Jólakveðja

Jólakveðja

Ég færi lesendum vefsins, og vinum nær og fjær, innilegar óskir mínar um gleðilega og kærleiksríka jólahátíð. Hafið það öll sem best yfir hátíðirnar.

jólakveðjur frá Akureyri
Stefán Friðrik Stefánsson










Yndislegur aðfangadagur

Jólakúlur Þetta hefur verið yndislegur aðfangadagur, rólegt og notalegt andrúmsloft eins og á að vera. Tók daginn snemma í morgun og notaði morguninn til þess að fara um bæinn með jólagjafir til nánustu ættingja og eiga þar yndislegar stundir. Hér hefur verið gott veður í dag, það kom snjór seint og um síðir, sem var svo innilega kærkomið.

Nú eftir hádegið fór ég upp í kirkjugarð. Þar hvíla vinir og ættingjar sem ég met mikils. Það er við hæfi að minnast þeirra á þessum degi. Það var notalegt og gott veður þegar að ég fór þangað með friðarljós og átti þar notalega stund í góðri ró og sannkallaðri kyrrð, hinni einu sönnu kyrrð sem á við á þessum heilagasta degi ársins.

Það hefur alla tíð verið rík hefð hjá mér og mínum fyrir því að fara upp í garð og að leiðum þeirra sem maður metur mikils. Þetta tel ég grunnatriði á þessum degi að sinna. Ég get ekki haldið gleðileg jól, nema að hafa sinnt þessu. Einfalt mál í sjálfu sér. Eftir þessa notalegu stund var gott að fá sér heitt kakó og smákökur. Nú tekur svo heilagasta stund ársins við.

Gleði í sálinni fæst með svo mörgu, mest að ég tel með að gefa af sér, bæði kærleika og góðan hug til annarra. Kærleikur er ekki mældur í peningum, hann er ómetanlegur. Fólk nær aldrei árangri í lífi sínu nema með því að hugsa um aðra á mikilvægum stundum, gefa af sér einhvern hluta af góðu hjartalagi í það minnsta.

Ég hef oft farið eftir þessu og það á best við á jólunum, á heilögustu stund ársins.

Hvít jól á Akureyri

Jólabjalla Það verða hvít jól hér á Akureyri. Það var mjög notalegt þegar að snjóaði örlítið hérna í gærkvöldi og það bætti örlítið í, í nótt. Í fyrra voru rauð jól, þau verða alltaf svipminni, enda birtir snjórinn upp og verður svona eins og rúsínan í pylsuendanum til að færa manni sanna jólastemmningu. Þetta er toppurinn á öllu sem til er, svona sérstaklega á aðfangadegi.

Uppáhaldsjólalagið mitt er lagið um hvítu jólin eftir Irving Berlin. Þetta er fallegasta jólalagið, utan hátíðalaganna; Ó helga nótt, Heims um ból og Nóttin var svo ágæt ein. Það syngur enginn Hvít jól eins fallega og söngvarinn Bing Crosby, sem söng það fyrst í kvikmyndinni Holiday Inn árið 1942 og gerði það heimsfrægt. Enn í dag er það vinsælasta lag sögunnar, mest selda lagið. Eina lagið sem hefur komist nærri því er Candle in the Wind - 1997-útgáfan til minningar um Díönu prinsessu.

Hlustum á Bing syngja eitt sitt frægasta og goðsagnakenndasta lag, þarna með snillingnum Frank Sinatra; tveir af eftirminnilegustu söngvurum 20. aldarinnar.




Bloggfærslur 24. desember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband