9.8.2007 | 13:24
Undarleg ákvörðun - pólitísk krísa á Akureyri
Það hefur ekki farið framhjá neinum manni að mikil pólitísk krísa hefur skapast hér á Akureyri vegna þeirrar ákvörðunar bæjaryfirvalda að meina 18-23 ára fólki aðgang að tjaldsvæðum bæjarins. Mikið hefur verið rætt og ritað um þessi mál. Um það verður ekki deilt að hátíðarhöldin um verslunarmannahelgina hér á Akureyri voru háð meira og minna í skugga þessarar ákvörðunar sem var umdeild og hefur verið tekist á um hana í kastljósi fjölmiðla, sem er að mörgu leyti mjög eðlilegt.
Mér fannst þessi ákvörðun bæjaryfirvalda með hreinum ólíkindum, einkum og sér í lagi að 18-23 ára einstaklingar eru orðnir lögráða. Ég hef hvergi á nokkrum vettvangi sem ég hef fylgst með og heyrt rökstuðninga með og á móti þessum fáránlegu aldurstakmörkum heyrt þeirri spurningu svarað af hverju mörkin voru sett við 23 ára aldur. Af hverju ekki 22 ára, nú eða 24 ára, eða kannski 25 ára? Þessi tala meikar verulega lítinn sens í huga mér og hef ég velt þessu máli verulega fyrir mér. 20 ára aldurstakmark hefði kannski verið skiljanlegt að vissu marki vegna áfengiskaupaaldurs, þó að það sé samt á gráu svæði í huga margra.
Ég stóð í þeirri trú fyrir þessa verslunarmannahelgi að tekin hefði verið sú ákvörðun að hafa aldurstakmarkið 18 ár. Enda var það í sjálfu sér varla svo fáránlegt viðmið. Við erum öll sjálfráða 18 ára og getum gert flest það sem okkur dettur í hug. Það að taka ákvörðun um að fara til Akureyrar og dvelja þar yfir helgi telst varla ólöglegt þegar að maður hefur náð átján ára aldri og getur sett sér sínar lífsins reglur að mestu leyti sjálfur með tilliti til lagabókstafsins í það minnsta. Það að fá sér í glas ætti líka að vera eigin ákvörðun á þessum aldri. Það leiðir vissulega hugann að því hversvegna áfengiskaupaaldri hefur ekki verið breytt og hann settur við hlið 18 ára aldurs.
Mér fannst þessi ákvörðun verulegt pólitískt klúður hjá meirihluta Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri, kom ekki vel frá þessu máli. Í hita leiksins og þegar að ólgan jókst sífellt var það allt í einu skátunum að kenna að þessi aldursmörk voru sett. Þegar að í ljós var komið að ekki var meirihluti í bæjarstjórn Akureyrar við þetta 23 ára aldurstakmark var málið að mestu leyti fallið. Þetta er enda að mínu mati gjörsamlega óverjandi ákvörðun og ég hef ekki á nokkrum vettvangi heyrt sannfærandi vörn í þessu máli frá bæjarstjóra. Ég tel að þetta verði talin vond ákvörðun bæði nú sem síðar. Þetta var óskiljanleg ákvörðun líka.
Það fer mjög í taugarnar á mér að Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri standi að því að setja slík aldursviðmið. Ég hélt að flokkurinn sem ég hefði unnið fyrir hér árum saman stæði fyrir eitthvað allt annað en þessa ákvörðun. Um er því að ræða mikið persónulegt áfall að svo mörgu leyti. Um er að ræða ákvörðun sem ég get engan veginn stutt og ég mótmæli henni harðlega. Þetta er ákvörðun sem hélt ekki vatni og að mörgu leyti var lagt á flótta með hana um leið og hún hafði í raun verið tekin. Hún varð veruleiki mjög seint, svo seint reyndar að öll kynningarblöð tengd hátíðinni voru merkt því að átján ára aldurstakmark væri á tjaldsvæðin.
Vissulega var veðrið vont um helgina og það hafði sín áhrif. Það hafði líka þessi ákvörðun og ímyndin sem vofði yfir Akureyri þessa helgina var að hér væri fólk á þessum aldursmörkum, 18-23 ára, ekki velkomið og það væri í straffi. Það er ólíðandi að mínu mati og það er undarlegt að enn skuli jafnvel haldið í það að þessi aldursmörk verði sett aftur. Það verður að taka af skarið strax. Svona klúður má einfaldlega ekki gerast aftur í höfuðstað Norðurlands. Ég studdi ákvörðun um að leggja af sérstök ungmennatjaldsvæði en ég mun aldrei geta varið að loka tjaldsvæðin fyrir lögráða fólki. Það er alveg einfalt mál í sjálfu sér.
Nú er hafin undirskriftasöfnun gegn þessari ákvörðun og gegn bæjaryfirvöldum, einkum bæjarstjóranum á Akureyri. Ég fæ ekki betur séð en að um sé að ræða mikla pólitíska krísu. Það kemur mér ekki að óvörum að ólga vakni vegna þessa máls. Sjálfur hef ég hugleitt mjög undanfarna daga hvort ég geti hreinlega stutt stjórnmálaflokk sem stendur að svona ákvörðun og svona verklagi. Tíminn verður að leiða það í ljós.
![]() |
Hvetja til afsagnar bæjarstjórnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.8.2007 | 12:58
Kærar þakkir
Það var mjög athyglisvert að sjá skrif Fréttablaðsins um þessa vefsíðu fyrr í vikunni. Mér fannst þau skrif fyrir neðan allar hellur og eiginlega til skammar fyrir blað af þessari stærðargráðu. Þessi vefsíða fór ekki í neitt persónulegt sumarfrí til sólarhressingar, heldur vegna þess að alvarleg veikindi voru í fjölskyldu minni og ég hafði einfaldlega ekki styrk til að standa í miklum skrifum. Það er eitt skref að horfast í augu við alvarleg veikindi foreldris, annað að halda áfram á sama krafti og ég tók einn pakkann í einu í því öllu saman.
Það er mjög merkilegt að sjá hvernig að Fréttablaðið amast þar við því að ég skrifi bloggfærslur út frá fréttum Morgunblaðsins á mbl.is. Þetta væl er farið að fara vægast sagt verulega í taugarnar á mér. Morgunblaðið býður upp á það að bloggað sé út frá fréttum. Það er valkostur fyrir alla bloggara, ekki bara mig. Ef blaðamaður Fréttablaðsins ætlar að gefa í skyn að ég kóperi fréttir og segi aldrei skoðanir mínar eða eigin hugleiðingar á atburðum samfélagsins vil ég vísa því algjörlega á bug sem óhróðri.
Mér fannst þessi skrif ekki til sóma Fréttablaðinu og hugleiði hvað búi að baki þeim. Fréttablaðið vil ég ekki sjá eftir þessi skrif og hef gefið það vel til kynna. Blað af svo skítlegri breiddargráðu er ekki velkomið inn á mitt heimili.