14.7.2007 | 21:03
Kostuleg trúðslæti mótmælenda í Reykjavík

Það eru engin svör til um af hverju þetta sé gert. Helst er að sagt sé að þetta sé bara statement um skoðanir og ég veit ekki hvað. Mér finnst þetta fullkomlega ábyrgðarlaus mótmæli og þau dæma sig verulega sjálf. Þetta er sami hópurinn og mætti í Kringluna um daginn og lét þar hreinlega eins og trúðar og var úthýst þaðan. Það var lítið vit í þeim mótmælum og mátti öllum vera ljóst eftir það sem þar gekk á að ekki yrðu þessi mótmæli öðruvísi.
Mér finnst svona mótmæli mjög tilgangslaus. Það er hægt að segja skoðanir sínar með svo miklu betri hætti en fara fram með svona hætti; stöðva umferð og blokkera lykilgötur borgarinnar. Það hefur sannast áður af verklagi mótmælenda að þeim er varla neitt heilagt í að tjá sig og jafnan reynt að tjá sig með því að hefta frelsi annarra eða fara almennt yfir strikið. Það muna sjálfsagt allir eftir því þegar að mótmælendur fyrir austan ruddust inn í Hönnun á Reyðarfirði og klifruðu upp í byggingakrana á Alcoa-svæðinu.
Mér finnst sjálfsagt að fólk segi skoðanir sínar og geti mótmælt hafi það skoðun. En það að fara fram með svona hætti og gera hlutina án þess að leita samráðs eða samþykkis mótmæla er fyrir neðan allar hellur og rýrir bara málstað þeirra og gerir hann óábyrgan að verulegu leyti.
![]() |
Mótmælendur Saving Iceland loka Snorrabraut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.7.2007 | 19:15
Röng viðbrögð á örlagastundu?
Það er skelfilegt að heyra um stöðuna á manninum sem brenndist í gassprengingunni austur í Fljótsdal. Það er auðvitað hið versta ef svo er að röng viðbrögð hafa leitt til þess hversu illa komið er. Læknir mun ekki hafa verið kallaður á svæðið og var viðkomandi keyrður til Norðfjarðar á sjúkrahús af vini sínum. Það hefði eflaust getað farið enn verr hefði það ekki verið gert, en staðan virðist sama líta verulega illa út. Þegar að hann var loks fluttur suður var staðan orðin mjög slæm og virðist lítið skána.
Mér finnst það eiginlega með ólíkindum að ekki sé kallað til lækni strax þegar að staðan er með þeim hætti að alvarleg brunasár eru til staðar. Mér finnst þetta eiginlega alveg rosalegt mál í heildina. Vona að það muni fara vel hjá viðkomandi, en þetta mál hlýtur að leiða til mikillar umhugsunar um viðbrögð í tilfellum af þessu tagi.
Mér finnst það eiginlega með ólíkindum að ekki sé kallað til lækni strax þegar að staðan er með þeim hætti að alvarleg brunasár eru til staðar. Mér finnst þetta eiginlega alveg rosalegt mál í heildina. Vona að það muni fara vel hjá viðkomandi, en þetta mál hlýtur að leiða til mikillar umhugsunar um viðbrögð í tilfellum af þessu tagi.
![]() |
Lífhættulega brenndur eftir gassprengingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2007 | 13:55
Baldvin Halldórsson látinn

Baldvin helgaði Þjóðleikhúsinu ævistarf sitt á sviði og fór þar með fjöldamörg ógleymanleg hlutverk. Hann var ekki í hópi fyrstu fastráðinna leikara Þjóðleikhússins en var samofinn sögu þess þó frá fyrsta degi, enda lék hann í fyrstu sýningunum; Nýársnótt, eftir Indriða Einarsson, og Íslandsklukkunni, eftir Halldór Kiljan Laxness. Hann var fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið frá árinu 1953 og var þar nær samofið á sviði fram á tíunda áratuginn. Lék hann rétt um tvö hundruð hlutverk á glæsilegum ferli þar. Þótti hann mjög sterkur dramatískur leikari, en var jafnvígur á húmoríska undirtóna.
Nægir þar að nefna hlutverk hans í leikritum á borð við: Jón Arason biskup, Óvænt heimsókn, Sem yður þóknast, Carvallo, Tyrkja Gudda, Skugga Sveinn, Valtýr á grænni treyju, Góði dátinn Svejk, Sumar í Týról, Dagbók Önnu Frank, Kirsuberjagarðurinn, Blóðbrullaup, Kardemommubærinn, Dýrin í Hálsaskógi, Edward sonur minn, Horfðu reiður um öxl, Andorra, Gísl, Mutter Courage, Lukkuriddarinn, Marat/Sade, Lukkuriddarinn, Deliríum Búbonis, Mörður Valgarðsson, Eftirlitsmaðurinn, Fást, Svartfugl, Höfuðsmaðurinn frá Köpernick, Óþelló, Kabarett, Lýsistrata, María Stúart, 7 stelpur, Brúðuheimili, Oliver Twist, Hús skáldsins, Hótel Paradís og Uppreisn á Ísafirði.
Baldvin leikstýrði mörgum stórum leikverkum á leikstjóraferli sínum og var einn af helstu leikstjórum Þjóðleikhússins í áratugi. Meðal þeirra verka sem hann leikstýrði voru: Við kertaljós, Antígóna, Ætlar konan að deyja?, Djúpið blátt, Dagbók Önnu Frank, Horfðu reiður um öxl, Í Skálholti, Beðið eftir Godot, Tvö á saltinu, Engill horfðu heim, Biedermann og brennuvargarnir, Sautjánda brúðan, Læðurnar, Hver er hræddur við Virginíu Woolf?, Járnhausinn, Síðasta segulband Krapps, Prjónastofan Sólin, Á rúmsjó, Uppstigning, Íslandsklukkan, Bangsímon, Allt í garðinum, Þjóðníðingur, Don Juan í helvíti, Mæður og synir, og Máttarstólpar þjóðfélagsins. Baldvin leikstýrði tvisvar hjá Leikfélagi Akureyrar; Vakið og syngið, á sjötta áratugnum, og Sjálfstætt fólk, um 1980.
Baldvin var ennfremur mjög ötull við að leikstýra verkum í útvarpi og leika á þeim vettvangi. Hann lék í nokkrum kvikmyndum og er sérstaklega eftirminnilegur fyrir túlkun sína á séra Jóni Prímusi í kvikmyndaútfærslu Guðnýjar Halldórsdóttur við Kristnihald undir jökli, verki föður hennar, Halldórs Kiljans Laxness, árið 1989. Hann þótti ná vel bæði dramatískum og kómískum hliðum Jóns. Hann lék skólastjórann mjög vel í kvikmyndinni Punktur, punktur, komma, strik, (sem því miður hefur fallið í einum of mikla gleymsku) við sögu Péturs Gunnarssonar árið 1981. Varðstjórinn í Börnum náttúrunnar er ógleymanlegur í túlkun Baldvins Halldórssonar. Friðrik Þór Friðriksson valdi Baldvin aftur í hlutverk varðstjóra í Englum alheimsins tæpum áratug síðar.
Hlutverk Baldvins í sjónvarpsmyndum urðu fjöldamargar. Persónulega fannst mér hann alveg magnaður í hlutverki móttökustjórans á hótelinu í sjónvarpsmyndinni Róbert Elíasson kemur heim frá útlöndum, eftir Davíð Oddsson, seðlabankastjóra og fyrrum forsætisráðherra, árið 1977. Húmor móttökustjórans er algjörlega magnaður og það er hrein unun að horfa á þetta leikverk. Húmorískir taktar höfundar komast vel til skila og Baldvin var hárrétti leikarinn til að ná þeim svipbrigðum alvöru og hárbeittu kómíkar sem einkenna móttökustjórann. Auk þess er hann mér eftirminnilegur í sjónvarpsmyndinni Emil og Skundi á níunda áratugnum, en þar fór hann mjög vel með hlutverk smiðsins Jósa.
Baldvin Halldórsson hlaut silfurlampann, leiklistarverðlaun veitt árlega af félagi leikdómara, fyrir túlkun sína á Schultz í Kabarett og gæslumanninnum í 7 stelpum í Þjóðleikhúsinu. Verðlaunin voru afhend eftir sýningu á Kabarett. Eins og flestum er kunnugt afþakkaði Baldvin verðlaunin, en hann var sá sextándi til að hljóta lampann (þrjár konur hlutu silfurlampann). Við svo búið voru verðlaunin lögð niður og voru eiginleg leiklistarverðlaun ekki til staðar í þrjá áratugi, eða þar til að Grímuverðlaunin komu til sögunnar.
Fólk af minni kynslóð og þeirri næstu á undan, og eflaust þeim næstu á eftir minni, minnast hans sennilega einna helst fyrir að hafa túlkað Martein skógarmús í Dýrunum í Hálsaskógi á frægri plötu með verkinu og í sýningu Þjóðleikhússins og sömuleiðis fyrir að túlka Jesper í Kardemommubænum með sama hætti. Þessar túlkanir Baldvins og allra annarra sem voru í þessum leikgerðum munu lifa með þjóðinni alla tíð.
Við leiðarlok er Baldvin Halldórsson kvaddur með söknuði. Hann var í senn ógleymanlegur leikari og leikstjóri sem vann af krafti í íslensku leikhúsi, framkallaði oft sanna töfra í verkum sínum.
![]() |
Baldvin Halldórsson látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)