18.9.2005 | 22:06
Engin fyrirsögn

Í sunnudagspistli í dag fjalla ég um ţrjú fréttamál vikunnar:
- í fyrsta lagi fjalla ég um pólitísku stöđuna í Ţýskalandi í kjölfar ţingkosninganna ţar. Óhćtt er ađ segja ađ pattstađa sé komin upp ţví ađ hvorugri valdablokkinni tókst ađ ná hreinum meirihluta. Stefnir ţví í stjórnarkreppu, nema ţá ađ stóra samsteypa (grosse koalition) komi til sögunnar. Velti ég fyrir mér stöđunni og fer yfir úrslitin og önnur merkileg atriđi sem rétt er ađ fjalla um. Óhćtt er ađ segja ađ úrslit kosninganna feli í sér mestu óvissustöđu í ţýskum stjórnmálum í marga áratugi. Ţrátt fyrir gott gengi í skođanakönnunum undanfarnar vikur og mánuđi mistókst hćgrimönnum undir forystu dr. Angelu Merkel leiđtoga CDU (kristilegra demókrata) ađ vinna ţann mikla kosningasigur sem talinn var í sjónmáli. Hinsvegar hefur Merkel engu ađ síđur mjög góđa stöđu og fćr vćntanlega umbođ til ađ mynda stjórn. Hún leiđir nú stćrsta flokkinn í ţýska ţinginu, ţann flokk sem flest atkvćđi hlaut í kosningunum í dag. Gerhard Schröder kanslari, er ţó ekki í ţeim hugleiđingum ađ bakka sjálfviljugur frá sćti sínu og verđur fróđlegt ađ sjá hvađ taki viđ á nćstu dögum.
- í öđru lagi fjalla ég um John G. Roberts sem hefur veriđ skipađur forseti hćstaréttar Bandaríkjanna. Hefur hann komiđ fyrir dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaţings og svarađ spurningum. Blasir viđ ađ hann verđi stađfestur í embćttiđ fyrir lok mánađarins. Fjalla ég um Roberts og málefni tengd skipan hans. Ţađ er til marks um sterka stöđu Roberts ađ demókratar hafa ekki lagt fram vafa vegna kosningarinnar, sem fara á fram 28. september nk. Enginn ţorir ađ draga feril hans í efa. Ţađ er alveg ljóst ađ Bush hefur tekist ćtlunarverkiđ međ tilnefningunni, ađ finna íhaldsmann til ađ tilnefna en mann međ mjög góđan bakgrunn og er ekki međ beinagrind í skápnum, eins og sagt er. Ţađ er enda ljóst ađ Roberts mun verđa stađfestur af ţinginu vel fyrir mánađarmót. Ţađ er ljóst ađ međ skipun Roberts í forsetastól hćstaréttar hefur Bush forseti markađ sér sess í sögunni.
- í ţriđja lagi fjalla ég um umsókn okkar í Öryggisráđ SŢ og atburđarás vegna ţess máls seinustu daga. Forsćtisráđherra hefur lýst formlega yfir frambođinu međ rćđu á allsherjarţingi Sameinuđu ţjóđanna. Andstađa viđ máliđ hefur magnast upp seinustu mánuđina innan stjórnarflokkanna. Eins og sést hefur á viđbrögđum ţingmanna stjórnarflokkanna eftir yfirlýsingu forsćtisráđherra, meira ađ segja ţingmanna hans eigin flokks er engin samstađa um máliđ. Ţađ er enda fariđ af sporinu - möguleikar okkar á sćtinu minnka sífellt og máliđ er ađ mjög litlu leyti heillandi. Ég get ekki annađ en ítrekađ andstöđu mína viđ máliđ og ber fram ţá ósk ađ Sjálfstćđisflokkurinn muni beita sér í ţá átt ađ horft verđi í ađrar áttir og hćtt verđi viđ ţessa umsókn.
1916-1982

Lengi hef ég haft mikinn áhuga á ađ frćđast um söguna og sögulega punkta úr ćvi merkra Íslendinga. Í síđustu viku veiktist ég og ţurfti ađ vera heima vegna ţess. Endurnýjađi ég kynni mín af ćvisögum Gylfa Gröndal um fyrstu forsetana ţrjá - stórfenglegar bćkur. Sérstaklega hefur mér alltaf ţótt gaman ađ lesa bókina um Svarfdćlinginn Kristján Eldjárn og forsetaferil hans, ţar sem vitnađ er í dagbókarskrif hans. Las ég bókina aftur - fyrsta af ţessum ţremur ađ ţessu sinni. Kristján hefur alltaf ađ mínu mati veriđ einn fremsti forseti ţjóđarinnar - sannkallađur heiđursmađur sem var sameiningartákn í embćttinu. Kristján fćddist ađ Tjörn í Svarfađardal ţann 6. desember 1916. Hann nam fornleifafrćđi viđ Kaupmannahafnarháskóla 1936-1939 og var skipađur ţjóđminjavörđur 1947. Hann var kjörinn forseti Íslands í forsetakosningunum 1968. Sat hann á forsetastóli í ţrjú kjörtímabil, 12 ár, eđa allt til ársins 1980. Hann lést á sjúkrahúsi í Cleveland í Ohio í Bandaríkjunum ţann 14. september 1982.
Kristján vann afgerandi kosningasigur í forsetakjörinu 1968. Hann var forseti fólksins, honum auđnađist alla tíđ ađ tryggja samstöđu landsmanna um verk sín og naut virđingar allra landsmanna. Kristján var forseti á miklum umbrotatímum hérlendis, bćđi í ţjóđmálum og á vettvangi stjórnmála. Kristján var mjög kraftmikill rćđumađur og rómađur fyrir innihaldsríkar og tilkomumiklar rćđur sínar. Hef ég kynnt mér ítarlega ćvi hans og starfsferil og skrifađi langa ritgerđ um hann í skóla eitt sinn. Ţegar ég kynnti mér verk hans og ćvi ţótti mér helst standa upp úr hversu farsćllega hann vann öll sín verk. Hann var öflugur ţjóđarleiđtogi og ávann sér virđingu fólks međ alţýđlegri og tignarlegri framkomu, jafnt hér heima sem á erlendum vettvangi. Hann var sannkallađ sameiningartákn landsmanna - eitthvađ sem viđ höfum svo sannarlega saknađ frá ţví ađ Vigdís Finnbogadóttir hćtti sem forseti.
Bók Gylfa um Kristján er stórfengleg lýsing á ţessum merka manni. Merkilegast af öllu viđ ađ kynna mér hann og verk hans í gegnum ţessa bók var ţađ ađ honum var alla tíđ illa viđ Bessastađi og var alltaf stressađur vegna rćđuskrifa sinna - var aldrei sáttur viđ neinar rćđur sínar. Hann var hinsvegar talinn ţá og enn í dag besti rćđumađur sinnar kynslóđar ađ Gunnari Thoroddsen frátöldum. Hann er eini af ţeim ţrem forsetum landsins sem látnir eru sem hvílir ekki ađ Bessastöđum, heldur hvílir hann í Fossvogskirkjugarđi í Reykjavík. Fékk ég ćvisögu Kristjáns í jólagjöf um jólin 1991 - eflaust er ţađ mjög til marks um karakter minn og áhugamál. Međan ađ skólafélagar mínir fengu bók á borđ viđ Tár, bros og takkaskór, las ég svona eđalbćkur. Tel ég mig hafa grćtt mikiđ á ţví og hafa áhugasviđ mín ekki breyst í áranna rás.
Hvet ég alla til ađ lesa ţessar góđu bćkur og kynna sér vel og ćvi og forsetatíđ forsetanna ţriggja - sérstaklega mćli ég međ bókinni um Kristján, sveitastrákinn ađ norđan sem varđ forseti Íslands og öflugur ţjóđhöfđingi landsins.
Saga dagsins
1851 Dagblađiđ New York Times kom út í fyrsta skipti - umdeilt blađ vegna fréttamennsku sinnar.
1961 Dag Hammarskjöld framkvćmdastjóri Sameinuđu ţjóđanna, ferst í flugslysi í Rhodesíu, 56 ára ađ aldri. Hann hlaut friđarverđlaun Nóbels eftir andlát sitt, í virđingarskyni viđ umfangsmikiđ framlag hans til friđar í heiminum, en hann var á leiđ til Kenýa til ađ taka ţátt í friđarviđrćđum ţegar hann lést. Aldrei hefur komiđ fyllilega í ljós hvort flugvél Hammarskjolds fórst vegna slyss eđa var grandađ.
1968 Portúgalska knattspyrnuliđiđ Benfica keppti viđ boltaliđ Vals á Laugardalsvellinum í Reykjavík. Áhorfendur voru 18.243, en ţađ var vallarmet á vellinum allt til 18. ágúst 2004 ţegar Ísland sigrađi Ítali. Leiknum lauk međ markalausu jafntefli en međal leikmanna Benfica var hinn víđfrćgi Eusebio.
1970 Tónlistarmađurinn Jimi Hendrix, lést í London, 27 ára gamall. Hann var einn fremsti gítarleikari 20. aldarinnar - rokkgođsögn í lifanda lífi, sem ávann sér sess í sögu tónlistarinnar á örstuttum ferli.
1997 Viđskiptajöfurinn Ted Turner sem átti til dćmis CNN, gaf Sameinuđu ţjóđunum 1 billjón dala.
Snjallyrđiđ
Ţađ er svo margt ađ una viđ,
ađ elska, ţrá og gleđjast viđ,
jafnt orđ, sem ţögn og lit sem lag,
jafnt langa nótt, sem bjartan dag.
Mér fátt er kćrra öđru eitt
ég elska lífiđ djúpt og heitt,
ţví allt, sem mađur óskar, nćst
og allir draumar geta rćzt.
Ég byggi hlátraheima
í húmi langrar nćtur.
Af svefni upp í söngvahug
međ sól ég rís á fćtur.
Og augun geisla af gleđi
sem grćr í mínu hjarta.
En syrti ađ ég syng mig inn
í sólskinsveröld bjarta.
Kristján frá Djúpalćk skáld (1916-1994) (Dans gleđinnar)
Fallegt ljóđ Akureyrarskáldsins Kristjáns frá Djúpalćk - tćrt og sćtt í gegn.
Breytt 18.9.2006 kl. 08:02 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)