Fjölmenn kveðjuathöfn um Einar Odd

Einar Oddur Kristjánsson (1942-2007)

Það kemur ekki að óvörum að mikill mannfjöldi hafi kvatt Einar Odd Kristjánsson, alþingismann, við minningarathöfn í Hallgrímskirkju í dag. Hann naut virðingar fólks í öllum flokkum og úr öllum áttum samfélagsins. Það kemur mjög vel í ljós í sérblaði Morgunblaðsins um Einar Odd í dag. Þar skrifa menn úr ólíkum áttum samfélagsins, menn sem kynntust honum á langri vegferð stjórnmála og þjóðmála, falleg minningarorð um bjargvættinn frá Flateyri.

Sérstaklega áhugavert fannst mér að lesa minningarorð Geirs Haarde, forsætisráðherra, Víglundar Þorsteinssonar, fyrrum formanns samtaka iðnrekenda, Ásmundar Stefánssonar, ríkissáttasemjara og fyrrum forseta ASÍ, Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrum ráðherra og sendiherra, Agnesar Bragadóttur, blaðamanns, og félaga Einars Odds í þingstarfinu fyrir Vestfjarða- og Norðvesturkjördæmi; Sturlu og Einar Kristinn. Í heildina var það virkilega fróðlegt og áhugavert að lesa þessar minningargreinar allar, sem voru vel ritaðar og höfðu margt að segja og færðu okkur góða innsýn í þann karakter sem einkenndi Einar Odd Kristjánsson.

Þegar að ég hugsa til Einars Odds kemur mér helst upp í hugann spjall okkar fyrir nokkrum árum. Ég hafði ritað grein um andstöðu mína við öryggisráðsframboðið á frelsi.is. Hann las hana og hringdi í mig. Held að við höfum rætt um þessi mál í um fimmtán mínútur. Það varð tilefni spjalls síðar meir á Akureyri um þessi mál og á landsfundi á árinu 2005. Mér fannst framganga Einars Odds í þessu öryggisráðsframboðsmáli mjög mikilvæg. Hann lá ekki á skoðun sinni og hann öðlaðist sterkan sess í huga mér í gegnum sérstaklega það mál, þó að þau séu um margt svo ótalmörg málin sem hann vakti athygli mína í. Hann talaði alltaf hreint og beint um málin. Þeir eru alltof fáir þannig stjórnmálamennirnir í dag.

Það mættu margir stjórnmálamenn læra mikið af framgöngu Einars Odds á pólitískum vettvangi. Það er að vinna verkin frekar en tala mikið. Lyndon B. Johnson sagði eitt sinn að í þessum heimi væru tvær tegundir stjórnmálamanna: þeir sem töluðu mikið og þeir sem væru vinnusamir. Einar Oddur var vinnusama týpan og verður minnst fyrir það. Mér finnst stjórnmálalitrófið hérna heima svipminna við fráfall Einars Odds.

Það eru því fleiri en sjálfstæðismenn sem kveðja þennan eldhuga að vestan, sjálfan bjargvættinn að vestan, með söknuði. Það sást vel af fjöldanum sem sótti minningarathöfnina í Hallgrímskirkju í dag hversu sterkan sess Einar Oddur hafði. Hann á það líka skilið að hans sé minnst. Sjálfur lykilmaður þjóðarsáttarinnar, Bjargvætturinn, skilaði merku ævistarfi, þó að því hefði lokið allt of sviplega.

mbl.is Mikill fjöldi við kveðju- og minningarathöfn um Einar Odd Kristjánsson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einars Odds minnst

EOKMinningarathöfn um Einar Odd Kristjánsson, alþingismann Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, fer fram í Hallgrímskirkju eftir hádegið. Hans hefur verið minnst víða frá því er hann varð bráðkvaddur á Kaldbak fyrir tíu dögum. Það er skarð fyrir skildi innan Sjálfstæðisflokksins vegna fráfalls hans, enda var hann einn áhrifamesti þingmaður flokksins, var áberandi í þjóðmálaumræðunni og hikaði aldrei við að tjá skoðanir sínar, þó þær fylgdu ekki alltaf hinni gamalgrónu flokkslínu í einu og öllu.

Einar Oddur var mjög líflegur stjórnmálamaður og var áberandi í sínum verkum fyrir kjósendur sína, sem og landsmenn alla, til hinstu stundar. Það er dapurlegt að hann sé horfinn af hinu pólitíska sviði, með svo snöggum hætti, allt of snöggum, enda voru mörg verk enn óunninn. Einar Oddur var lykilmaður í mörgum málaflokkum og einn ötulasti talsmaður flokksins á þeim vettvangi. Hans verður sárt saknað.

Alla tíð var hann hrókur alls fagnaðar. Hann lá aldrei á skoðunum sínum og tjáði sig óhikað um málefnin sem voru í deiglunni. Það var hans stíll, það var hans karakter. Það getur enginn komið í staðinn fyrir Einar Odd Kristjánsson. Hann var að mínu mati sá þingmaður flokksins á seinni árum, að Halldóri Blöndal og Davíð Oddssyni undanskildum, sem var mesti og líflegasti karakterinn. Einar Oddur var þannig stjórnmálamaður að flokksmenn vildu allt af mörkum vinna til að tryggja sess hans. Hann var stjórnmálamaður af því tagi sem allir vildu allt fyrir gera. Hann hreif fólk með sér, talaði kjarnyrt mál sem náði til fólksins.

Þetta sást best í síðustu tveim alþingiskosningum er hann var ávallt í baráttusæti og hafði sigur, jafnvel eftir þrengingar eins og urðu innan flokksins þar í aðdraganda kosninganna vorið 2003. Þrátt fyrir að hann væri að mörgu leyti í enn verri stöðu í kosningunum í vor en áður, í ljósi þess að þingsæti hans sem níunda þingmanns Norðvesturkjördæmis var fært til Suðvesturkjördæmis, var hann nær öruggur um endurkjör. Einar Oddur talaði þannig alla kosningabaráttuna. Það fór enda svo. Kjör hans var tryggt og hann sat áfram á meðan að annar flokkur fann fyrir fækkun þingsæta. Fólk vildi tryggja stöðu Einars Odds. Hann var þeirra maður.

Það er mjög eftirminnilegt hversu öflugur Einar Oddur Kristjánsson var í tjáningu um mál sem lágu fyrir þinginu. Einar Oddur var sannur Vestfirðingur í framgöngu og tali. Hann hafði mjög sterka nærveru sem stjórnmálamaður. Hann var umfram allt skynsamur stjórnmálamaður, sem hafði sannar hugsjónir fram að færa, hvikaði aldrei frá þeim og var ötull málsvari skynseminnar á svo innilega mörgum sviðum. Sérstaklega fannst mér ánægjulegt að heyra hann tala um ríkisfjármál og stöðuna á vettvangi sjávarútvegs og málefni landsbyggðarinnar. Hann var sannur talsmaður landsbyggðarinnar, vann heill hennar sem mestan og var ötull talsmaður okkar hér.

Það er kaldhæðnislegt að síðasta þingræða Einars Odds Kristjánssonar hafi fjallað um andstöðu hans við tillögur frá ríkisstjórninni. Þar var hann, sem svo mörgum sinnum áður, rödd skynseminnar, hinnar einu sönnu. Hann leiftraði þá, sem ávallt áður, af mælsku og krafti. Það hvarflaði að engum á þeirri stund að þar væri svanasöngur hins öfluga Flateyrings í umræðum í þingsölum. Ég hef áður hér vikið að því þegar að hann tjáði sig óhikað og afgerandi um öryggisráðsumsóknina. Þá talaði hann af krafti, ekkert hik var að finna. Það var boðskapur sem ómaði skoðanir mjög margra innan Sjálfstæðisflokksins. 

Ég viðurkenni fúslega að mér þótti innilega vænt um Einar Odd. Ég held að allir sem hafa kynnst honum hafi hugsað til hans með hlýju. Hann var þeirrar gerðar að hann var sannur lífskúnstner sem talaði mál fólksins, náði til þess og heillaði með framgöngu sinni. Það má vel vera að einhverjir hafi orðið ósammála honum á langri vegferð stjórnmálanna en það gleymdist allt þegar að rökræðum lauk. Hann átti streng í brjósti svo margra.

Það er mikill héraðsbrestur við fráfall Einars Odds Kristjánssonar. Hann var sá þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem hafði mest áhrif, utan ráðherranna, jafnvel oft á tíðum þó meiri áhrif en þeir, enda talaði hann óhikað og óþvingað þegar að hann tók til máls. Hann var vinsæll valkostur í umræðuþætti um stjórnmál. Þar naut hann sín að mínu mati best. Hann var fimur og snjall rökræðumaður, sagði sitt en svaraði með öflugum rökum og sterku tali.

Hans verður sárlega minnst við ótímabært fráfall sitt. Við í Sjálfstæðisflokknum höfum mikið misst með Einari Oddi. Það kemur enginn í stað hans. Það er bara þannig. Það er svo sannarlega skarð fyrir skildi í liðsheild okkar. Einar Oddur er kvaddur með miklum söknuði.


Valur missir af tækifærinu að leiða úrvalsdeildina

ValurÞað hlýtur að vera gremja hjá stuðningsmönnum Vals eftir að liðið missti af gullnu tækifæri til að leiða úrvalsdeildina í kvöld. Þeir töpuðu fyrir Fylki 4-2. Þetta var í senn óvæntur og athyglisverður sigur, enda töldu flestir að Valsmenn myndu sækja sigur í Laugardalinn. En þessi ósigur þýðir að FH heldur velli og getur aukið muninn, enda á liðið leik til góða og spilar gegn Kelfvíkingum í Hafnarfirði á laugardag.

Það verður fróðlegt að sjá hvort að Valur nái svo góðu tækifæri til forystu aftur. Vinni Keflvíkingar Hafnfirðinga á laugardag geta þeir jafnað Valsmenn. Það getur varla ríkt gleði hjá Hlíðarendaliðinu á þessu kvöldi með stöðuna, en enn er auðvitað séns og mótið fjarri því búið. Staða KR er enn umhugsunarefni. Á morgun mætir liðið Blikum í Kópavogi. Síðast þegar að KR spilaði í Kópavogi töpuðu þeir með niðurlægjandi hætti fyrir nýliðum HK. Sigur er þeim mikilvægur á þessum tímapunkti.

Það er ekki beint beysin staðan í boltanum hérna heima. Akureyrarliðin eru í tómu tjóni. Botnbaráttan verður hlutskipti KA þetta sumarið, sem er reyndar fyrir nokkru ljóst. Það er óviðunandi staða. Staða Þórs er skárri, en þar munar þó litlu á. Þeir hafa þrjú stig fleiri í deildinni en KA og eru í sjöunda sæti. Þetta er ekki beint ásættanleg staða hjá Akureyrarliðunum. Þetta verður ekkert gullaldarknattspyrnusumar hér, svo mikið er víst.


mbl.is Fylkir skellti Val 4:2 í Laugardalnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband