Borgin á að selja - hvað verður um Vilhjálm?

Gísli Marteinn, Hanna Birna og Vilhjálmur Þ. Það blasir við að staða Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, borgarstjóra, sem leiðtoga er orðin mjög veik. Það er einsdæmi að borgarfulltrúar verði að sitja fundi með forystu flokksins til að kvarta yfir verklagi leiðtogans, sem er orðinn eins og eyland í hópnum eftir afspyrnuslaka frammistöðu á borgarstjórastóli. Það er vandséð hvernig að Vilhjálmur geti úr þessu verið hinn sterki leiðtogi sem sjálfstæðismenn séu stoltir af og geti leitt hópinn inn í næstu kosningar.

Vilhjálmur hefur beðið mikinn hnekki í REI-málinu og ætti alvarlega að íhuga afsögn að mínu mati, enda rúinn öllu trausti. Mér finnst satt best að segja enginn munur vera á verklagi Vilhjálms innan Orkuveitunnar og þess sem einkenndi verk Alfreðs Þorsteinssonar þar árum saman. Ég gagnrýndi harkalega verk Alfreðs og dettur ekki í hug að bera blak af gamla "góða" Villa, enda er hann að gera nákvæmlega sömu hlutina finnst mér. Þetta er auðvitað afleitt með öllu og ég get ekki séð að Vilhjálmur geti risið úr þessu máli sem sterkur leiðtogi. Þetta er dropinn sem fyllir mælinn. Nógu slæmt var bjór- og vínkælismálið nýlega.

Það er mikið talað um kaupréttarsamningana og gert mikið úr því. Það er auðvitað gleðiefni að tekið hafi verið á því að hluta, en eftir stendur að ekki hefur verið gengið nógu langt. Enn er talað um kaup Bjarna Ármannssonar og Jóns Diðriks Jónssonar á hlutum í félaginu. Ég er sammála skrifum Bjarna Harðarsonar, alþingismanns, í dag hvað það varðar að stjórn REI gekk góð skref en ekki nægjanlega góð til að ljúka þessum þætti málsins. En ég verð að segja það alveg eins og er að mér finnst þetta fjarri því aðalatriði þessa stóra og vonda máls fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík.

Lykilpunktur málsins er auðvitað að borgin átti aldrei undir pólitískri forystu Sjálfstæðisflokksins að setja fé í þennan rekstur. Í mínum augum er þetta hugmyndafræðilegt mál í aðalatriðum. Þar reynir á hvernig Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík stendur í málinu. Borgin á að selja sinn hlut sem fyrst. Annað kemur ekki til greina. Það verður að binda enda á þetta mál sem fyrst með trúverðugum hætti. Ella get ég ekki séð annað en að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík sé orðin framlengingarsnúra á verklag Alfreðs Þorsteinssonar í fortíðinni.

Hvað varðar pólitíska stöðu borgarstjórans verður hún auðvitað að ráðast. En það þarf ekki skarpan stjórnmálaskýranda til að sjá að hann hefur veikst mjög og er rúinn trausti innan hópsins vegna verklags síns. Það verður áhugavert að sjá hver örlög hans verða, hvort honum takist að vinna sig úr þessu klúðri sínu.

mbl.is Þorgerður Katrín: Of geyst farið í samruna GGE og REI
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gordon Brown missir kjarkinn á örlagastundu

Gordon Brown Það verður ekki um það deilt að Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hefur veikst mikið pólitískt við það að renna á rassinn með misheppnað kosningadaður sitt. Hann leit út eins og heigull í viðtali vegna málsins í gær er hann blés af kosningarnar sem allir töldu að yrðu 1. eða 8. nóvember. Brown hafði aldrei neitað kosningaorðrómi beint og fór í gegnum flokksþing Verkamannaflokksins án þess að slútta talinu og ýtti frekar undir það með óbeinum en þó áberandi hætti.

Það blasir við öllum að nánustu samherjar forsætisráðherrans voru að undirbúa kosningar á næstu vikum og strategían var komin á fullt á bakvið tjöldin. Stóra ástæða þess að Brown hættir við allt saman á elleftu stundu er að David Cameron og Íhaldsflokknum tókst að komast vel frá flokksþinginu í Blackpool og náði að byggja upp stemmningu í kringum sig. Það sýna nýjustu kannanir. Annaðhvort eru flokkarnir á pari eða að Íhaldsflokkurinn mælist ívið stærri. Í lykilkjördæmum eru íhaldsmenn að ná nokkru forskoti og þegar að við bætist að íhaldsmenn eru líklegri til að kjósa er skiljanlegt að Brown hafi ekki þorað í slaginn.

Eftir allt sem á undan er gengið lítur mjög illa út fyrir Gordon Brown að hopa af velli. Hann hafði upplifað 100 sæludaga í Downingstræti og hafði á sér ímynd hins ósigrandi keisara í bardaganum yfirvofandi. Á nokkrum dögum hefur forsætisráðherranum og ráðgjöfum hans tekist að snúa taflinu við og klúðra þeirri ímynd með mjög áberandi hætti. Eftir stendur beygður forsætisráðherra sem þorði ekki að fara til þjóðarinnar og biðja um endurnýjað umboð. Það er eðlilegt að horft hafi verið til kosninga. Forsætisráðherrann Tony Blair sem bað um endurnýjað umboð til starfa árið 2005 gat ekki staðið við loforðið um að sitja tímabilið á enda og var sparkað út af Brown og lykilmönnum hans. Brown tekur við embættinu út á umboð Blairs.

Það var líka vandræðalegt hvernig að Brown tilkynnti endalok kosningadaðursins sem stóð of lengi. Hann bauð einum fréttamanni BBC til viðtals sem átti að birtast á sunnudegi. Fréttir af því láku út og íhaldsmenn náðu að komast á snoðir um hvað væri að gerast og skúbbuðu fréttinni miklu. BBC ákvað við svo búið að birta fréttina og allt lak út á laugardeginum, rúmum tólf tímum áður en viðtalið var sýnt í heild sinni. Um leið og BBC birti klippuna með yfirlýsingu forsætisráðherrans var David Cameron kominn í alla fjölmiðla og svaraði lið fyrir lið vandræðagangi Gordons Browns. Hann fékk því sviðsljósið svo um munaði.

Það er skiljanlegt að ólga sé innan Verkamannaflokksins. Þetta er ævintýralegt klúður fyrir forsætisráðherrann eftir draumabyrjun, þetta er heimatilbúið klúður nánustu fylgismanna Gordons Browns - hópsins sem hann valdi til að byggja undir sig sem sterkan leiðtoga sem gæti fært Verkamannaflokknum fjórða kjörtímabilið með kraftmiklum hætti. Strategían mikla sprakk framan í Gordon Brown. Vandræðagangur einkennir þessa ákvörðun og andstæðingarnir standa eftir sem sigurvegarar helgarinnar. Það eru þungir þankar í Downingstræti.

100 dögum eftir brotthvarf Tony Blair af hinu pólitíska sviði lítur eftirmaður hans út sem kjarklaus klúðrari örskömmu eftir að hann var með pálmann í höndunum. Hversu harkalegt áfall fyrir Gordon Brown verður þetta misheppnaða kosningadaður metið og hversu lengi mun skuggi þess elta hann? Það er stóra spurning helgarinnar. Eftir stendur leiðtogi sem hefur á nokkrum sólarhringum séð unnið tafl snúast gegn sér.

mbl.is Brown sakaður um að koma fram við Breta eins og „bjána“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband