Yfirdrifinn og falskur heimur glamúrlífsins

Tom Cruise stekkur á sófa Ég verð að viðurkenna að ég hef stundum horft á glamúrinn í Hollywood með svolitlum undrunarsvip. Hann fer æði oft yfir strikið. Gleymi því t.d. aldrei þegar að Tom Cruise flippaði yfir og stökk upp á sófanum hjá Opruh Winfrey fyrir tveim árum þegar að hann varð trylltur af ást til hinnar snotru Katie Holmes, sem er sextán árum yngri en hann. Þetta getur orðið yfirdrifinn og falskur heimur í glamúrlífinu.

Það hefur eiginlega verið með ólíkindum að fylgjast með fjölmiðlafárinu á eftir David Beckham í Los Angeles eftir að hann var kynntur til formlega leiks með LA Galaxy. Beckham upplifir þar sömu stjörnustælana og voru til staðar þau fjögur ár sem hann spilaði með Real Madrid og í stjörnuliði Manchester United í rúman áratug. Það verður aldrei af þeim skafið þeim David og Victoriu að þau eru sannkallaðir snillingar að ná fjölmiðlaathygli og beina henni rétt að sér. Þau hafa ótrúlega góð sambönd við að ná réttum blaðaviðtölum og hljóta góð ljósvakaviðtöl sem kemur þeim í kjarna allrar umfjöllunar.

Þetta tókst þeim áður og ekki bregst þeim bogalistin í Bandaríkjunum. Þetta er samt einum of mikið finnst mér, t.d. eins og sést á þessari frétt. Þetta er virkilega yfirdrifinn glamúr. Annars er ég viss um að Beckham-hjónunum muni ganga illa að haldast á þessu sviðsljósi. Þau eru nýjar fréttir vestan hafs um smátíma en að því loknu hverfa þau í ljóma annarra. En þau hafa sviðsljósið og leikararnir í Hollywood hafa verið dugleg við að leggja þeim lið í kynningu sinni, en flest eru þau vinir þeirra og hafa kynnst þeim í gegnum sviðsljósið.

David Beckham hefur verið hylltur eins og kóngur á rauðum dregli í Los Angeles. Það verður fróðlegt að sjá hversu lengi þessi fjölmiðlaglampi helst. Kannski hafa þau áður metið það þannig að flutningur til Bandaríkjanna væri sá fjölmiðlavænasti. Jafnan hefur manni fundist þau hjónin helst meta tækifærin í fjölmiðlamínútum, hversu lengi glampinn haldist. Það er allavega freistandi að halda það, hafandi fylgst með þeim fyrr og nú.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig að Beckham muni standa sig í Herbalife-treyjunni á næstu leiktíð. Ætlar hann að enda ferilinn í Bandaríkjunum eða mun hann enda ferilinn heima í Bretlandi. Þetta eru stórar spurningar. Eflaust ræðst það allt af því hvernig honum gangi á næstunni. Það ræðst mikið af því hversu öflugir Hollywood-leikararnir verða að mæta í heimsókn til Beckham-hjónanna. Þetta snýst nefnilega allt um sviðsljósið.

mbl.is Tom Cruise sýndi danstakta í veislu Beckham-hjónanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísitasía ISG - tveir mánuðir frá stjórnarskiptum

Ingibjörg Sólrún og GeirÞað eru tveir mánuðir í dag liðnir frá því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar tók við völdum og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, varð utanríkisráðherra. Hún fór yfir ráðherraferil sinn og verkefnin í utanríkisráðuneytinu í Kastljósi í kvöld. Sitt sýnist hverjum um för Ingibjargar Sólrúnar til Mið-Austurlanda og hún hefur verið umdeild.

Vef-Þjóðviljinn hefur sannarlega haft gaman af að skrifa um ferð Ingibjargar Sólrúnar og sagði orðrétt af sinni stöku snilld í frábærum pistli í gær: "Jæja, þá er Ingibjörg Sólrún komin til Jórdaníu. Þaðan mun leið hennar svo liggja til Íslands þar sem hún mun dvelja í nokkra daga og eiga stuttar viðræður við ráðamenn áður en hún heldur að nýju af landi brott, brýnna erinda. Þetta verður fyrsta opinbera heimsókn Ingibjargar hingað til lands." Ferð Ingibjargar Sólrúnar hefur fyrst og fremst markast af kosningabaráttu fyrir sæti í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, gamalgrónu pólitísku gæluverkefni Halldórs Ásgrímssonar, fyrrum forsætisráðherra.

Það hefur verið undarlegt að fylgjast með vinstri grænum reyna að finna höggstað á ferðinni í ljósi þess að Ingibjörg Sólrún hitti Mahmoud Abbas, forseta, og Salam Fayyad, forsætisráðherra. Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, hefur gert mikið veður út af því að ráðherrann hitti "aðeins" þessa tvo ráðamenn að hans sögn. Vildi hann að Ingibjörg Sólrún færi á fund fulltrúa Hamas-samtakanna. Eru það kostuleg ummæli í ljósi stöðunnar í Palestínu, þar sem borgarastyrjöld hefur geisað. Auðvitað er það hið eina í stöðunni fyrir ráðherrann að hitta réttkjörinn forseta sem fer með samningsumboð en blanda sér ekki í borgarastyrjöld í landinu.

Er undarlegt að VG gerist málpípur þess að íslenskir ráðherrar fari að funda með fulltrúum Hamas í ljósi stöðunnar, sem markast af harðvítugri valdabaráttu Hamas og Fatah um stjórn landsins. Ég tel að Ingibjörg Sólrún hafi gert hið eina í stöðunni. Hinsvegar er ljóst að margir fulltrúar VG eru fúlir yfir því að ráðherrann hafi hitt Tzipi Livni og Shimon Peres, en það var auðvitað eðlilegt, enda er hún utanríkisráðherra og hann forseti landsins og auk þess var Livni starfandi forsætisráðherra dagana sem Ingibjörg Sólrún var þar stödd. Ég tel að utanríkisráðherra Íslands hafi spilað þennan þátt mjög vel og hún hitti alla lykilmenn, sem eru í samningsaðstöðu.

Hinsvegar finnst mér hún ansi háleit hugmynd utanríkisráðherrans að Ísland leiki eitthvað stórt hlutverk í friðarviðræðum. Eitt er að bjóða landið sem fundarstað en annað er að vera partur af viðræðunum með Íslending sem sáttasemjara. Tel það óraunhæft og að í raun að við höfum ekki þá lykilstöðu í alþjóðastjórnmálum til að leiða slíkar viðræður. Það er eitt að viðra slíkar hugmyndir en annað að koma með það sem valkost. Enda er raunveruleikinn sem við lifum í allt annar en gengur og gerist á þessu svæði og þungi okkar í pólitísku tilveru heimsins ekki mikill, satt að segja agnarsmár. Það er hið augljósa staða málsins.

Það sem helst mæddi á ráðherranum í viðtalinu var að svara fyrir umræðu um ráðningar inn í ráðuneytið. Þar hafa tvær konur verið ráðnar; önnur sem stjórnsýsluráðgjafi (Helgi mundi ekki starfsheitið í viðtalinu merkilegt nokk) og hin (fyrrum pólitískur aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar á borgarstjórastóli og trúnaðarvinkona hennar) sem umsjónarmaður með framboði í öryggisráðið í fæðingarorlofi Sigríðar Á. Snævarr. Ráðgjafastaðan er ný, eftir því sem best er vitað. Það hefur líka reynst vandræðalegt fyrir Samfylkinguna að fylgja í fótspor annarra flokka með flokkspólitískum bitlingaskipunum (sem fulltrúar hans nefndu svo áður), t.d. í stjórn flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.

Ríkisstjórnin fer vel af stað að mínu mati. Staða hennar er sterk, flokkarnir fengu mjög öflugan þingmeirihluta og stjórnin mælist með metstuðning í skoðanakönnunum eftir þingkosningarnar fyrir rúmum tveim mánuðum. Það er því öllum ljóst að ekkert hættuástand er yfir stjórnmálunum hér heima. Hinsvegar hefur skoðanamunur ráðherra og þingmanna komið mun betur fram en var í stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í tólf ár. Það helgast af hinum rúma meirihluta. Lánleysi stjórnarandstöðunnar virðist um leið algjört og mikið ráðleysi vofir þar yfir. Enda ekki öfundsvert að takast á við svo öfluga ríkisstjórn.

Ingibjörg Sólrún er að stíga sín fyrstu skref á ráðherrastóli. Hún á að baki langan stjórnmálaferil og hefur að mati flestra fúnkerað best í valdastöðu. Það hafa verið skiptar skoðanir um gengi hennar fram að þessu og fróðlegt að sjá hvernig að henni muni ganga á næstunni.


Sorgleg lífsreynsla í kerfinu

Það er alltaf sorglegt að heyra sögur af þeim sem greinast með lífshættulegan sjúkdóm og eygja sér ekki lífsvonar eða þurfa að heyja ójafna baráttu við máttarvöld sem engu eirir. Sjálfur hef ég séð þannig baráttu í nærmynd í minni fjölskyldu. Það er sannarlega erfitt að heyja þá baráttu án aðstoðar, án þess að geta stólað á sanna hjálparhönd í myrkrinu. Það var lærdómsríkt að lesa um eina af þessum lífsreynslusögum í Blaðinu í dag. Þar tala tvær dætur krabbameinssjúks manns, sem sannarlega er hjálparþurfi, um baráttu hans fyrir því að fá aðstoðina sem flestir vilja getað treyst á.

Það er erfitt að greinast með svona sjúkdóm. Ekki er það til að bæta stöðuna ef hún er með þeim hætti að sá hinn sjúki er á götunni og fær ekki viðeigandi meðferð. Þetta er gott dæmi um sorglegu hliðarnar í kerfinu margflókna. Það er ekki öllum gefið að fá þá hjálp sem máli skiptir og þetta virðist vera eitt þeirra mála þar sem engin lausn er til staðar. Það er óviðunandi. Það á að vera hægt að stóla á það að lendi maður í sönnum erfiðleikum að til sé lausn, til sé aðstoð við því að takast á við vandann, sem er mikill þegar sjúkdómur af þessu tagi er um að ræða.

Það eru ekki allir jafn hamingjusamir í lífinu. Sumir lifa svartnætti meðan að við hin upplifum bjarta tíma. Það eru misjöfn tækifæri í lífinu. Það ber að hjálpa þeim sem veikir eru til að fá þá aðstoð sem máli skiptir í slíkri lífsbaráttu.

mbl.is Kerfið hefur afskrifað pabba
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælendur handteknir í Straumsvík

Mótmæli Mótmæli Saving Iceland halda áfram. Nú í dag var komið að því að þeir birtust fyrir utan álver Alcan í Straumsvík og tækju þar sömu rispu og verið hefur að undanförnu á öðrum stöðum. Það er mjög kostulegt að fylgjast með þessum mótmælum. Ég held að mikill meirihluti Íslendinga sé hættur að skilja þessi mótmæli. Það kom fram hjá Sigga pönk í Kastljósinu í gær að aðeins séu tíu Íslendingar að mótmæla í þessum hópi.

Sumir hafa talað um aðgerðarsinna þegar að talað er um þessa mótmælendur. Hversvegna er það nýyrði notað yfir þetta fólk. Af hverju ekki mótmælendur? Er það vegna þess að þeir viðhafa ólöglegar aðferðir til mótmæla að þá finnst fólki ekki viðeigandi að kalla þá því nafni? Það er ekki nema von að spurt sé. Aðferðir þessa hóps hafa verið frekar drastískar. Ekki var nóg með að þeir hafi truflað viðskiptavini í Kringlunni og blokkeruðu Snorrabrautina á laugardegi í júlí að þá hafa þeir verið sakaðir um að hafa slett málningu á fyrir Athygli, fyrir það eitt að það hafi sinnt verkefnum fyrir Landsvirkjun.

Það er margt í þessu sem venjulegt fólk skilur ekki. Þessi mótmæli eru að mínu mati engin rós í hnappagat íslenskra umhverfisverndarsinna, enda held ég að þetta hafi frekar skaðleg áhrif á þá en hitt. Hvað er svo annars Vopnaveita Reykjavíkur? Ekki nema von að fólk sé hugsi yfir verklagi og tjáningu þessa hóps erlendra mótmælenda sem flakkar um heiminn og leitar uppi verkefni, jafnvel í löndum þar sem það skilur ekkert í ástandi eða aðstæðum þar.

mbl.is Átta handteknir í Straumsvík og hlið opnuð á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilegar kappræður hjá demókrötum

Barack Obama og Hillary Rodham ClintonÉg horfði á skemmtilegustu kappræður sem ég hef lengi séð í Bandaríkjunum í nótt. Það voru sögulegar netkappræður, þær fyrstu, þar sem forsetaefni demókrata mættust í Suður-Karólínu á vegum YouTube og CNN. Spurningarnar voru 39 talsins, í senn bæði sannar og raunsæjar, og komu frá fólki í gegnum YouTube, venjulegu fólki. Það voru mun frekar spurningarnar en svörin sem settu mark sitt á þessar kappræður og þetta varð miklu líflegra fyrir vikið.

Það er spennandi slagur um útnefningu Demókrataflokksins fyrir væntanlegar forsetakosningar. Þar takast helst á öldungadeildarþingmennirnir Hillary Rodham Clinton, fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna, og Barack Obama um hnossið mikla. Demókratar hafa tapað tveim forsetakosningum í röð og þar er leitað því eðlilega að sigurvegara. Alls eru frambjóðendurnir þó átta talsins. Möguleikar þeirra eru mismiklir. Persónulega fannst mér Joe Biden standa sig mjög vel í þessum kappræðum og Hillary Rodham Clinton var leiftrandi og öflug. Obama er að eflast eftir frekar gloppótta frammistöðu í fyrri kappræðunum tveim.

Það er auðvitað hörð barátta framundan um Hvíta húsið. Eitt og hálft ár er þar til að 44. forseti Bandaríkjanna tekur við völdum og innan við hálft ár er í fyrstu forkosningarnar í Iowa. Forsetinn verður kjörinn þriðjudaginn 4. nóvember 2008. Það er enn langur tími til stefnu. Samt hefur kapphlaupið um útnefninguna meðal demókrata staðið í um hálft ár. Allt er þetta til vitnis um hversu afleit staða George W. Bush er orðin. Kapphlaupið um Hvíta húsið hefur aldrei verið lengra en stefnir í að verði að þessu sinni. Baráttan verður hörð. Þó að Hillary sé fyrrum forsetafrú og hafi langa sögu valda og áhrifa að baki þarf hún að heyja harða baráttu. Þó eru flestir vissir um að hún muni hafa þetta.

Það var áhugavert að fylgjast með þessum kappræðum. Þær brutu stílinn upp með áberandi hætti og vonandi er þetta nýtt upphaf vestra í þessum efnum. Þetta verða spennandi forsetakosningar og áhugavert að fylgjast með slagnum sem er enn við upphafsmörk að svo mörgu leyti. Flest bendir til þess núna að þetta verði einvígi Hillary Rodham Clinton og Barack Obama.

Hvort og þá hverjir aðrir eigi séns verður að ráðast, en það er alveg ljóst að það mun fækka hratt í þessum hópi eftir forkosningarnar í Iowa og þær sem taka við. Það verður áhugavert að sjá hverjir hafa mesta úthaldið í þessum rándýra bransa.


mbl.is Fyrstu netkappræður forsetaframbjóðenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er enski boltinn verðlagður of hátt hjá Sýn 2?

Enski boltinnÞað styttist í að enski boltinn fari á fullt. Hér heima verður hann sýndur að nýju á íþróttastöðvum 365 eftir nokkurra ára hlé. Það eru margir sem velta fyrir sér verðlaginu á boltanum hjá 365. Sýn 2 mun sýna boltann og sitt sýnist hverjum um pakkann sem þeim er boðið sem vilja horfa á boltann. Hátt verð hans hefur farið fyrir brjóstið á fjölda fólks. Er ég einn þeirra sem hef verið mjög hugsi yfir verðlaginu á boltanum.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig fer að lokum. Ég tel að margir muni fá sér stöðina með óbragð í munni, enda er verðlagið á stöðinni algjörlega út í hött að mínu mati. Það er svo fjarri lagi að þetta sé pakki sem er áhugaverður. Það eru margir að hugsa sitt ráð þessa dagana og það eru ekki allir sem vilja festa sig á stöðina á þessum pakka. Það var reyndar hið kostulegasta af öllu að fólki var boðin stöðin í pakka til eins árs á meðan að boltavertíðin er metin á níu mánuði. Það er margt í þessu dæmi sem stemmir ekki saman.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig þessi vetur verður í boltanum varðandi útsendingarnar hérna heima. Það virðist vera mikil ólga og skal engan undra. 365 er farin að reyna að lægja öldur eins og sást í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld. Það verður fróðlegt að sjá hvernig þeim gengur að koma þessum pakka út en ég ætla mér ekki að fá hann á þessum prís. Það er bara þannig.


Bloggfærslur 24. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband