9.12.2007 | 15:54
Leiftrandi einvígi hinna ósigruðu í Las Vegas
Það var stórskemmtilegt að fylgjast með hnefaleikaeinvígi hinna ósigruðu Floyd Mayweather og Ricky Hatton í Las Vegas í nótt. Því lauk er Mayweather rotaði Hatton kaldan í tíundu lotu og batt enda á litríka sigurgöngu hans í bransanum. Held að það megi segja að sigur Mayweather hafi verið verðskuldaður. Annars mátti skilja á honum eftir bardagann að þetta væri jafnvel hans síðasti á ferlinum. Það eru vissulega stórtíðindi ef hann hættir, en hann hættir allavega á toppnum fari svo.
Annars var greinileg gremja á bresku fréttastöðvunum í morgun með tap Hattons en Bretar töldu sinn mann virkilega eiga séns og höfðu mikið fjallað um möguleika hans. Greinileg sárindi eru sérstaklega í heimahéraði Hattons sem eðlilegt er. Annars spilaði Hatton sig mjög stóran í aðdraganda þessa bardaga og var heldur betur ögrandi við Mayweather á blaðamannafundi á föstudaginn og litlu munaði að bardaginn myndi hefjast þá þegar. Minnti hann svolítið á hinn skrautlega Prince Naseem Hamed á sínum tíma.
Hef annars alltaf haft nokkuð gaman af hnefaleikabardögum. Það er alltaf skemmtilegt kikk út úr því að horfa á. Þeir Bubbi og Ómar hafa haldið vel utan um boxið í sjónvarpslýsingu sinni. Þeir hafa lifað sig inn í keppnina með öllu sem til þarf og það hefur jafnan verið sérstaklega gaman bara eitt og sér að fylgjast með töktum þeirra við að lýsa. Það er viss list að gera eina íþrótt enn skemmtilegri bara með vandaðri umgjörð en þeir Bubbi og Ómar hafa gert boxið enn skemmtilegra sjónvarpsefni fyrir okkur hérna heima.
Það er líka alltaf áhugavert að horfa á myndir tengdar boxinu. Raging Bull er ein besta mynd sem nokkru hinni hefur verið gerð. Besta sagan úr boxbransanum á hvíta tjaldinu alveg hiklaust. Það var auðvitað með hreinum ólíkindum að meistari Scorsese fékk ekki óskarinn fyrir þá eðalræmu, bæði fyrir leikstjórn og kvikmynd. Robert De Niro var aldrei betri á sínum leikferli en í hlutverki LaMotta, þar sem öll svipbrigði sjást og skapsveiflurnar verða hrein unun á tilfinningaskalanum. Þetta er mynd sem allir sannir kvikmyndaunnendur verða að sjá.
Rocky-myndirnar eru tær snilld. Sú fyrsta gerði Sylvester Stallone að heimsfrægri stórstjörnu og hlaut óskarinn á sínum tíma, fram yfir eðalræmur á borð við All the President´s Men, Taxi Driver og Network. Glæsilegur árangur það. Auk þess er The Great White Hope mynd sem ég fæ aldrei leið á. Túlkun James Earl Jones þar er auðvitað tær snilld. Hann hefði eflaust unnið óskarinn árið 1970 ef Scott hefði ekki farið svo eftirminnilega á kostum sem Patton og raun bar vitni. Jones er öllum þekktur sem rödd Svarthöfða í Star Wars og CNN.
En rifjum aðeins upp Raging Bull. Mynd sem klikkar aldrei.
![]() |
Mayweather rotaði Hatton í 10. lotu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.12.2007 | 13:46
Egill verður bleikur fyrir femínistana
Þetta er líka svolítið áberandi friðarhugur í beinni útsendingu. Það vantaði bara að Egill væri með friðarpípuna upp í sér. Það hefur reyndar verið ansi harkalega ráðist að forystukonum femínistanna. Man ekki eftir harkalegri átökum lengi og sennilega er Sóley Tómasdóttir ein umdeildasta konan í samfélaginu; beinlínis hötuð víða. Samt er hún ein af valdakonunum í Reykjavíkurborg, með talsverð völd og er t.d. ritari vinstri grænna, forystukona þar innan borðs.
Egill virkaði mjög hress og kammó með þeim valkyrjunum áðan. Blár hefur verið einkennislitur þáttarins í mörg ár. Nú er hann orðinn bleikur. Verður bleiki liturinn í bakgrunni Egils hér eftir? Það verður spennandi að sjá.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.12.2007 | 10:55
Hvað er fólk að hugsa?
Það er alveg skelfilegt að heyra af þessum bruna á Suðurnesjum. Væntanlega er þetta íkveikja. Hvað er það fólk að hugsa sem kveikir eld með þessum hætti og skemmir eigur annarra með því? Þarna hafa brunnið margir bílar og bátur, svo að tjónið verður tilfinnanlegt. Finnst jafnan ömurlegt að heyra af skemmdaráráttu þeirra sem eyðileggja fyrir öðrum og það sama gildir auðvitað við í þessu tilfelli.
Það er vissulega svo að eldur getur alltaf komið upp en það er alltaf ömurlegra fyrir alla hlutaðeigandi þegar að sá eldur kviknar af ráðnum hug. Það má eiginlega telja mildi að ekki fór enn verr miðað við að sprengingar urðu í bílunum. Það er vonandi að lögregluyfirvöld muni hafa hendur í hári þeirra sem kveiktu þennan eld.
![]() |
Grunur leikur á íkveikju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2007 | 00:07
Ósvikin jólastemmning hjá Bó Hall í Höllinni

Fagmennska hefur löngum einkennt verk Björgvins. Hann hefur jafnan ekki gefið út efni eða haldið tónleika nema að hvert smáatriði sé vandlega úr garði gert. Það sést einna best af tónleikunum hans með Sinfó í fyrra, sem voru fullkomnir í gegn. Skildist á fréttum að á jólatónleikunum væri jólastemmning par excellence; heitt súkkulaði, piparkökur og ýmislegt fleira í boði. Það er spáð í alla þætti.
Á myndinni eru Bó og Sigga að syngja eitt jólalag saman. Væntanlega hefur það verið hið frábæra Nei, nei ekki um jólin, sem Sigga söng með HLH-flokknum á jólaplötunni þeirra fyrir rúmum tveim áratugum. Algjörlega ómissandi lag í desember. Það er að sjálfsögðu í tónlistarspilaranum hér á vefnum.
Þar eru reyndar fleiri frábær jólalög með Björgvini, t.d. dúettar hans með Svölu, Ruth og Siggu á öðrum lögum, jólalögum með ítölsku ívafi. Þar er ennfremur dúett hans með Ellý Vilhjálms, Jólafrí, en ég held að það sé eina lagið sem þau sungu saman opinberlega.
![]() |
Björgvin í jólaskapi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 01:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)