.is
- TómasHa
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trúnó
- Tryggvi F. Elínarson
- Tryggvi Gíslason
- Tryggvi H.
- Unnur Brá Konráðsdóttir
- Úlfur
- Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta
- valdi
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Ómar Jónsson
- Valsarinn
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vestfirðir
- viddi
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Viktor Borgar Kjartansson
- Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
- Vinir Ítalíu,VITA
- Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag
- VÞV
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þjóðleikhúsið
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- Þorleifur Ágústsson
- Þorleifur Leó Ananíasson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Gunnarsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Magnússon
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Steinn Guðmunds
- Þórður Vilberg Guðmundsson
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þráinn Árni Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Örvar Már Marteinsson
Athugasemdir
Það er eins og fólk þori ekki að gagnrýna forsetann og beri fyrir sig virðingu fyrir embættinu sjálfu. Maðurinn er hins vegar búinn að spila rassinn svo úr buxunum að ekki verður við unað og mikilvægt að fólk spyrji sig hvort það vilji að embættið sé notað á þennan hátt.
Þessi bloggfærsla er gott innlegg í þá umræðu.
Helga Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 11:23
Alveg sammála þér frændi. Þetta er mikil lágkúra. Með beztu kveðju.
Bumba, 24.7.2008 kl. 11:37
Sæll
Ég er ekki sammála þér með að ÓRG sé lélegasti forseti sem við höfum átt. ÓRG er "business-minded" og líklega einn af fáum embættismönnum í opinberri stjórnsýslu sem hefur hlotið þá náðargjöf. Hann er duglegur að afla tengsla á erlendum vettvangi, tengsla við áhrifafólk sem getur skapað möguleika á sóknarfærum fyrir íslensk fyrirtæki og land og þjóð. Fyrir tilstuðlan hans hef margt áhrifafólk sótt okkur heim og landið/þjóðin ásamt áhugaverðum verkefnum/möguleikum hér heima hefur hlotið athygli fólks sem getur haft mikið með það að gera hvernig íslenskt þjóðfélag getur þróast í náinni framtíð. Hér hafa t.d. verið sendinefndir frá Arabaríkjum sem hafa fjárfest í íslenskum fyrirtækjum, hér hafa komið aðilar sem eru fremstir í kolefnisjöfnuði og hyggja á fjárfestingu hér og hingað hafa komið aðilar sem augun hafa opnast á um möguleikana sem búa í landinu og þjóðinni. Ég held að öðrum ólöstuðum sé ÓRG að gera hluti og mynda tengsl sem fáir aðrir hefðu möguleika á að gera.
Hagbarður, 24.7.2008 kl. 11:41
Svona svona.
Skítt með kerfið.. má ekki vinurinn eiga 5 vini utan kerfis??
Fjarki , 24.7.2008 kl. 11:46
Það væri gaman að sjá þau Ólaf Ragnar og Þorgerður Katrín skála í kampavíni á Saga Class á leið til Beijing. Verst er að geta ekki setið við hlið þeirra í vélinni.
H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 12:00
Takk fyrir kommentin.
Um að gera að tjá skoðanir sínar á forsetanum. Hef ekki verið sáttur lengi við verk hans og finnst nýjustu verk hans alveg fyrir neðan allt, sérstaklega boðið fyrir Mörthu Stewart í forsetabústaðnum.
Hvað varðar Þorgerði Katrínu og för hennar á Ólympíuleikana gildir það sama um hana og Ólaf Ragnar. Bendi á grein mína um það mál í aprílmánuði.
mbk.
Stefán Friðrik Stefánsson, 24.7.2008 kl. 12:13
Stefán.....Martha er vinkon Dorritar......og svo er hún búin að borga fyrir það sem hún gerði rangt alveg eins og margir X-D menn sem sitja í ábyrðgar stöðum fyrir Sjálfstæðisflokkinn víðsvegar um landið....það er gaman að sjá að þið X-d menn eruð ekki ennþá búin að jafna ykkur á forsetanum hehehehe
Óli Rúnar (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 13:00
Ég ætla ekki að tjá mig um svokallaðan forseta lýðveldisins og mér er slétt sama hvað hann gerir. Ég er nefnilega konungssinni.
Emil Örn Kristjánsson, 24.7.2008 kl. 13:00
Forseti er náttlega bara eitthvað sem ísland ákveður að gefa ofuröryrkjasnobbstatus, við höfum líka ofuröryrkja í ríkiskirkju sumra íslendinga.
Hagstæðast fyrir okkur öll er að losna við þetta allt saman, kannski kreppan setji endapunkt við súperofurörykja á íslandi
DoctorE (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 13:13
Á ríkið að borga boð fyrir vinkonu forsetafrúarinnar? Nei þakka þér kærlega fyrir. Mér finnst þessi forseti gjörsamlega búinn að saga undan sér gólfið.
Stefán Friðrik Stefánsson, 24.7.2008 kl. 13:34
Föstudagur 1. ágúst eftir rúma viku er innsetningardagur forseta í embætti næsta kjörtímabil. Þá er kjörið tækifæri til að sína í verki álit almennings á þessari hömlulausu sjálfs- og auðmannadýrkun.
G. Valdimar Valdemarsson, 24.7.2008 kl. 14:04
Það þurfa að vera skýrar reglur um fjármuni forsetaembættisins. Sjálfsagt er að hið opinbera greiði fyrir veisluhöld og svoleiðis nokk þegar um opinbera heimsókn er að ræða. Hins vegar þegar vinafólk Ólafs eða Dorritar líta við í heimsókn þá á allt að greiðast úr persónulegum sjóðum forsetahjónanna. Þ.m.t. á ekki að nota bifreiðir embættisins í þessum tilgangi. Þegar ég fæ til mín gesti erlendis frá, ekki dettur mér í hug að framvísa veitingahúsareikninginn til vinnustaðar míns. Ég borga sjálfur úr eigin vasa.
H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 15:35
Hann hefur algjörlega sagt skilið við þjóðina.
Hörmulegt að geta ekki losnað við þennan mann.
Gunnar Karlsson (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 15:58
Ólafur Ragnar Grímsson Forseti vor hefur alltaf verið umdeildur maður,ekki síst þegar hann var í Póltík,þá fór hann oft framúr sér en samt,var hann sá Fjarmálráðherra sem þorði að ráðast á svarta vinnu og allt sem að því stóð nótulaus viðskifti og fl./en með þetta embætti Forseta hefur hann bara komið vel út fyrir okkar hönd innanlands sem utan/syndi að hann hefur bein i nefinu með þvi að samþykkja ekki ólög sem átti að koma yfir okkur/en menn eru ekki gallalausir ,og það kanski það sem suma svíður/Halli gamli
Haraldur Haraldsson, 24.7.2008 kl. 16:24
Það hefur verið mín skoðun í langan tíma að það eigi að leggja þetta embætti niður. Það er sorglegt fyrir íslensku þjóðina að hann skuli ætla að sitja áfram.
Óðinn Þórisson, 24.7.2008 kl. 16:50
Eg get alveg tekiđ undir orđ Hagbarđs. Hins vegar er hraesnin og tviskinnungur ORG i samraemi viđ flokksbraeđur hans. Guđ forđi islensku tjođinni fra valdatoku tessa folks i islenskri politik.
Gunnar Th. Gunnarsson, 24.7.2008 kl. 17:13
Sæll Stefán Friðrik,
Ég vona að þjóðin fari nú að vakna upp og sjá í gegnum þessar sjónhverfingar sem staðið hafa yfir á Íslandi í nokkur ár. Það er ekki skrítið að Íslenskt viðskiptasiðferðið er ekki á hærra plani en þetta, þegar sjálfur Forseti Íslands 'Olafur Ragnar býðir þessum auðmönnum og sakamönnum upp á veirslu í boði ykkar Íslensku þjóðini og ekki má gleima að hann færið Jóni Ásgeiri síðan Útflutningsverðlaun í ár fyrir að flytja sparifé ykkar til útlanda Hvar stendur þetta allt saman í dag, þeir eru kanski ekki auðmenn eftir allt þegar búið er að taka saman skuldir og eignir hvað er þá eftir jú nema kanski það fjármagn sem flutt var til Tortola Eyja í BVI í boði KPMG. Kjarni málsins er sá að FL Group og Baugur er í dag einkahlutafélög og þeir svara litlu.
Hvert þessir peningar fóru svo....það er lítið vitað nema að þetta er "ýmis kostnaður" s.s. laun, húsaleiga, ferðalög og svo liðurinn "annar kostnaður" sem er uppá 1.995 milljonir !!! fyrir utan laun og husaleigu fyrir 50.000 starfsmenn.Það eru litlar sem engar upplýsingar að hafa um þennan rekstrarkostnað.....það er hinsvegar óumdeilt að þessi kostnaður uppá 8.800.000.000 krónur t.d. voru greiddar af almenningshlutafélaginu FL Group. Það kemur fram í ársreikningum félaganna.
Hagnaðurinn af sölunni á 10-11 keðjunni sem má lesa um í kaflanum "leynifélagið Fjárfar" á baugsmalid.is sem nam um 400 milljon kronum for inná reikning Gaums ehf. sem er í 100% eigu Gaums ehf.
þegar menn eru að selja og kaupa af sjálfum sér er verið að "búa" til eigið fé þar (Equity) og menn geta fengið lánað útá slíkt....
og svo er auðvitað verið einfaldlega að stela peningum frá þeim þúsundum hluthafa sem eiga hluti í þessum félögum....með því að láta "leppa" kaupa drasl sbr.Sterling flugfélagið....og endurselja svo tilbaka í FL Group....alveg eins og gert var með 10-11 keðjuna af hálfu Baugs...sjá hér:
http://baugsmalid.is/?k=fjarfar
íslenskir fjölmiðlar þegja hinsvegar...enda í eigu þessara útrásarmanna.
Exista á viðskiptablaðið
Bjöggi á 24 stundir og MBL
Baugur á restina
rekstrarkostnaður FL Group fór "eitthvað".....
Alveg eins og þessar 800 milljónir sem voru greiddar til "ráðgjafa" vegna þessa breska leikjafyrirtækis....þeir fóru "eitthvað"......
alveg eins og þessar þúsundir milljónir vegna Sterling..nema það er vitað að þær fóru til "Pálma Haraldssonar" sem er helsti viðskiptafélagi Baugsmanna.
þeir leika sér að íslensku þjóðinni - alveg eins og þeir hafa gert undanfarin ár.
Og fá verðlaun fyrir frá aðal grísnum Óla það er kanski ekki skrítið að logoið sé grís eftir allt saman.
Lestu baugsmalid.is - skýrir margt.
Kv
Jon Gerald Sullenberger.
Jón Gerald Sullenberger (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 18:50
Stefán! Hvernig væri að bíða og sjá hver borgaði þessa veislu! Það liggur eitthvað dýpra undir þessari grein hjá þér Stefán en þettað matarboð!
Óánægju raddir Sjálfstæðismanna ætti að snúa að þeim sjálfum en ekki fara að rífa í sig Hr. Ólaf Ragnar Grímsson þó svo að Davíð Oddson hafi einhverntímann gefið út á hann skotleyfi!
Það er svo mikið að gerast í flokknum þínum Stefán að við skulum ekki vega salt og beina athyglinni eitthvað annað. Þú hefur nógu mikið efni við í að rífa í þig flokksbræður þína og þarft ekki að leita annað.
Þröstur (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 20:41
Algjörlega ósammála þér. Hr Ólafur er algjör yfirburðarmaður í þessu embætti. Ötull í að koma Íslandi á viðskiptakortið erlendis og landi og þjóð til sóma í hvívetna. Haldi þið virkilega að Kínverjar breyti sinni stefnu ef Ólafur mætir ekki á Olympíuleikana. Góða ferð Ólafur skilaðu kveðju til Kína
Fíllinn (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 21:50
Hann er ekki minn forseti.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 24.7.2008 kl. 22:08
Það er a.m.k. eitthvað þokkalega svínslegt við þetta allt saman.
Ekki minn heldur.
Kveðja,
KEG, sem er stoltur af að hafa kosið hinn gaurinn.
kristján Emil Guðmundsson (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 22:14
Gott að sjá að Sjálfstæðismenn hafa nýja málpípu --- þú stendur þig vel ---
Halldór Sigurðsson, 24.7.2008 kl. 22:45
Stebbi.... er ekki óþægilegt að vera svona pirraður


Jón Ingi Cæsarsson, 24.7.2008 kl. 22:45
Ert þú ert á móti því Stefán að 'ORG taki á móti vinkonu konu sinnar og bjóði henni út að borða og það á heimili sínu ?
Ef þér finnst rangt að forseti Íslands og Menntamálaráðherra fylgi eftir þeim keppendum sem valdir hafa verið til að keppa fyrir hönd Íslensku þjóðarinnar Þá hlýtur þú að vera á móti því að við tökum þátt í ólimpíuleikunum eða hvað ?
sæmundur (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 22:57
Ef margir af hans helstu stuðningsmönnum ná einu sínu helsta markmiði, að Ísland gangi í ESB, þá getum við lagt niður Forseta embættið. Gætum reyndar tilnefnd Óla sem Forseta ESB, hann færi vel þar innan um bjúrókrata og möppudýr sem þurfa ekki að bera neina ábyrgð á eigin völdum.
Fannar frá Rifi, 24.7.2008 kl. 23:37
Sæll Stefán Fririk.
Ég get ekki orða bundist,þegar ég heyri þig svo frægan bloggara,nota svona mikið af stórum orðum um Hr. Ólaf Ragnar Grímsson.
þetta er eins og þér hafi orðið brátt í brók.
Enginn forseti tll þessa dags hefur komið eins miklu í verk, og um leið þjóð okkar til heilla.
En auðvitað er ekki allt sem hann tekur sér fyrir hendur, að allra skapi. þá væri nú eitthvað skrýtið með þá hegðun.
Ert þú svo hvítþveginn sjálfur að það stafi ljómi af þér, og er allt svo hreint sem frá munni þínum kemur?
Og einnig hugsanir þínar sem birtast á blogginu að við hin megum læra af?
Ég held ekki, ekkert okkar er fullkomið, Stefán líttu þér nær !
Góðar stundir.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 23:49
Þakka kommentin.
Ólafur Ragnar er ekki yfir gagnrýni hafinn. Þegar hann dregur forsetaembættið á svo lágt plan er tími til kominn að tala hreint út. Ber enga virðingu fyrir þessum forseta og því miður er hann búinn að fara illa með embættið sem slíkt í sinni tíð.
Stefán Friðrik Stefánsson, 25.7.2008 kl. 00:17
Já Stefán þú bregst okkur forsetaskrifaaðdáendum þínum ekki frekar en fyrri daginn
.
Reynir Stefánsson (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 00:42
Niðrandi skrif um forseta Íslands er frekar spes að mínu mati, kannski kraumar ennþá í bláa blóðinu reiði eða særindi eftir að hann hafnaði að samþykkja fjölmiðlafrumvarpið og bláa höndin tók valdið af yfirvaldinu (fólkið í landinu) og rændi það réttinum til að kjósa um réttmæti þess.
Sævar Einarsson, 25.7.2008 kl. 01:19
Reynir: Það er hollt að segja skoðanir sínar. Geri það í þessum efnum. Þessi forseti er hlægilegur. Veruleikafirring hans er orðin algjör.
Sævarinn: Margir vinstrimenn hafa gagnrýnt forsetann síðustu dagana; t.d. Árni Snævarr og Helga Vala á Eyjunni. Auk þess hefur Egill ekki verið að spara sig. Fólk er búið að fá nóg af snobbinu í þessum manni.
Stefán Friðrik Stefánsson, 25.7.2008 kl. 01:21
Hann á að vera snobbaður, hann er jú forseti lýðveldisins.
Sævar Einarsson, 25.7.2008 kl. 01:23
Forsetinn á þvert á móti að vera táknmynd alþýðleika og nota ekki embætti sitt sem skiptimynt til að hampa auðmönnum. Forsetinn er því miður orðinn ofurseldur auðmönnum og í þotuliðinu. Pæla í því að þessi maður var eitt sinn formaður vinstriflokks. En hann var svosem aldrei neitt nema gamaldags framsóknarmaður.
Stefán Friðrik Stefánsson, 25.7.2008 kl. 01:40
Góðan dag Stefán og komið sæl þið allir bloggarar. Þar sem ég er í svo svakalega góðu skapi þá datt mér í hug að leggja orð í belg. Mér finnst þessi umræða hér að ofan einkennast of mikið af öfund. Öfund yfir því að þið eigið ekki sjálf möguleika á að fara í svona ferðir. Það er að mörgu að hyggja þegar um ferðir forsetans er að ræða. Það er í raun svo að færi herra Ólafur forseti ekki til Peking, gæti það haft neikvæð áhrif erlendis. Hvað þótt Ólafur sé ekki að dansa efstu þrepum vinsældalista ykkar heima á Íslandi. Flestir þeir sem kunna vel við störf hans á heimavelli, þegja og láta sér vel líka. Starf herra Ólafs á erlendri grundu er ekki umdeilt. Hann hefur með kunnáttu sinni og greind komið fjölmörgu til leiða. Hann er frábær diplómat og stjórnmálamaður. Hann þorir, eitthvað sem ekki verður sagt um hina einslitu og röksemdagisnu stjórnmálamenn sem sitja á Alþingi - þar sem allir hafa sett hendur í skaut og bíða undirgangsins, biða þess að fari til andskotans.
Forsetinn á ekki að vera táknmynd neinnar hugmyndafræði fremur en annarar. Hans/hennar kostir eiga að vera einmitt þeir sem á hverjum tíma er þjóð og landi til framdrátta, heima og heiman. Að forsetinn eigi að vera táknmynd alþýðleika skít ég hreinlega fullkomlega í. Höfum við forseta, þá skulum við líka gera það með reisn og engum smáborgarahætti. Sleggjudómar og fordómar sem hérna hefur verið skrifað um í greinum fólksins á blogginu um forsetaembættið sýnir því miður, aðeins grunnhyggni og fátæklega kunnáttu í stjórnmálum og alþjóðlegri diplómasíu. Því miður. Stefán! Að vera forseti krefur viss ramma, þekkingar, fjármagns, aðgangs og jafnvel stundum að sitja með þotuliðinu. Embættið á ekki að vera pólitískt, og það sýnir herra Ólafur að hann hafi sannarlega vikið frá. Hann á sér pólistíska fortíð í stjórnmálum vinstri armsins, en mér þykir hann greina þar vel á milli, stjórnmálalegrar fortíðar og svo forsetaembættisins. Mundu að allur þessi munaður og þotuliðsfílingur sem þú nefnir, er hluti af þeim leikreglum sem Ísland þarf að taka þátt í - til að vera með. Annars væri ekki tekið mark á okkur og við ekki tekin alvarlega í alþjóðlegu samhengi.
Baldur Gautur Baldursson, 25.7.2008 kl. 07:20
Voðalega er eitthvað erfitt að vera Sjálfstæðismaður
Valsól (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 07:47
Loksins er ég ánægður með þig Stefán Friðrik. ÓRG er gersamlega úr takti við allt sem heitir íslenskur raunveruleiki og ég vona svo sannarlega að hann sé sítengdur við alnetið og sé búinn að lesa þennan pistil þinn og kommentin sem honum fylgja...
kv. Brynjar
Brynjar (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 08:57
Eitt sem mér finnst mikilvægt í þessari umræðu, er að ef það væri jafn öflugt fjármálaeftirlit á Íslandi og í Bandaríkjunum, þá væru mjög margir í viðskiptalífinu hér með dóma á sér eins og Martha fékk fyrir innherjaviðskipti, en hér á landi þykja þau bara sjálfsagt mál! Þið Sjálfstæðismennirnir sem bendið á forsetann og segir að hann sé að hlaupa undir bagga með glæpamönnum ættuð aðeins að velta því fyrir ykkur afhverju eftirlitsstofnanir á íslandi hafa ekki verið efldar, heldur þvert á móti hefur FME og Samkeppniseftirlitið verið fjársvelt af bláeygðum frjálhyggjupésum sem trúa engu slæmu upp á markaðinn.
Það væri því hægt að gagnrýna hvaða ráðamann á íslandi sem er fyrir að heimboð, svo ekki sé minnst á fyrrverandi dómsmálaráðherra sem ferðaðist um með manninn sinn sem var höfuðpaurinn í bensínverðssamráðinu - og var á meðan æðsti yfirmaður þeirrar stofnunnar sem beið með að rannsaka það mál þar til það var fyrnt.
Ólafur Ragnar er örugglega einna manna heilastur þegar það kemur að spillingu innan stjórnkerfisins, og það er eiginlega bara kjánalegt að heyra sjálfstæðismenn gagnrýna hann. Er einkavinavæðing bankana bara smámál miðað við Mörtu Stewart?
Jónas Tryggvi Jóhannsson, 25.7.2008 kl. 09:14
Sammála (greininni.)
Theódór Norðkvist, 25.7.2008 kl. 09:43
,,Við bætist svo léleg ákvörðun Ólafs Ragnars um að fara á Ólympíuleikana" Stefán hvað finnst þér um flokksfélaga þinn Menntamálaráðherra, er hún ekki á leið á leikana? Hvað er dapurlegt við að Ólafur fari á leikana rétt eins og íþróttafólkið sjálft?
Ég tek undir orð Jóns Inga og spyr ,,er ekki óþægilegt að vera svona pirraður"?.
Páll Jóhannesson, 25.7.2008 kl. 14:51
Er algjörlega á móti því að Þorgerður fari á Ólympíuleikana og finnst sú ferð verða henni til skammar. Var þegar búinn að benda á það hér í kommentum, Páll, og benda á það með tengli á skrif í apríl, þegar hún tók ákvörðunina.
Heldur þú að ég sé bara á móti ferð Ólafs Ragnars Grímssonar? Voðalegur barnaskapur er nú þetta hjá ykkur Samfylkingarmönnum.
Stefán Friðrik Stefánsson, 25.7.2008 kl. 14:56
Stefán Friðrik! Barnaskapurinn liggur í því að gera þennan íþróttaviðburð að pólitísku bitbeini. Og talandi um barnaskap Samfylkingarmanna það læt ég mér í léttu rúmi liggja, enda er ég ekki pólitíkus. Ég minni á að orðalagið sem þú notaðir um ákvörðun Þorgerðar á bloggi í apríl var í góðu lagi og skoðun þín líka. En orðalagið og dónaskapurinn sem þú notar í þessari færslu í garð hr. Forseta Íslands er barnaskapur, óháð því hver situr í þessu embætti.
Páll Jóhannesson, 25.7.2008 kl. 16:07
Það verður hver og einn að hafa sínar skoðanir. Mér fannst boðið fyrir Mörthu Stewart algjörlega út í hött og það fyllti vissan mæli að mínu mati. Þetta er algjörlega óeðlilegt að svo umdeild kona gisti í bústað á vegum forsetaembættisins og haldin sé auðmannaveisla henni til heiðurs í forsetabústaðnum. Veruleikafirringin er algjör.
Hvað varðar Ólympíuleikana finnst mér tvennt ólíkt hvort þeir eru haldnir í lýðræðisríki eða einræðisríki. Ég hef alltaf haft sterkar skoðanir á stöðunni í Kína og mér finnst eðlilegt að sagt sé pass við boði á slíkar samkomur. Það er mikilvægt að láta mannúðarsjónarmiðin ráða för.
Stefán Friðrik Stefánsson, 25.7.2008 kl. 16:14
Eitthvað held ég að ef Herra Ólafur R. Grímsson væri sjálfstæðismaður þá væri þetta bara allt í lagi. Það er með ólíkindum að skítlega eðlið sem Ólafur sagði Davíð Oddsson vera með hér um árið, er enn landlægt innan flokksins.
Hjarðlífið á sér engin takmörk innan XD. Þar eru menn ekki einusinni barðir til hlýðni, þeir hlýða vegna þess að því það er í eðli þeirra, sem íhaldsmanna að hlýða. Það sem verra er þó, er þetta takmarkalausa ósjálfstæði og hugsunarleysi sem einkennir þá sem flokknum fylgja. Dæmi: Enginn þeirra hefur sjáfstæða hugsun, þeir hugsa eins og þeim er sagt að gera og ekki bara það, heldur taka þeir persónulegan pirring Davíðs gagnvart Ólafi og gera hann að sínum.
Ekki bara gagnvart Ólafi, heldur líka gegn Evrópusambandinu líka, því það er búið að þurka út úr "the collective memory" flokksins að Davíð var einn harðasti Evrópusinninn á landinu hér áður. Svo pirraðist hann útí Jón Baldvin og varð fúll á móti. Afleiðingarnar uppskerum við almennigur sem nennum að hugsa, og reyndar hinir líka, þeir eru bara enn í afneitun. Óstjórn efnahagsmála og Seðlabankinn er djók.
Það er fáránlegt að vera vesenast útí Mörthu Stewart þegar orðið innherjaviðskipti eru annarsvegar. Ef hann mætti ekki borða með neinum sem slíkt hefði á samviskunni þá myndi Ólafur snæða einn í öll mál. Nefndu mér þann viðskiptamann sem EKKI hefur notað sér vitneskju sína og lélegan lagaramma hér á landi til að hagnast eða forða sér frá tapi með innherja viðskiptum eða upplýsingum. Eitt nafn er allt sem ég bið um.
Ef öll einkavæðingin eing og hún leggur sig hefði gerst í USA, þá sætu 95 % þeirra sem í henni tóku þátt, á einn eða annan hátt, í fangelsi í dag.
Hér eiga allir hver í öðrum og þegar Baugur fer undir, eins og allt stefnir í miðað við þetta FL group / Enron dæmi sannar þá verða dóminóáhrif, og þeir sem borga brúsann er almenningur sem eru að kauap hlutabréf eins og bjánar
Loopman, 25.7.2008 kl. 22:02
Það er nú óttarlegur barnaskapur að halda því fram að Ólimpíuleikarnir séu ekki pólitískir.
Allt frá upphafi nútíma ólimpíuleika (og örugglega einng í forn öld) hafa leikarnirverið notaðir pólitískt.
Að halda öðru fram er einfaldlega verið að loka augum og halda fyrir eyrun.
Ólimpíleikarnir eru notaðir af þjóðum til að sína mátt sinn og meiginn. Öllu er til tjaldað til þess að sýna hversu mikið hægt er að eyða í leikanna.
Fannar frá Rifi, 25.7.2008 kl. 22:07
Man einhver eftir frumvarpi tengt fjölmiðlum? Þar fanst mér forseti vor setja sig á of háan stall og vinna markvist fyrir meðalgreinda, fjölmiðlaheilaþveginn landann..
Missti allt það litla álit sem ég hafði á Ólafi Ragnari þá og eins á fjölmiðlum þessa lands.
Persónulega er gaman að Ólafi og er hann alþýðlegri en margir halda.
Bestu kveðjur
Halldóra S (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 22:17
Það er sagt að helsta ógn við heimsfriðinn sé Georg W. Bush forseti B.N.A. Er það ekki ábyggilega rétt hjá Davíð Oddssyni að hann og Bush séu vinir?
"Og þetta er staðfest!" sagði Davíð hróðugur í sjónvarpsviðtali.
Kína er auðvitað síðasta þjóðríkið sem ætti að koma til álita við að halda þessa hátíð íþróttamanna. Ólympíuleikar eru eitt mikilvægasta sameiningartákn heimsins þar sem koma saman glæsilegustu afreksmenn allra þjóða án tillits til uppruna og kynþáttar. Ríki sem býr við ógnarstjórn valdhafa með refsitengdum fordómum s.s. á fötlun og kynhegðun á sjálfkrafa að útiloka frá því að skreyta sig með alþjóðlegum hátíðum bræðralags, jafnréttis og vináttu.
Hvorki forseti okkar né menntamálaráðherra komu að þeirri ákvörðun að halda Ólympíuleikana í Kína með þátttöku okkar að sjálfögðu. En ég vænti þess að úr því svona fór verði keppendur okkar sem og þessir glæsilegu, pólitísku fulltrúar landi og þjóð til sóma. Efa það reyndar ekki.
Árni Gunnarsson, 25.7.2008 kl. 22:27
Sæll Stebbi.
Þú veist nú sjálfsagt allt um það ég hefi ekki litið forseta vorn sömu augum eftir að sá hinn sami ákvað að grípa inn i störf Alþingis á sínum tíma, í máli sem sneri að markaðshlutdeild fyrst og fremst.
Nútima tilstand forsetaembættis þess efnis að baða sig í fjölmiðlum er ekki að mínu skapi.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 26.7.2008 kl. 03:13
Þvílík lágkúra sem þessi umræða er. Stewart er vinnkona Dorrit og ekkert óeðlielgt við þetta. Dæmigert að sjá sjálfsstæðismenn bíða eftir hverju tækifærinu til að skíta út forsetann!
Eggert Hjelm Herbertsson, 26.7.2008 kl. 11:17
Af hverju á þjóðin að borga gleðskap og gistingu fyrir Mörthu Stewart? Þessi umræða á fyllilega rétt á sér. Ólafur Ragnar Grímsson er ekki heilagur maður, þó sumir virðist halda það.
Stefán Friðrik Stefánsson, 26.7.2008 kl. 11:18
Er þetta kostnaður sem svíður undan? Er þetta eitthvað sem skiptir máli?
Það virðist vera að sumir menn bíði eftir að þeir sjái eitthvað sem Ólafur gerir sem er gagnrýnivert og ráðist að honum um leið og hægt er.
Ólafur er ekki heilagur maður en þessi umræða er með öllu óþörf og þetta mál sem nú er rétt, skiptir nákvæmlega engu máli.
Eggert Hjelm Herbertsson, 26.7.2008 kl. 13:20
Það er bara einkennilegt að sjá slíka gagnrýni á mál sem skiptir engu máli. Martha Stewart er heimsþekkt persóna og vinkona Dorrit - og hún kom í heimsókn. Big deal!
Kostnaður af þessu skiptir engu máli og þessi læti alveg dæmigerð fyrir þá sem bíða í ofvæni með að geta ráðist að forsetanum. Hann er ekki yfir gagnrýni hafinn frekar en aðrir - en þetta mál skiptir nákvæmlega ENGU máli.
Eggert Hjelm Herbertsson, 26.7.2008 kl. 13:29
Af hverju er ákvörðun forsetans um að vera viðstaddur lokahátíð ólympíuleikanna í Peking "léleg?" Mér þætti fróðlegt að heyra rök þín fyrir því.
Ágúst Ásgeirsson, 26.7.2008 kl. 17:55
Sammála því. Þessi umræða er þvílík lágkúra og hræsni. Eins og Sjálfstæðismenn hafi aldrei boðið til kvöldverðar á kostnað hins opinbera. Þessi kostnaður við eitt gestaboð forseta skiptir engu máli og virðist sem sjálfstæðismenn virðast seint gleyma að höfðinginn þeirra var sagður með skítlegt eðli.
Jeremía, 26.7.2008 kl. 18:04
Eins og hinir flokkarnir hafi aldrei boðið til kvöldverðar á kostnað hins opinbera?
Hverskonar lágkúra og hræsni einkennir þessa umræðu? Má fólk ekki lengur hafa skoðannir og tjá sig?
Alltaf þarf að blanda sjálfstæðismönnum sem einhverjum skrímslum í margar umræður..
Afsakið pirringinn og bestu kveðjur
Halldóra S (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 01:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.