Dró sveitarstjórinn í Grímsey sér fé frá hreppnum?

Grímsey Það eru ekki góðar fregnir að skrifstofa Grímseyjarhrepps hafi verið innsigluð. Grunsemdir munu nú vera uppi um að Brynjólfur Árnason, sveitarstjóri, hafi dregið sér fé frá hreppnum og uppi hafi verið mikil bókhaldssvik. Aðeins eru nokkrir dagar liðnir síðan að sami sveitarstjóri var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað á olíu, en mikið var fjallað um það í fjölmiðlum. Athygli vakti þá að samstarfsmenn Brynjólfs í sveitarstjórn vissu ekki af brotum hans.

Það gerist ekki á hverjum degi að skrifstofur sveitarfélags séu innsiglaðar vegna gruns um fjárdrátt og bókhaldssvik stjórnanda innan þess og vekur það því sannarlega mikla athygli. Svona vont mál hlýtur að liggja sem þung mara yfir jafn litlu sveitarfélagi og Grímsey er, þar sem samfélagið er eins og ein samheldin fjölskylda í raun og veru.

Það hljóta að hafa verið þung spor fyrir menn að taka svona á málum en eitthvað hlýtur að hafa legið fyrir sem grundvöllur ákvörðunar af þessu tagi. Fyrst og fremst er mikilvægt að fara vel yfir allt málið og athuga hvert umfang þess hefur í raun verið. En þetta eru vondar fregnir fyrir Grímseyinga og vonandi ná þeir að vinna úr þessu dökka máli.

mbl.is Skrifstofa sveitarstjórnar Grímseyjar innsigluð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ásthildur Helgadóttir hættir í boltanum

Ásthildur Helgadóttir Ásthildur Helgadóttir hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og hætta virkri þátttöku í fótbolta. Koma þessi tíðindi í kjölfar yfirlýsingar fyrr í dag um að hún sé hætt hjá Malmö. Þetta eru nokkur tíðindi, enda á Ásthildur að baki farsælan feril í íþróttum og er hiklaust ein besta knattspyrnukona landsins fyrr og síðar. Hefur Ásthildur átt við erfið meiðsli að stríða og er ákvörðun um að hætta tekin væntanlega vegna þeirra. 

Ásthildur hefur verið glæsileg fyrirmynd kvenna í íþróttum og hefur verið áberandi í hópi knattspyrnukvenna sem rifu upp kvennalandsliðið til vegs og virðingar á alþjóðavettvangi á síðustu árum. Hún hefur þó ekki bara verið áberandi í íþróttum. Í fyrra náði hún glæsilegum árangri í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og náði kjöri í fjórða sætið á framboðslistanum og var kjörin bæjarfulltrúi í kosningunum í maí 2006.

Eftir því sem mér skilst hefur Ásthildur verið í leyfi frá setu í bæjarstjórn Kópavogs nú um skeið. Það verður áhugavert að sjá hvort að hún ætli að taka þar sæti aftur og fara fram í næstu kosningum, jafnvel ofar á framboðslistann, eða hvort hún ætlar eingöngu að fara í verkefni tengd verkfræðimenntun sinni við lok íþróttaferilsins. 

mbl.is Ásthildur Helgadóttir hætt hjá Malmö
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árás á íslenska konu í Mósambík

Það er alltaf sláandi að heyra af árásum á Íslendinga á erlendri grund. Sem betur fer fór vel miðað við aðstæður hjá þessari íslensku konu í Mósambík. Það er eðlilegt að um þetta sé fjallað hérna heima, enda erum við svo fámenn þessi þjóð að þrengingar eins verða í sjálfu sér mál okkar allra. Eða það ætti almennt að verða svo finnst mér.

Annars er þetta eflaust lýsandi um ástandið á þessum slóðum. Rán eru því miður daglegt brauð víða á strætum þarna. Þar sem eymdin er jafnan mest er örbirgðin svo mikil að fólk rænir sér til viðurværis, til að hafa í sig og á. Það er eitthvað sem er mjög fjarri almennt okkar veruleika en verður stingandi þegar að Íslendingar finna fyrir því.

mbl.is Ráðist á íslenska stúlku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt mál

Frá vettvangi Það er eðlilegt að fólk í Reykjanesbæ sé slegið vegna hins sorglega slyss á föstudag þar sem lítill drengur slasaðist það alvarlega að hann lést. Sérstaklega er ekki hægt annað en að taka undir með kröfum íbúanna við Vesturgötu þar sem slysið varð. Það er víða keyrt of hratt í götum við íbúabyggð og tekið hefur jafnan verið á því með hraðahindrunum og eða öðrum leiðum til að slá á umferðina í svokölluðum vistgötum þar sem hraðamörk eru lægri en ella.

Árni Sigfússon, bæjarstjóri, talaði af ábyrgð um þessi mál í gær í fréttatímum og ég get ekki betur séð en að samstaða ætti að geta nást um að taka á þessum málum þar sem fólk telur hættu á ferðum vegna umferðar. Þekki þetta svosem vel enda bý ég við eina mestu umferðargötuna á Akureyri, sem er Þórunnarstræti. Þar er mikil umferð daga og nætur. Það hafði jákvæð áhrif að breyta veginum við leikskólann Hólmasól og sló aðeins á hraðann.

En samt eru áhyggjur þeirra sem búa í miklum umferðargötum skiljanlegar. Það er þó mjög dapurlegt að svo sorglegt slys þurfi til að fólk vakni til meðvitundar um að úrbóta sé þörf.

mbl.is „Við viljum ekki sjá annað svona slys í götunni okkar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. desember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband