Innilegar samúðarkveðjur

Minningarkrossinn í Kirkjugarði AkureyrarÉg vil votta fjölskyldu mannsins sem lést í umferðarslysinu í Norðurárdal um helgina innilega samúð mína. Það er alltaf sorglegt að heyra af því þegar að ungt og efnilegt fólk fellur í valinn í svona hörmulegu slysi.

Það var mjög dapurlegt að heyra af þessu umferðarslysi, sérstaklega vitandi það að brátt styttist í að nýji vegarkaflinn á þessum slóðum verði tekinn í notkun, sem breytir stöðu mála þar mjög. Það er mjög vondur vegarkafli sem liggur að gömlu einbreiðu brúnni og getur verið viðsjárverður í litlu skyggni og rigningarveðri og auðvitað sérstaklega í vetrarófærð. Þarna hafa áður orðið mjög alvarleg slys.

Þegar að ég fór þarna síðast um, í apríl sl, fannst mér gott að sjá nýja vegarstæðið vera að myndast og það verður mjög ánægjulegt þegar að það verður tekið formlega í notkun bráðlega. Þessi gamli vegarkafli er mjög slæmur og það verður engin eftirsjá af honum. Reyndar er enn verulega dapurlegt hversu margar einbreiðar brýr eru á þjóðveginum. Það gengur alltof hægt að skipta þeim út.


mbl.is Lést í umferðarslysi í Norðurárdal á sunnudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Útvarp Saga búin að kaupa málefnin.com?

Það vekur mikla athygli að fram kemur á nýjum spjallvef Útvarps Sögu að útvarpsstöðin hafi fest kaup á spjallvefnum málefnin.com, sem hefur verið einn helsti spjallvefur landsins í rúm fjögur ár, með aðstoð fjársterkra aðila og muni hann smá saman flytjast þangað yfir. Þetta kemur orðrétt fram í innleggi á vefnum frá aðila sem skrifar undir nafninu Bloggstjóri. Þessi tilkynning kemur sem athyglisvert innlegg í umræðuna um stöðu þessa spjallvefs sem hefur verið reglulega í fréttum og umtali fólks á milli árum saman.

Umræða hefur verið um eignarhald þessa spjallvettvangs, en Stefán Helgi Kristinsson sem stofnaði vefinn sumarið 2003 komst í umræðuna á síðasta ári er hann gaf Jónínu Benediktsdóttur upp IP-tölur nokkurra þeirra sem skrifað höfðu á vefinn. Kjaftasagan segir að Netheimur eigi nú spjallvefinn, eftir að Stefán Helgi hætti með hann eftir hið fræga mál sem komst í kastljós fjölmiðlanna. Eftir það hefur verið lítið talað um eignarhaldið af þeim sem halda utan um vefinn.

Málefnin voru um tíma lykilstaður á netinu, þar hefur þó róast mjög yfir. Rétt eins og víðar hefur spjallvefaformið sígið niður. Það er þó vissulega athyglisvert ef Arnþrúður Karlsdóttir og hennar fólk hefur fest sér eignarhald á spjallvefnum og öllum leyniupplýsingum hans eins og fram kemur á Útvarpi Sögu.

Valgerður verður að útskýra ummæli sín betur

Valgerður Sverrisdóttir Þeir eru fáir sem botna í hálfkveðnum vísum Valgerðar Sverrisdóttur varðandi Baugsmálið. Það er algjört lágmark að hún útskýri mun betur hvert hún sé að fara með orðavali sínu og tali hreint út í þessu máli. Mér finnst þessar hálfkveðnu vísur þess eðlis að það á að segja frá þeim með afgerandi hætti. Hún á að botna vísurnar sem hún kom með fyrripartinn að. Þetta Baugsmál er auðvitað flókið og erfitt mál sem hefur farið í alla kima dómskerfisins og það er ekki þörf á þessari dulúð í málinu.

Valgerður Sverrisdóttir var iðnaðar- og viðskiptaráðherra í sjö ár og utanríkisráðherra í eitt ár, hún var í hringiðu lykilákvarðana stjórnmálanna allan valdaferil ríkisstjórna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og er nú orðin varaformaður Framsóknarflokksins. Það er eiginlega algjört lágmark að hún orði hlutina betur en í hálfkveðnum vísum. Það sem hún segir hljómar mjög undarlega og get ég ekki betur séð en að þar séu hlutir gefnir í skyn en ekkert meira. Það vekur allavega athygli að hún þori ekki að botna eigin orð.

Það er því hið eina rétta fyrir Valgerði að tala hreint út. Þessi ummæli hennar í Viðskiptablaðinu hafa kveikt umræðu sem hún getur ekki endað nema að orða hlutina betur.

Jákvæðar aðgerðir stjórnvalda í samgöngumálum

ÞjóðvegurÞað er ekki hægt annað en að fagna góðum tillögum ríkisstjórnarinnar í samgöngumálum, sem gera ráð fyrir að flýta ellefu lykilframkvæmdum í samgöngukerfinu. Er um að ræða eina af helstu mótvægisaðgerðum í tengslum við niðurskurð þorskkvótans um 63.000 tonn. Inni í þessu eru framkvæmdir sem skiptir máli að ráðast í og hafa verið á dagskrá um nokkuð skeið.

Það blasti við öllum þegar að Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, kynnti sögulega lágar kvótatölur næsta fiskveiðiárs að einhverjar aðgerðir þyrftu að koma til sögunnar af hálfu stjórnvalda. Byggðum landsins má ekki blæða út með þeim hætti sem þá var kynntur forsmekkur að. Þetta eru góðar aðgerðir í því skyni og skipta hiklaust talsverðu máli. Hinsvegar verður veturinn auðvitað erfiður um allt land og það er viðbúið að mikill niðurskurður verði í vinnslukerfi sjávarútvegsins í takt við minni kvóta en dæmi eru um áður.

Sérstaklega ber að fagna að Norðfjarðargöngum er flýtt. Það er kominn tími til fyrir löngu að leggja ný göng milli Eskifjarðar og Norðfjarðar. Ég fór síðast um Oddskarðsgöngin í síðasta mánuði á leið til Lalla frænda míns á Skorrastað og það er öllum ljóst að þessi göng eru fyrir lifandis löngu orðin barn síns tíma. Þetta eru stærstu og bestu fréttirnar hvað okkur varðar hér í kjördæminu að mínu mati. Það er líka mikilvægt að flýta Dettifossvegi og vegabætur um Norðausturveg eru mikilvægar. Þannig að við erum sæl hér. Það eina sem vantar nú sem lykilmál er að koma Vaðlaheiðargöngum á dagskrá. Allavega skipta þessar tillögur máli á þessum tímapunkti.

Heilt yfir eru þetta því ánægjuleg skref sem tekin eru þarna og bera vott um jákvætt verklag á erfiðum tímum. Það er öllum ljóst að mótvægisaðgerðir bæta aldrei allan skaðann sem verður af skerðingu þorskkvótans en þær geta fyllt eitthvað betur upp í gatið hinsvegar sem myndast, en við öllum blasir að það er óumdeilanlega stórt.


mbl.is Vegaframkvæmdum fyrir 6,5 milljarða verður flýtt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilagi blærinn farinn af fröken París Hilton

Paris Hilton Það líður varla sá dagur vestan hafs er París Hilton er ekki í sviðsljósi fjölmiðlanna. Stutt er síðan að hún losnaði úr fangelsi og sagðist hún í viðtali við Larry King síðla júnímánaðar orðin dauðleið á djamminu og vildi helst hætta því. Heilagi blærinn er farinn af henni nú þegar, enda berast fréttir um að hún sé komin strax aftur í djammgírinn eftirminnilega. Það er greinilega fylgst með hverju spori hennar og eru minnstu athafnir hennar komnar í pressuna um leið.

Það er oft hlægilegt að lesa fréttirnar af fræga og ríka fólkinu, sérstaklega vestan hafs. Paris Hilton er sennilega orðin frægust af þeim uppagellum sem hafa flaskað á frægðinni og runnið til á göngunni á rauðu rósum glamúrlífsins. Það voru tíðindi þegar að hún rann til á svellinu og fékk dóminn um að afplána refsingu sína. Ekki virðist hún hafa lært mikið af þessu falli og er þegar komin í sama gírinn, ef marka má fréttirnar, sem flæða endalaust yfir allt vestan hafs.

Það er reyndar stutt síðan að fréttakona þar neitaði að fjalla um París Hilton og eyddi fréttinni í beinni. Það var vel af sér vikið. Það eru flestir búnir að fá hundleið á prímadonnustælum þessarar aumingjans konu.

mbl.is Paris Hilton í fínu formi út á lífinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband