Skapmikil stjarna sem hefur gaman af að stuða

Brad Pitt og Angelina Jolie Það verður nú seint sagt um óskarsverðlaunaleikkonuna Angelinu Jolie að hún sé dýrlingur, enda hefur hún alla tíð borið þá ímynd að geta stuðað mjög áberandi. Uppljóstranir um litríkan lífstíl hennar verða því seint toppaðar í raun. Þeir sem hafa séð myndina Girl, Interrupted, sem færði Jolie óskarinn fyrir sjö árum, sjá enda grunntýpuna sem hefur einkennt hana alla tíð, sem viljasterk og ákveðin kona. Þannig hefur ímynd hennar verið í áraraðir.

Jolie þýðir fögur, það er réttnefni á Angelinu sem þykir með fögrustu konum kvikmyndaheimsins. Hún hefur enda verið kyntákn alla tíð. Miðnafnið Jolie er því ekki ættarnafn, heldur er ættarnafn hennar Voight, enda er faðir Angelinu óskarsverðlaunaleikarinn Jon Voight sem var einn af þekktustu leikurum sinnar kynslóðar, og hlaut óskarinn fyrir eftirminnilega túlkun á lamaða hermanninum í Coming Home, manninum sem kemur heim lamaður frá Víetnam. Jolie og Voight hafa ekki talað saman í ein fimm ár vegna ágreinings.

Jolie hefur átt erfitt síðustu mánuði. Það eru nokkrir mánuðir síðan að móðir hennar, leikkonan Marcheline Bertrand, lést úr krabbameini og auk þess hefur stjarnan sokkið sér ofan í góðgerðarstarf um allan heim, einkum í Asíu, en hún er sem kunnugt er góðgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna þar. Hún hefur með því hlutverki fetað í fótspor margra þekktra leikara, t.d. Audrey Hepburn sem var mannréttindatalsmaður alla tíð samhliða leikferlinum og var í sama hlutverki og Jolie er eiginlega nú. Jolie hefur sinnt hlutverkinu vel og gott dæmi er að hún dvaldi um jólin 2005 á hörmungarsvæðunum í Asíu þar sem flóðbylgjurnar skullu á nokkru áður.

Áhyggjur eru víst uppi um það að vinnan sé að sliga leikkonuna. Hún bæði borði og sofi of lítið og heilsan sé ekki í forgrunni. Nýlegar myndir sýna að hún er grönn eins og spýtufjöl. Það verður fróðlegt að sjá hvað gerist. Þetta er skapmikil og ákveðin kona sem er ekki vön að láta karlana í kringum sig stjórna sér. Gott dæmi er um það hvernig að samskiptum hennar og föðurins lauk með hvelli fyrir nokkrum árum og hún lét Billy Bob Thornton gossa þegar að hann var farinn að skipta sér of mikið af hennar málum. Ekki er nú langt síðan að talað var um erfiðleika hjá Jolie og Brad Pitt.

Annars hefur jafnan verið sagt um stjörnurnar að þær séu skapmiklar. Ætli Angelina Jolie sé ekki gott dæmi um það.

mbl.is Angelina fórnaði ærslunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meistaraverk kvikmyndasögunnar endurgert

Casablanca

Sú kvikmynd sem ég hef alla tíð metið mest í gegnum tíðina er Casablanca. Hún er einfaldlega ódauðleg klassamynd sem hefur allt sem prýða þarf fullkomna kvikmynd. Hún hefur hlotið sæmdartitilinn besta kvikmynd 20. aldarinnar og verðskuldar hann svo sannarlega. Hún var aðeins ein myndanna á færibandinu í vinnslu á sínum tíma en varð stærri en mörgum óraði fyrir. Casablanca fangaði huga og hjarta kvikmyndaáhorfandans fyrir 65 árum og á sess í huga flestra enn í dag.

Nú berast fregnir af því að endurgera eigi Casablanca af indverskum kvikmyndagerðarmönnum. Mér hugnast ekki vel að endurgera eigi þennan gullmola kvikmyndasögunnar. Það er reyndar svo að fátt fer eins mikið í pirrurnar á mér og að heyra af því að endurgera eigi gömul meistaraverk. Enda er það tilgangslaust að mínu mati. Vilji fólk upplifa perlurnar á það að kaupa sér gömlu myndirnar og sjá þær. Það fangar enginn sama góða neistann síðar, eða það er jafnan svo að svona endurgerðir floppa með einum hætti eða öðrum. Þannig að það jaðrar við helgispjöll að mínu mati að endurgera Casablanca.

Casablanca segir söguna af kaffihúsaeigandanum Rick í Casablanca
í Marokkó í seinni heimsstyrjöldinni og ævintýrum hans. Af öllum búllum í öllum heiminum verður gamla kærastan hans, Ilsa, endilega að stíga fæti sínum inn á staðinn hans með ástvini sínum, foringja í frönsku andspyrnuhreyfingunni sem er á flótta undan nasistum, og þá hefst óvænt og stórskemmtileg atburðarás sem endar með einni eftirminnilegustu kveðjustund í kvikmyndasögunni, þegar að Ilsa stendur frammi fyrir erfiðu vali. Mér finnst þessi mynd einstök og þarf helst að sjá hana reglulega. Finnst hún eins og gott rauðvín, sem aðeins batnar með aldrinum. Myndir með svo góðan grunn verða aldrei lélegar.

Humphrey Bogart átti sína eftirminnilegustu kvikmyndatúlkun á litríkum leikferli í þessari mynd en Rick varð það hlutverk sem hans er minnst helst fyrir. Þetta er líka sterkasta karaktertúlkun hans, þó þær séu margar góðar. Bogart, sem var valinn besti leikari 20. aldarinnar skömmu fyrir aldamótin, fékk þó ekki óskarsverðlaunin fyrir leik fyrr en seint og um síðir árið 1952, skömmu fyrir andlát sitt, fyrir túlkun sína á hinum óheflaða Charlie Allnut í African Queen, sem var reyndar með hans bestu kvikmyndum. Ingrid Bergman var ein besta leikkona 20. aldarinnar og glansaði í hlutverki Ilsu. Hún hlaut óskarsverðlaun alls þrisvar sinnum á ferlinum en tókst þó ekki að vinna hann fyrir að leika Ilsu.

Persónulega finnst mér besta leiktúlkun Ingrid vera í Haustsónötu Ingmars Bergmans, sem varð svanasöngur hennar á hvíta tjaldinu. Klassinn yfir Ingrid varð þó aldrei meiri en í Casablanca, þó að nærri fari það í Notorious, Anastasiu, Gaslight og For Whom the Bell Tolls. Túlkun hennar á sænska kristniboðanum í Murder on the Orient Express sem færði henni síðasta óskarinn árið 1975 er líka gríðarlega góð. Claude Rains var gríðarlega góður leikari, einn eftirminnilegasti aukaleikari kvikmyndasögunnar, sem þó náði alltaf athygli kvikmyndaáhorfandans. Hann glansaði best á sínum ferli í hlutverki lögreglustjórans í Casablanca. Hann átti síðar frábæran samleik með Ingrid í Notorious.

Casablanca
er án nokkurs vafa ein af bestu kvikmyndum sögunnar og er persónulega sú kvikmynd sem ég met mest. Hún verður alltaf meira heillandi eftir því sem árin líða og verða atriðin í henni þess þá meira heillandi, nefni ég þá sem dæmi atriðið þar sem Ilsa og píanóleikarinn Sam sitja við flygilinn og Sam leikur óskarsverðlaunalagið undurfagra As Time Goes By og lokaatriði myndarinnar sem gerist á flugvellinum þar sem framtíð sambands Ricks og Ilsu ræðst endanlega. Það atriði er alveg klassík út af fyrir sig.

Ætla að vona að menn hætti við þessar endurgerðarpælingar. Fyrir nokkrum árum ætluðu Ben Affleck og Jennifer Lopez að endurgera myndina með sér sjálfum í aðalhlutverkum. Til allrar guðs lukku varð ekki af þeim hryllingi. Þeir sem hafa séð Gigli þurfa varla að hugsa meira um hversu skelfilegt það hefði orðið.

En þeir sem hafa ekki enn séð Casablanca þurfa að upplifa hana, allavega einu sinni. Það gæti
orðið upphafið að einstakri vináttu. Þeir sem vilja upplifa stemmninguna í myndinni ættu að fara í tónlistarspilarann og hlusta á Dooley Wilson syngja As Time Goes By.


mbl.is Casablanca endurgerð í Bollywood
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun Gordon Brown flýta kosningum í Bretlandi?

Gordon Brown50 dagar eru liðnir frá því að Gordon Brown tók við völdum í Bretlandi eftir þrettán ára langa og napra bið. Deilt hafði verið um það lengi innan Verkamannaflokksins áður en að valdaskiptum kom hvernig forsætisráðherra hann myndi verða og hvort hann gæti notið lýðhylli, hvort að hann hefði einfaldlega ekki beðið of lengi eftir húsbóndavaldi í Downingstræti 10. Þegar að hveitibrauðsdagar Skotans eru hálfnaðir deilir enginn um hversu sterk staða hans er.

Verkamannaflokkurinn hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga við völdin eftir erfiða tíma undir lok forsætisráðherraferils Tony Blair, sem var orðinn verulega skaddaður síðustu misserin og allt að því hataður innan flokks sem utan vegna fjölda mála. Nýr forsætisráðherra hefur tryggt flokknum raunhæfa möguleika á að halda völdum í næstu þingkosningum og slá Íhaldsflokkinn fjórða skiptið í röð út af laginu. Það er nú rætt um það hvort kosningum verði hreinlega flýtt og Brown muni reyna að fá afgerandi umboð í eigin nafni. Staðan er allavega vænleg fyrir Gordon Brown.

Meira að segja heimsókn Browns til George W. Bush í Camp David í kastljósi heimspressunnar hefur engu breytt um persónulegar vinsældir hans heima fyrir. Breskir stjórnmálaskýrendur höfðu dregið í efa að heimsókn af þessu tagi svo snemma á hveitibrauðsdögunum væri skynsamleg og margir töldu ferðina feigðarflan fyrir mann sem væri á gullnu brautinni. Með ferðinni staðfesti Brown sterk bönd við Bandaríkjastjórn og gaf gagnrýnendum langt nef með því að vera kammó og hress við Bush forseta. Ferðin reyndist ekki feigðarflanið sem spáð var. Forsætisráðherrann þýtur enn upp vinsældalistann og mælist vinsælli sem aldrei fyrr í könnunum helgarinnar.

En hlutirnir geta verið fljótir að breytast. Það hefur David Cameron sannreynt að undanförnu. Margir töldu kosningasigur í sjónmáli fyrir hann og íhaldsmenn eftir tíu ára napra pólitíska eyðimerkurgöngu Íhaldsflokksins. Munurinn á flokkunum fór mest í um tíu prósentustig. Nú hefur þetta snúist við. Verkamannaflokkurinn hefur samkvæmt YouGov-könnun dagsins tíu prósent umfram íhaldsmenn. Örvænting er í innstu herbúðum Camerons og hann hefur höktað til að undanförnu, er að reyna að finna rétta taktinn. Fyrir hann er upp á allt að spila í næstu kosningum. Tap þýðir að enn verður leitað að nýjum leiðtoga. Það blasir við.

Gordon Brown hefur alla tíð verið úthugsandi pólitískur klækjarefur. Það sást best í valdaátökum hans við Tony Blair bakvið tjöldin árum saman. Hann vann þann slag á sálfræðinni og tók helstu andstæðingana á taugum. Svo fór að hann fékk pólitískt ríkidæmi Tony Blair á silfurfati. Helstu Blair-istarnir lögðu niður skottið og sættu sig við orðinn hlut. Pólitísk velgengni hans frá valdaskiptunum þann 27. júní sl. hefur reynst mun meira afgerandi en jafnvel helstu samherjar Skotans þorðu að vona. Sigur er í nánd ef hann spilar taflið rétt. Það segja kannanir.

En pólitísk gæfa getur verið fallvölt. Það sem snýr upp í dag getur fallið niður á morgun. Það eru því spennandi tímar pólitískt í Bretlandi. Um þrjú ár eru eftir af kjörtímabilinu en við öllum blasir að það styttist mjög í kosningar haldi hveitibrauðsmælingar forsætisráðherrans áfram með þessum hætti. Pólitískur klækjarefur sem hefur tök á stöðunni veit að hann hefur allt í hendi sér í svona andrúmslofti. En nú reynir á Brown, sem hefur tekist að verða mun öflugri og vinsælli en mörgum óraði fyrir. Sögulegir sigrar gætu verið framundan spili hann rétt.


mbl.is Bretland: Verkamannaflokkurinn með gott forskot á Íhaldsflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt hjá Dalvíkingum

Fiskidagurinn mikliFiskidagurinn mikli á Dalvík var stórvel heppnaður að þessu sinni eins og áður. Vel á fjórða tug þúsunda einstaklinga voru á Dalvík í gær. Svo vel gekk að aðeins eitt atvik er í fréttum eftir helgina sem leiðinlegt telst að einhverju leyti. Að öðru leyti virðist allt hafa farið vel fram og gengið mjög vel. Það telst gott miðað við allan mannfjöldann sem var staddur á Dalvík.

Held að flestallir sem fóru á fiskidaginn hafi farið þaðan glaðir í hjarta og ánægðir með daginn. Þessi hátíð er mikil rós í hnappagat Dalvíkinga og þeim til mikils sóma. Þeir geta verið stoltir með helgina. Þetta er glæsilegt í einu orði sagt. Þarna tóku heilu fjölskyldurnar saman höndum og unnu alla helgina, buðu heim í mat og byggðu upp notalega stemmningu. Það er mikið mál að halda svona bæjarhátíð svo vel sé og allt verður saman að smella til þess. Það leikur enginn vafi á því að þetta er bæjarhátíð eins og þær gerast bestar.

Einn helsti aðall hátíðarinnar er að þar er allur matur ókeypis. Ég heyrði einhversstaðar að á annað hundrað þúsund matarskammta hafi verið grillaðir og yfir tíu tonn af sjávarfangi hafi verið borðað. Það segir allt sem segja þarf um umfang hátíðarinnar. Fiskidagurinn mikli er kominn til að vera. Það sanna vel viðtökur landsmanna við deginum og góð skipulagning heimamanna sem leggja sig alla í verkefnið. Ég þakka kærlega skipuleggjendum og aðstandendum hátíðarinnar fyrir að veita okkur góða og ánægjulega skemmtun.


mbl.is Fjölmenni á Fiskideginum mikla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. ágúst 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband