22.10.2007 | 15:59
Vilhjálmur Einarsson sagður látinn í Fréttablaðinu
Ég verð að viðurkenna að ég kipptist heldur betur við er ég sá í Fréttablaðinu í gær að Vilhjálmur Einarsson, hinn forni íþróttakappi, væri sagður látinn og nefndur þar sem Vilhjálmur heitinn Einarsson. Hafði það algjörlega farið framhjá mér að Vilhjálmur, sem er fyrrum skólameistari og kennari á Egilsstöðum, hefði kvatt þennan heim og ég verð að viðurkenna að ég leit inn á Íslendingabók til að athuga hvenær að hann hefði dáið. Við þá athugun komst ég að því að Vilhjálmur er sprelllifandi, eins og mig grunaði reyndar.
Fréttablaðið afsakar svo mistökin í blaði sínu í dag skilst mér, enda eðlilegt, en þetta eru mjög pínleg mistök. En mikið hlýtur það að vera ömurlegt að sjá sjálfan sig nefndan með þessum hætti og væntanlega hefur frjálsíþróttakappanum forna varla verið hlátur í huga við að lesa blaðið í gær.
Fréttablaðið afsakar svo mistökin í blaði sínu í dag skilst mér, enda eðlilegt, en þetta eru mjög pínleg mistök. En mikið hlýtur það að vera ömurlegt að sjá sjálfan sig nefndan með þessum hætti og væntanlega hefur frjálsíþróttakappanum forna varla verið hlátur í huga við að lesa blaðið í gær.
22.10.2007 | 14:08
Sagan endalausa

Þó að Stevens lávarður viðhafi mjög sterk orð um það að McCann-hjónin hafa orðið sakborningar á mjög veikum grunni er ég sammála flestu því sem hann segir, t.d. um rannsóknina og lykilpunkta hans. Það er t.d. ekki hægt annað en að taka undir það mat hans að portúgalska lögreglan hafi gjörsamlega klúðrað þessari rannsókn, strax á upphafsreitnum. Það hvernig þeir fóru t.d. með íbúðina, vettvang hvarfs stelpunnar, fyrsta sólarhringinn og lykilatriði var skólabókardæmi um hvernig ekki á að vinna sakamálarannsókn.
Það er auðvitað alveg rétt að gögnin sem eru fyrir hendi til að varpa grun á hjónin eru verulega veik. Ella hefðu þau strax verið ákærð og verið lokuð hreinlega inni. Vangaveltur um sýnin voru í upphafi að mati fjölmiðla sterk en áhugaleysi þeirra á þeim hluta málsins síðustu vikur sýnir betur hvað mál portúgölsku lögreglunnar sé veikt í alla staði. Reyndar finnst mér fjölmiðlaumfjöllun um málið hafa minnkað síðustu vikur, það er kannski eðlilegt enda er erfitt að hafa það sem fyrstu frétt þegar að ekkert er áberandi að gerast.
Mér finnst Stevens lávarður reyndar ansi djarfur að tala um galdraofsóknir. En hinsvegar er ekki hægt annað en taka undir það að hafi Portúgalar viljað beina grun að foreldrunum áttu þeir að byrja á að kanna hvort þau hafi verið sakborningar strax í upphafi. Það er reyndar ansi margt sem bendir til að málið sé fast í verulegum ógöngum og ekkert muni upplýsast. Það er sorglegasta niðurstaða málsins ef aldrei verður varpað ljósi á hvað gerðist í maíbyrjun í Praia de Luz.
![]() |
McCann-hjónin fórnarlömb hræðilegra galdraofsókna" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2007 | 13:19
Räikkönen nokkuð öruggur - glötuð áfrýjun

Það yrði kjammsað á því árum saman að Hamilton yrði heimsmeistari vegna ákvörðunar annarra og ég held að það væri engum til sóma allra síst hinum efnilega ökumanni sem Lewis Hamilton er. Eins og staðan er orðin finnst mér Kimi Räikkönen nokkuð öruggur um titilinn og finnst það ekki líklegt að neitt gerist meira.
Eðlilega er Fernando Alonso andvígur þessari áfrýjun. Hann hefur verið fúll í marga mánuði vegna velgengni nýliðans Hamiltons. En varla talaði Alonso með þessum hætti nema vegna þess að hann sé á útleið frá McLaren. Það bendir allt til þess að þeir muni ekki deila sviðsljósinu á næsta keppnisári.
Vonir Hamiltons á titlinum eru allavega veikar. Held að það hefði verið meiri sómi að láta þetta niður falla eftir niðurstöðu gærdagsins. Titillinn fer til finnska kappans, það tel ég alveg öruggt.
![]() |
Óvissa um titilinn vegna áfrýjunar McLaren |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.10.2007 | 01:27
Kimi Räikkönen krýndur Formúlumeistari

Það gerist því ekki að nýliðinn Hamilton verði meistari á fyrsta ári en enn getur hann náð þeim áfanga á næstu tveim árum að verða yngsti heimsmeistari sögunnar í Formúlunni. Það var virkilega gaman að fylgjast með lokum keppninnar á þessari keppnistíð, en í fyrsta skipti í yfir tvo áratugi áttu fleiri en tveir ökumenn möguleika á titlinum. Þetta er eitthvað annað en var fyrir nokkrum árum er Michael Schumacher drottnaði yfir Formúlunni og vann fimm ár í röð.
Þó að Lewis Hamilton hafi ekki unnið titilinn nú er hann framtíðarmaður í sportinu. Það leikur enginn vafi á því. Jackie Stewart sagðist reyndar í góðu viðtali á Sky í kvöld vera þess fullviss að þessi niðurstaða gerði Hamilton enn hungraðri í titilinn að ári og myndi styrkja hann til muna. Vonandi er það rétt mat hjá þessum mikla spekingi.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 01:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)