Hitinn á milli Bjarna og Keflvíkinga eykst enn

Bjarni Guðjónsson Bjarni Guðjónsson talaði um hasarinn á Akranesi eftir leik Skagans og Keflavíkur á Stöð 2 í kvöld og sagði þar frá eftirmálum leiksins og hótunum Keflvíkinga í sinn garð. Þar talaði hann hreint út en var ekki stóryrtur svosem. Skömmu eftir viðtalið kom yfirlýsing frá Keflvíkingum þar sem þeir svara fyrir sig með mjög ákveðnum hætti. Þessu umdeilda máli virðist fjarri því lokið.

Ég verð að viðurkenna að um leið og ég sá þetta mark í gærkvöldi í beinni átti ég von á að það yrði mjög umdeilt. Það verður þó held ég enn umdeildara en flestum óraði fyrir. Þetta er móment sem verður lengi í minnum haft og mun lengi verða deilt um. Það eru alls ekki allir sannfærðir um hvort Bjarni hafi gert þetta viljandi eður ei. Ég er þess fullviss að hann skoraði ekki viljandi og ég get ekki ímyndað mér að nokkur vilji gefa honum það fyrirfram að vera svo ómerkilegur í raun og veru, þó sumir tali hvasst í hita og þunga leiksins.

Fyrst og fremst er þetta auðvitað leiðindamál. Ég skil vel að Bjarna hafi sárnað hafi honum verið hótað með þeim hætti sem hann segir. Þar er þó orð gegn orði. Hinsvegar er öllum ljóst að Keflvíkingar gengu alltof langt í skapkasti sínu. Það er skiljanlegt að mönnum hafi runnið í skap við þetta en samt sem áður gekk það of langt. Það að ætla sér að veitast að Bjarna með hnefalögmálið að vopni er fyrir neðan allar hellur.

Þetta mál verður vonandi lexía fyrir einhverja. Það verður áhugavert að sjá lokaleik þeirra í sumar, en þá munu þeir hittast í Keflavík. Það verður eflaust hiti, að óbreyttu, ef Bjarni Guðjónsson mætir á svæðið, sem auðvitað allt stefnir í. Koma Bjarna til Keflavíkur verður athyglisverð. Það væri gaman að heyra í Keflvíkingum eða Skagamönnum með þetta eða fleirum, hvernig þeir líta þetta mál og sérstaklega eftirmálana.

mbl.is Yfirlýsing frá Keflvíkingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hikandi frumraun hins reynslumikla Browns

Gordon Brown Viku eftir að Tony Blair var hylltur á breska þinginu í síðasta fyrirspurnartíma sínum við endalok litríks stjórnmálaferils var í gær komið að eftirmanni hans, Gordon Brown, að þreyta frumraun sína í hinum líflegu umræðum. Fyrirspurnartími forsætisráðherra Bretlands hefur alla tíð verið líflegur í framsetningu og innihaldi, þar reynir mjög á forsætisráðherrann á hverjum tíma og hann fær án miskunnar flóð spurninganna yfir sig. Annaðhvort stendur hann undir nafni sem sterkur leiðtogi eða sekkur einfaldlega í því flóði. Það er ekki flóknara en það.

Gordon Brown er þrautreyndur stjórnmálamaður. Hann hefur setið á breska þinginu frá árinu 1983, nær allan þann tíma hefur hann verið einn af lykilmönnum flokksins og skipað fremstu bekki hans í þinginu. Brown var í áraraðir í skuggaráðuneyti flokksins og varð fjármálaráðherra eftir kosningasigurinn sögulega í maí 1997 og gegndi því embætti allan forsætisráðherraferil Tony Blair, eini ráðherra flokksins sem sat á sama pósti allan valdaferil Blairs, sem var til marks um frægt samkomulag þeirra á milli, þó að vissulega hafi gustað þeirra á millum í áraraðir.

Það þarf ekki endilega að fara saman í fyrirspurnartíma bresks forsætisráðherra að hafa reynslu og vera mælskur. Þar reynir á pólitískt drápseðli; það að vera vakandi og geta svarað fyrir sig hratt og með sannri festu. Þar verður minnsta hik að vandræðum og langt hik að skelfingu, jafnvel fyrir hina sterku. Það sannaðist vel í gær að Gordon Brown var ekki í góðri æfingu í one-on-one átökum. Hann allt að því stamaði og hikaði. Langt hik hans á vissum veigamiklum köflum voru áberandi og hann náði engan veginn tökum á forminu á þessum fyrsta degi, þrátt fyrir að hafa haft fjölda ára til undirbúnings.

Tony Blair var alla tíð sannkallaður snillingur í þessu fyrirspurnarformi. Hann var fljótur að hugsa og gat veitt þung högg þó brosandi væri. Hann var pólitískt villidýr af sama kalíberi og Margaret Thatcher og Harold Wilson áður, svo dæmi séu tekin. Hann hafði líka langan feril að baki. Hann frontaði Verkamannaflokkinn í fyrirspurnartíma í þrettán ár, hann var leiðtogi stjórnarandstöðunnar fyrstu þrjú árin. Á þessum þrettán árum frontaði hann flokk sinn gegn fimm leiðtogum Íhaldsflokksins; John Major, William Hague, Iain Duncan Smith, Michael Howard og David Cameron. Fimni hans og orðsnilld var rómuð, hann varð aldrei orðlaus og hikaði mjög sjaldan þó undir mikilli pressu væri.

Gordon Brown er að vakna upp við það að ekki er hlaupið inn á þennan vettvang í einu vetfangi. Vandræðalegast alls fyrir hann í þessari hikandi frumraun í gær var þegar að hann afsakaði sig með því að hafa aðeins verið forsætisráðherra í örfáa daga. Þetta var mjög veikburða svar og hann varð að athlægi í raun með því. Maður með meira en áratug að baki á ráðherrastóli og mun lengri feril sem framlínumaður í sínu liði segist ekki vera nýr á svæðinu þó að hann hafi tekið sæti í frontinum fyrir nokkrum dögum. Þetta var mjög vandræðalegt svar og stamið hans varð líka áberandi.

Ég hef fylgst með breskum stjórnmálum síðan snemma á tíunda áratugnum og lengi fylst með fyrirspurnartíma forsætisráðherrans. Aldrei fyrr hef ég séð Gordon Brown stama en þarna var komið að því. Cameron náði ekki dauðahöggi á hann í hringnum en það fór ansi nærri því. Brown var mjög veikur á svellinu á þessum fyrsta degi eftir langan stjórnmálaferil og þarf svo sannarlega að gera betur ef hann ætlar að trompa Tony Blair og vera öflugur keppinautur David Cameron á þessum vikulega vettvangi þeirra næstu árin.

Það mun reyna mjög á Gordon Brown á næstu árum, en þarna komu veikleikar hans vel fram. Hann hefur ekki sterkan charisma og hefur ekki sömu orðsnilldina í hörðum kappræðum og Tony Blair. Þarna skilur á milli. Það getur skipt máli í kosningabaráttu þar sem hvert atkvæði getur í raun ráðið úrslitum um það hver fer með sigur af hólmi.

Góð úttekt Guardian á fyrirspurnartímanum

Libby-málið séð með næmum augum Steve Bell

Libby-málið séð með augum Steve Bell

Skopmyndateiknarinn Steve Bell hjá Guardian er algjör snillingur að teikna stöðu mála í stjórnmálum upp með í senn næmum og fimum hætti. Ég tók vænt bakfall af hlátri þegar að ég sá þessa eðalgóðu mynd hans um mál Scooter Libby. Nokkrir dagar eru liðnir frá því að George W. Bush mildaði dóm hans og útilokaði ekki að hann myndi síðar ganga alla leið og náða hann. Algjört pólitískt dómgreindarleysi hjá þjóðarleiðtoga sem er sífellt að sökkva dýpra pólitískt.

Þarna sýnir Steve Bell okkur kaldhæðnislega innsýn í málið. Pútin Rússlandsforseti hefur verið í Bandaríkjunum og verið í boði Bush í sumarbústað fjölskyldu hans í Maine. Meðal þess sem þeir gerðu var að fara í veiðiferð. Þarna sjáum við fenginn þeirra félaganna. 

Stöð 2 sker niður um fréttaþul í kvöldfréttum

Svo virðist vera sem að Stöð 2 hafi skorið niður um einn fréttaþul í kvöldfréttatíma sínum. Það vakti mikla athygli mína við að sjá fréttatímann rétt í þessu að þar var aðeins einn fréttaþulur, Sólveig Bergmann, í settinu. Svona var þetta líka í gærkvöldi. Þessi áberandi niðurskurður vekur mikla athygli í ljósi umræðunnar um að fréttastofan verði jafnvel lögð niður. Engin ákvörðun hefur þó verið tekin um það, né umræðunni um þá lokun verið neitað með áberandi hætti.

Það hefur lengi verið það mest skemmtilega við kvöldfréttir Stöðvar 2 að þar eru tveir fréttaþulir og yfirbragð fréttanna líflegra en hjá Ríkissjónvarpinu. Nú er sama yfirbragð komið á fréttir þeirra og Ríkissjónvarpsins. Einn fréttaþulur les. Þetta vekur talsverða athygli og vekur upp spurningar um hvort frekari niðurskurður sé framundan á fréttasviði 365 í ljósvakamiðlunum.


Minningarsjóður stofnaður um Susie Rut

Susie RutFlestum er í fersku minni sterk minningarorð Einars S. Hálfdánarsonar, um dóttur sína Susie Rut Einarsdóttur, er hún var jarðsungin 26. júní sl. Þau orð vöktu mjög marga til umhugsunar um fíkniefnavandann og þann skaða sem hann skilur eftir víða í samfélaginu. Nú hafa vinir Susie Rutar stofnað minningarsjóð til minningar um hana, sem vinnur gegn fíkniefnavá með öflugum hætti.

Það er mjög virðingarvert að Susie Rutar sé minnst með þessum hætti og ég tel það glæsilegan vitnisburð um sanna vináttu í hennar garð og fjölskyldunnar. Fyrst og fremst er mikilvægt að minningu hennar sé haldið á lofti. Hún var harmdauði. Hún var öflugur félagi í flokksstarfinu og hún var dugleg og einbeitt í sínum störfum fyrir flokkinn allt til enda.

Það er mikilvægt að stofna sjóð sem byggir á baráttunni gegn fíkniefnum og til að efla forvarnir af ýmsu tagi. Með þeim hætti er best minnst Susie Rutar að mínu mati.


mbl.is Minningarsjóður um Susie Rut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er einn hryðjuverkamannanna staddur hérlendis?

Hryðjuverk í Skotlandi Ég verð að viðurkenna að ég kipptist við þegar að ég sá fréttir um það að einn þeirra sem taldir eru standa að hryðjuverkunum misheppnuðu í London og Glasgow væri mögulega staddur hér á landi. Um er að ræða verkfræðinema frá Indlandi og er talið mögulegt að hann hafi komið hingað. Þetta er eitt merki þess hversu lítill heimurinn er orðinn á tímum alþjóðlegra hryðjuverka.

Það er greinilegt að greiningardeild ríkislögreglustjóra fylgist vel með þessu máli og er þar er það metið með þeim hætti að öllu er haldið opnu og staðan könnuð. Þetta er víst staðan eins og hún er orðin. Ísland er auðvitað í aðeins þriggja klukkutíma fjarlægð frá vettvangi þessara hryðjuverka og við getum ekki búist við því að við séum utan þeirrar umræðu og eða þeirrar ógnar sem mögulega er til staðar.

Eins og ég benti á í pistli á mánudag er auðvitað algjörlega út í hött fyrir okkur að horfa framhjá þessari alheimshryðjuverkaógn. Þessi nýjustu hryðjuverk gerast í þriggja tíma flugfjarlægð frá okkur. Við erum partur af heimsmyndinni og getum ekki sagt að við séum ekki hluti af heiminum í þessum efnum. Ógnin gæti hæglega komið upp hér. Það er auðvitað hin napra staðreynd sem við verðum að taka á.

mbl.is Mál meints hryðjuverkamanns til skoðunar hjá ríkislögreglustjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háspenna á Skaganum - Bjarni þurfti fylgd burt

Úr leik ÍA og Keflavíkur Það er óhætt að segja að eitt umdeildasta atvik íslenskrar knattspyrnusögu hafi gerst í leik ÍA og Keflavíkur á Skaganum í gærkvöldi þegar að Bjarni Guðjónsson skoraði sigurmark leiksins, sem deilt er um nú hvort hafi verið óviljaverk eða lagt upp viljandi. Þurfti Bjarni lögreglufylgd heim til sín eftir leikinn vegna ólgunnar og hann komst ekki einu sinni í búningsklefann án þess að þurfa liggur við að takast á við leikmenn Keflavíkur, sem voru illir yfir markinu.

Þetta umdeilda mark má sjá í þessari klippu. Ég trúi því hreinlega ekki að Bjarni hafi viljandi látið vaða til að skora. Það er að ég tel ekki rétt að telja að hann hafi verið svo óforskammaður og því er ekki annað hægt en að láta hann njóta vafans. Ég skil ólguna í herbúðum Keflavíkur. Þetta er atvik sem menn munu liggja yfir og hugleiða vel næstu dagana; hvernig staðið var að marktækifærinu og hvort leikmaðurinn hafi ætlað sér að skora. Það verður tekist á um það alla tíð. Fyrirfram séð verður þetta sennilega eitt af umdeildustu atvikum íslenskrar knattspyrnu um langa tíð.

Það er auðvitað alltaf hasar í boltanum. Þetta atvik sýnir vel hversu mikið líf getur átt sér á leikvangi. Ef marka má umræðuna í dag er ólgan mikil. Bjarni hefur gefið út yfirlýsingu um að markið hafi verið óviljaverk. Það er tekist á um þá merkingu nú þegar og viðbúið að hér sé eitt stærsta móment íslenskrar knattspyrnusögu komið í sögubækurnar og deildar meiningar um hvernig þetta hafi allt verið. Engin ein niðurstaða fæst í það.

Fyrir þá sem horfðu á leikinn mun þetta atvik ekki gleymast og spurningin um hvernig það hafi verið í raun og veru fylgir á eftir, sérstaklega leikmönnum Keflavíkur, sem skiljanlega eru argir. Það eru líka tímamót í boltasögunni okkar að leikmaður þurfi fylgd heim til sín. Það sýnir einfaldlega ólguna með þetta umdeilda atvik og kergjuna sem verður til staðar vegna þess, eflaust um alla tíð.

mbl.is Bjarni þurfti lögreglufylgd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dramatík á Skaganum - KR nær bara jafntefli

Dramatík á Skaganum Það var ævintýralega skemmtilegt að horfa á leik Skagans og Keflavíkur í kvöld. Mikil hasar; dramatík og rauð spjöld setti mesta svip sinn á leikinn, sem Skaginn vann að lokum á heimavelli 2:1. Ég yrði ekki hissa á því þó að þetta yrði metinn áhugaverðasti leikur sumarsins og mikið yrði um hann deilt og tekist á að mörgu leyti.

Sérstaklega var magnað atvik og athyglisvert þegar að Keflvíkingar spörkuðu knettinum út af hliðarlínu í seinni hálfleik til að hægt væri að líta til með leikmanni Skagamanna sem meiddist í leiknum. Skagamenn tóku innkastið og boltinn barst til Bjarna Guðjónssonar, sem skaut boltanum frá miðjunni og beint í mark Keflvíkinga. Mikill hasar var á svæðinu eftir það. En Skagamenn tóku stigin þrjú.

KR náði aðeins jafntefli í leiknum gegn Fylki og fá því eitt stig. Þeir eru því enn á botninum og hafa fimm stig eftir níu umferðir, hálfa deildina semsagt. Góð ráð eru að verða dýr fyrir þá, en enn er staða þeirra fjarri því orðin vonlaus. En þeir þurfa að bæta sig verulega til að ná alvöru stöðu. FH-ingar eru efstir með 22 stig, Valur hefur 18 stig í öðru sætinu, Keflavík hefur 17 stig í því þriðja. Næst kemur Skaginn með 14. stig, Fylkir hefur 12 stig, Breiðablik og HK eru í 6.-7. sætinu með 10 stig, Fram og Víkingur eru í því 8.-9. sæti með 8 stig og KR hefur hefur fimm stig á botninum.

Þetta verður spenna í næstu umferðum, enda toppslagurinn líflegur og vonandi mun botnslagurinn verða öflugur. Það er engum til góðs að KR falli harkalega strax og vonandi að alvöru átök verði um fallsætið. Dramatíkin var allavega mikil á þessu miðvikudagskvöldi á Skaganum en þeir fóru tvö rauð spjöld, eitt á hvort lið, er yfir lýkur. Þvílíkur hasar og skemmtilegur leikur á að horfa í kvöld á Sýn.

mbl.is Skagamenn lögðu Keflvíkinga á dramatískan hátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband