30.6.2005 | 17:10
Engin fyrirsögn
Kristín Ingólfsdóttir prófessor í lyfjafrćđi viđ Háskóla Íslands, tók í dag viđ embćtti rektors Háskóla Íslands. Hún er fyrsta konan til ađ gegna embćtti rektors skólans í 94 ára sögu hans. Hún sigrađi Ágúst Einarsson prófessor viđ viđskipta- og hagfrćđideild skólans, í rektorskjöri í skólanum í mars. Tekur Kristín viđ rektorsembćttinu af forvera sínum í embćtti, Páli Skúlasyni. Sigur Kristínar í mars var mjög sögulegur, úrslitin mörkuđu ţáttaskil í sögu skólans. Ţađ var óneitanlega sögulegt ađ kona hafi veriđ kjörin til forystu í skólanum og taki nú viđ forystu hans. Tekur Kristín viđ embćttinu af Páli Skúlasyni á vissum kaflaskiptum í sögu hans. Nýtt og merkilegt umhverfi blasir viđ skólanum núna og ţađ verđur verkefni hennar ađ vinna ađ ţeim ţáttaskilum sem framundan eru ađ vissu leyti. Í kosningabaráttu sinni bauđ hún sig fram sem fagmann á sínu sviđi í starfi innan skólans og öflugan ţátttakanda í innri uppbyggingu náms ţar. Kristín bauđ sig ekki fram á forsendum kyns, ţrátt fyrir ađ vera fyrsta konan sem býđur sig fram í forystu hans međ ţessum hćtti. Öll hennar kosningabarátta var á forsendum ţess ađ hún vćri hćf til ţess ađ leiđa skólann og hefđi reynslu fram ađ fćra. Verđur mjög fróđlegt ađ fylgjast međ verkum hennar og forystu á vettvangi skólans á komandi árum.

Horfđi í gćrkvöldi á úrvalsmyndina Annie Hall, hina stórfenglegu kvikmynd meistara Woody Allen. Er ţetta frábćr mynd, hiklaust ein af mínum uppáhaldsmyndum. Í henni eru góđir kómískir ţćttir en einnig má finna fyrir alvarlegum undirtón og skemmtilegri sýn á nútímaástarsamband ţess tíma. Er í raun sjálfsćvisöguleg úttekt á sambandi Allens og Diane Keaton en ţau eru bćđi tvö hreint ómótstćđileg í myndinni. Hér er nóg af hinum venjulegu en alltaf óvćntu Allenbröndurum og pćlingum um ástina en líka dýpri og innilegri íhuganir, enda er Annie Hall persónulegasta mynd Allens fyrr og síđar, gerđ af einstakri hlýju og miklum skilningi og ógleymanlegum húmor. Fjallar um stormasamt ástarsamband grínista og söngkonu sem á sér háleit markmiđ í lífinu og mikla drauma. Inn á milli fljóta hressilegir brandarar og snjallar athugasemdir um lífiđ og tilveruna ađ hćtti Woody Allen. Diane Keaton hlaut óskarinn fyrir leik sinn og myndin var valin besta kvikmynd ársins og Allen hlaut leikstjóraóskarinn. Klassísk kvikmynd sem verđur sífellt meira meistaraverk međ hverju áhorfi. Frábćr mynd sem ég horfi reglulega á. Ávallt viđeigandi - alltaf ljúf.

Skjár 1 hefur undanfarnar vikur rifjađ upp fyrir okkur kynnin af hinum stórkostlegu gamanţáttum Cheers sem eru međ skemmtilegustu gamanţáttum í bandarísku sjónvarpi seinustu áratugina. Ţćttirnir gengu undir nafninu Staupasteinn, í ţýđingu Guđna Kolbeinssonar, ţegar ţeir voru sýndir á miđvikudagskvöldum hjá Ríkissjónvarpinu hér í denn, sćllar minningar. Cheers voru međ langlífustu gamanţáttum í bandarísku sjónvarpi, en ţeir gengu sleitulaust í heil 11 ár, eđa frá 1982-1993. Leikhópurinn samanstóđ af t.d. Ted Danson, Shelley Long, Kirstie Alley (sem kom inn í ţćttina viđ brotthvarf Long 1987), Nicholas Colasanto (er fór á kostum sem Coach fyrstu ţrjú árin, en hann lést snögglega 1985), Rhea Perlman, John Ratzenberger, Woody Harrelson, George Wendt og Kelsey Grammer. Grammer fór á kostum í hlutverki sálfrćđingsins Frasier Crane frá 1984, en fór svo í eigin ţátt 1993 og var međ ţá allt til 2004, eđa í heil 11 ár. Grammer lék ţví Frasier samfleytt í tvo áratugi. Voru Cheers ţćttir sem ég hafđi gaman af til fjölda ára og horfđi á, enda alveg magnađur húmor í ţeim. Ţađ er sönn ánćgja ađ horfa á ţćttina, nú frá byrjun og horfa á ţátt eftir ţátt í seríu eftir seríu, öll 11 árin. Skjár 1 á ţakkir skildar fyrir ţetta framtak.

Seinustu vikurnar hef ég veriđ ađ rifja upp kynni mín af spennusögum Arnaldar Indriđasonar. Undanfariđ hef ég lesiđ aftur Bettý og Mýrina. Seinustu dagana hef ég veriđ ađ lesa ađ nýju Grafarţögn, sem ađ mínu mati er ein af allra bestu bókum Arnaldar. Í sögunni er sögđ sagan af ţví er mannabein finnast í grunni nýbyggingar í útjađri Reykjavíkur og líkur benda til ađ glćpur hafi veriđ framinn. Beinin virđast vera nokkurra áratuga gömul og sérfrćđingar eru fengnir til ađ grafa ţau upp en samtímis hefur lögreglan leit ađ fólki sem gćti vitađ eitthvađ um máliđ. Beinafundurinn leiđir ţau Erlend, Sigurđ Óla og Elínborgu, nokkra áratugi aftur í tímann til sögu af konu einni og fjölskyldu hennar. Hér kemur viđ sögu fjölskylduharmleikur á fyrri hluta 20. aldar og leyndardómar fortíđarinnar verđa grafnir upp međ beinafundinum. Lengst af er beinafundurinn erfitt púsluspil en ađ lokum skýrist myndin og verđur heildstćđ frásögn af liđnum tíma og gömlu máli sem er enn í nútímanum skuggamynd í huga ţeirra sem vita sannleikann. Hvet ég alla til ađ lesa bókina, sem ţađ hafa ekki gert nú ţegar. Svo má enginn gleyma ađ lesa hinar bćkur Arnaldar.

Tekiđ er ađ fjara mjög undan bresku leiđtogunum Blair og Howard. Ljóst er auđvitađ ađ báđir eru á útleiđ í breskum stjórnmálum á kjörtímabilinu og leiđa ekki flokka sína í nćstu kosningum. Bresku grínteiknararnir hjá Guardian voru fljótir ađ teikna pólitíska stöđu ţeirra međ hnyttnum hćtti. :)
Saga dagsins
1936 Gone with the Wind eftir Margaret Mitchell, gefin út - varđ ein vinsćlasta skáldsaga aldarinnar og varđ uppistađan í einni bestu kvikmynd aldarinnar, sem bar sama nafn og gerđ var á árinu 1939.
1968 Dr. Kristján Eldjárn ţjóđminjavörđur, kjörinn forseti Íslands, međ 67,3% greiddra atkvćđa - hann sigrađi mótframbjóđanda sinn, dr. Gunnar Thoroddsen sendiherra, međ miklum yfirburđum.
1984 Skáldkonan Lillian Hellman, deyr, 79 ára ađ aldri - Lillian var án vafa ein fremsta skáldkona Bandaríkjanna á 20. öld. Međal bestu ritverka hennar eru ritin Little Foxes og Watch on the Rhine.
1992 Margaret Thatcher fyrrum forsćtisráđherra Bretlands, tekur sćti í bresku lávarđadeildinni.
2002 Brasilía vinnur heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu, eftir afgerandi sigur á Ţjóđverjum í S-Kóreu.
Snjallyrđiđ
Sólin brennir nóttina, og nóttin slökkvir dag;
ţú ert athvarf mitt fyrir og eftir sólarlag.
Ţú ert yndi mitt áđur og eftir ađ dagur rís,
svölun í sumarsins eldi og sólbráđ á vetrarins ís.
Svali á sumardögum og sólskin um vetrarnótt,
ţögn í seiđandi solli og syngur, ef allt er hljótt.
Söngur í ţöglum skógum og ţögn í borganna dyn,
ţú gafst mér jörđina og grasiđ og guđ á himnum ađ vin.
Ţú gafst mér skýin og fjöllin og guđ til ađ styrkja mig.
Ég fann ei, hvađ lífiđ var fagurt, fyrr en ég elskađi ţig.
Ég fćddist til ljóssins og lífsins, er lćrđi ég ađ unna ţér,
og ást mín fćr ekki fölnađ fyrr en međ sjálfum mér.
Sigurđur Nordal prófessor (1886-1974) (Ást)
Breytt 18.9.2006 kl. 08:02 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)