Ökumaðurinn á bláa skutbílnum handtekinn

Af vettvangi Það er ánægjulegt að ökumaðurinn á bláa skutbílnum í Reykjanesbæ hafi verið handtekinn. Þá ætti að vera hægt að fylla upp í heildarmynd þessa sorglega máls. Eins og ég sagði fyrr í dag hlaut hringurinn um viðkomandi að þrengjast mjög og aðeins tímaspursmál hvenær maðurinn yrði í haldi lögreglu.

Fyrst og fremst verður áhugavert að vita ástæður þess hversvegna maðurinn yfirgaf vettvanginn og skildi strákinn eftir í sárum sínum. Það er stærsta spurning þessa dapurlega máls í raun og veru. Það má skynja að fólki er verulega brugðið vegna þessa máls og margir hafa tjáð sig um það.

Það er engin furða að svo sé. Það er stóralvarlegt mál þegar að fyrsta hugsunin eftir svona slys er að stinga af og taka ekki ábyrgð á gjörðum sínum. Ég get ekki séð að undrunarefni sé að fólk sé undrandi og slegið vegna þess og tjái sig óhikað um það.

mbl.is Maður í haldi, bíll í rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athugasemdir

Ég vil benda á ábendingar mínar varðandi athugasemdir hér á síðunni. Skilmálar varðandi athugasemdir eru mjög skýrir og ættu ekki að fara framhjá neinum manni. Það eru nokkrar vikur síðan að ég setti lás á athugasemdir. Þær birtast nú ekki nema að ég samþykki þær. Tók það skref eftir persónuleg leiðindaskrif í kommentum og sé ekki eftir þeirri ákvörðun. Hún var tímabær.

Ég vil leyfa heiðarleg skoðanaskipti hér, en að sama skapi geta þeir sem vilja vera með persónulegt skítkast og almenn leiðindi verið á öðrum vettvangi en hér. Þeir sem geta ekki viðhaft málefnalegheit og almenna kurteisi í athugasemdum hér er vísað út í hafsauga með það sama. Hika ekki við að loka á þá sem brjóta þær fáu og sjálfsögðu reglur sem ég hef sett um athugasemdir.

Verðskuldaður heiður fyrir Margréti Pálu

Margrét Pála ÓlafsdóttirÞað er óhætt að segja að Margrét Pála Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri og hönnuður Hjallastefnunnar, verðskuldi að hljóta barnamenningarverðlaunin. Hún hefur markað skref í skólamenninguna hér á landi og verið talsmaður nýrra hugmynda í skólamálum sem vakið hafa athygli og verið farsælar.

Hjallastefnan hefur verið áhrifavaldur víða um land og braut upp gamaldags skólakerfi hér á sínum tíma og opnaði eiginlega nýja sýn á það fyrir okkur öll. Margrét Pála fékk mörg góð tækifæri og hefur sannarlega staðið undir þeim og gott betur en það. Það höfum við séð t.d. hér á Akureyri, en Hjallastefnan rekur hér leikskólann Hólmasól með glæsibrag.

Fannst samt Margrét Pála rísa eiginlega hæst í málflutningi sínum þegar að hún sagði í Silfri Egils síðasta vetur að sjálfstæður skólarekstur gæti verið konum til hagsbóta, veitt þeim áhrif, myndugleik og umfram allt betri laun í staðinn fyrir að þær séu það sem hún nefndi "valdsviptar vinnukonur kerfisins". Hún leiftraði af mælsku við útskýringarnar.

Margrét benti þar enda á að um 60% kvenna væru að vinna hjá hinu opinbera, en það væri aðeins rúmlega 20% karla. Held að vinstri grænir hafi aldrei stuðast eins mikið og þá, gleymi aldrei svipnum á Guðfríði Lilju Grétarsdóttur sem var í þættinum með henni. Ögmundur var líka fljótur að svara Margréti Pálu í einhverri grein. Svona frjálsræði og hugsun hugnaðist ekki vinstri grænum.

Margrét Pála er fyrst og fremst þekkt fyrir þetta; frumlega nálgun og skemmtilega óvænta. Hún er þó ekki með neitt blaður út í bláinn, heldur er krafturinn og farsældin sýnileg í verkum Margrétar Pálu. Óska henni til hamingju með þennan heiður.


mbl.is Margrét Pála hlaut Barnamenningarverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofurhugi fellur frá

Evil Knievel Það verður ekki um það deilt að einn mesti ofurhugi 20. aldarinnar hafi verið Evil Knievel. Hugdirfska hans og sýniþörf fyrir að svífa í lausu lofti hefur verið rómuð alla tíð. Fáir hafa náð þeim hæðum sem hann náði í orðsins fyllstu merkingu. Evel Knievel bæði græddi og tapaði á þessari hugdirfsku. Stundum virkaði hann á fólk eins og kötturinn sem kom standandi niður.

En það kom fyrir að hann slasaðist mikið í atriðum sínum, eftirminnilegast var það væntanlega er hann kom niður á bakinu af áhættuatriði sínu af vélhjóli og var hann yfir þrjú ár að jafna sig, enda fór hann mjög illa. Fræg er sú saga að hann hafi brotið nærri hvert bein í líkamanum á ferlinum. Oftar en ekki voru atriði hans stórvel heppnuð. En hann fór mjög illa með heilsu sína í þessum bransa og væntanlega má rekja andlát hans á hinum tiltölulega besta aldri til þessarar hugdirfsku sinnar.

En minningin um Evel Knievel lifir. Hann var að mörgu leyti algjörlega einstakur. Verk hans og hugdirfska voru sönn í gegn. Knievel var mörgum fyrirmynd - fjöldi þeirra sem leika áhættuatriði með hans brag nefna hann sem þann er þeir vilji líkjast í sínum verkum. En enginn hefur náð hæðum hans og fimni - og gerir varla.




mbl.is Evel Knievel látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. desember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband