Engin fyrirsögn

Jóhannes Páll páfi II
1920-2005


Jóhannes Páll páfi II liggur á viđhafnarbörum í Vatíkaninu

Kaţólskir menn og kristnir um allan heim hafa í dag minnst Jóhannesar Páls páfa II, sem lést í Vatíkaninu í Róm í gćrkvöldi, 84 ára ađ aldri. Um leiđ og andlát hans var formlega tilkynnt í gćrkvöldi komu rúmlega 100.000 manns saman á Péturstorginu og minntist hans og bađ saman til heiđurs honum. Fylgdist ég međ ţeirri merku athöfn í beinni netútsendingu á sjónvarpsstöđ Vatíkansins. Sérlega áhrifamikiđ var ţegar klukkunum var hringt til heiđurs honum og til ađ marka ţau sögulegu ţáttaskil sem átt höfđu sér stađ. Ennfremur var táknrćnt ađ sjá ţegar bronsdyrum Vatíkansins var lokađ, sem merki um ţađ ađ páfi vćri látinn. Hurđin verđur ekki opnuđ ađ nýju fyrr en eftirmađur hefur veriđ kjörinn. Nú, er páfi hefur lokiđ jarđvist sinni, tekur sérlegur ađstođarmađur páfa, Eduardo Martinez Somalo kardináli, viđ daglegum skyldum hans fram yfir vígslu nýs páfa. Somalo hefur veriđ nánasti ađstođarmađur páfa í tvo áratugi. Skrifstofa utanríkis- og innanríkismála Vatíkansins er nú međ öllu umbođslaus og ekki er ţví hćgt ađ sinna diplómatískum málefnum fyrr en eftirmađur hefur veriđ kjörinn. Engin ákvarđanataka má eiga sér stađ nema minniháttar tengd daglegum athöfnum.

Ţjóđarsorg verđur í mörgum ríkjum í dag og nćstu daga vegna andláts páfans. Í heimalandi hans, Póllandi, hefur veriđ lýst yfir sex daga ţjóđarsorg en ţriggja daga á Ítalíu. Samhliđa ţví ađ vera páfi var Jóhannes Páll II auđvitađ trúarlegur leiđtogi rómversku kirkjunnar og ţví er mikil sorg ţar, rétt eins og í Póllandi. Angelo Sodano kardináli, söng í morgun sálumessu til heiđurs páfa á Péturstorginu. Viđ ţá athöfn voru viđstaddir fjöldi trúarleiđtoga kaţólsku kirkjunnar og erlendir erindrekar á hennar vegum og tćplega 140.000 manns voru saman komin á Péturstorginu. Viđ ţetta tćkifćri var lesiđ seinasta ávarpiđ sem páfi samdi fyrir dauđa sinn. Á sömu stund var flutt annađ ávarp hans viđ minningarathöfn í Krakow í Póllandi ţar sem Jóhannes Páll II var erkibiskup til fjölda ára, áđur en hann var kjörinn páfi í október 1978. Mikill hátíđarblćr var yfir athöfninni á Péturstorginu í morgun og sérlega áhrifaríkt ađ sjá hversu mjög fólk tók andlát páfa nćrri sér og bar mikla virđingu fyrir trúarlegu starfi hans seinustu áratugina. Sodano kardináli, flutti falleg minningarorđ um páfa viđ ţetta tćkifćri.

Um hádegiđ, eftir athöfnina á Péturstorgi var lík páfa lagt á viđhafnarbörur í Höll miskunnseminnar í Vatikaninu. Fór ţar fram mjög hátíđleg stund, ţar sem ćđstu forystumenn Ítalíu, stjórnarerindrekar og leiđtogar kaţólsku kirkjunnar minntust páfa. Carlo Azeglio Ciampi forseti Ítalíu, og Silvio Berlusconi forsćtisráđherra Ítalíu, voru ţar viđstaddir ásamt eiginkonum sínum. Lík páfa var sveipađ fullum skrúđa, hann var á viđhafnarbörunum klćddur rauđum og hvítum klćđum og međ gylltan mítur á höfđi, sem er til marks um virđingu fyrir honum og verkum hans í embćtti. Hafđi biskupsstaf veriđ komiđ fyrir í annarri hendi hans eins og páfi héldi á honum. Eftir táknrćna og virđulega athöfn voru honum flutt blessunarorđ og ađ ţví loknu var líkinu komiđ fyrir á börum í Péturskirkjunni ţar sem almenningur mun geta kvatt páfa hinsta sinni á nćstu dögum. Má búast viđ ađ vart muni fćrri en tvćr milljónir manna um allan heim, pílagrímar og fólk víđsvegar ađ, leggja leiđ sína nćstu daga í Vatíkaniđ til ađ kveđja páfann hinsta sinni. Er Jóhannes Páll páfi I lést í september 1978 komu tćplega ein og hálf milljón manns til ađ kveđja hann hinsta sinni.

Útför páfa mun vćntanlega fara fram á fimmtudag, ţó ţađ hafi ekki endanlega veriđ ákveđiđ blasir viđ ađ svo muni ađ öllum líkindum vera. Mun ţađ verđa söguleg stund, enda markar dauđi páfans söguleg ţáttaskil í sögu kaţólsku kirkjunnar. Hafa ađeins tveir menn ríkt lengur í embćttinu og margir ţjóđarleiđtogar og forystumenn kristinnar trúar í heiminum munu vera viđstaddir athöfnina, fyrstu útför leiđtoga kaţólskrar trúar í 27 ár. Ađ athöfn á Péturstorginu og í St. Péturskirkju lokinni mun kista Jóhannesar Páls páfa II vćntanlega verđa grafin í grafhvelfingu kirkjunnar. Ţar eru páfar sögunnar flestir grafnir. Eftir greftrun hans mun taka viđ svokallađ tímabil sem ber nafniđ Novemdialis, 9 daga formlegt sorgartímabil, sem markast af ţví ađ á hverjum degi er haldin hátíđarmessa í St. Péturskirkju. Eftir ađ Novemdialis er lokiđ er komiđ ađ stćrsta verkefninu sem fylgir andláti páfa, ţví ađ velja formlega eftirmann hans. Kjörmannasamkunda kardinála ber ađ koma saman 15 dögum eftir formlegan dánardag páfa og alls ekki síđar en 18 dögum.

Andlát páfa eftir svo langan tíma í forystu kaţólsku kirkjunnar eru tímamót. Jóhannes Páfi II var litríkur páfi og markađi stór spor í sögu kirkjunnar. Hann fór í 104 opinberar heimsóknir og heimsótti 129 lönd. Samkvćmt upplýsingum frá Vatíkaninu eyddi hann 822 dögum embćttisferils síns, eđa 2 árum og 3 mánuđum, í ferđir utan Vatíkansins. Hann flutti 20.000 rćđur og ávörp og veitti rúmlega 1.000 áheyrnir í Vatíkaninu sem 17 milljónir og 800.000 manns sóttu. Hann átti fundi međ 1.600 stjórnmálaleiđtogum ţar af 776 ţjóđarleiđtogum. Hann gaf út fleiri grundvallaryfirlýsingar og tilskipanir innan kirkjunnar en áđur hefur ţekkst og tók 482 menn í dýrlingatölu sem er meira en allir forverar hans hafa gert í 400 ár. Ţađ deilir ţví enginn um áhrifamátt ţessa trúarleiđtoga sem nú hefur kvatt. Hvađ sem segja má um skođanir hans voru áhrif hans mikil og enginn vafi leikur á ađ hann var einna merkastur af trúarleiđtogum í sögu kaţólsku kirkjunnar.

Jóhannes Páll páfi II kemur fram í glugga íbúđar sinnar í Vatíkaninu í hinsta skipti - 30. mars 2005

Í sunnudagspistli mínum í dag minnist ég Jóhannesar Páls páfa II, eins eftirminnilegasta trúarleiđtoga kaţólskra, manns sem hafđi mikil áhrif á sögu 20. aldarinnar. Pólverjinn Karol Józef Wojtyla var fyrsti páfinn í 455 ár sem ekki var Ítali ađ uppruna. Hann fćddist 18. maí 1920 í smábćnum Wadowice í Póllandi. Hann var kjörinn páfi í október 1978 og gegndi embćtti, ţrátt fyrir slćma heilsu, allt til dauđadags. Hann heimsótti um 130 lönd á 27 ára páfaferli og var víđförlasti páfi sögunnar og flutti fleiri rćđur og predikanir en nokkur annar trúarleiđtogi í sögu kristinnar trúar. Verk páfa og trúarleg forysta verđa lengi í minnum höfđ. Fer ég yfir ćvi hans og feril í embćtti og fer ennfremur yfir ţađ ferli sem nú tekur viđ, er kardinálar ţurfa ađ velja nýjan trúarleiđtoga sinn. Jóhannes Páll páfi II var heillandi og traustur fulltrúi embćttis síns og ekki síđur trúarinnar. Framlag hans gleymist ekki. Hann markađi skref í sögu mannkyns sem gleymast ekki ađ mínu mati. Verk hans skipta alla heimsbyggđina miklu máli. Ţau hverfa ekki međ honum, nú er hann kveđur okkur öll hinsta sinni. Gildi verka hans verđa ađ eilífu til stađar fyrir alla kristna menn.

Saga dagsins
1882 Bergur Thorberg landshöfđingi, tilkynnir um stofnun sameiginlegrar geymslu fyrir skjalasöfn ćđstu embćtti Íslendinga. Međ ţessari ákvörđun var lagđur grunnurinn ađ Ţjóđskjalasafni Íslands
1975 Bobby Fischer heimsmeistari í skák, sviptur titlinum í kjölfar ţess ađ hann tilkynnti ađ hann myndi ekki keppa um hann viđ Anatoly Karpov á forsendum FIDE - Fischer varđ heimsmeistari áriđ 1972 í kjölfar sögulegs skákeinvígis viđ Boris Spassky í Reykjavík. Fischer sneri aftur og keppti viđ Spassky í Júgóslavíu 1992 til ađ minnast hins sögulega einvígis í Reykjavík. Međ ţví ađ keppa ţar braut Fischer gegn viđskiptabanni Bandaríkjanna á hendur Júgóslavíu og var hann á flótta undan bandarískum yfirvöldum í 12 ár. Hann var handtekinn í Japan áriđ 2004, vegna ţess ađ hann hafđi ekki gild skilríki. Íslensk stjórnvöld björguđu Fischer úr vandrćđum sínum međ ţví ađ gera hann ađ íslenskum ríkisborgara í mars 2005. Kom hann til landsins eftir langa ferđ frá Japan 24. mars 2005
1978 Leikkonan Diane Keaton hlaut óskarinn fyrir túlkun sína á Annie Hall í samnefndri kvikmynd meistara Woody Allen - Keaton er ein af bestu leikkonum sinnar kynslóđar og hefur hún átt fjölda af glćsilegum leikframmistöđum á ferlinum og ţykir jafnvíg á bćđi dramatísk og gamansöm hlutverk
1984 Hundahald leyft ađ nýju í Reykjavíkurborg, en ţó gert ađ uppfylltum mjög ströngum skilyrđum
2001 Grćnmetisskýrslan kynnt - innflytjendur grćnmetis og ávaxta sektađir um 105 milljónir króna

Snjallyrđiđ
When freedom does not have a purpose, when it does not wish to know anything about the rule of law engraved in the hearts of men and women, when it does not listen to the voice of conscience, it turns against humanity and society.
Jóhannes Páll páfi II trúarleiđtogi kaţólskra (1920-2005)


Bloggfćrslur 3. apríl 2005

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband