Notalegir dagar í aðdraganda jólanna

JólabjöllurÞað líður að jólum - aðeins sólarhringur í hátíð ljóss og friðar. Þetta hafa verið notalegir dagar um helgina. Passa mig á því að vera sem allra minnst við tölvu, enda eiga þetta að vera dagar þar sem farið er um, hitt fólk og notið jólastemmningar í verslunum, þó án stressins alræmda sem æði oft verður fylgifiskur þorláksmessu rétt eins og hin illa lyktandi skata. Seint í gærkvöldi, eftir afmælisveisluna, fór ég að klára það fáa sem eftir var. Fyrst og fremst vildi ég bara fara um og spjalla við vini í verslunarhugleiðingum.

Hitti fjölda fólks á Glerártorgi. Þar er straumurinn þessi jól, sem þau hin fyrri. Rakst á marga pólitíska félaga. Þó að jólahátíðin sé handan við hornið er ekki hægt annað en að tala örlítið um pólitíkina, enda margt um að vera. Skemmtilegt spjall við fjölda fólks, flestir hægra megin við miðju en sumir allverulega til vinstri. Ekkert nema gaman af því bara. Þó að pólitíkin ætti að vera komin í notalegt jólafrí slæðist hún með sem umræðuefni þegar að talað er um þjóðmálin, sem eðlilegt er. En fókusinn á auðvitað að vera á annað.

Eftir röltið á Glerártorgi fékk ég mér góðan labbitúr um miðbæinn, hitti góða vini og naut þess í rólegheitum að fara um og spjalla við ýmsa sem maður þekkir þar, sérstaklega í Pennanum. Það koma ekki jól í huga mér fyrr en eftir skemmtilegt miðbæjarrölt síðustu kvöldin fyrir jólin, hitta fólk, fara á kaffihús, fá sér heitt kakó og kynna sér miðbæjarbraginn. Mér finnst hafa lifnað aðeins yfir miðbænum. Verslun Pennans er stórglæsileg eftir breytingarnar og það er engu líkt að fara þar inn og þefa af nýjum bókum og skoða þær.

Í hádeginu fékk ég mér skötu á veitingahúsi í bænum. Verð seint talinn mikill áhugamaður um skötu og illa lyktandi mat, en þetta er ágætt sport einu sinni á ári svosem. Ágætt rétt fyrir allar stórsteikurnar sem eru í aðsigi og svo maður tali nú ekki um gamla góða hangikjötið með uppstúf og laufabrauði. Nammi namm!

Í dag hefur það verið hið hefðbundna; utan skötunnar í hádeginu var kaffihúsaspjall með góðum vinum núna eftir hádegið yfir beyglu og rjúkandi heitu kakó, auk malts og konfekts. Notalegt og gott. Svo hefur það verið auðvitað að fara aðeins um bæinn, finna stemmninguna og hlusta á jólakveðjurnar hjá RÚV. Ekta þorláksmessa!

Er ekki fjarri því að jóladiskurinn hans Ragga Bjarna hafi endanlega komið mér í jólaskapið í morgun. Mikið innilega er það notalegur og góður diskur; hugljúfur og traustur. Raggi er auðvitað þjóðargersemi og hann er í essinu sínu með glæný jólalög frá meistara Gunna Þórðar. Yndislegt efni. Nokkur lög eru í spilaranum.


Kærar þakkir!

Ég vil þakka kærlega öllum þeim sem færðu mér hlýjar kveðjur, góðar gjafir og hugheilar heillaóskir á þrítugsafmæli mínu í gær, laugardaginn 22. desember!

Afmælisdagurinn var í senn mjög notalegur og rólegur. Það er orðið mjög langt síðan að ég sætti mig við að eiga afmæli örfáum klukkstundum fyrir jólahátíðina, í miðri lokahrinu jólastressins, en það hefur vanist vel með árunum.

Það var notalegt að finna fyrir hlýjum kveðjum og því að svo margir skyldu muna eftir deginum. Kærar þakkir!

Bloggfærslur 23. desember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband