Lögreglan leitar að fingralöngum ökumanni

Fingralangur ökumaður Það er ekki á hverjum degi sem löggan dreifir á fjölmiðlana mynd af ökumanni sem hefur sér það til frægðar unnið að gefa fuck you merki auk þess að keyra of hratt. Fannst merkilegast við myndina að við hlið fingralanga ökumannsins var strákur og andlit hans hafði verið hulið líka. Sýnist mér á fréttum að löggan nefni það sérstaklega að ökumaðurinn hafi verið vond fyrirmynd stráksins.

Það er eflaust að verða ný stefna hjá löggunni að birta myndir af þessu tagi. Þetta gerist fjarri því reglulega að svona sé gert. Kannski er þetta góð leið til að draga úr hraða, hver veit. Annars er nær vonlaust að greina hver ökumaðurinn er og auðvitað hefur verið máð út andlit mannsins og stráksins auk bílnúmersins. Þessi Subaru-bifreið er ekki það einstök að hún gefi upp hver ökumaðurinn sé. En þetta er visst statement sem felst í myndbirtingunni.

Eflaust eru þessar umferðarmyndavélar þarfaþing. Það er mikilvægt að fylgjast vel með hraða, við upplifum það flest að umferðarþunginn er mikill og það er oft gefið vel í. Það vill eflaust enginn verða fyrirsæta á svona mynd svo að kannski hugsa einhverjir sitt ráð, á meðan að flestir kíma út í eitt yfir þessari mynd og fingramerkinu.

mbl.is Huldi númerið og ók of hratt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógeðsleg skrif hjá Gillzenegger

Gillzenegger Ég held að flestir geti verið sammála um að Gillzenegger fór algjörlega yfir strikið í orðavali til femínista á vef sínum fyrr í vikunni. Það er eitt að vera ósammála femínistum en annað að skrifa niðrandi og jafnvel hóta þeim öllu illu. Það er engum til sóma að skrifa með þessum hætti og greinilega hefur Gillzenegger lært sína lexíu með hótunum viðkomandi aðila að kæra og að tala við lögreglu, enda hefur hann fjarlægt skrifin.

Það er auðvitað eðlilegt að hann hugsi sitt ráð vegna þessa og hafi séð að skrifin þurftu að fara út. Skil viðkomandi aðila mjög vel að vilja leita réttar síns vegna skrifa af þessu tagi. Það er eins og fyrr segir eðlilegt að vera ósammála femínustum og takast á um áherslur en það er annað og alvarlegt mál að hóta fólki vegna skoðana sinna.

Gillzenegger hefur oft talað djarft og óhikandi, jafnvel kuldalega í garð fjölda fólks. Þessi skrif voru botninn á öllu sem hann hefur skrifað og eðlilegt að hann bakki með skrifin og hugsi sinn gang. Þó að hann sé á móti femínistum er eðlilegt að hann hugsi sinn gang áður en skrifað er.

mbl.is Gillzenegger tók bloggfærslu út fyrir mömmu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórfelldur fjárdráttur sveitarstjórans í Grímsey

Grímsey Nær öruggt má nú telja að Brynjólfur Árnason, sveitarstjóri í Grímsey, hafi dregið sér milljónir króna af fé frá Grímseyjarhreppi. Sögusagnir herma að fjárdrátturinn sé stórfelldur og jafnvel nemi allt að tugum milljóna. Skrifstofur hreppsins voru nýlega innsiglaðar eftir að grunsemdir vöknuðu um fjárdráttinn og sveitarstjórinn hafði verið dæmdur fyrir olíuþjófnað. Brynjólfur hefur verið sveitarstjóri í þrjú ár í Grímsey.

Enginn vafi leikur á því að þetta mál er mikill harmleikur fyrir hið fámenna samfélag í Grímsey, þar sem það er í raun eins og ein stór fjölskylda. Spurningar vakna þó hvernig svo víðtækur fjárdráttur gat gengið, en sögusagnir eru um að hann hafi staðið meira og minna öll þrjú ár Brynjólfs sem sveitarstjóra.

Veit ekki hvernig eyjaskeggjar vinna sig frá áfalli af þessu tagi. Þetta mál er að mörgu leyti einstakt, en ég man ekki dæmi þess að stjórnandi sveitarfélags hafi misnotað traust samstarfsmanna sinna og umbjóðanda með svo grófum hætti sem fráfarandi sveitarstjórinn út í eyju hefur gert.

Frábær jólastemmning með Baggalút

Baggalútur Fastur liður í byrjun vefrúntarins míns á hverjum degi, fyrir utan fréttavefi, er hinn óborganlegi vefur félaganna á Baggalút. Stórskemmtilegur og flottur vefur með góðu gríni. Allavega hentar hann vel mínum húmor. Finnst þeir félagar þar algjörir snillingar. Lög þeirra hafa létt mörgum lundina.

Á hverju ári bíðum við svo eftir sykursætu aðventulagi vefsins og vel rokkuðu jólalaginu. Nýjasta aðventulagið er nú komið í spilun, þrem vikum fyrir jól. Þar hefur gamla slagaranum You´ve Lost That Loving Feeling með The Righteous Brothers breytt í sykursætan jólasmell á íslensku með öllu tilheyrandi. Vel heppnað og gott.

Mörg frábær jólalög með félögunum í Baggalút eru í tónlistarspilaranum hér á síðunni, þar á meðal þetta nýja og vel heppnaða lag.

mbl.is Baggalútur í jólafíling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. desember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband