Svæðisútvarp Norðurlands 25 ára

Í gær var aldarfjórðungur, 25 ár, liðinn frá því að Svæðisútvarp Norðurlands, RÚVAK, hóf útsendingar sínar. Tilkoma Svæðisútvarpsins hefur markað þáttaskil í fréttaflutningi héðan að norðan en beinar svæðistengdar útsendingar á fréttum hafa staðið mestan hluta þessa tíma. Framan af voru þó aðeins dagskrártengdir þættir framleiddir hjá RÚVAK. Jónas Jónasson, útvarpsmaður, leiddi starfið fyrstu skrefin og var allt í öllu á fyrstu árunum í starfinu. Jónas lýsti fyrstu skrefum svæðisútvarpsins í skemmtilegu viðtali á Morgunvaktinni á Rás 1 í gærmorgun.

Svæðisútvarp Norðurlands er okkur hér mikilvægt. Ég hlusta alla daga á fréttirnar þar, annaðhvort í gegnum útvarpið eða í dagslok á rúv.is, en nú eru fréttirnar orðnar aðgengilegar þar. Fyrir okkur sem fylgjumst með málum hérna heima er svæðisútvarpið mikilvægur punktur í dagsins önn og þar hefur gott starf verið unnið.

Ég óska Svæðisútvarpinu okkar innilega til hamingju með afmælið og farsællar framtíðar.


Bloggfærslur 15. ágúst 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband