100 dagar liðnir - hvað varð um Madeleine?

Madeleine McCann 100 dagar eru nú liðnir frá því að Madeleine McCann hvarf sporlaust í bænum Praia de Luz á Algarve í Portúgal. Mikil dulúð hefur umlukið málið allt frá fyrsta degi og foreldrar hennar hafa leitt leitina að henni með mjög áberandi hætti í fjölmiðlum. Þetta mál hefur verið hrein skelfing fyrir foreldrana. Samviskubit þeirra yfir stöðunni hlýtur að vera gríðarlega mikið og varla minnkar það með degi hverjum.

Það er merkilegt að nú eftir alla þessa daga og fáar sýnilegar vísbendingar um hvað gerðist að kvöldi fimmtudagsins 3. maí, kvöldið sem Madeleine hvarf að talið berst að hlut foreldranna. Að mörgu leyti er það í miklum dularhjúpi og margir hafa velt því fyrir sér hvernig foreldrarnir gátu skilið dóttur sína eftir á hótelherberginu og framganga þeirra síðan hefur verið eitt stórt spurningamerki. Ljóst er að portúgalska lögreglan vann málið allt of hægt í upphafi og klúðraði væntanlega rannsókninni á upphafsstigi. En hlutur foreldranna hefur ekki síður verið til umræðu en þeirra.

Það segir sig sjálft að eftir hundrað daga hvarf manneskju verður umræðan um hvort að hún sé látin mjög hávær. Þess eru þó dæmi að fólk finnist eftir svo langt hvarf, hafi það verið numið á brott, en þau eru grátlega fá í raun og veru. Svo virðist sem portúgalska lögreglan telji líklegast að Madeleine sé látin. Það er að mörgu leyti ekki óvarlegt mat miðað við stöðu málsins eftir allan þennan tíma. Klúður lögreglunnar er þó mikið og verður aldrei framhjá því litið. Fyrir nokkrum dögum fannst blóð í hótelherbergi McCann-hjónanna. Það er auðvitað kostulegt að það finnist svo seint, enda gæti verið um stórtíðindi í málinu að ræða.

Spurningarnar um framgöngu foreldranna verða æ meira áberandi. Það yrðu athyglisverð endalok ef þau yrðu kærð fyrir vítaverða vanrækslu, eins og fram kemur í fréttinni. Þetta er að mörgu leyti athyglisvert mál. Það er mikilvægt að á það fáist einhver endir. Það verður skelfilegt fari það svo að Madeleine finnist aldrei og aldrei verði ljóst hvað gerðist fyrir 100 dögum.

Fjölmiðlar fjalla enn um málið með sama hætti og var fyrstu vikuna. Hef fylgst talsvert með því íá bresku fréttastöðvunum. Auðvitað vilja þeir fylgja eftir því sem gerðist og reyna að fá svör. Það vilja allir sem fylgjast með. Eftir því sem hver dagur líður aukast þó líkurnar á því að Madeleine sé látin. Vonin minnkar sífellt.

Það er hin napra staðreynd allra mála af þessu tagi, líka þessu auðvitað.

mbl.is Lögreglan segir mögulegt að Madeleine McCann sé látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fiskisúpustemmning í vinakeðju á Dalvík

Frá fiskidegi Ég var að koma heim frá Dalvík, en þar var mikil stemmning á fiskisúpukvöldi. Hafði áður ætlað mér að gista þar eins og í fyrra á fiskidagshelginni þá, en ýmislegt hefur gert það að verkum að svo verður ekki að þessu sinni. En ég mun að sjálfsögðu fara úteftir eftir hádegið á morgun og líta þá á hátíðarhöldin og fá mér grillaðan fisk og fiskborgara með öllu því góða meðlæti sem til staðar er.

Það var gaman að fara úteftir aðeins í kvöld þó að stutt hafi stoppið svosem verið. Það er virkilega notalegt að sjá hversu vel heimamönnum hefur tekist að byggja þennan dag upp með öllu því sem til þarf. Stemmningin er miklu meiri en fyrir ári og hátíðin heldur sífellt áfram að vaxa undir forystu Júlla Júll. Þar hefur verið unnið af krafti árum saman og öllum ljóst að hátíðin er rós í hnappagat bæjarbúa útfrá. Held að fáum sem störtuðu þessum hátíðarhöldum fyrir sex árum hafi í raun órað fyrir því að svo vel myndi ganga sem raun ber vitni.

Vináttukeðja var mynduð á Dalvík í kvöld og þar tók mikill fjöldi þátt. Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrurm forseti, og Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, fluttu ræður í kirkjunni fyrir athöfnina við vinastundina úti. Það var ánægjulegt að sjá þennan merkilega atburð. Fyrr í dag var fyrsta skóflustungan tekin að menningarhúsi Dalvíkinga við Ráðhúsið. Eins og flestir vita ákvað Sparisjóður Svarfdæla að færa íbúum Dalvíkurbyggðar menningarhúsið að gjöf í febrúar. Við þá athöfn flutti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, ávarp. Missti ég af þeirri athöfn en það hefur væntanlega verið gleðileg stund.

Þetta var skemmtileg kvöldstund á Dalvík. Fiskidagurinn mikli hefur gert mikið fyrir Dalvík. Þetta er auðvitað öflug bæjarhátíð. Þar er allur matur og öll skemmtun að mestu ókeypis. Sannkölluð gleðistund. Það geta mörg sveitarfélög lært mikið af því sem Dalvíkingar hafa gert til góðs með þessari hátíð, sem er sannkallaður yndisauki í mannlífið hér í firðinum á hverju ári. Þar eru allir velkomnir og engin hlægileg aldurstakmörk. Þar gleðjast allar kynslóðir saman.

mbl.is Vináttukeðja og friðardúfur á Dalvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. ágúst 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband