Líkamsárásir og einelti í FSU - skuggaleg þróun

Ekki er hægt að segja að síendurteknar árásir nokkurra nemenda á samnemendur í Fjölbrautaskóla Suðurlands sé góð kynning á skólanum, starfinu þar innanhúss eða yfirstjórninni þar. Á örfáum dögum höfum við heyrt af þremur slíkum málum, ráðist að nemanda með kúbeini, sparkað í höfuð og lamið í höfuð með grjóti.

Algjörlega ólíðandi er að slíkt viðgangist á skólalóð þar sem nemendur eiga að geta sinnt sínu námi án þess að eiga á hættu árás eða aðkast, sem getur leitt til varanlegs skaða á sál og líkama. Í raun eiga að vera einhverjar verklagsreglur og skýr vinnubrögð til staðar í svona málum, enda á að vernda rétt nemenda.

Svo er auðvitað annað að þetta er auðvitað lögreglumál og á að láta slíkt verða víti til varnaðar, taka hart á því bæði innan skólans sem utan. Þetta á ekki að líðast. Gróft ofbeldi og einelti er partur af því sem vinna á gegn í skólum landsins með öllum tiltækum ráðum.


mbl.is Ráðist með grjóti á 16 ára pilt í FSu á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sæmundur Ágúst Óskarsson

sammála þér, svona á alls ekki líða og auðvitað eru þetta pura lögreglumál sem auðvitað á að taka fast á.

Sæmundur Ágúst Óskarsson, 20.2.2009 kl. 09:37

2 Smámynd: ThoR-E

Þetta er alveg ótrúlegt.

Skóli á að vera griðarstaður fyrir nemendur.  Að sumir nemendur séu hræddir við að fara í skólann sinn, er algjörlega ólíðandi.

Maður getur ekki annað en velt fyrir sér hvort stjórnendur þessa skóla séu hæfir til starfa. 

Þegar hópur pilta réðust saman á einn og stórslösuðu hann að þá var einum þeirra vísað úr skóla í 1 dag, og annar fékk 3 daga frí. Fórnarlambið gat hinsvegar ekki sinnt námi sínu í 2-3 vikur vegna áverka.

Hverskonar vinnubrögð eru viðhöfð í þessum skóla, mér er spurn.

ThoR-E, 20.2.2009 kl. 11:38

3 identicon

Algjörlega er ég sammála þér með þetta, en því miður þá virðist þetta ekki bara vera í Fsu heldur í grunnskóla þarna í bæ líka og hefur viðgengst í mörg ár. Og það virðist sem engan endi ætli að taka. Fyrir utan það,  er það líka yfirleitt þolandinn sem gefst upp á að vera í þeim skóla sem þar sem eineltið fer fram en ekki gerandinn sem auðvitað ætti að vera vikið úr skóla og það strax. Og því miður er yfirleitt alltof seint gripið inní og þolandinn jafnvel orðin skemmdur fyrir lífstíð.

Ólöf Jónsdóttir (IP-tala skráð) 20.2.2009 kl. 12:40

4 identicon

Ég vil benda á að kúbeinsmálið gerðist hvorki á skólatíma né skólalóð og mennirnir sem frömdu árásina voru ekki í skólanum á þeim tíma.  Þannig að þetta eru tveir verknaðir og algjörlega óskyldir, svo á engan hátt er hægt að kalla þetta síendurtekið! Þú lætur þetta líka hljóma eins og þetta hafi verið sama fólkið í báðum málunum, sem það var ekki.

Þó þú segir það ekki, þá vil ég benda á að skólastjórnendur hafa brugðist við á 100% réttan hátt og mér leiðist það svakalega þegar fólk sem veit ekki alla söguna fer að bæta við fáfræðis athugasemdum að stjórnendur séu óhæfir.

Annars er ég sammála, þetta er lögreglumál en málin voru líka kærð til lögreglu.  Einnig er ég sammála um að það þurfi að vera harðari reglur í sambandi við þetta og það þarf að vinna betur gegn ofbeldi allsstaðar á landinu, ekki bara í skólum.

Stoltur nemandi FSu (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 18:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband