Sigríður Snævarr fæðir barn elst íslenskra kvenna

Sigríður Snævarr Sigríður Snævarr, sendiherra, fæddi í gærkvöld son. Hann er fyrsta barn Sigríðar og Kjartans Gunnarssonar, fyrrum framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. Sigríður, sem er 55 ára gömul, telst vera elsta íslenska konan sem fæðir barn eftir því sem heimildir herma. Er því um að ræða stórmerkilega fæðingu hérlendis og viss tímamót. Víða erlendis hefur þekkst að konur hafi alið börn á sextugsaldri og jafnvel fram yfir sextugt að mig minnir.

Ég óska Sigríði og Kjartani innilega til hamingju með barnið.

Úrhellisrigning á Hróarskeldu - sést til sólarinnar

Regn á Hróarskeldu Það hefur víst verið algjör úrhellisrigning á Hróarskeldu alla vikuna, en þar er tónlistarhátíðin árlega og rómaða haldin nú. Er eiginlega ekki hægt annað en að vorkenna þeim vinum mínum sem fóru þangað að þessu sinni til að upplifa sælu og gleði. Einhversstaðar þarna á milli er sennilega regnið efst á baugi hjá þeim.

Var að sjá fréttamyndir af þessu áðan og það er greinilega ekki beint spennandi að vera þarna eins og er. Svæðið er enda hreinlega orðið eitt forarsvað og allt er hundblautt. Þetta er kannski eins og þjóðhátíðin í Eyjum árið 2002, eða verri kannski? Hver veit.

Eitthvað er þó spáin að skána og sólin virðist ætla að ná að skína eitthvað þarna yfir bleytunni. Það verður gaman að heyra ferðasöguna þegar að liðið kemur heim.

mbl.is Sólin farin að skína á Hróarskeldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkur óþverri - skelfilegar lýsingar

Það er ekki beint geðslegt að lesa fréttina af þessum Svía á fimmtugsaldri sem misnotaði bæði dóttur sína og vinkonu hennar. Þvílíkur óþverri segir maður nú bara. Það er reynar miður geðslegt að heyra fréttir af kynferðislegri misnotkun af þessu tagi í fréttum. Það er því miður hætt að vera einstakt tilfelli og fréttir af þessu heyrast orðið einum of oft, meira að segja hérna heima á Íslandi.

Þessi frétt er reyndar þannig í lýsingu að það er með því daprara sem til er. Það er alltaf skelfilegt að heyra af svona málum og eiginlega er þetta með því dökkara sem til er. Það er mjög einfalt mál.

mbl.is Nauðgaði dóttur sinni mörg hundruð sinnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kolsvartur dagur - lægsti þorskkvótinn til þessa

Einar, Geir og Ingibjörg Sólrún Ríkisstjórnin hefur ákveðið að fara eftir tillögum Hafrannsóknarstofnunar um að skera þorskkvótann niður um 63 þúsund tonn. Kvótinn verður því aðeins 130 þúsund tonn, hið minnsta til þessa. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir landsbyggðina, það er öllum ljóst. Það þarf ekkert að fara í grafgötur með það.

Ég taldi fram til þess að ekki yrði farið alla leið í niðurskurði og áfallið yrði mildað meira en þessar tillögur fela í sér. Það eru naprir tímar framundan um allt land, það blasir alveg við. Það hafa verið gefin fyrirheit um að áfallið verði mildað með hliðaráhrifum. Það verður að láta á þær reyna.

Hitt er svo aftur á móti annað mál að þetta verður erfiður vetur í hinum dreifðu byggðum og þar verður enn harðari lífsbarátta en við höfum áður kynnst. Fjöldamargar byggðir haldast uppi vegna verkunar sjávaraflans og með svo mikilli skerðingu blasir við að kuldi tekur við, það verður víða erfitt. Það verður fróðlegt að sjá betur hverskonar mótvægisaðgerðir komi til, en á það verður að reyna.

En svartur dagur er þetta. Það eru erfiðir tímar framundan og nú reynir á það hversu vel ríkisstjórnin heldur á málum í kjölfarið.

mbl.is Þorskkvótinn verður 130 þúsund tonn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband