Daryl Hannah verður Íslandsvinur

Daryl Hannah Samkvæmt fréttum er leikkonan Daryl Hannah nú við veiðar í Vatnsdalsá. Sennilega er hún þar með orðin Íslandsvinur, verða það annars ekki allar frægar stjörnur sem einu sinni koma til landsins, sama í hvaða tilgangi það er? Daryl Hannah er þekkt fyrir brokkgengan leikferil sinn undanfarna rúma tvo áratugi, en ekki síður fyrir að vera stóra ástin í lífi Johns F. Kennedys yngri, yngsta barns John F. Kennedy, 35. forseta Bandaríkjanna, sem var myrtur í Dallas árið 1963, og Jacqueline Bouvier Kennedy Onassis.

JFK yngri, sem kvaddi föður sinn eftirminnilega á þriðja ári hinsta sinni með hermannakveðju við útför hans í Washington, var mikill kvennamaður alla tíð. Hann erfði hið gríska útlit móður sinnar og Bouvier-fjölskyldunnar og þótti einn myndarlegasti piparsveinn sinnar kynslóðar. Hann átti fleiri sambönd en tölu var á komandi í raun og svar sig í Kennedy-ættina en fræg ástarsambönd föður hans fyrir forsetaferilinn og á meðan að honum stóð voru goðsagnakennd eftir dauða hans og sennilega var samband hans við leikkonuna Marilyn Monroe þar einna frægast, en kynbomban söng afmælissönginn fyrir Kennedy er hann varð 45 ára árið 1962, skömmu áður en hún lést með sviplegum hætti.

JFK yngri sótti í faðm leikkvenna eins og faðirinn forðum. Ást ævi hans varð leikkonan Daryl Hannah, sem var jafngömul honum, fædd árið 1960, árið sem John F. Kennedy var kjörinn forseti Bandaríkjanna í einum tvísýnustu forsetakosningum bandarískrar stjórnmálasögu, þó ekki slái það út baráttuna hatrömmu um Flórída á aldamótaárinu á milli Bush og Gore, sem margir efast enn um hvor hafi unnið. Jackie Onassis varð æfareið yfir ráðahag sonarins og Hannah og lagðist mjög gegn honum með ráðum og dáð. Hún hafði sitt fram og áður en hún lést úr krabbameini árið 1994 hafði sonurinn lofað henni að gleyma Daryl. Samband þeirra varði opinberlega séð í fimm ár.

Daryl Hannah syrgði John mjög þegar að hann lést ásamt eiginkonu sinni og mágkonu í flugslysi í Massachusetts sumarið 1999 en hefur ekki talað mikið opinberlega um sambandið eftir að hann dó. Leikferill Daryl hefur eins og fyrr segir verið brokkgengur. Hæst reis hann sennilega með kvikmyndinni Splash en hún varð endanlega heimsfræg fyrir að leika hafmeyjuna Madison ekki síður en Tom Hanks sló þar einna fyrst almennilega í gegn, þó vissulega hafi hún verið í lykilmyndinni Blade Runner skömmu áður. Myndin er enn í dag frábær og er helst tengd við Hannah.

Ekki síður var túlkun hennar á Roxanne í samnefndri mynd árið 1987 góð, en þar var sagan af Cyrano de Bergerac endursögð á nútímann með bravúr. Steve Martin átti snilldartakta þar á móti Hannah. Hún lék framakonuna Dorian í Wall Street sama ár, á móti Michael Douglas, sem hlaut óskarinn fyrir túlkun sína á hinum últra-gráðuga Gordon Gekko, og Charlie Sheen, átti flotta takta sem Chelsea á móti Robert Redford í Legal Eagles á svipuðum tíma og var í The Pope of Greenwich Village, gríðarlega vel leikinni mynd, sérstaklega blómstrar hin gamalreynda Geraldine Page þar.

Í seinni tíð hefur sigið á ógæfuhliðina. Áður en botninum var náð átti hún stjörnuleik í hlutverki hinnar feimnu hárgreiðslukonu Annelle í kvennamyndinni Steel Magnolias þar sem saman kemur leikkvennafans þess tíma. Ennfremur var Daryl í essinu sínu sem Melanie, dóttir Gustafsons (í túlkun meistara Lemmons) í Grumpy Old Men, en þar áttu snillingarnir Lemmon og Matthau besta leik sinn saman á seinni árum. Framhaldsmynd var gerð skömmu síðar vegna vinsælda myndarinnar. En Daryl datt út af vinsældakortinu á þessum tíma og átti vægast sagt mögur ár.

Hún komst aftur á kortið þegar að Quentin Tarantino valdi hana fyrir nokkrum árum til að leika vákvendið Elle Driver í Kill Bill-myndunum, sem var eins og flestir muna með lepp yfir öðru auganu. Ekki beint árennileg. Það var vægast sagt ekki margt sem minnti þar á hafmeyjuna Madison forðum daga í Splash. Daryl átti líka notalegt gestahlutverk í þáttunum Frasier á þessum tíma og virðist hafa náð að rétta eitthvað úr kútnum. Virðist allavega enn fá hlutverk til að moða úr.

Daryl hefur þegar veitt þrjá laxa, svo að þetta verður væntanlega velheppnaður veiðitúr. En já, hún er víst orðin Íslandsvinur, er það ekki bara?

mbl.is Hafmeyjan lokkaði til sín lax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþjóðlegur fjárfestingabanki opnar á Akureyri

Saga Capital Það er ánægjulegt að fjárfestingabankinn Saga Capital hafi hafið starfsemi hér á Akureyri. Ekki aðeins er þetta nyrsti fjárfestingabanki landsins heldur og vonandi upphaf á nýjum og skemmtilegum tíma hér á Akureyri. Það er ánægjulegt að menn hafi þann kraft og áhuga að byrja með svo metnaðarfullan bissness hér í heimsbænum Akureyri og skapi eitthvað nýtt og ferskt.

Það er sérstaklega ánægjulegt auðvitað að sjá gamla góða barnaskólann vakna til lífsins aftur, gamla skólann sem Hanna amma og hennar kynslóð nam sín gullnu fræði í og var lykilmenntastofnun hér um áraraðir. Þetta hús var því miður engan veginn jafn reisulegt hin seinni árin og það á að vera. Því hefur nú verið breytt og er nú miðstöð viðskipta og nýsköpunar. Yfir því gleðjumst við hinir sönnu Akureyringar.

Ég vil óska aðstandendum Saga Capital góðs gengis og vona að þeim muni ganga vel í sínum bransa, en forstjórinn, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, er gamall félagi úr ungliðapólitíkinni en hann var einn forvera minna sem formaður Varðar og var virkur í ungliðastarfinu hér fyrir rétt um tveim áratugum og í SUS, skömmu áður en ég gekk í flokkinn. Það er gott að hann komi aftur hingað og byggi svo metnaðarfullt fyrirtæki upp. Þetta er sannkallaður gleðidagur hér á Akureyri.

mbl.is Nýr fjárfestingabanki opnaður á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Deilt um ábyrgð á ferjuklúðri - hjólað í ráðherra

Árni M. Mathiesen Það vakti mikla athygli í vikunni þegar að Ríkisendurskoðun hjólaði í Árna M. Mathiesen, fjármálaráðherra, og gaf út hvassorða yfirlýsingu vegna ummæla hans um það mikla klúður sem opinberast hefur vegna Grímseyjarferjunnar. Ég man satt best að segja ekki eftir að Rendi hafi hjólað svo harkalega í ráðherra áður, það er þá allavega orðið óralangt síðan. Það var bara gefið trukkinn í þrusubotn. Það leikur enginn vafi á því að þetta er hitamál og það er eins og ég hef áður sagt mikilvægt að einhver taki á því fulla ábyrgð.

Það er auðvitað ekki hægt annað en að líta til fjármála- og samgönguráðherra þessa tíma. Mér finnst það óhugsandi annað en að einhver vitneskja hafi verið í ráðuneytunum með hversu alvarleg staða þessa máls var. Mér finnst það ekki trúverðugt að svo massív framúrkeyrsla og klúður hafi farið framhjá ráðherrum sem eiga að vera starfi sínu vaxnir. Eftir því sem ég heyrði um daginn er talað um að kostnaður við ferjuna fari yfir 600 milljónir og heildarkostnaður því orðinn meiri en ef keypt hefði verið ný ferja handa Grímseyingum. Svo að ekki verður litið framhjá því að um stórhneyksli er að ræða.

Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis og fyrrum samgönguráðherra, er í því erfiða hlutverki að Ríkisendurskoðun heyrir undir Alþingi og því á hann erfitt um vik að mörgu leyti með að tjá sig. Hann sendi þó frá sér yfirlýsingu um daginn sem ég gat ekki túlkað öðruvísi en sem óskiljanlega að mörgu leyti. Það var margt sem kallaði á enn frekari spurningar eftir hana. Það er vísað í margar áttir í þessu máli. Hlægilegast fannst mér þegar að Kristján L. Möller, samgönguráðherra, vísaði boltanum í upphafi til skipaverkfræðingsins eins og hann ætti að vera einhver fallkandídat í þessu máli. Endemis klúður - það var fyrsta hugsun mín þegar að það heyrðist frá ráðherranum sem var fjarri því sannfærandi.

Það þarf engan sérfræðing til að sjá að staða ráðherranna tveggja á þessum tíma er erfið. Staða Sturlu er sérstaklega erfið. Ekki aðeins heyrir Ríkisendurskoðun undir þingið heldur líka fjárveitingavaldið, sem gengið var framhjá með áberandi hætti í þessu máli. Svo að þunginn á honum er síst minni nú en áður í ljósi þess að hann er hættur sem ráðherra málaflokksins. Heilt yfir finnst mér að það verði einhver að taka ábyrgð vegna málsins. Það þarf að leiða alla þætti málsins í ljós. Hversvegna þetta tiltekna skip var keypt og svona mætti lengi telja. Spurningarnar eru eiginlega óteljandi margar við fyrstu sýn.

Sagan mun eflaust dæma málefni nýju Grímseyjarferjunnar sem mjög stórt pólitískt hneykslismál. Það verður fróðlegt að sjá hvort að það verði líka þekkt sem mál sem leiddi til þess að pólitískt kjörnir fulltrúar tóku fulla ábyrgð á klúðrinu.

Bloggfærslur 24. ágúst 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband