8.11.2007 | 23:03
Áberandi afsökunarbeiðni frá 24 stundum

Nú setur 24 stundir út fréttina sem svo mjög var rætt um í dag og kemur með afsökunarbeiðnina þar inn á sama stað, svo að allir taki vel eftir henni. Vel gert hjá blaðinu. Finnst reyndar 24 stundir vera mjög gott blað, les það fyrst á morgnana og finnst það eiginlega orðið þeirra best. Enda er lestur þess að aukast og áhugavert að sjá hvernig þróun mála verði í næstu lestrarkönnunum.
Hvað Bacardi Breezer varðar má kannski telja eðlilegt að einhverjir hafi misskilið stöðuna. Það er þannig heilt yfir að áfengir drykkir hérlendis séu of dýrir og ansi margir sem kalla á uppstokkun í þeim efnum.
![]() |
Leiðrétting og afsökunarbeiðni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.11.2007 | 15:33
Pekka-Eric kvaddi fjölskyldu og skýrði sína hlið

Þetta er í grunninn nákvæmlega það sama og var í Columbine, Virginia Tech og fleiri skólum þar sem sömu hörmungar hafa gengið yfir. Að flestu leyti voru þetta skotárásir þar sem vegið var að samfélaginu, óður byssumaður að tala gegn samfélaginu og gildum þess. Heilt yfir er þetta samt svo sorglegt. Það er ólýsanlega sorglegt að norrænn framhaldsskólanemi sé tilbúinn til að fórna lífinu og drepa aðra vegna slíks boðskapar.
Það hefur svo margt heyrst um mál af þessum toga síðustu árin. Flestir líta til Bandaríkjanna í þeim efnum. Ekki má þó gleyma því að fyrir ellefu árum áttu sér stað fjöldamorð í íþróttasalnum í barnaskólanum í Dunblane í Skotlandi. Það var voðaverk sem enn hvílir sem mara yfir samfélaginu þar. Thomas Hamilton, 43 ára skoskur maður, myrti þá 16 skólabörn og kennara þeirra - hann var ekki tengdur skólanum en trylltist að flestra mati eftir að hann var rekinn sem skátahöfðingi á svæðinu.
Margir hafa horft til byssueignar. Michael Moore gerði heila heimildarmynd þar sem hann tók fyrir þau mál, Bowling for Columbine, sem var inspíruð af Columbine-fjöldamorðunum sem Harris og Klebold stóðu að. Ég hef hér áður fjallað um það mál og hvaða áhrif þeir tvímenningar hafa haft, ekki bara í Jokela heldur líka í Virginia Tech, skelfilegasta fjöldamorði í sögu Bandaríkjanna, fyrr á þessu ári. Það er þáttur sem velta verður fyrir sér en farið er að deila um af hverju Auvinen fékk leyfi fyrir byssu.
Það blasir við að Pekka-Eric Auvinen var orðinn truflaður og ofbeldisfullur. Myndbrotin á YouTube sanna það. Sama má segja um umfang árásarinnar. Hann skaut skólastýruna ótalmörgum sinnum og fór með um 70 skot á þá átta sem dóu. 20 skot voru í einu fórnarlambinu, skólastýrunni, eftir því sem fréttir herma. Það var þó skólastýrunni að þakka að fjöldamorðið varð ekki skelfilegra, hún náði í gegnum hátalarakerfi að aðvara nemendur sem tókst að flýja.
Þessi harmleikur verður sífellt sterkari myndræn áminning um að klikkaður árásarmaður leynist ekki bara í bandarískum skólum. Hættan er til staðar allsstaðar að því er virðist. En það er gott að fjöldamorðinginn skildi eftir sig kveðju og fór yfir sína hlið þessa voðaverks. Vonandi verður þá ekki erfitt að raða púslum þess saman.
![]() |
Finnland: Morðinginn skildi eftir sjálfsvígsbréf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
8.11.2007 | 01:23
Fjöldamorðinginn í Jokela-skólanum deyr
Fjöldamorðinginn Pekka-Eric Auvinen, sem myrti átta manns í Jokela-framhaldsskólanum í Tusby í Finnlandi, lést í kvöld af sárum sínum í Töölö-sjúkrahúsinu í Helsinki. Þetta er mikil sorgarsaga og að vissu marki leitt að Auvinen lifði ekki til að hægt væri að heyra hans hlið þessa mikla harmleiks sem hann var valdur að. Þetta skelfilegasta fjöldamorð í norrænni sögu stendur enda eftir sem óráðin gáta sem þarf að leysa án fjöldamorðingjans.
Þar standa nú aðeins eftir spurningar eins og brot í stóru púsli, þau munu vonandi ná að mynda heilstæða mynd að lokum - mynd sem sýnir atburðarásina í réttu ljósi og svarar því sem eftir stendur að lokum. Fyrst og fremst er þetta mál mikið áfall fyrir okkur á Norðurlöndum. Við höfum talið okkur trú um það að við lifum í vernduðu samfélagi, það sem gerist af þessu tagi í Bandaríkjunum sé fjarlægur veruleiki og komi okkur ekkert svo mikið við. Þetta er veruleiki sem hefur nú náð til okkar á þessu samnorræna svæði. Það er skelfilegt.
Mér finnst í grunninn þetta sýna okkur að við lifum ekki í vernduðu samfélagi. Það getur verið klikkað fólk á ferli hvar sem er, fólk sem getur breytt örlögum þeirra sem við þekkjum á augabragði. Fyrst svona skelfingaratburður getur átt sér stað í norrænum framhaldsskóla þurfum við að líta á heildarmyndina öðrum augum. Það sem gerist í Bandaríkjunum er ekki lengur veruleiki sem er okkur fjarlægur. Þetta er dapurleg lexía sem við sjáum gerast með þessu. Það er ekki lengur hægt að líta á þennan veruleika sem bandarískan, sem fjarlægan.
Öll vottum við Finnum samúð okkar. Þetta er þeim gríðarlegt áfall skiljanlega, þetta er þó ekki bara áfall þeirra heldur okkar allra. Þessi veruleiki er sláandi í okkar umhverfi.
![]() |
Forseti Íslands sendi Finnum samúðarkveðjur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)