14.11.2007 | 19:59
Hrottalegur verknaður
Það er skelfilegt að heyra af hinni hrottalegu nauðgun í miðborg Reykjavíkur um síðustu helgi. Nauðgun er eitt af því ógeðslegasta sem til er, ógeðfelldur glæpur sem setur mark sitt á sálu þeirra sem fyrir verða um aldur og ævi. Það sem mér finnst mest sláandi við þessa frétt er að yfir 118 nauðgunarmál hafa borist neyðarmóttöku nauðgana. Það er ótrúlega há tala og fær alla til að hugleiða þessi mál frá grunni.
Þetta er óeðlilega hátt hlutfall grimmdarverknaðar af þessu tagi, altént í því samfélagi sem við flest viljum lifa í. Það verður að berjast gegn þessu með öllum tiltækum hætti. Það er aldrei barist nógu mikið gegn svona ógeði.

![]() |
Tveir grunaðir um hrottalega nauðgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.11.2007 | 12:59
Pólverjum úthýst af Kaffi Akureyri

Mér finnst þetta mjög harkaleg ákvörðun. En hinsvegar skil ég sjónarmið eigandans ef hann telur að þessi hópur skemmi fyrir góðu andrúmslofti á skemmtistaðnum og geri honum lífið leitt. Það er stóralvarlegt mál ef gestir skemmtistaðarins geta ekki farið út að skemmta sér nema að vera truflaðir með þeim hætti sem heyrst hefur í umræðunni hér á Akureyri. Það er eðlilegt að á því sé tekið.
Er á hólminn kemur hljóta Birgir Torfason og hans fólk á Kaffi Akureyri að taka af skarið um það hverja hann vill að sæki staðinn. Sé einhver hópur að ónáða aðra viðskiptavini hlýtur þetta að teljast eðlilegt. Það er lykilmál að mínu mati að eigendur stjórna þeim skemmtistað sem þeir eiga.
![]() |
Dónaleg framkoma ekki liðin“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
14.11.2007 | 01:33
Ógeðfellt kynþátta- og persónuhatur á rasistasíðu
Ég vil þakka fyrir þau viðbrögð sem ég hef fengið á umræðuna á vefnum mínum um rasistavefsíðuna skapari.com þar sem fram kemur ógeðfellt kynþáttahatur og persónuárásir, meðal annars á forsetahjónunum Ólafi Ragnari og Dorrit, auk fjölda annars fólks. Hef ég fengið fjölda tölvupósta og skilaboða vegna skrifanna og heyrt hversu mjög fólki er almennt brugðið vegna þessarar rasistavefsíðu. Það verður að taka svona ófögnuði alvarlega og taka á honum.
Mér finnst persónuhatrið og ógeðið sem þrífst þarna undir nafnleynd fyrir neðan allar hellur. Það er ekki hægt annað en að undrast hversvegna fólk getur fyllst hatri af þessu tagi. Það á að vera lykilmál í því samfélagi sem við lifum í að fólk beri virðingu fyrir hvoru öðru og geti lifað í sátt og samlyndi. Hatur á fólki vegna kynþáttar er það alvarlegt mál að taka verður á því með öllum þeim brögðum sem til eru.
Heilt yfir finnst mér nafnlaust ógeð vera að aukast á netinu. Það er alltof mikið af fólki sem skrifar ógeðslega um aðra, allt í skjóli nafnleyndar. Skoðanir sem myndu aldrei koma fram ef nafn fylgdi með. Að mínu mati eru nafnlaus skrif jafnan með öllu marklaus, þeim orðum fylgir engin ábyrgð og ekki hægt að virða þau neins. Það er alltof stutt í skítlegheit þegar að nafnleyndin er áberandi. Það er löngu sannað.

Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.11.2007 | 00:07
Fogh áfram forsætisráðherra í Danmörku

Það vekur athygli að kjör Edmunds Joensen, fyrrum lögmanns Færeyinga, á danska þingið tryggir sigur hægriblokkarinnar í Danmörku. Þetta er ekki ósvipað og því er Poul Nyrup Rasmussen hélt velli sem forsætisráðherra í þingkosningunum 1998 á atkvæðum frá Færeyjum. Þá munaði rétt um 100 atkvæðum að hinn litríki forystumaður Venstre, Uffe Ellemann Jensen, utanríkisráðherra í tíð borgaralegu stjórnarinnar 1982-1993, yrði forsætisráðherra. Það greiddi leiðina fyrir innkomu Fogh sem leiðtoga Venstre og hann hefur nú markað spor í danska stjórnmálasögu á þessu kvöldi.
Þó að naumt hafi staðið með stjórnina er yfir lauk má segja með sanni að Fogh hafi sterkasta umboðið til að stjórna í Danmörku er úrslitin liggja fyrir. Þó að Helle Thorning Schmidt hafi sett mark sitt á baráttuna tapar Jafnaðarmannaflokkurinn fylgi undir hennar stjórn, frá kosningunum 2005 er Mogens Lykketoft fékk sinn séns. Þetta er versta útkoma Jafnaðarmannaflokksins danska. Eins og ég sagði hér fyrr í kvöld er það mikið áfall fyrir kratana og þeir hljóta að hugsa mikið á þessu kvöldi. Hefðu þeir bætt einhverju við sig hefðu þeir getað staðið uppi sem sigurvegarar og jafnvel getað náð tökum á stjórnarmyndun hefði tæpar staðið. En svo fór ekki.
Vinstrimennirnir í SF eru stærstu sigurvegarar kosninganna, fyrir utan hægriblokkina sem heldur völdum þriðju kosningarnar í röð. Þeirra árangur er sannarlega glæsilegur og mikil fylgisaukning staðreynd. Þeir eru enda glaðir á þessu kvöldi, fagna fyrir alla vinstriblokkina í heild sinni. Ekki geta kratarnir brosað allavega á þessu kvöldi. Helle hafði viðurkennt ósigur nokkuð snemma í kvöld, enda ljóst að hún yrði ekki forsætisráðherra og umboð kratanna veikst frá síðustu kosningum sem þóttu það slæmar að Lykketoft hrökklaðist frá. Helle fær þó greinilega annan séns, þó marin sé eftir kosningarnar.
Fogh tók auðvitað mikla áhættu með að flýta kosningum. Það er ekkert gefið í þessum efnum þó kosningabaráttan sé stutt, aðeins þrjár vikur. Það fékk Poul Nyrup Rasmussen að reyna fyrir sex árum, þar sem hann notaði tímabundna uppsveiflu sem ástæðu til að flýta kosningum. Sú áhætta var dýrkeypt og hann horfði á eftir völdunum til Fogh. Þó Fogh standi eftir áfram sem forsætisráðherra er meirihlutinn tæpur og gætu verið spennandi ár framundan. Tel að það verði ekki svo langt í næstu kosningar altént.
En það er vissulega ánægjulegt fyrir Dani að geta tekið kosningar með trompi með þessum hætti, tekið slaginn á aðeins þrem vikum. Þetta er eitthvað allt annað en hérna heima þar sem kosningabaráttan stendur meira og minna í 8-9 mánuði.
![]() |
Joensen tryggir Fogh meirihluta á danska þinginu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |