29.11.2007 | 19:27
Hamingjusama hóran hverfur

Víst er að mál hennar er varla einstakt. Það er samt sorglegt að heyra svona sögur, þó hún gerist vissulega í fjölmennu landi á borð við Bandaríkin. Hann er harður þessi bransi netklámsins og ekki komast allir lifandi í gegnum hann. Vonandi verður hægt að koma í veg fyrir að hún hafi hlotið ill örlög.
Þessi saga er kannski ekki einstök en vekur okkur öll vonandi til meðvitundar um hvað netklámsheimurinn er harður og ógnvekjandi.
![]() |
Háskólastúdína lifði tvöföldu lífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.11.2007 | 15:40
Pabbapössun í Hagkaup
Mér finnst það mjög sniðugt hjá Hagkaup að opna sælureit fyrir karlmenn sem þola ekki búðaferðir í nýjustu versluninni í Holtagörðum. Þetta er gert að erlendri fyrirmynd, hefur lukkast mjög vel þar og því varla undrunarefni að íslenskar verslanir byrji með þetta. Það eru ekki allir sem hafa farið í búð sér til skemmtunar, oft eru það karlmenn sem eiginlega verða að fylgihlut eiginkvenna sinna í slíkum ferðum og hafa ekki gaman af að versla. Þarna er væntanlega það vandamál leyst. Það verður reyndar áhugavert að sjá hvort að þetta verði í öllum verslunum Hagkaups fyrr en varir.
Þarna verður hægt að lesa dagblöðin, kíkja á boltann og annað efni. Það er eflaust réttast að kalla þetta pabbapössun, enda segir mér svo hugur að það verði helst heimilisfeður þessa lands sem verði fastagestir þarna. Margir þeirra eru eins og illa gerðir hlutir í verslunarleiðangri en losna nú við það að taka þátt í því, geta beðið verslunarferðina af sér. Þetta er mjög sniðug lausn á vanda þeirra sem fara í búð sem vandræðalegir fylgihlutir og hafa satt best að segja engan áhuga á því. Held að þetta verði nefnilega mikið notað.
Það er mjög langt síðan að svokölluð krakkahorn voru sett í verslanir þar sem börnin gátu beðið verslunarferðina af sér og samt haft gaman af því að fara, enda voru foreldrar argir yfir betlistandi barnanna og krakkarnir hundfúlir með það hversu lengi verslunarferðin stóð. Bæði foreldrar og börn sátt á eftir. Nú geta fylgihlutir verslunariðkenda farið í sælureit sinn og beðið ferðina af sér. Skynsamlegt og gott - þetta verður eflaust vinsæll reitur í verslunarferðinni fyrir fjölda fólks.

Pabbar í pössun í Hagkaupum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.11.2007 | 11:23
Dýrkeypt kvöldverðarfíaskó hjá Glitni

Þetta er nú eitt stærsta fíaskó sem maður hefur séð lengi. Það er nú eitt það pínlegasta að bjóða til veislu og gleyma að láta fólkið sem maður vill að mæti vita um veisluhöldin. Það er fátt ömurlegra en að sitja einn og yfirgefinn yfir veisluföngum, dýrum mat og veglegum drykkjum. Dýrkeypta hafa mistökin altént verið. Þetta hlýtur að vera altént ein dýrasta matarveisla ársins á hvern matargest.
Aumingja Lárus og co í Glitni. Þeir klikka varla á svona formsatriðum héðan í frá.
![]() |
100 starfsmenn Glitnis í mat fyrir 500 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2007 | 00:40
Bobby Fischer lagður inn á spítala
Það hefur reyndar komið mér að óvörum hvað Bobby hefur verið lítið sýnilegur okkur landsmönnum þessi tvö ár. Þegar að hann kom hingað í kastljósi fjölmiðla og með umdeildum hætti með einkaþotu Baugs í beinni útsendingu Stöðvar 2 áttu flestir von á að hann yrði áberandi þátttakandi í samfélaginu og léti mikið á sér bera. Hvöss ummæli hans í garð bandarískra yfirvalda á leiðinni til Íslands og á blaðamannafundi eftir "heimferðina" gáfu allt tilefni til þess að fólk hér teldi að sú yrði raunin. Í stað þess hefur hann sest algjörlega í helgan stein.
Það er leitt að heyra ef Bobby á við erfiðleika að stríða, andleg og líkamleg veikindi. Hann hefur vissulega gengið í gegnum margt á sinni ævi, lifað hátt og aldrei hikað við að vera áberandi. Hann er kannski að upplifa enn einn kaflann á ævigöngunni, hver veit. Vonandi mun honum heilsast vel og hann fá bót sinna meina.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)