12.10.2007 | 20:24
Meirihluti tekur við völdum án málefnasamnings
Ég hélt í sakleysi mínu að sérstaklega Vinstrihreyfingin - grænt framboð væri að vinna af hugsjónum í stjórnmálum en stundaði ekki bitlingapólitík. Það hefur svo margoft verið sagt nefnilega af þeim sjálfum. Annað er upp á döfinni í Reykjavík. Þeir ætla sér að taka við völdum í borgarstjórn án þess að vera með málefnasamning og heildstæða samninga um lykilmál. Þetta vekur mikla athygli og verður kannski meginstef fyrir fjögurra framboða meirihlutann. Þetta verður kyrrstöðustjórn þar sem allt snýst um veikar málamiðlanir og reynt verður að sigla rólega í gegn, enda geta minnstu átök gengið frá því sem nógu veikt er fyrir.
Það er ekki undrunarefni að spurt sé um hvaða stefnu eigi að samtvinna fyrir þessi fjögur öfl um flugvöllinn í Vatnsmýrinni, málefni Örfiriseyjar, einkaskólana og svona mætti lengi telja. Það vantar svosem varla hitamálið næstu 30 mánuði. Mér finnst samt skilaboðin sem felast í þeim stórfregnum að setjast eigi að völdum án þess að hafa samið um málefnin segja allt sem segja þarf um hvað sé aflið á bakvið meirihlutann. Þar er öllu fórnað fyrir völdin og svo á að sjá til síðar hvort að þetta reddist ekki. Þetta eru sterk skilaboð, sérstaklega þar sem þau gerast á vakt vinstri grænna sem hafa verið svo miklir hugsjónamenn að eigin sögn.
Svandís Svavarsdóttir er að fara mikinn á fundi félaga sinna við að tala illa um Sjálfstæðisflokkinn og talar þar um að Valhöll geti ekki tekið á málum. Þetta er fyndinn boðskapur sem hún er að flytja yfir samherjum sínum. Af hverju talar hún ekki um málefnin sín, þau lykilþemu sem hún ætlar að standa vörð um innan REI-listans og þann málefnagrunn sem unnið er að? Vegna þess að málefnavinnan er annaðhvort ekki hafin eða á svo miklu frumstigi að þau geta ekki tekið helgina og mánudaginn í að setja saman málefnagrunn eða samning til verka.
Þetta er fyndin pólitík, en eitthvað segir mér að þetta verði pólitíkin sem REI-listans verður minnst fyrir að leiðarlokum. Þetta er bitlingapólitík sem Svandís er að standa fyrir í sinni raunverulegustu mynd.
![]() |
Svandís: Valhöll getulaus í erfiðum málum" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.10.2007 | 18:01
Er Björn Ingi að ganga erinda auðmanna?

Það eru aðeins lélegar útskýringar sem komu frá fundi framsóknarmanna. Bingi talar um að þreifingar hafi verið í gangi. Var hann ekki sjálfur í formlegum viðræðum við leiðtoga hinna flokkanna áður en meirihlutanum var slitið? Voru mögulegar viðræður einhverra sjálfstæðismanna formlegar samningaviðræður um meirihluta? Ef svo er væri gott að Bingi kæmi fram og segði betur frá því. Staðreyndin er sú að hefði slíkt verið í gangi hefðu sjálfstæðismenn ekki haldið heiðarlega til viðræðna um að leysa mál eins og þeir gerðu.
Ég held að óheilindi Björns Inga Hrafnssonar verði lengi í minnum höfð. Svona eftirminnileg svik vekja athygli, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að ekki höfðu farið fram kosningar og samstarfinu er slitið á mjög undarlegum forsendum á miðju kjörtímabili. Það er mjög óvarlegt að jafna þessu saman við endalok stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í vor, en þar höfðu farið fram kosningar og Framsókn hafði þar misst tæplega helming þingflokks síns og stóð veikur eftir, að vilja kjósenda. Það voru ekki sjálfstæðismenn sem veiktu Framsókn, landsmenn gerðu það með atkvæði sínu.
Í raun má hugleiða hvort að Framsóknarflokkurinn í Reykjavík hafi sterkt umboð. Bingi var úti nær alla kosningabaráttuna en halaðist inn á lokadögunum með miklum auglýsingum kostuðum af auðmönnum sem dældu peningum í framsóknarleiðtogann. Eins og auðmenn voru örlagavaldar í að tryggja kjör Binga má spyrja hvort að auðmenn hafi líka leikið lykilhlutverk í slitum meirihlutans í Reykjavík. Enn vantar alvöru skýringar á slitum meirihlutans og verklaginu. Svör Binga í dag eru loðin og ósannfærandi.
Í 16 mánuði hafa vinstriflokkarnir í Reykjavík barið á Birni Inga Hrafnssyni og Framsóknarflokknum æ ofan í æ, ekki bara í landsmálum heldur líka í borgarmálunum. Það er frekar fyndið að heyra þá mæra upp Binga núna og bjarga honum úr skítnum sem hann var kominn í. Fyrir þá sem standa utan flokkshitanna í borginni verður áhugavert að sjá þá hjónabandssælu sem fylgir meirihluta þessara fjögurra flokka.
Menn tala um hvort að Bingi hafi gengið erinda auðmanna, sérstakra sérhagsmuna. Það er freistandi að halda það í grunninn. En við lok alls þessa sjónarspils er ekki undrunarefni að menn hafi teiknað upp Björn Inga Hrafnsson sem Glanna glæp. Svo mikið er víst.
![]() |
Björn Ingi: Þreifingar fóru fram af hálfu sjálfstæðismanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
12.10.2007 | 15:46
Gore fær friðarverðlaunin - fer hann í framboð?

Það hefði fáum órað fyrir því þegar að Gore hvarf úr miðpunkti stjórnmálaumræðu fyrir tæpum sjö árum, beygður og sár, eftir að hafa naumlega mistekist að verða forseti Bandaríkjanna í jöfnustu forsetakosningum í sögu landsins að hann myndi hljóta friðarverðlaun Nóbels og yrði ein af stjörnunum við afhendingu óskarsverðlaunanna í Los Angeles. Allt þetta hefur honum tekist á innan við einu ári. Gore hafði vissulega stuðning fræga fólksins og peningafólksins í borg englanna á sínum tíma og safnaði miklum fjárhæðum í kosningabaráttuna árið 2000 og vann Kaliforníu þá með nokkrum yfirburðum, en hann var þó aldrei með stjörnuljóma á við leikarana.
Það leikur enginn vafi á því að Al Gore varð fyrir þungu áfalli í forsetakosningunum 2000. Hann vann.... en tapaði samt. Hann er enn að vinna við að byggja sig upp eftir þann þunga skell en virðist hafa tekist það með undraskjótum hætti. Hann er orðinn gúrú í umhverfismálum og hefur markað sér sess sem mikilvægur postuli í umræðunni um loftslagsmálin. Á sama tíma og sól Bush forseta hnígur hratt til viðar hefur Gore tekist að halda sviðsljósinu og ljómanum af fyrri frægð og áhrifum. Hann hefur byggt upp áhrif sín á öðrum vettvangi - vettvangi sem honum hefur tekist nokkurn veginn að gera að sínum, algjörlega í gegn.
Al Gore náði aldrei að heilla mig í forsetakosningunum 2000. Mér fannst hann grobbinn og fjarlægur. Það er alveg ljóst að með þessari ímynd sem hann hefur nú hefði hann unnið forsetakosningarnar vestan hafs þá. Nú er reyndar talað um pólitíska endurkomu hans og hvort hann muni gefa kost á sér í forkosningum demókrata, sem hefjast brátt, við val á forsetaefni flokksins. Al Gore hlaut fleiri atkvæði í forsetakosningunum 2000 á landsvísu en George W. Bush en mistókst að sigra í fleiri fylkjum Bandaríkjanna og tapaði því í kjörmannasamkundunni. Það er ekki fjarlægur möguleiki. Persónulega myndi ég telja hann sterkasta valkost demókrata nú.
Ég tel að Gore sé lífsreyndari og sterkari nú en áður. Hann virðist hafa farið í algjöra endurnýjun, það er öllum mönnum hollt. Mér finnst Gore allavega sterkari karakter nú en fyrir átta árum. Richard M. Nixon og Al Gore eiga það sameiginlegt að hafa tapað naumlega forsetakosningum meðan að þeir gegndu embætti varaforseta. Báðir tóku þeir tapið gríðarlega nærri sér. Merkilega margt er líkt með sálrænu áfalli þeirra eftir tapið. Nixon tapaði fyrir John F. Kennedy með svo naumum hætti að lengi vel var óvíst um úrslitin. Deilt var um úrslitin í Illinois meðal annars. Ólíkt Gore véfengdi Nixon ekki stöðu mála þar og bakkaði frá stöðu mála.
Ósigur Gore var mun tæpari en Nixons fjörutíu árum áður. Það hefur margt verið rætt og ritað um tap Nixons. Hann var brennimerktur af því alla tíð. Gore gekk í gegnum svipaðan sálrænan öldudal. Nixon tókst að eiga sér endurkomu og varð forseti átta árum eftir tapið sögufræga. Það verður seint sagt að Nixon og Gore eigi pólitískt margt sameiginlegt. Um margt voru þeir sem dagur og nótt. Bitur reynsla þeirra við tap í forsetakosningum er þó kaldhæðnislega lík þegar á er litið. Báðir mörkuðust þeir alla tíð af tapinu. Nixon tókst að eiga sér endurkomu og eiga söguleg ár á forsetastóli, með mörgum afrekum á vettvangi utanríkismála, sem féllu öll í skugga Watergate.
Al Gore hefur endurnýjað sig. Mér finnst hann sterkari nú en fyrir átta árum. Hann hefur helgað sig málstað, málstað sem ég tel að sé þverpólitískur. Fyrir vikið er hann sterkari leiðtogaímynd. Margir telja hann eitt sterkasta forsetaefni flokksins þrátt fyrir mistækan stjórnmálaferil sem markast af góðum og slæmum dögum í stjórnmálum. Lykiltromp Gore er fyrst og fremst pólitísk reynsla. Hann var varaforseti Bandaríkjanna á tímum Clinton-stjórnarinnar 1993-2001 og hefur reynslu á vettvangi alþjóðastjórnmála og málum í Washington. Barátta hans í umhverfismálum hefur líka markað honum aðra tilveru sem gæti orðið honum drjúg er á hólminn kemur.
Það verður fróðlegt að sjá hvort að hann snýr aftur á pólitíska sviðið í aðdraganda kosninganna þar sem eftirmaður keppinautar hans í sögulegustu forsetakosningum Bandaríkjanna frá upphafi verður valinn. Hann hefur neitað því æ ofan í æ en það hlýtur að kitla hann, sérstaklega eftir þennan alþjóðlega norræna heiður sem friðarverðlaun Nóbels óneitanlega eru. Það er allavega ljóst að Gore hefur meiri stjörnuljóma. Maður sem hefur bakgrunn stjórnmálamannsins sem hefur risið upp úr erfiðum öldudal en hefur samt eftir það stjörnuljóma á kvikmyndahátíðum er fjarri því dauður úr öllum æðum.
![]() |
Al Gore og loftslagsnefnd SÞ hljóta friðarverðlaun Nóbels |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.10.2007 | 15:14
Dramatísk atburðarás í borgarmálunum
Heilt yfir blasir við hversu mjög sjálfstæðismenn voru heiðarlegir við Framsókn, meira að segja eftir mjög loðna ræðu Björns Inga Hrafnssonar í borgarstjórn, þar sem þegar mátti sjá merki þess að hann horfði á önnur mið. Sjálfstæðismenn reyndu að leysa málin með heiðarlegum hætti á meðan að Björn Ingi sat á svikráðum með öðrum aðilum. Það hlýtur að teljast sómi sjálfstæðismanna að falla á sannfæringu sinni en um leið hefur Björn Ingi Hrafnsson styrkt stöðu sína til fullra metorða innan Framsóknarflokksins með ómerkilegum klækjum af áður óþekktri gráðu. Hann fylgir leiðsögn læriföðurins sem leiddi brotin fjögur til sex saman.
Það virðist enginn innan nýs meirihluta geta sagt hvað standa margir flokkar að honum. Þeir eru allt frá því að vera fjórir til sex, eftir því hvað heiðarlegt mat nær langt í sjálfu sér. Það vekur líka athygli að í þessu einstæða andrúmslofti þar sem aldrei hefur verið myndaður meirihluti í Reykjavík án kosninga er slitið á undarlegum forsendum. Það er ekki undrunarefni að sá orðrómur vakni að Björn Ingi Hrafnsson sé að ganga erinda auðmanna og undarlegra sérhagsmuna. Öll atburðarásin kallar á að sá orðrómur vakni og verði eitthvað meira en eiginlega orðrómur í sjálfu sér.
Þegar eru ungliðar vinstri grænna farnir að láta í sér heyra. Þeir spyrja eðlilega tveggja lykilspurninga; hversvegna studdi Dagur B. Eggertsson að völdum aðilum yrðu veittir umdeildir kaupréttarsamningar? - og - muni Björn Ingi gera hreint fyrir sínum dyrum í orkumálunum?. Seinni spurningin vekur mikla athygli. Ég held að margir til vinstri séu með óbragð í munni yfir að taka upp samstarf við Björn Inga. Öllu er þar fórnað fyrir völdin og sérstaka athygli vekur hversu allt er fljótt fallið í ljúfa löð þar. Eftir öll stóru orðin gegn Birni Inga er öllu gleymt.
Ekki aðeins er Bjarni Harðarson orðinn eins og bráðið smjör gagnvart honum heldur líka vinstriöflin. Þar talar enginn lengur um að hann eigi að segja af sér vegna REI-málsins. Þvert á móti, nú ætla vinstriöflin að stjórna með honum. Mjög merkilegt. Reyndar mátti þegar sjá fléttu þess á miðvikudag að vinstrimenn ætluðu að gleypa stóru orðin þar sem aðeins var ráðist að borgarstjóranum en ekki Birna Inga, sem þó sat í stjórn REI og var í miðri atburðarás allra þeirra ákvarðana sem vinstrimenn voru svo ósáttir með. Öll stóru orðin gegn Binga gleymdust til að eygja von um völd.
Hversu heilt verður samstarf þeirra sem leiða öflin fjögur? Það verður stærsta spurning næstu 30 mánaða. Björn Ingi er í mjög undarlegri stöðu. Nú þarf hann að fara að semja við þá sem harðast hafa gagnrýnt hann og leita þess að koma sínum málum á dagskrá þar. Sum þeirra hafa verið hörð átakamál í borgarstjórn. Er pólitískt mannorð Björns Inga ekki stórlega skaddað? Hversu sterkur forystumaður er Margrét Sverrisdóttir? Fornir félagar hennar á meðal frjálslyndra gremjast sárlega yfir vegtyllum hennar. Henni hefur verið bjargað, þeim til sárra vonbrigða.
Þessi meirihluti er skrýtinn grautur í sjálfu sér. Margt í kringum hann orkar tvímælis. Hann er málefnalega tómlegur að sjá, fulltrúar aflanna gátu engum spurningum svarað í gær nema sem snerust um það hvernig gekk að skipta embættum og horfa eitthvað áfram með REI. Öll grunnatriði málanna standa eftir hálfkláruð utan garðs. Þar verða alvöru viðfangsefni og fróðlegt verður að sjá hvernig að Binga gangi að vinna með þrem framboðum, sumum með óljósan grunn, fyrst hann strandaði á samstarfi við einn.
![]() |
Vilhjálmur borgarstjóri og Björn Ingi féllust í faðma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)