13.8.2007 | 23:21
Karl Rove kveður pólitíska tilveru George W. Bush

Þau tíðindi að Rove yfirgefi sviðið nú koma varla svosem að óvörum. Pólitískum ferli Bush forseta er að ljúka. Það styttist óðum í vaktaskipti í Hvíta húsinu. Það var komið að leiðarlokum í samstarfi þeirra hvernig sem var. Það er innan við eitt og hálft ár þar til að Bush heldur alfarinn til Crawford og fer að njóta sveitasælunnar á eftirlaunum. Það eru engar kosningar framundan og lykilverkefnum á stjórnmálaferli George W. Bush er lokið, eða í það minnsta styttist í endalokin. Bush var framan af forsetaferlinum sigursæll forseti. Hann tók við völdum með mjög naumu umboði, hafði þingið með sér lengi vel, vann eftirminnilega þingsigra árið 2002 og 2004 og hlaut endurkjör í Hvíta húsinu með nokkuð afgerandi hætti árið 2004.
Það hefur syrt í álinn fyrir þá fóstbræður Bush og Rove að undanförnu. Forsetinn hefur upplifað sögulegar fylgislægðir að undanförnu. Segja má að erfitt hafi verið fyrir hann síðasta árið, og væntanlega náðu vandræðin hámarki í nóvember 2006 þegar að repúblikanar töpuðu báðum þingdeildum. Síðan hefur valdabarátta þingdemókrata og forsetans verið háð á opinberum vettvangi og er sennilega rétt að hefjast. Hún mun standa allt þar til að yfir lýkur hjá Bush og hann yfirgefur Washington við lok forsetaferilsins í janúar 2009. Það stefnir í breytta tíma hjá repúblikönum. Ekki er víst hver hreppir hnossið um að berjast af hálfu flokksins um Hvíta húsið en breytingar verða með einum hætti eða öðrum. Það blasir við öllum.
Hlutverki Karls Rove í lykilstöðu er lokið. Hann hefur verið forsetanum mikilvægasti maðurinn á langri vegferð valdanna. Rove spilaði lykilrullu í sigri forsetans á Ann Richards í ríkisstjórakosningunum í Texas í nóvember 1994, þar sem hann lagði járnkonuna miklu sem flestir töldu að væri ósigrandi. Rove byggði upp kosningabaráttuna og lagði meginlínurnar í átökunum við Richards. Sigur vannst og forsetasonurinn, sem fram að því hafði verið talinn nokkuð misheppnaður eftir ýmislegt gloppótt og misheppnaðan stjórnmálaferil fram að því komst á pólitíska landakortið í Bandaríkjunum. Hann varð fyrsti ríkisstjórinn í sögu Texas til að vinna endurkjör til fjögurra ára árið 1998, enn og aftur með fulltyngi Rove, sem var lykilmaður í þeim afgerandi sigri (hlaut 70%) sem þá náðist.
George W. Bush ákvað að feta í fótspor föður síns árið 1999 og gaf kost á sér til embættis forseta Bandaríkjanna þegar að litríkum forsetaferli Bill Clinton var að ljúka. Hann náði útnefningu repúblikana eftir harðan slag framan af við John McCain, sem tókst að vinna í New Hampshire. Kosningabaráttu Bush var stýrt, sem fyrr, af lykilráðgjöfum hans í gegnum ríkisstjóraferilinn í Texas: þeim Karl Rove, Karen Hughes og John Allbaugh. Rove var allt í öllu sem fyrr og markaði grunnlínur kosningaslagsins og beitti öllum brögðum eins og ávallt áður í að tryggja vænlega stöðu Bush. Kosningaslagurinn við Al Gore varð gríðarlega harður og náði nýjum hæðum í kvikindislegum skotum milli herbúða aðalkandidatanna.
Strax varð ljóst að kvöldi kjördags að naumt yrði á munum og vakti öll heimsbyggðin alla kosninganóttina eftir að landið skýrðist í baráttunni. Það varð vandræðalegt áfall fyrir allar lykilsjónvarpsstöðvar Bandaríkjanna er þær breyttu spá sinni í Flórída-fylki um miðja kosningavökuna. Þar hafði Al Gore áður verið spáð sigri og var Bush spáð sigrinum eftir miklar sviptingar. Að lokum fór það svo að Flórída réði úrslitum í kosningunum - sigurvegari fylkisins varð forseti. Undir morgun lýstu sjónvarpsstöðvarnar yfir naumum sigri Bush er Flórída varð hans. Gore ákvað að véfengja þau úrslit er ljóst varð að innan við 1000 atkvæði skildu þá að. Fór hann fyrir dómstóla með mál sitt.
Eftir lagaströggl og deilur í tæpa 40 daga viðurkenndi Gore loks ósigur sinn þann 13. desember 2000 eftir að hæstiréttur Bandaríkjanna hafði fellt þann úrskurð sinn að Bush hefði unnið Flórída og ekki yrði um frekari endurtalningar að ræða. Dómurinn var þó ekki einróma í því mati og skiptist eftir frægum sögulegum fylkingum í forsetatíð William H. Rehnquist í réttinum árin 1986-2005, það tímabil sem hann leiddi réttinn. Bush sagði af sér ríkisstjóraembættinu í Texas síðla desembermánaðar 2000 og tók Rick Perry, vararíkisstjóri, við embættinu. Bush sór embættiseið sinn þann 20. janúar 2001. Með því urðu Bush-feðgarnir aðrir feðgarnir í sögu landsins til að gegna forsetaembættinu en John Adams og John Quincy Adams voru þeir fyrri.
Karl Rove fylgdi George W. Bush til Washington. Hann hreiðraði um sig í Hvíta húsinu og varð lykilmaður alls sem gerðist hjá forsetanum. Hann hélt á öllum lykiltaugum kosningabaráttunnar 2004 þar sem Bush barðist fyrir endurkjöri. Svo fór að Bush náði sigri eftir erfiða stöðu um skeið og lagði John Kerry, þrátt fyrir að Michael Moore framleiddi heimsfræga mynd til höfuðs forsetanum á kosningaári. Sögusagnir herma að sá sem hafi brosað breiðast þegar að Kerry viðurkenndi tapið í Ohio og þarmeð í kosningunum hafi verið Rove, sem hefði sagt eftir símtal Kerrys við Bush: "Well then it´s four years to go George" með bros á vör.
Síðustu árin hafa verið mörkuð af hneykslismálum og erfiðleikum. Rove flæktist í frægt hneykslismál þar sem honum var gert að sök að hafa gerst brotlegur við lög vegna uppljóstrana um starfsmann leyniþjónustunnar, CIA. Svo fór að hann var ekki ákærður en hann skaddaðist mjög í stöðu sinni við svo búið. Þau vandræði komu ofan á önnur sem þyngdu stöðu forsetans, t.d. er Harriet Ellan Miers, valkostur Bush sem dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna, náði ekki stuðningi þingrepúblikana til setu í réttinum og strandaði í því markmiði sínu að verða þriðja konan á dómarastóli í Hæstarétti.
Forsetaferill George W. Bush hefur verið stormasamur, einkennst bæði af miklum hæðum og lægðum á langri vegferð. Í gegnum öll verkefnin og alla sigrana á langri leið hefur Karl Rove verið lykilmaður og leitt allt starf hans, smátt sem stórt. Hann hefur verið nefndur maðurinn sem gerði George W. Bush að forseta og fræg bók James Moore og Wayne Slater nefndi hann Bush´s Brain. Nú kveður Karl Rove pólitíska tilveru forsetans eftir langt verk. Það styttist í pólitísk endalok Bush en áður en að því kemur yfirgefur sjálfur handritshöfundur allra sigra Bush og helstu verka hans skipið.
Það styttist nú mjög í sögulok í handritinu. Rove hefur yfirgefið sviðið og einn valdamesti maður heims þarf að halda áfram án fixersins, sem heldur nú aftur heim til Texas nokkru á undan húsbónda sínum. Stóra spurning dagsins er: hvernig mun Bush ganga að feta síðustu metrana úr embættinu og heim í heiðardalinn í Texas? Það verður giska fróðlegt að sjá tel ég.
Tengdir pistlar SFS
George W. Bush sextugur (6. júlí 2006)
![]() |
Rove kvaddi Bush með stolt í hjarta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.8.2007 kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.8.2007 | 22:11
Simon Cowell slekkur á stjörnuglampa ungstirnis
Allt frá því að ég sá fyrst American Idol fyrir eitthvað um fimm árum síðan hef ég átt erfitt með að þola Simon Cowell. Skapköst hans hafa verið umtöluð og annaðhvort dýrkar fólk karakterinn eða gjörsamlega hatar hann út af lífinu, held ég. Hef oft spáð í hvernig að meðdómurum hans, Paulu Abdul og Randy Jackson, gangi að umbera hann. Simon er talin ein helsta stjarna þáttanna og fær fúlgur fjár fyrir dómarastörfin þar og í öðrum útgáfum ýmissa söngkeppna.
Fyrir nokkrum vikum bræddi hin sex ára Connie Talbot hug og hjörtu sjónvarpsáhorfenda í Bretlandi og víðar um heim þegar að hún söng undurljúft hið gamalkunna úrvalslag Somewhere Over the Rainbow, sem Judy Garland gerði ódauðlegt í hinni einstöku The Wizard of Oz, fyrir um sjötíu árum og hlaut óskarinn sem besta kvikmyndalagið á óskarsverðlaunahátíðinni árið 1940. Lagið varð lykillag á litríkum ferli Judy og markaði feril hennar. Connie sló í gegn með laginu en tókst þó ekki að vinna Britain´s Got Talent og tapaði fyrir Paul Potts sem söng Nessun Dorma með bravúr.
Nú hefur Simon eftir því sem fréttir herma svikið ungstirnið um stjörnuframann sem hann hafði lofað henni. Þetta er frétt sem víða hefur farið um helgina og í dag. Þessi frétt getur varla talist til frægðarauka fyrir Bretann skapmikla. Þó svo að Connie hafi ekki tekist að vinna keppnina stóð hún að mörgu leyti upp sem sigurvegari, ekki síður en Paul Potts og heillaði fólk með frammistöðu sinni. Þessi frétt um að Simon hafi slökkt á glampanum sem hann lofaði stelpunni er með hreinum ólíkindum að flestra mati. Eins og fram kemur í fréttinni eiga foreldrar stelpunnar eftir að segja henni stöðu mála. Varla verður það auðvelt.
Það verður fróðlegt að sjá hversu lengi American Idol og þessir helstu þættir sem þeim fylgja munu halda áfram frægðargöngu sinni. Hér heima vorum við með Idol um skeið á Stöð 2 en í fyrra voru X-Factor þættirnir settir á í staðinn. Þeir verða ekki í vetur í því formi sem var á síðasta ári og mér skilst að ekki verði söngkeppni með sama brag hér heima lengur, þ.e.a.s. að farið verði um landið og nýjir talentar uppgötvaðir. Formúlan virðist ganga betur úti, enn sem komið er.
Vil annars minna á að Over the Rainbow, í flutningi Judy Garland, og Nessun Dorma, í flutningi tenóranna þriggja; Domingo, Carreras og Pavarotti, eru hér í tónlistarspilaranum.
![]() |
Simon Cowell sveik sex ára gamla stúlku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.8.2007 | 13:25
Jón Sigurðsson heldur til starfa í HR
Það eru þrír mánuðir liðnir frá því að Framsóknarflokkurinn varð fyrir sögulegu kosningaafhroði og Jón Sigurðsson sagði af sér formennsku í flokknum eftir að honum mistókst að ná kjöri á þing og hann lét af ráðherraembætti þegar að tólf ára líftíma ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks lauk. Mikið hefur verið hugleitt hvert leið hans myndi liggja síðan. Nú er biðlaunatíma Jóns að ljúka og hann að halda í nýjar áttir.
Samkvæmt fréttum mun leið hans liggja nú í Háskólann í Reykjavík þar sem hann mun sinna ýmsum verkefnum og sinna kennslu. Er það afturhvarf á gamlar slóðir, en eins og flestir vita var hann í áraraðir stjórnandi skólans á Bifröst og leiddi hann inn á háskólastigið. Jón fórnaði öruggri bankastjórastöðu við Seðlabankann fyrir rúmu ári fyrir að taka við Framsóknarflokknum og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu við lok stjórnmálaferils Halldórs Ásgrímssonar. Áhættan varð dýrkeypt. Afhroði var ekki umflúið og hann komst ekki í kjörið embætti.
Það verður fróðlegt að sjá hvað hann muni nákvæmlega taka sér fyrir hendur í Háskólanum í Reykjavík og hver kennslufög hans muni verða. Þetta afturhvarf til kennslunnar og verkefna í menntageiranum koma eflaust mörgum að óvörum, enda kannski frekar einhverjir talið að Jón vildi sækjast eftir öðrum verkefnum.
Dægurmál | Breytt 23.9.2007 kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.8.2007 | 00:59
Sigurgöngu Guðjóns í bikarnum lýkur í Árbænum

Guðjón leiddi KA-menn til Íslandsmeistaratitils fyrir um tveim áratugum eins og vel er í minnum haft hér á Akureyri. Það var ógleymanlegur titill, sem ekki allir spáðu fyrir um. Saga KA hefur verið brokkgeng síðan, ýmsir sigrar og auðvitað ósigrar. Sumarið 1989 er gullnu letri skráð í sögu KA-liðsins að sjálfsögðu og það gleymist seint. Þáttur Guðjóns í titlinum telst vissulega mikill. Síðar tókst honum að leiða Skagann til fjölmargra titla. Lægst náði leið hans væntanlega með Stoke, en það mikla ævintýri varð ekki eins farsælt og stefnt var að og því lauk með að hann var rekinn frá klúbbnum.
Guðjón hefur jafnan verið umdeildur í sínum bransa, jafnan þekktur fyrir skap sitt og keppnisanda sem fer ekki framhjá neinum. Þetta sumar er ekki það lágstemmdasta á ferli hans, en flestum er í minni leikur Skagamanna við Keflvíkinga á Skaganum fyrir nokkrum vikum sem lauk með umdeildum sigri heimamanna sem tekist var á um í kastljósi fjölmiðla um nokkurt skeið á eftir og einkenndist af þungum skotum milli aðila. En það lægði yfir eftir alla fjölmiðlahörkuna.
En nú er sigurgöngu Guðjóns í bikarnum lokið á sama sumri. Það verður fróðlegt að sjá hvernig árangur Skagamanna verður við lok tímabilsins nú þegar að bikardraumurinn er úr sögunni hjá Skagamönnum.
![]() |
Halldór skoraði tvö og kom Fylki í undanúrslit VISA-bikarsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 01:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)