14.8.2007 | 17:23
Boli hent út af Moggablogginu?
Ég tók eftir því áðan að stjórnendur Moggabloggsins hafa lokað á Bol Bolsson, sem skrifaði undir nafnleynd hér misstuttar færslur um fréttirnar á kerfinu. Hann er horfinn af öllum listum að því er virðist. Veit ekki hvað hefur gerst en svo virðist vera sem að lokað hafi verið á hann. Enn og aftur minna stjórnendur vefsins á að fylgst er með þeim sem skrifa og ef þeir brjóta vefreglur að mati stjórnenda geta þeir átt það á hættu að vera settir út.
Þetta bloggsvæði er í einkaeigu. Þar gilda reglur og þar er standard yfir. Rjúfi menn grunnskilmálana hér geta þeir átt von á að lenda í því að lokað sé á þá. Þetta er ekki bloggkerfi án reglna og skilmála. Eins og í flestum samfélögum eru þar viss grunnur og það er skýrt hvernig það allt er hér. Ég treysti þeim hér á Moggablogginu til að stjórna þessum vettvangi með heiðarlegum hætti og standa vörð um að hér sé viss standard á umgjörðinni.
Það er auðvitað svo með opin bloggkerfi að þar safnast saman ólíkt fólk, með ólíkar aðferðir til að tjá sig. Flestir hér eru mjög málefnalegir og hafa góðar bloggsíður. Skilaboðin sem hafa verið send héðan, t.d. eftir frægt mál Emils Ólafssonar, eru þau að þetta samfélag er ekki stjórnlaust og þar er tekið á vandamálum að mati stjórnenda.
Þegar á hólminn kemur skiptir það mestu máli; að þetta bloggsamfélag haldist öflugt. Hér eiga allir sín tækifæri til að skrifa. Það má vel vera að flestir bloggarar hér hafi ólíkar skoðanir og aðferðir við að tjá sig. Mestu skiptir að haldast málefnalegur og geta rætt hlutina með heiðarlegum hætti. Án þess er ekkert vit í hlutunum.

Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
14.8.2007 | 15:35
Vegagerðin ber fulla ábyrgð á ferjumálinu
Það þarf svosem ekki að leita langt að þeim sem ber ábyrgð á þessu máli að mínu mati. Þar verður horft til Vegagerðarinnar. Það er eitthvað stórlega að þeim sem kennir öðrum um þetta. Mér finnst það t.d. frekar fjarstæðukennt hjá samgönguráðherranum að kenna einhverjum ráðgjafa um skandalinn. Þegar á hólminn kemur er Vegagerðinni um að kenna og þangað verður horft, ekki til ráðgjafa.
Það er Vegagerðarinnar að meta ráðgjöfina sem á borðinu er og hennar er ákvörðunin. Þetta hefur Jón Rögnvaldsson, vegamálastjóri, viðurkennt með mjög áberandi hætti, en hann tók sökina á sig og sína stofnun í hádegisviðtalinu á Stöð 2. Það verður spurt um það á næstunni hvort vegamálastjóra sé sætt í þessari stöðu. Væntanlega mun stjórnsýsluúttekt á stofnun hans ráða framtíð hans í starfi.
En mér finnst það ekki nokkur vafi eiga að leika á að einhver verður að taka fulla ábyrgð á þessu mikla klúðri.
![]() |
Vegamálastjóri segir að taka verði aðfinnslur Ríkisendurskoðunar alvarlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.8.2007 | 12:43
Stórfelld mistök í málefnum Grímseyjarferjunnar
Ég hef alla tíð verið þeirrar skoðunar að kaupa hafi átt nýja ferju. Sorgarsagan á bakvið kaupin á því skipi sem fyrir valinu varð að lokum er orðin löng og ömurleg í alla staði. Það voru mikil mistök að gera ekki eins og gert var varðandi Baldur á Breiðafirði að kaupa nýja ferju og hafa hana almennilega. Eða íhuga það að nota frekar gamla Sæfara áfram. Það hefði ekki verið verran en þessi aflóga dallur sem valinn var. Þessi ferja sem kom frá Írlandi og var ætluð Grímseyingum var svo illa farin að hún er enn í extreme makeover-meðferð í Hafnarfirði og sér ekki enn fyrir endann á því verklagi.
Það er alveg ljóst að þessi skýrsla er það svört að eftirmálar verða með einum hætti eða öðrum. Það er bara mjög einfalt mál í sjálfu sér. Vont verklag í málinu hlýtur að leiða til uppstokkunar verkferla og vinnulags við slíkar framkvæmdir. Það segir sig sjálft að þegar að endurbætur á ferju fara úr 150 milljóna skipulögðum pakka í yfir 500 milljónir að eitthvað stórfellt sé í raun að. Eðlilegast er að stjórnsýsluúttekt fari fram á þessu máli og það verði rannsakað í hörgul. Annað er ekki verjandi í þessu svarta máli.
![]() |
Vandamálin má rekja til ófullnægjandi undirbúnings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.8.2007 | 02:24
Mun Eiður Smári þurfa að lækka launaprísinn?

Svo virðist sem að launakröfur Eiðs Smára séu metnar of háar í Bretlandi. Það er ekki óeðlilegt eins og komið er ef varaliðsseta er það sem blasir við leikmanninum og jafnvel heilsuvandamál komin til sögunnar. Það er því ekki bjartir tímar í sjónmáli hjá Eiði Smára. Það verður fróðlegt að sjá hvað tekur nú við. Heilsan er lykilmál í bransanum og vonandi að Eiður Smári muni ná sér fljótt og vel af því sem að hrjáir hann. Það hlýtur að skipta hann mestu máli í þessari stöðu, enda ræður það algjörlega framhaldinu.
Það er ekki óeðlilegt að sú spurning vakni núna um hvort að Eiður Smári verði að lækka launaprísinn. Það er greinilegt að verðið og eftirspurnin er ekki eins mikil og talað var um. Hik er komið á bresku liðin. Það verður því auðvitað athyglisvert að sjá hvað tekur við. Orðrómur hefur verið um að Eiður Smári færi til Íslendingaliðsins West Ham og Manchester United svo nokkur séu nefnd. Svo virðist vera sem að tími Eiðs Smára í Barcelona, eftir rúmlega ársvist, sé að líða undir lok ef marka má fréttir og orðróm.
Þegar að því kemur að semja um vistaskiptin skiptir fátt meira máli en launaprísinn, ef frá er skilið heilsa leikmannsins. Það verður fróðlegt að sjá hvort að fyrsta skref Eiðs Smára þegar að hann fer frá Spáni verði að lækka launin og feta einhver skref niður á við.
![]() |
Segir launakröfur Eiðs Smára háar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)