Brown búinn að vera - kuldaleg endalok

Gordon Brown Hverjum hefði órað fyrir því þegar Gordon Brown fékk húsbóndavald í Downingstræti 10 á silfurfati að hann yrði gerður upp innan eigin raða innan fimmtán mánaða, með blóðugum og kuldalegum hætti? Sú er nú að verða raunin. Aðeins er tímaspursmál hvenær Brown fær náðarhöggið og verður kastað út úr breskum stjórnmálum af samherjum sínum og það áður en hann fær tækifæri til að leiða Verkamannaflokkinn í kosningum.

Árið 2005 leiddi hann flokkinn áfram til sigurs fyrir Tony Blair, sem var stórlega skaddaður í sínum síðustu kosningum. Þá var Gordon Brown hetja flokksins og táknmynd sigursins, mun frekar en Blair sem var búinn að vera pólitískt og var pólitískt lamaður - í gíslingu órólegu deildarinnar innan flokksins. Þá óraði engum fyrir því að hinn vinsæli og trausti fjármálaráðherra ætti svo stutt pólitískt líf fyrir höndum og myndi mistakast við leiðtogahlutverkið.

Hann beið í þrettán ár eftir stólnum. Biðin var löng og erfið og hann plottaði sig miskunnarlaust á leiðarenda og ýtti Blair út áður en hann vildi yfirgefa Downingstræti 10. Nú er allt útlit fyrir að Blair-armurinn muni hefja endalokin fyrir Gordon Brown - sparka honum út úr breskum stjórnmálum. Þeir hafa lengi beðið færis í að gera upp Gordon Brown og launa honum lambið gráa og munu nú ganga frá honum pólitískt, brosandi á vör.

Þeir vildu aldrei að hann fengi hnossið mikla og reyndu að berjast gegn því að hann yrði forsætisráðherra. Blair og lykilmenn hans töldu Brown þó of sterkan og afgerandi pólitíkus til að hann yrði stöðvaður. Þeir lögðu ekki einu sinni í að finna kandidat gegn honum. Á rúmu ári er Brown búinn að vera. Hann hefur sópast út í þeim ólgusjó sem einkennir bresk stjórnmál, nú þegar sigur Íhaldsflokksins í næstu þingkosningum er í kortunum.

Fyrir Brown eru þetta vissulega mjög kuldaleg endalok. Hann fékk tækifærið en klúðraði því. Og nú munu þingmennirnir sem óttast um eigin hag sparka honum til að eygja von á endurkjöri. Já, hún er skrýtin þessi pólitík. En hvað ætla kratarnir eiginlega að gera við Gordon Brown þegar þeir hafa sparkað undan honum stólnum?

mbl.is Ráðherrar hvattir til að ýta Brown til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þetta kemur manni mjög svo á óvart/Hafði á honum mikla trú/Halli gamli/ P/S  "en engin er annars bróðir i leik!"!!!!

Haraldur Haraldsson, 27.7.2008 kl. 01:02

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég hélt að Tony hefði staðið viljugur upp fyrir Brown?  Þannig var amk reynt að láta þetta líta út.  En þetta  er auðvitað sennilegra eins og þú lýsir því.

Sigurður Þórðarson, 27.7.2008 kl. 09:23

3 identicon

Gordon Brown er Halldór Ásgrímsson breskra stjórnmála.  Báðir hæfileikaríkir stýrimenn en valda ekki að verða skipstjórar.  Annars þarf Brown ekki að kvarta.  Þegar hann hættir verður hann gerður að lávarði, fær stjórnarformannsetu í einhverju fínu fyrirtæki, heldur fyrirlestra um heim allan og fær vel greitt fyrir og svo mun hann skrifa ævisögu sína fyrir dágóða upphæð.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 10:31

4 Smámynd: Fannar frá Rifi

Er ekki meiri líkur á því að hann fái einhver embætti í Brussel heldur en í fyrirtæki?

Fannar frá Rifi, 27.7.2008 kl. 11:47

5 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Halli: Þetta er búið að vera fyrirsjáanlegt lengi, en samt þetta jafnast á við pólitíska aftöku og það innan eigin flokks.

Siggi: Auðvitað vildi Blair ekki fara þegar Brown valdi tímann fyrir hann. Brown lagði drög að þessu með haustbyltingunni 2006, þá loksins fékkst Blair til að gefa upp tímaramma afsagnar. Hann ætlaði sér að sitja allavega eitt ár lengur en hann gerði á endanum.

H.T: Gordon Brown verður eins og holdsveikisjúklingur falli hann frá pólitískt með svo kuldalegum hætti. Hann hefur ekki fengið tækifæri til að leiða flokkinn. Allir treystu honum en vilja nú slátra honum. Fyndið. Langlíklegast er að hann fái alþjóðastarf á vegum Bretlands. Hann fer ekki að starfa í Bretlandi í komandi framtíð eftir svona aftöku.

Fannar: Jú, það er líklegast. Yrði ekki hissa þó hann færi til Brussel sem kommissar í staðinn fyrir Mandelson.

Stefán Friðrik Stefánsson, 27.7.2008 kl. 11:51

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Góður pistill hjá þér Stefán.

Þetta er nú búið að hafa góðan aðdraganda. Flokkurinn er með 24% í skoðanakönnunum en Íhaldið með 46% ef ég man þetta rétt.
Ekki hefur hann farið vel út úr kosningum hingað til - tapað þeim öllum með stæl.

Það er bara tímaspursmál hvenær hans samherjar henda honum út.

Valur sótti 3.stig til Grindavíkur

Óðinn Þórisson, 27.7.2008 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband