Flugi Hannesar lokið - nýjir tímar hjá FL Group

Jón Sigurðsson Tveggja ára stormasömum forstjóraferli Hannesar Smárasonar hjá FL Group er nú lokið með frekar kuldalegum hætti fyrir þennan lykilmann útrásarinnar sem varð einn helsti spútnikk maður íslensks viðskiptalífs og áberandi fyrir að fljúga hátt á vængjum fjárfestinga flugbransans. Í forstjórastólinn í staðinn kemur ungur og geðfelldur maður, Jón Sigurðsson, og tekur við stjórnartaumunum hjá þessu stóra fyrirtæki, sem varð að lokum of stór biti fyrir Hannes Smárason.

Það verður spennandi að fylgjast með því hvernig nýr forstjóri tekst að spila úr hlutverki sínu, komandi úr skugga hins litríka Hannesar. Það hefur verið áhugavert fyrir áhættufíkla viðskiptalífsins að fylgjast með Hannesi, eftir að hann skipaði sig forstjóra í kjölfar þess að Ragnhildur Geirsdóttir var sett af vegna átaka við Hannes fyrir rúmum tveim árum. Það voru umdeildar breytingar, en aðeins örfáum mánuðum áður hafði þessi fyrsti kvenforstjóri íslenska flugbransans verið kynnt til sögunnar er Sigurður yngri Helgason settist í helgan stein.

Flestir muna stóru spurningu síðasta áramótaskaups; "Af hverju ert þú ekki eins og Hannes Smárason?". Það var bæði spurt af kaldhæðni og alvöru. Hannes var einn spútnikk manna ársins 2006 og virtust allir vegir færir í bransanum, var lykilmaður í bissnessnum. Innan við ári síðar hefur Hannes verið settur til hliðar af Baugsmönnum og er orðinn óbreyttur stjórnarmaður undir verndarvæng Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Napurt hlutskipti fyrir mann sem fjárfesti mikið og lifði hátt í bransanum uns allt hneig til viðar og digrir sjóðir pappírspeninga urðu að sífellt hnignandi og morknum pappír á niðurleið.

Það verður sannarlega áhugavert að sjá hvert leið hans liggur nú eftir þessi vistaskipti og val á nýjum og ungum forstjóra sem boðar nýja tíma á flugvakt Baugs hjá FL Group.

mbl.is Forstjóraskipti hjá FL Group
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hillary Clinton missir fylgi og forystuna í Iowa

Hillary Rodham Clinton Hillary Rodham Clinton horfist nú í augu við að innan við mánuði fyrir fyrstu forkosningar demókrata í Iowa hefur hún misst forskotið í fylkinu og ellefu prósentustig á landsvísu. Nýjasta könnunin er reyndar ekki heldur gleðiefni fyrir Rudy Giuliani, sem tapar níu prósentustigum á landsvísu. Barack Obama er að styrkjast mjög milli mánaða hjá demókrötum og hefur tekið forskotið í Iowa og Sam Huckabee hefur náð miklu flugi hjá repúblikunum.

Það er alveg ljóst að skoðanakönnun Zogby-fyrirtækisins í nóvember varð umtalsvert áfall fyrir Hillary. Þar sást að framboð hennar var brothættara en nokkru sinni áður - verið gæti að hún væri sigurstjarna flokksins en gæti hinsvegar ekki sigrað sjálfar forsetakosningarnar. Könnunin varð vatn á myllu bæði Obama og John Edwards, sem segja að Hillary geti ekki sigrað að lokum svo að þeir eigi betri séns. Þetta hefur gengið og umtalsvert fylgistap Hillary er að mörgu leyti sláandi, enda töldu flestir hana vera búna að taka slaginn innan flokksins áður en hann hófst í forkosningaferlinu.

Í grein minni um könnunina þann 26. nóvember sl. spáði ég því að slagurinn hjá demókrötum yrði jafnari en mörgum óraði fyrir. Fannst könnunin hjá Zogby boða þau tíðindi. Það er allt sem stefnir í það núna að það verði harðvítug barátta um sigurinn í Iowa. Það skiptir gríðarlega miklu máli að verða sigursæll í upphafi slagsins til að ná sigursjarma. Allir muna eftir því hvernig Howard Dean var með talsvert forskot á þessum tímapunkti meðal demókrata fyrir fjórum árum. Hann tapaði fyrstu forkosningunum sínum og varð lúser, fólk flúði frá honum og John Kerry markaði sér stöðu sem sigursælasti frambjóðandinn og náði útnefningunni.

Það eitt er víst að allra augu verða á Iowa eftir mánuð þegar að forkosningaferlið hefst. Það skiptir máli fyrir Hillary að taka Iowa og næstu fylki á eftir með trompi. Takist það ekki gæti hún misst þetta út úr höndunum. Það er mikið áhyggjuefni fyrir Hillary að vera undir í Iowa nú í desemberbyrjun, enda tel ég að Hillary verði að ná þeim glampa allt frá upphafi að vera sigurvegari. Fari hún að tapa lykilfylkjum í upphafi gæti hún misst allt út úr höndunum. Það má búast við að Hillary leggi nótt við dag á aðventunni við að tryggja stöðu sína í Iowa og næstu fylkin sem fylgja á eftir.

Fyrir nokkrum vikum töldu flestir nærri ráðið að Hillary Rodham Clinton og Rudy Giuliani myndu takast á um Hvíta húsið. Nýjasta könnunin sýnir að allt er opið í sjálfu sér. Það er ekkert búið enn í þessum slag og til mikils sannarlega að berjast í fyrstu forsetakosningunum í átta áratugi þar sem hvorki forseti né varaforseti eru í forkosningaferlinu.

Norðlensk bókaútgáfa

Það hefur verið áhugavert að fylgjast með bókaútgáfunni Tindi á síðustu árum. Helgi Jónsson hefur rekið útgáfuna með miklum myndarbrag og gefið út fjölda bóka á undanförnum árum. Þekktastar þeirra og fyrstar í röðinni voru barna- og unglingabækur. Fyrir þessi jól gefur Helgi út tólf bækur og skrifar hann þrjár þeirra sjálfur, meðal annars sína fyrstu skáldsögu. Leit ég í nokkrar bækur frá Tindum nýlega og vil endilega fjalla um þær hér og um leið benda á norðlenska bókaútgáfu, enda er það gleðitíðindi fyrir samfélagið okkar hér að eiga öfluga bókaútgáfu.


Blá birta er fyrsta skáldsaga Helga Jónssonar, bókaútgefanda hjá Tindi. Í henni er sagt frá eldri hjónum, Ásdísi og Jónmundi, sem standa á krossgötum og verða að bregða búi eftir áratugavist í sveitinni sem þau bæði unna - bærinn verður fúinn og jörðin rýrnar í takt við nútímastrauminn úr sveitabyggðunum. Það er í senn hugljúfur tónn í þessari en líka mjög hreinskilinn. Talað er hreint út um vandamál hjónanna og krossgöturnar sem þau eru á. Einnig kynnist lesandinn vel þeim nýja veruleika sem þau horfast í augu við.  

Tónn minninganna er líka sterkur í þessari bók. Eins og hjá öllu venjulegu fólki einkennast þær í senn af ljúfum tímum en einnig sárum. Frásögnin einkennist af eftirsjá eftir hinum liðna tíma og blæ sveitalífsins fyrr á árum, tíma sem sannarlega er liðinn, bæði tíma mikillar vinnu og sárinda en lifir þó innst í hjartarótinni sem hugljúfur. Helgi segir sögu hjónanna með notalegum hætti, þarna er skrifað af tilfinningu og innlifun. Það var áhugavert að lesa fyrstu skáldsögu Helga og vonandi er stutt í þá næstu.


Helgi er þekktur fyrir Gæsahúðarbækur sínar, spennusögur skrifaðar fyrir krakka. Þær eru orðnar fleiri en tíu talsins og hafa vakið athygli á Helga sem rithöfundi en þær hafa notið vinsælda hjá börnum og unglingum. Í nýjustu bókinni í flokknum Villi Vampíra skrifar Helgi fyrir eldri krakka sérstaklega og fetar þar nýja slóð, bókin verður dekkri og beittari en þær hinar fyrri. Það er áhugavert að sjá hvernig Helgi staðsetur bókina hér á Akureyri og spinnur sögu sem virkar fjarstæðukennd vegna allra aðstæðna en verður samt svo öflug og sönn.

Helgi boðar framhald þessa bókaflokks. Það verður sannarlega spennandi að sjá í hvaða átt hann fetar með þennan nýja flokk spennusögu fyrir eldri krakka, sem er fjarri því sárasaklaust ævintýri heldur alvara hin mesta, saga sem snýst um líf og dauða. Helgi hefur verið bestur að mínu mati við að byggja þessar spennusögur fyrir krakka og hefur notið vinsælda fyrir þau skrif sín. Það er sniðugt hjá honum að feta lengra með þær frásagnir og taka nýtt skref í þeim skrifum, prófa hvernig þessi skrif passa við eldri krakka. Bókin var sannarlega spennandi og áhugaverð.


Júlíus Júlíusson, þúsundþjalasmiður á Dalvík, er landskunnur fyrir stjórn sína á fiskideginum mikla á Dalvík síðustu árin. Auk þess hefur hann orðið frægur fyrir að halda úti vinsælum jólavef, þar sem fjallað er um jólahátíðina með fjölbreyttum og litríkum hætti. Það kemur því ekki að óvörum að fyrsta bók Júlla sé notaleg jólasaga fyrir börnin - Blíð og bangsi litli.

Helstu kostir jólabarnsins í Júlla koma þar vel fram og bókin er sannarlega lifandi í frásögn og áhugaverð, einkum og sér í lagi fyrir glæsilegar myndir Sunnu Bjarkar Hreiðarsdóttur sem glæðir söguna lífi. Það voru einna helst myndir Sunnu sem vakti athygli mína og hún skapar myndrænan blæ utan um hugljúfa jólasögu.


Vil óska Helga góðs gengis í bókaútgáfu sinni. Það er alltaf gott þegar að fólk sinnir áhugamálum sínum og byggir upp fyrirtæki á heimavelli, byggir upp eitthvað nýtt og áhugavert.

Grafalvarlegar fregnir

Í skólanum.... Það er ekki hægt að segja annað en að niðurstaða PISA-könnunarinnar séu grafalvarlegar fregnir fyrir okkur Íslendinga. Ekki aðeins hefur staða okkar versnað í flestum námsgreinum heldur hefur lestrarkunnáttu æsku landsins hrakað mjög. Það hlýtur að teljast hið versta í þessari dökku niðurstöðu. Það að lesskilningi hraki verður vitnisburður þess að það syrtir í álinn heilt yfir.

Koma þessar fregnir sem nokkuð reiðarslag eftir uppbyggingu í skólamálum á undanförnum árum, en vel hefur verið unnið víða í málaflokknum. Stærðfræðiþekkingin hlýtur að vera mesta áfall okkar þegar að litið er yfir námsgreinar, en við erum þar á hraðri niðurleið. Það er svosem ekkert nýtt vandamál að stærðfræðiþekkingu sé kannski ábótavant en það hlýtur að teljast áfall að sjá niðursveiflu af þessu tagi.

Við höfum markað okkur sess sem lestrarþjóð, þar sem lykilatriði hefur jafnan verið að lesa mikið af bókum og lesturinn hefur verið okkar helsta lykilstoð að mjög mörgu leyti. Það að lestrarkunnáttu barna á lokastigum grunnskóla hraki umtalsvert eru dökkar fregnir og hljóta að leiða til þess að við hugsum um það á hvaða leið við erum eiginlega.

Við þurfum að hugsa okkar ráð í kjölfar þessarar niðurstöðu. Það getur varla talist annað en lykilmál til að taka á að ungmenni landsins séu með lélegan námsárangur og lestrarkunnáttu þeirra hraki. Það verður áhugavert að sjá hvernig að yfirmenn menntamála taki á þessari niðurstöðu.

mbl.is Staða Íslands versnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinsældir eilífðartöffarans Bó Hall

Bó Hall Fjórum áratugum eftir að Björgvin Halldórsson var kjörinn poppstjarna Íslands í Laugardalshöll virðist ekkert lát vera á vinsældum hans. Hvernig sem tónlistarmenningin hér heima hefur snúist í hringi á þessum tíma hefur Björgvin staðist tímans tönn. Hann er einn af þeim bestu, þar spilar eflaust inn í að hann gerir hlutina af fagmennsku og hefur tekið fleiri en eitt form tónlistar upp á sína arma, verið bæði ljúfur ballöðusöngvari og tekið væna sveiflu og á þeirri leið t.d. spilað kántrý og gospel, svo fátt eitt sé nefnt.

Hef t.d. alltaf metið mikils hversu öflugur hann er í textaframburði, hann er einn af þeim fáu hér heima sem getur sungið ensku af fagmennsku og hann syngur hvert orð af innlifun, tært og undurljúft. Það skilja allir hvert orð í söng Björgvins. Hann er svona eins og Raggi Bjarna og Haukur Morthens sinnar kynslóðar. Reyndar er Bubbi Morthens aðeins fimm árum yngri en Björgvin en það er ekki rétt að bera þessa tvo tónlistarmenn saman, svo stórir eru þeir báðir í tónlistarsögu okkar og hafa markað mikil áhrif á sínum vettvangi bransans.

Björgvin hefur líka staðið sig vel í jólatónlist og virðist helst vera í umræðunni þessa dagana vegna tónleikanna um næstu helgi og útgáfu nýrrar jólaplötu. Það eru tveir áratugir síðan að Björgvin gaf út sína fyrstu jólagestaplötu. Þar var fókusinn ekki á að syngja gömlu jólalögin sem allir þekktu heldur spáð í nýjum lögum - leitað var til Ítalíu og settar jólakúlur á góð ítölsk lög. Þetta form hefur ekki klikkað og mörg eftirminnilegustu jólalög síðustu áratuga eru ítalíuskotnu jólalögin hans Björgvins.

Nokkur jólalög með Björgvini og gestum hans eru í tónlistarspilaranum hér á vefnum. Eins og allir ættu að taka eftir er kominn jólabragur á spilarann, enda viðeigandi, þar sem aðeins tuttugu dagar eru til jóla. Best allra þessara jólalaga sem Björgvin ættleiddi frá Ítalíu og gerði að sínum er dúett hans og Ruth Reginalds - það er að sjálfsögðu í spilaranum.

mbl.is Bó plataði Loga í beinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegnarnir hafna Chavez sem einræðisherra

Hugo ChavezÞað kom skemmtilega á óvart að þegnarnir í Venezuela ákváðu að hafna Hugo Chavez sem einræðisherra. Það er öllum ljóst að hefðu stjórnarskrárbreytingar hans náð fram að ganga hefði einræði þessa vitfirrta þjóðarleiðtoga verið endanlega staðfest. Ekki aðeins hefði hann getað ríkt til eilífðarnóns heldur hefði hann getað haft alræðisvald yfir fjölmiðlum og getað skipað upp á sitt einsdæmi borgar- og bæjarstjóra í landinu.

Með þessu eru kjörtímabilsmörk Chavez staðfest og hann hverfur því úr embætti á eðlilegum tíma, að óbreyttu. Hann fetar þar í fótspor fjandvinar síns, George Walker Bush, sem er eins og flestir vita bundinn kjörtímabilsmörkum og getur ekki gefið kost á sér oftar í forsetakosningum. Það er að mínu mati eðlilegur hluti lýðræðis að menn geti ekki gert sjálfa sig að drottnurum með því að breyta stjórnarskrá og skipa sjálfa sig í guða tölu með alræðisvaldi.

Held að íbúar Venezuela geti verið stoltir af því að láta ekki fagurgala Chavez blinda sér sýn og hafna tillögum hans. Þarna var í pípunum enda einræðisstjórn af sama kalíber og sú sem Castro hefur leitt í hálfa öld í Kúbu. Castro er fyrirmynd Chavez og augljóst var að hann vildi feta í fótspor hans með kosningunni. Það er engum vinstrimanni til sóma að fasistar vilji láta skipa sig alvalda til eilífðarnóns, allt í nafni sósíalisma.

En það sér samt ekki fyrir lokin á þessu ferli tel ég. Chavez var strax farinn að tala um það í gær að endurtaka kosninguna. Hann ætlar sér að ná þessu í gegn sama hvað tautar og raular. En vonandi tekst honum það ekki. Það verður áhugavert að sjá hvað gerist og hvernig Chavez reynir að þröngva sér framhjá lýðræðinu og færa landið í einræðisátt, miðað við ummæli hans um úrslit kosninganna.


mbl.is Bandaríkin fagna ósigri Chavez
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kyntákn gerist ráðsettur fjölskyldafaðir

Brad Pitt Það er enginn vafi á því að Brad Pitt er eitt helsta kyntákn sinnar kynslóðar. Hann verður 44 ára síðar í þessum mánuði - er orðinn ráðsettur fjölskyldufaðir fjögurra barna. Það þarf því varla að koma að óvörum að hann breyti til og hætti að leika fáklæddur, vilji breyta um stíl. Hann varð heimsfrægur fyrir um tveim áratugum fyrir að túlka hinn útsmogna glaumgosaglæpamann J.D. í hinni frábæru Thelma and Louise, t.d. í frægu ástaratriði með Geenu Davis þar sem hann sýndi allt.

Brad hefur túlkað mjög ólíkar persónur á löngum leikferli og átt margar gullnar stundir á hvíta tjaldinu. Stundum hefur hann verið frekar fáklæddur og sýnt kroppinn með áberandi hætti. Sennilega var síðasta myndin af því tagi Troy fyrir nokkrum árum. Pitt hefur ennfremur leikið dramatísk hlutverk sem krefjast alvöru leiktúlkunar, án nektar, og hefur oft verið mjög góður. Persónulega hefur mér alltaf þótt bestu myndir hans vera Se7en og Fight Club, kvikmyndir meistarans David Fincher sem eru skemmtilega ólíkar en kröfðust alls af Pitt sem leikara.

Mér finnst yfirlýsing Pitt um nektina vera skemmtilega aðra nálgun á nútímann, þar sem nekt er orðin standard söluvara í kvikmyndum, tónlist og sjónvarpsþáttum - liggur við líka allt þar á milli í sviðsbransanum. Þetta er sterkt statement á þessum tímum þar sem flestir keppast við afhjúpa sig sem allra mest. En kannski er Pitt einfaldlega búinn með kvótann í þessum geira bransans. Það er kannski varla undur og stórmerki að maður á fimmtugsaldri breyti til með þessum hætti. En þetta eru samt tíðindi þegar að maður á borð við Brad Pitt á í hlut, enda hefur hann svo mikið auglýst sig með kynþokkanum.

Pitt mun brátt birtast kvikmyndaáhorfendum í endurgerð hinnar þekktu hasarmyndar Bullitt, sem skartaði Steve McQueen árið 1968. Steve McQueen var auðvitað stórstjarna á síns tíma mælikvarða. Hann á það sameiginlegt með Brad Pitt að vera myndræn stjarna með glans að nær öllu leyti. Hann hafði sjarma og glæsileika, gat túlkað bæði gaman sem drama á næman hátt. Hafði allan pakkann. McQueen var þó ekki bara sæti strákurinn á hvíta tjaldinu, hann gat bæði verið sá harði og mildi. Túlkaði bæði næmar týpur og eins rosalega nagla sem allir tóku eftir, gátu stungið hressilega. Að því leyti eru þeir tveir líkir.

Væntanlega eru kvenkyns aðdáendur Pitts ekkert sérlega ánægðir með ákvörðun Pitts, en þær geta þá bara horft á eldri myndir í staðinn.

Ein eftirminnilegasta sena kvikmyndaferils Pitts er uppgjörið í Seven. Um að gera að rifja það gullna augnablik upp hér.



mbl.is Aldrei aftur allsber Pitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. desember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband